18.02.1958
Sameinað þing: 27. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1789 í B-deild Alþingistíðinda. (3008)
Fríverslunarmálið
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Umr. þær um stofnun fríverzlunarsvæðis í Evrópu, sem staðið hafa nær óslitið nú í heilt ár, eiga sér langan aðdraganda. Hugmyndin um fríverzlunarsvæði er ávöxtur langrar þróunar í efnahagsmálum Evrópu og skoðana, sem smám saman hafa verið að þróazt með þjóðum álfunnar varðandi alþjóðaviðskipti.
Heimsstyrjöldin síðari gerbreytti viðhorfi manna í efnahagsmálum og alþjóðasamstarfi. Þegar á styrjaldarárunum varð það ljóst, að ekki yrði horfið aftur til sama skipulags um utanríkis- og viðskiptamál og ríkt hafði fyrir styrjöldina. Mönnum var ljós nauðsyn þess, að komið yrði á sterku alþjóðlegu samstarfi til að tryggja jafnvægi í alþjóðaviðskiptum, svo að unnt yrði að koma á frjálsari viðskiptaháttum en ríkt höfðu eftir kreppuna miklu, án þess þó að takmarka frelsi einstakra landa til þess að fylgja eigin stefnu í efnahagsmálum, fjármálum og félagsmálum innanlands eða stofna efnahagslegu öryggi einstakra þjóða í hættu. Í þessum tilgangi voru settar á stofn nýjar alþjóðastofnanir: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Alþjóðabankinn og Alþjóðatollasamtökin. Jafnframt komu fram hugmyndir um það, að innan hins nýja alþjóðakerfis yrði að koma á nánara samstarfi á milli þjóða innan ákveðinna heimshluta. Mönnum var ljóst, að mörg mál yrðu frekar leyst á þeim grundvelli, en með samtökum allra þjóða heims, en flest einstök þjóðríki væru efnahagslega of litlar einingar til þess að geta nýtt á hinn hagkvæmasta hátt auðlindir sínar og framleiðslugetu. Þannig efldist mjög í Evrópu hreyfing þeirra manna, er vildu koma á nánu samstarfi Evrópuríkja eða jafnvel setja á fót Bandaríki Evrópu.
Verulegur skriður komst fyrst á þessi mál með stofnun Efnahagssamvinnustofnunar Evrópu (OEEC) fyrir tæpum 10 árum, 16. apríl 1948. Hið mikla öngþveiti, sem efnahagsmál Evrópu voru komin í eftir styrjöldina, gerði þetta stamstarf lífsnauðsynlegt. En þó má að verulegu leyti þakka þann árangur, sem náðist, a. m. k. fyrstu árin, hinni miklu efnahagsaðstoð Bandaríkjanna til Evrópu, sem í raun og veru varð grundvöllur að stofnun Efnahagssamvinnustofnunarinnar. Hér er ekki ástæða til þess að rekja starfsemi þessarar stofnunar, enda er hún flestum vel kunn. Mikill árangur hefur orðið af starfsemi hennar, t. d. stofnun Greiðslubandalags Evrópu og samningum um aukið frjálsræði í viðskiptum, en hvort tveggja hefur orðið til þess að skapa skilyrði til stórkostlega aukinna viðskipta Vestur-Evrópuþjóða.
Langt er samt síðan það kom í ljós, að sterk öfl innan Evrópu vildu koma á miklu nánara samstarfi, en gert er ráð fyrir í sáttmála Efnahagssamvinnustofnunarinnar, þar sem hverju einstöku þátttökuríki er veitt neitunarvald í öllum málum. Um raunverulegt afsal sjálfsákvörðunarréttar í hendur Efnahagssamvinnustofnunarinnar er því ekki að ræða, og sú kvöð, sem lögð er á einstök þátttökuríki, er í eðli sínu hin sama og þegar um venjulega milliríkjasamninga er að ræða. Þeir, sem lengra vildu ganga, hafa hins vegar haft það að markmiði, að komið yrði á fót stofnunum, er hefðu úrskurðarvald í ákveðnum málum, úrskurðarvald, sem einstök þátttökuríki yrðu að beygja sig undir.
Þessi stefna hefur átt miklu fylgi að fagna á meginlandi Evrópu, einkum í Frakklandi, Ítalíu, Þýzkalandi og Norðurlöndum, og fyrir mörgum forustumönnum hennar vakir í raun og veru, að fyrr eða síðar verði komið á fót Bandaríkjum Evrópu. Fyrsta skrefið, sem stigið var í átt til slíks samstarfs, var stofnun kola- og stálhrings Evrópu árið 1951. Þá var komið á fót allsherjarstofnun, er hafa skyldi yfirstjórn allra mála, er varða kol- og stálframleiðslu og viðskipti með þessar vörur í þátttökuríkjunum, en þau voru sex: Frakkland, Ítalía, Þýzkaland og Beneluxlöndin þrjú, Belgía Holland og Lúxembúrg. Þessi lönd hafa síðan orðið kjarni þeirrar hreyfingar að koma á nánara efnahagskerfi innan Evrópu, leynt og ljóst, í þeim tilgangi, að það yrði skref í átt til stjórnmálalegrar sameiningar.
Hin ellefu aðildarríki að Efnahagssamvinnustofnuninni hafa hins vegar viljað fara aðra leið, þ. e. a. s., þau hafa viljað auka efnahagslegt samstarf án þess þó að afsala sér nokkru sinni sjálfsákvörðunarrétti í mikilvægum málum til alþjóðastofnananna. Í hópi þessara landa eru fjórar þjóðir, sem gætt hafa hlutleysis í alþjóðamálum: Austurríki, Sviss, Svíþjóð og Írland. Afstaða Breta hefur mjög markazt af því, hve náin tengsl þeir hafa við þjóðir utan Evrópu. Norðurlöndin hafa ekki heldur talið sig geta átt svo náið samstarf í efnahagsmálum og félagsmálum við löndin fyrir sunnan þau á meginlandinu eins og tollabandalagið gerir ráð fyrir. Hins vegar hafa Norðurlöndin nú um nokkurra ára skeið verið að undirbúa stofnun hugsanlegs tollabandalags Norðurlanda, og liggja fyrir ákveðnar tillögur í því efni.
Sexveldin, sem áður eru nefnd, hófu fyrir þrem árum samning um stóraukið efnahagssamstarf sín í milli, og lauk þeim samningum með því, að hinn 25. marz 1957 var undirritaður í Róm samningur um sameiginlegan markað eða tollabandalag sex Evrópuþjóða: Frakklands, Ítalíu, Þýzkalands, Hollands, Belgíu og Lúxembúrgar. Þessi samningur markaði í raun og veru þáttaskil í þessum málum, og er nauðsynlegt, að gerð sé allýtarleg grein fyrir efni hans og tilgangi.
Með Rómarsamningnum er komið á fót samtökum, sem nefnd eru Efnahagsbandalag Evrópu (European Economic Community). Einnig hafa þessi samtök gengið undir nafninu: Hinn sameiginlegi markaður (Common D'Iarket). Hér er um að ræða mjög náið samstarf, og verður komið upp mjög sterkum og áhrifaríkum stofnunum til þess að sjá um málefni samtakanna og taka mikilvægar ákvarðanir. Þessar stofnanir eru þær, sem nú skal greina:
1) Ráðherranefnd, sem mun starfa í umboði ríkisstjórna viðkomandi landa. Munu fulltrúarnir hafa jafnan atkvæðisrétt í sumum málum, en í öðrum munu Frakkland, Þýzkaland og Ítalía hafa fjögur atkvæði hvert, en Belgía og Holland tvö atkvæði hvort og Lúxembúrg eitt atkvæði.
2) Framkvæmdaráð níu embættismanna, sem kosið er af ráðherranefndinni.
3) Þingmannaráð, sem kosið verður til fimm ára af þingum viðkomandi landa.
4) Sjö manna dómstóll, sem sker úr um deiluatriði.
5) Efnahags- og félagsmálaráð, sem verður ráðgefandi.
6) Peningamálaráð, sem mun gefa ráð um samræmda stefnu í peningamálum þátttökuríkjanna.
7) Framkvæmdabanki Evrópu og Uppbyggingarlánasjóður.
Rómarsamningurinn gerir ráð fyrir því, að stofnað verði algert tollabandalag hinna sex þátttökuríkja. Allir tollar og öll innflutningshöft þeirra á milli skulu afnumin, en gagnvart ríkjum utan sexveldasvæðisins skal gilda sameiginlegur tollur í öllum löndunum, en tolltekjunum verði síðan skipt þeirra á milli í ákveðnum hlutföllum. Ekki er þó tilgangurinn, að þetta gerist allt um leið og samningurinn gengur í gildi, heldur er gert ráð fyrir því, að tollarnir lækki smám saman á 12-15 ára tímabili, unz þeir eru að fullu úr sögunni, og öll höft á innflutningi falli niður á sama tíma. Við þessar tollalækkanir á að ganga út frá þeim tollum, sem í gildi voru í í ársbyrjun 1957. Jafnframt þessu á svo smám saman að taka upp sameiginlega tolla gagnvart aðilum utan svæðisins, og eiga þessir tollar að byggjast að verulegu leyti á meðaltali tolla þátttökuríkjanna í upphafi.
Varðandi landbúnaðarafurðir, en með þeim eru taldar fiskafurðir, gilda ýmsar sérreglur. Tolla og höft í viðskiptum með þessar afurðir milli þátttökuríkjanna skal afnema eftir hinum almennu reglum, en jafnframt er gert ráð fyrir, að tekin verði upp sameiginleg stefna í landbúnaðarmálum, þ. á m. bæði um framleiðslu og sölu afurða. M. a. má setja ákvæði um lágmarksverð, og með tímanum verður að líkindum komið á samræmi í sölu og dreifingu þessara afurða á sexveldasvæðinu. Enn þá er mjög óljóst, hvað felast muni í framkvæmd þessarar svokölluðu sameiginlegu stefnu í landbúnaðarmálum, en búast má við víðtækri skipulagningu og eftirliti. Úr þessu verður skorið, eins og svo mörgu öðru, af stofnunum sexveldasvæðisins í framtíðinni. Loks gerir sexveldasamningurinn ráð fyrir mjög nánu samstarfi og samræmingu á sviði félagsmála og fjármála, svo og sérstökum aðgerðum, er miði að því að aðlaga efnahagsstarfsemi þátttökuríkjanna nýjum aðstæðum. Munu hinar tvær lánastofnanir samtakanna, Framkvæmdabanki Evrópu og Uppbyggingarlánasjóðurinn, annast það verkefni.
Sexveldasamningurinn var á s. l. sumri og hausti staðfestur af löggjafarsamkomum þátttökuríkjanna, og gekk hann í gildi 1. jan. s. l. Á því ári, sem nú er að líða, verður þó ekkert aðhafzt annað, en undirbúa starfsemi bandalagsins. Komið verður á fót stofnunum þess og ákvarðanir teknar um ýmis atriði, sem ekki eru skýr ákvæði um í samningnum. Raunveruleg framkvæmd samningsins hefst hins vegar ekki fyrr en 1. jan. 1959, og þá munu fyrstu tollalækkanirnar ganga í gildi.
Hjá því gat ekki farið, að fyrirætlanir sexveldanna um að koma á sameiginlegum markaði vektu ekki aðeins athygli, heldur einnig nokkurn kvíða hjá öðrum aðildarríkjum Efnahagssamvinnustofnunarinnar. Frá beinu hagsmunasjónarmiði hlutu þátttökuríkin utan sexveldasvæðisins að óttast þau áhrif, sem tollabandalag sexveldanna mundi hafa á viðskipti þeirra. Með tollabandalaginu mundi samkeppnisaðstaða framleiðenda á samningssvæðinu batna stórlega, en samkeppnisaðstaða þeirra, er utan við stæðu, versna að sama skapi. Þannig sáu Bretar fram á það, að samkeppnisaðstaða þeirra við sölu iðnaðarvöru, t. d. til Hollands og Belgíu, í samkeppni við iðnað Þýzkalands og Frakklands mundi versna stórlega, þeir yrðu að yfirstíga háa tollmúra, þar sem þýzkir og franskir framleiðendur gætu selt tollfrjálst. Sömu afstöðu hlutu aðrar þjóðir að hafa, t. d. Danir, varðandi sölu landbúnaðarvara í Þýzkalandi, og svo mætti lengi telja.
Af þessum sjónarmiðum spruttu brátt hugmyndir um það, að komið yrði á fót samstarfi fleiri þjóða um fríverzlun í því skyni að koma í veg fyrir hin óhagstæðu áhrif sameiginlega markaðsins á ríki utan hans og til þess að skapa aðstæður fyrir aukin og hagkvæmari viðskipti meðal þátttökuríkja Efnahagssamvinnustofnunarinnar. Áttu Bretar meginþátt í því að móta þessar fríverzlunarhugmyndir í upphafi, og á ráðherrafundi stofnunarinnar í febr. 1957 var ákveðið, að reynt skyldi að koma á fót fríverzlunarsvæði, er næði til allra aðildarríkja Efnahagssamvinnustofnunarinnar. Síðan hefur verið stöðugt unnið að málinu innan hennar, enda þótt enn sé alllangt í land, áður en vænta má að fyrir liggi frumvarp að fríverzlunarsamningi.
Hið fyrirhugaða fríverzlunarsvæði er í ýmsum mikilvægum atriðum frábrugðið tollabandalagi sexveldanna. Ekki er gert ráð fyrir því, að komið verði á raunverulegu tollabandalagi milli ríkja fríverzlunarsvæðisins. Tollar í viðskiptum á milli þátttökuríkjanna verða að vísu afnumdir, en hins vegar er gert ráð fyrir því, að þátttökuríkjunum sé frjálst að ákveða, hverja tolla þau taka af vörum, sem koma frá löndum utan fríverzlunarsvæðisins. Skiptir þetta verulegu máli, t. d. fyrir lönd eins og Bretland, sem hefur mjög mikil viðskipti utan efnahagssamvinnulandanna. — Gengið hefur verið út frá því, að reynt yrði að samræma ákvæði fríverzlunarsvæðisins og sexveldasamningsins varðandi tollalækkanir eins mikið og unnt er. Þess vegna hefur verið lagt til, að tollalækkanir sexveldasamningsins gildi í aðalatriðum á fríverzlunarsvæðinu, svo að 12–15 ár muni líða, þangað til fríverzlunin er komin algerlega til framkvæmda, frá þeim tíma, er samningurinn gengur í gildi.
Grundvallarmunur er á þeim sjónarmiðum, sem fríverzlunartillögurnar grundvallast á, og þeim tilgangi, er lýsir sér í sexveldasamningnum. Fríverzlunarsvæðið er eingöngu hugsað sem samningur um viðskiptaleg málefni, og það vakir alls ekki fyrir forvígismönnum hans, að hann sé skref í átt til pólitískrar sameiningar Evrópu.
Einnig virðast flest ríkin ófús til þess að afsala sér ákvörðunarrétti í hendur stofnana fríverzlunarsvæðisins, og er lagt til, að innan þess gildi svipaðar reglur um ákvarðanir og í Efnahagssamvinnustofnuninni, þ. e. a. s., að allar meiri háttar ákvarðanir þurfi að samþykkjast einróma.
Það er að sjálfsögðu augljóst, að fríverzlun mun gera nauðsynlegt að samræma, frekar en gert hefur verið stefnu þátttökuríkjanna í efnahagsmálum til þess að koma í veg fyrir misræmi og jafnvægisleysi. Hins vegar gera fríverzlunartillögurnar ekki ráð fyrir nærri því eins nánu samstarfi um þessi mál né um félagsmál og skattamál eins og sexveldasamningurinn.
Í hinum upphaflegu fríverzlunartill. var lagt til, að fríverzlunin tæki ekki til landbúnaðarafurða, að fiskafurðum meðtöldum, og áttu Bretar meginþátt í þeirri tillögu. Hefur þetta atriði orðið eitt af helztu deiluefnunum varðandi efni fríverzlunarsamningsins.
Loks var það viðurkennt í upphafi, að sum þátttökuríkja mundu ekki vera fær um að taka á sig í upphafi skuldbindingar fríverzlunarsamningsins, og var því talið líklegt, að veita yrði þessum ríkjum einhverja sérstöðu og jafnvel aðstoð fyrst í stað.
Rétt er að rekja í höfuðdráttum þær samningsviðræður, sem fram hafa farið um fríverzlunarmálið. Fyrsta stig umræðnanna var, að málinu var vísað til 3 nefnda, 21. nefndarinnar, er kanna skyldi meginatriði fríverzlunarhugmyndarinnar og samræmingu við sexveldasamninginn, 22. nefndarinnar, er fjalla skyldi um, til hvaða afurða samningurinn skyldi ná, þ. e. a. s., hvort landbúnaðarafurðir skyldu vera með eða ekki, og loks 23. nefndarinnar svokölluðu, er fjallar um vandamál þeirra landa, er talin voru of skammt á veg komin í efnahagsmálum til þess að taka á sig allar skuldbindingar fríverzlunarsamningsins. Allar þessar nefndir störfuðu fram á s. l. haust og skiluðu merkilegu starfi, enda þótt í ljós kæmi, að mikill ágreiningur væri um ýmis atriði.
Í 22. nefndinni tókst ekki að ná neinu samkomulagi um meðferð landbúnaðar- og fiskafurða, en margar þjóðir héldu því fram, að fríverzlunin ætti að ná til þessara afurða ekki síður en iðnaðarvöru og hráefna. 23. nefndin hefur hins vegar fyrst og fremst starfað að því að safna upplýsingum og kanna vandamál þeirra þjóða, sem skemmra eru á veg komnar efnahagslega, og hafa mál fjögurra ríkja verið til athugunar hjá nefndinni, en öll hafa þessi ríki talið sig þurfa undanþágu eða sérstöðu innan fríverzlunarsvæðisins. Þessi ríki eru Grikkland, Tyrkland, Írland og Ísland.
S. l. október var haldinn fundur í ráðherranefnd Efnahagssamvinnustofnunarinnar og litið yfir farinn veg. Gáfu þá Bretar í skyn, að þeir væru fúsir til málamiðlunar varðandi meðferð landbúnaðarafurða innan fríverzlunarsvæðisins, og yfirleitt kom fram sterkur vilji til að koma á fót fríverzlunarsvæði. Var þá ákveðið að vísa málinu til sérstakrar nefndar, er vinna skyldi að undirbúningi að samningsuppkasti, og skyldu í henni eiga sæti þeir ráðherrar aðildarríkjanna, sem fara með málefni Efnahagssamvinnustofnunarinnar. Hefur ráðherranefnd þessi komið saman á þrjá fundi síðan og fjallað um flest helztu vandamálin varðandi fríverzlunarsamninginn. Skal hér drepið á þau, sem mestum ágreiningi hafa valdið:
1) Enn þá er mikill ágreiningur ríkjandi milli sexveldanna annars vegar og hinna þátttökuríkjanna ellefu um meginskipulag fríverzlunarsvæðisins. Vilja sexveldin, að það verði sniðið í veigamiklum atriðum eftir sexveldasamningnum, t. d. varðandi tolla gagnvart ríkjum utan svæðisins.
2) Enn þá er langt í land, áður en samkomulag næst um meðferð landbúnaðarafurða. Þær tilslakanir, sem Bretar hafa gert hingað til, virðast ekki nægilegar til þess að samkomulag geti orðið, t. d. milli þeirra og Dana. Þar að auki er mjög erfitt að samræma ákvæði fríverzlunarsamningsins ákvæðum Rómarsamningsins á þessu sviði, þar sem sexveldin hafa ekki enn þá tekið ákvarðanir varðandi mikilvæg framkvæmdaatriði. Allt útlit er fyrir, að það takist að leysa þau vandamál, er fríverzlunarsamningurinn mun hafa í för með sér fyrir þau lönd, sem skemmra eru á veg komin efnahagslega, annars vegar með undanþágum frá ákvæðum samningsins og hins vegar með aðstoð við útvegun fjármagns til að efla efnahagsþróun þessara landa. Hins vegar er enn þá mikill ágreiningur um það, hvort koma eigi upp innan fríverzlunarsvæðisins fjárfestingarlánastofnun eða framkvæmdabanka, er hafi það hlutverk að örva uppbyggingu atvinnulífsins og flýta fyrir þeim breytingum á framleiðsluháttum, sem fríverzlunin hlýtur að hafa í för með sér.
Tollabandalag sexveldanna er þegar staðreynd, og mun það taka til starfa í byrjun næsta árs. Eins og ég gat um áðan, er að vísu enn ósamið um ýmis atriði, jafnvel ýmis grundvallaratriði, að því er snertir verzlun með landbúnaðarafurðir og sjávarafurðir. Hvað sjávarafurðum viðvíkur er þó full ástæða til þess að gera ráð fyrir, að skilyrði landa utan tollabandalagsins til sölu á sjávarafurðum á tollabandalagssvæðinu verði að einhverju leyti verri, en aðstaða aðila í tollabandalagslöndunum sjálfum. Þess vegna er rétt að fara nokkrum orðum um það, hvaða áhrif líklegt er að stofnun þessa tollabandalags hafi á útflutning íslenzkra sjávarafurða.
Eftir síðustu heimsstyrjöld hefur ekki veríð um að ræða útflutning verkaðs saltfisks til tollabandalagslandanna né annarra efnahagssamvinnulanda. Spánn og Brazilía hafa verið aðalmarkaðirnir fyrir þessa vöru, og eru viðskiptin við bæði þau lönd á jafnkeypisgrundvelli. Tollabandalagið mun því ekki hafa nein bein áhrif á útflutning þessarar vöru. Hins vegar er um þriðjungur óverkaðs saltfisks seldur til tollabandalagslanda, þ. e. til Ítalíu. Tvö af löndum tollabandalagsins, þ. e. a. s. Frakkland og í seinni tíð einnig Þýzkaland, eru keppinautar okkar á ítalska markaðinum. Framleiðsla Frakka er að vísu yfirleitt lélegri, en okkar vara, en verð hennar hefur hins vegar verið miklu lægra, en verð á íslenzkum fiski. Hins vegar eru gæði þýzku framleiðslunnar svipuð gæðum íslenzka fisksins. Saltfiskveiðar togara frá Þýzkalandi hafa farið vaxandi undanfarið. Þýzku togararnir afla við Grænland og selja því ekki ósvipaða vöru og við. Þá hafa Þjóðverjar einnig selt söltuð þorskflök til Ítalíu. Aðstaða Frakka og Þjóðverja á ítalska markaðnum verður því mun betri, en okkar Íslendinga, þar sem búast má við því, að tekinn verði upp nokkur tollur á saltfiski frá löndum utan tollabandalagssvæðisins.
Þá selja Íslendingar og allmikið af skreið til Ítalíu, en Þýzkaland og Holland kaupa eingöngu til endurútflutnings. Auk Íslands er Noregur eina landið í Evrópu, sem framleiðir skreið, svo að ekki yrði um að ræða samkeppni á þessu sviði frá löndum innan tollabandalagsins.
Að því er snertir freðfisk og freðsíld er ástand hins vegar gerólíkt. Meira en tveir þriðju hlutar útflutnings þessara vörutegunda eru seldir til jafnkeypislanda, að langmestu leyti til landanna í Austur-Evrópu. Á þessu sviði hafa tollabandalagslöndin mjög litla þýðingu. Meginástæður þess, hversu lítill freðfiskur er seldur til tollabandalagslandanna, eru þær, að dreifingarkerfi fyrir freðfisk er þar víða mjög ófullkomið og því um að ræða harða samkeppni frá nýjum fiski, þ. e. a. s. ísfiski. Auk þess eru tollar á freðfiski í sumum þessara landa, svo sem Frakklandi, mjög háir. Hins vegar er enginn vafi á því, að allt stefnir í þá átt, að komið verði upp geymslu- og dreifingarkerfi fyrir fryst matvæli í þessum löndum, og munu þá verða þar skilyrði til stóraukinnar sölu freðfisks. Af tollabandalagslöndunum eru Þjóðverjar helztu keppinautar okkar í freðfiskframleiðslu. Mundu þeir að sjálfsögðu standa miklu betur að vígi um sölu á freðfiski á tollabandalagssvæðinu og sennilega gera alla sölu á íslenzkum fiski þar ómögulega.
Að því er ísvarinn fisk snertir, er Þýzkaland eina tollabandalagslandið, sem Íslendingar selja þá vöru til. Árið 1956 var tollur af slíkum fiski afnuminn á aðalsölutímanum, en hann hafði þá verið 5–10%. Hefur þetta greitt talsvert fyrir sölu ísfisks til Þýzkalands. En ef nú á ný verður lagður tollur á innflutning þessarar vöru frá löndum utan tollabandalagsins, torveldast sala hennar þangað aftur. Þess ber þó að geta, að önnur tollabandalagslönd keppa ekki sem stendur við íslenzka fiskinn á þessum markaði.
Um saltsíldina gildir yfirleitt hið sama og um freðfiskinn. Yfirgnæfandi hluti hennar er seldur til jafnkeypislanda, meira en helmingur til Austur-Evrópu.
Um fiskimjöl, lýsi og aðrar sjávarafurðir er það að segja, að auðvelt er að selja þær fyrir frjálsan gjaldeyri, enda langsamlega mestur hluti þeirra fluttur til efnahagssamvinnulanda eða dollaralanda. Stofnun tollabandalagsins mun því ekki torvelda Íslendingum útflutning þessara vörutegunda.
Meginniðurstaða þessa er því sú, að stofnun tollabandalagsins mun torvelda Íslendingum útflutning óverkaðs saltfisks og skreiðar til Ítalíu, ísfisks til Þýzkalands og freðfisks til Frakklands. Þetta á við þann útflutning, sem nú á sér stað. En í þessu er þó ekki fólginn kjarni málsins. Hann er sá, að erfitt mundi vera fyrir Íslendinga að auka markað sinn fyrir þessar vörur eða aðrar sjávarafurðir í tollabandalagslöndunum, þar eð í þeim eru framleiðendur flestra þessara vara og mundu þeir standa betur að vígi til sölu á þessum stóra markaði en Íslendingar. Þetta er auðvitað alvarlegast að því er freðfiskinn snertir. Á því getur enginn vafi leikið, að í Evrópu verður innan tíðar komið upp geymslu- og dreifingarkerfi fyrir fryst matvæli, hliðstæðu því, sem nú er t. d. í Bandaríkjunum. Ef viðskipti með freðfisk væru frjáls, ættu Íslendingar auðvitað að hafa mikil söluskilyrði á Evrópumarkaðinum, en tollabandalagið setur þá eins og alla framleiðendur utan þess skör lægra, en framleiðendur innan þess, svo að mjög hætt er við því, að Íslendingar hefðu ekki skilyrði til aukinnar sölu á þeim nýja markaði, sem þarna myndaðist.
Af þessum ástæðum er það augljóst hagsmunamál Íslendinga, að ekki verði látið sitja við stofnun tollabandalagsins eins. Að vísu er það enn miklu brýnna hagsmunamál margra annarra, svo sem Breta og Dana. Stofnun tollabandalagsins hefur stóralvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir Breta vegna þess, hversu mjög það rýrir samkeppnisaðstöðu brezks iðnaðar í tollabandalagslöndunum gagnvart iðnaði þeirra sjálfra, og Danir mundu missa mjög mikilvæga markaði fyrir landbúnaðarafurðir sínar. En þótt Íslendingar eigi ekki nálægt því eins mikið á hættu og t. d. þessar þjóðir, mundi aðstaða þeirra í heimsverzluninni rýrna við tilkomu tollabandalagsins, og þess vegna er enginn hlutur sjálfsagðari en sá, að þeir fylgist af áhuga með þeirri viðleitni, sem uppi hefur verið í þá átt að stækka efnahagssamvinnusvæðið og gera það þannig úr garði, að viðskiptin torveldist ekki frá því, sem verið hefur, heldur geti þvert á móti aukizt.
Sem heild eru efnahagssamvinnulöndin stærsti viðskiptaaðili Íslendinga. Árið 1956 nam útflutningur til þeirra 46% af heildarútflutningnum, útflutningur til dollaralanda nam 13%, til Austur-Evrópu 30% og til annarra jafnkeypislanda 11%. Innflutningur frá efnahagssamvinnulöndunum nam 42%, frá dollaralöndum 21%, frá Austur-Evrópulöndum 26% og frá öðrum jafnkeypislöndum 11% heildarinnflutningsins. Viðskiptin við efnahagssamvinnulöndin hafa þó farið hlutfallslega minnkandi undanfarin ár. Útflutningur til þeirra nam 57% heildarútflutningsins 1952, en minnkaði ofan í 47% 1953 og hefur haldizt hlutfallslega svipaður síðan.
Til efnahagssamvinnulandanna og sambandsríkja þeirra er fluttur nær allur óverkaður saltfiskur, sem Íslendingar framleiða, en hann nam 1956 13% heildarútflutningsins. Þangað er flutt nær öll skreiðarframleiðsla þjóðarinnar, en hún nam 1956 11% útflutningsins. Þangað er flutt 90% ísfiskframleiðslunnar, 84% lýsisframleiðslunnar, 75% fiskimjölsframleiðslunnar og 20% saltsíldarinnar. Aftur á móti er markaður okkar fyrir freðfisk og freðsíld, saltsíld, verkaðan saltfisk og niðursuðuvörur fyrst og fremst í jafnkeypislöndunum, þótt bandaríski freðfiskmarkaðurinn sé að sjálfsögðu mjög mikilvægur.
Í þessu sambandi verðum við að minnast þess, að allar útflutningsvörur okkar eru framleiddar í löndum, sem rætt hefur verið um að yrðu aðilar að fríverzlunarsvæðinu. Ef fríverzlunarsvæðið yrði stofnað og fríverzlunin tæki ekki til sjávarafurða, kæmi ekki til greina, að Íslendingar gerðust aðilar að því. Þeir gætu ekki opnað land sitt fyrir iðnaðarvörum frá Vestur-Evrópu án þess að fá í staðinn frjálsan aðgang að fiskmarkaðinum þar. En ef fríverzlunarsvæðið yrði stofnað og fríverzlunin tæki til sjávarafurða beint eða óbeint, þá mundu Íslendingar með því að gerast aðilar að því losna við þá nýju erfiðleika á sölu saltfisks, skreiðar, freðfisks, nýs fisks til Ítalíu, Frakklands og Þýzkalands, sem búast má við, ef látið verður sitja við stofnun tollabandalagsins, og hafa skilyrði til haftalausrar og tollfrjálsrar sölu sjávarafurða sinna á hinum stóra markaði fríverzlunarsvæðisins. Þess ber þó að geta, að ekki er líklegt, að niðurstaðan verði sú, ef fríverzlunarsvæðið verður stofnað, að fríverzlunin verði látin taka annaðhvort til alls fisks eða þá alls ekki til fisks. Ýmislegt bendir til, að farinn yrði einhver millivegur, t. d. að aðalreglur fríverzlunarinnar tækju til sumra sjávarafurða, en sérreglur giltu um verzlun með aðrar, t. d. hliðstæðar þeim, sem látnar yrðu gilda um einhverjar landbúnaðarvörur. Þá er þess og að geta, að ekki er víst, að hið endanlega val verði milli þess að gerast fullgildur þátttakandi í fríverzluninni og hins að taka alls engan þátt í henni. Það er viðurkennt innan Efnahagssamvinnustofnunarinnar, að sérstaða ýmissa aðildarríkja sé svo mikil og þess eðlis, að gert hefur verið ráð fyrir ákvæðum um ýmsar undantekningar frá skuldbindingum í væntanlegum fríverzlunarsamningi. En búast má þó auðvitað við, að réttindi verði takmörkuð að sama skapi.
Ef Íslendingar stæðu utan fríverzlunarsvæðisins, en aðalkeppinautar okkar í fiskverzluninni meðal efnahagssamvinnulandanna, Norðmenn, væru aðilar að því, mundu þeir bæta aðstöðu sína til útflutnings saltfisks og skreiðar til fríverzlunarlandanna miðað við okkur. Eins og ég gat um áðan, er langmestur hluti fiskimjöls og lýsis fluttur til efnahagssamvinnulanda eða dollaralanda. Ef fríverzlunarsvæði yrði stofnað og fríverzlun tæki til þessara vörutegunda, gæti það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir íslenzkan útflutning þeirra þangað, ef Íslendingar yrðu ekki aðilar að fríverzlunarsvæðinu. Hvað ísfiskinn snertir er Íslendingum það auðvitað hagsmunamál að eiga frjálsan aðgang að ísfiskmarkaði í Bretlandi og því æskilegt að vera aðili að fríverzlunarsvæðinu, ef fríverzlunin á að taka til ísfisks.
Að því er freðfisksútflutninginn varðar má segja, að eins og nú er skiptir það ekki miklu máli, hvort til stofnunar fríverzlunarsvæðis kemur og hvort Íslendingar verða aðilar eða ekki, þar eð fríverzlunarlöndin hafa litla þýðingu fyrir freðfisksútflutninginn. En í þessu sambandi má, eins og ég gat um áðan, ekki festa hugann við ástandið eins og það er í dag. Enn þá er lítill markaður fyrir freðfisk í efnahagssamvinnulöndunum. En þetta mun áreiðanlega breytast. Ef fríverzlunarsvæði verður stofnað og Íslendingar eru þar ekki aðilar, munu þeir ekki sitja við sama borð og keppinautar innan fríverzlunarsvæðisins hvað það snertir að fá hlutdeild í þeim nýja markaði fyrir freðfisk, sem án efa skapast í Evrópu á næstu árum. Nokkuð svipað gildir um saltsíldina. Þó er rétt að geta þess, að skilyrði til sölu saltsíldar utan jafnkeypislandanna verða líklega takmörkuð. Nokkur saltsíld er þó seld til Svíþjóðar, en þar keppa Íslendingar við Norðmenn og Færeyinga. Á þeim markaði gæti aðstaða okkar því versnað eða orðið erfið, ef við stæðum utan fríverzlunarsvæðisins.
Áhrif þess, ef fríverzlunarsvæði verður stofnað og Íslendingar verða ekki aðilar að því, yrðu því að ýmsu leyti svipuð áhrifum þess, að tollabandalagið hefur þegar verið stofnað, nema hvað erfiðleikarnir fyrir íslenzka útflutningsframleiðslu yrðu muni meiri. Það hefur aldrei komið til greina og getur ekki komið til greina, að Íslendingar verði aðilar að tollabandalaginu. En það er orðin staðreynd og mun færa Íslendingum nokkra erfiðleika, ef ekkert meira kemur til. Hins vegar geta Íslendingar gerzt aðilar að fríverzlunarsvæðinu, ef það verður stofnað. Komi til þess, taki fríverzlunin til sjávarafurða og stæðu Íslendingar utan svæðisins, hefði það í för með sér gífurlega erfiðleika fyrir íslenzka útflutningsatvinnuvegi, eins og ég hef þegar gert grein fyrir og raunar er augljóst af þeirri staðreynd, að keppinautar okkar við sölu afurða, sem nema 40–50% af heildarútflutningi okkar, mundu fá betri aðstöðu, en við í samkeppninni. Hagurinn af því að gerast aðili að fríverzluninni yrði í fyrstu lotu einkum óbeinn, þ. e. a. s. í því fólginn að koma í veg fyrir versnandi samkeppnisaðstöðu. Hins vegar getur hagurinn, þegar fram í sækir og e. t. v. innan skamms tíma, orðið mjög mikill, ef markaður skapast í Evrópu fyrir aðalútflutningsvöru okkar, freðfiskinn. Þá er það auðvitað lífsspursmál fyrir okkur að sitja þar við sama borð og aðrir. Enn fremur geta skapast hér skilyrði til nýrrar hagnýtingar á auðlindum þjóðarinnar, bæði sjávarins og landsins, og fyrirtæki blómgazt, er selji afurðir sínar á hinum nýja og stóra markaði fríverzlunarsvæðisins. Hér getur verið um að ræða stórkostlega möguleika, ef við erum aðilar að fríverzlunarsvæðinu, en þeir skapast ekki, ef við stöndum utan þess.
Mönnum getur að sjálfsögðu sýnzt nokkuð sitt hverjum um gildi þess hags, sem við kunnum að hafa af því að gerast aðilar að fríverzlunarkerfinu. Það er ekki óeðlilegt, að menn séu misjafnlega bjartsýnir á það, hvaða skilyrði séu til öflunar nýrra markaða í Evrópu fyrir sjávarafurðir okkar, svo sem freðfiskinn, og menn geta líka verið misjafnlega bjartsýnir á getu okkar til þess að byggja upp stóriðnað, er selji afurðir sínar til Evrópulanda. En um hitt getur ekki verið ágreiningur, að verði fríverzlunarsvæðið stofnað, hefur það mjög alvarlegar afleiðingar fyrir íslenzka utanríkisverzlun að standa utan þess, ef fríverzlunin tekur til sjávarafurða. Þess vegna þarf að athuga mjög vandlega, hvaða afleiðingar það hefði fyrir Íslendinga að gerast aðilar að því, þ. e. a. s. að taka á sig þær skuldbindingar, sem aðild að fríverzlunarkerfinu hefur í för með sér. Skal ég nú ræða það atriði nánar.
Ég ætla fyrst að fara fáeinum orðum um landbúnaðinn. Enn þá er alls ekkert um það vitað, hvaða reglur kunna að verða látnar gilda um viðskipti með landbúnaðarvörur, ef af stofnun fríverzlunarsvæðisins verður. Þó virðist eindregið mega gera ráð fyrir því, að verzlun með landbúnaðarvörur verði ekki gefin frjáls með sama hætti og verzlun með iðnaðarvörur. Verndarþörf landbúnaðarins í hinum ýmsu efnahagssamvinnulöndum er svo rík, að óhugsandi virðist, að þau muni geta sætt sig við frjálsa verzlun með þessar vörur. Má því hiklaust gera ráð fyrir því, að einhvers konar sérreglur muni gilda um viðskipti með landbúnaðarvörur, á sumum sviðum e. t. v. nokkuð frjálslegar, en á öðrum sviðum háðar ýmiss konar hömlum og takmörkunum.
Að því er aðstöðu íslenzks landbúnaðar snertir ber að geta þess, að langhagstæðast er nú að framleiða í landinu tvær tegundir landbúnaðarafurða, kindakjöt og neyzlumjólk. Þótt heimilaður yrði tollfrjáls innflutningur þessara vörutegunda, kæmi varla til greina, að þær yrðu fluttar til landsins, en þær eru aðalafurðir landbúnaðarins. Framleiðsla kindakjöts er nú meiri, en svarar til neyzluþarfarinnar innanlands, og ber brýna nauðsyn til þess að finna markað erlendis fyrir íslenzkt kindakjöt. Reglur um frjálsa verzlun með kjöt innan efnahagssamvinnulandanna mundi án efa greiða fyrir sölu dilkakjöts erlendis. Á hinn bóginn er þess að geta, að íslenzkur landbúnaður gæti ekki keppt á innlendum markaði við erlent smjör, osta, nautakjöt, svínakjöt og hænsnakjöt. Og grænmetisframleiðendur mundu varla þola samkeppni við erlent grænmeti, a. m. k. ekki á sumrin. Algerlega frjáls verzlun með landbúnaðarvörur mundi því hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir íslenzkan landbúnað. Þess má þó geta, að við höfum nú frjálsan og mjög tolllágan innflutning á ýmsum mikilvægum landbúnaðarvörum, svo sem kornvörum og sykri. En svo sem ég gat um áðan, eru litlar líkur á því, að tekin verði upp algerlega frjáls viðskipti með allar landbúnaðarvörur, þótt af stofnun fríverzlunarsvæðisins verði. Meðan ekkert er um það vitað, hvers konar skipan er líklegust til þess að verða ofan á, er of snemmt að segja nokkuð um það, hver afstaða Íslendinga ætti að vera hvað viðskipti með landbúnaðarafurðir snertir.
Eitt helzta vandamálið í sambandi við hugsanlega aðild Íslands að fríverzlunarsvæði í Evrópu er fólgið í því, að ýmsar iðngreinar, sem smám saman hafa vaxið upp hér á landi, einkum á s. l. aldarfjórðungi, mundu vegna þeirra tollalækkana, sem nauðsynlegar mundu verða á næstu 12–15 árum, og vegna afnáms hvers konar innflutningshafta missa þá vernd, sem þær hafa notið. Í þessu sambandi verður að taka skýrt fram, að í landinu starfa margar iðngreinar, sem njóta lítillar eða alls engrar tollverndar. Er þar fyrst og fremst að nefna þann iðnað, sem byggir á vinnslu fiskafurða. Þá er hér starfræktur ýmiss konar annar iðnaður, sem nýtur eðlilegrar verndar, svo sem byggingariðnaður, járniðnaður og margvíslegur þjónustuiðnaður. Enn fremur er hér rekinn mjög mikilvægur iðnaður í þágu útflutningsframleiðslunnar, án þess að hann njóti nokkurrar verndar, hvorki af innflutningstakmörkunum né tollum, svo sem veiðarfæragerðir, kassagerð, dósagerð o. s. frv. Allar þessar iðngreinar mundu í raun og veru hafa hag af því, að viðskipti yrðu sem frjálsust og tollar lækkaðir. Að hinu leytinu eru svo mikilvægar iðngreinar, sem nú njóta verndar, ýmist af innflutningstakmörkunum eða tollum eða hvoru tveggja, og má þar fyrst og fremst nefna ýmsan vefnaðarvöruiðnað og skógerðir.
Athugun hefur verið gerð á því, hversu miklu nemi tollar af innfluttum vörum, sem jafnframt eru framleiddar innanlands. Af tolltekjunum 1956, sem reyndust 255 millj. kr., reyndust 36.8% tollar af vörum, sem jafnframt eru framleiddar í landinu sjálfu. Ekki eru þetta þó raunverulegir verndartollar, og mun óhætt að fullyrða, að þeir séu ekki mikið yfir 25% af heildartolltekjunum. Innflutningsverðmæti þeirra vörutegunda, sem telja má að ýmist þyrftu vernd eða æskilegt væri að fá vernd fyrir um skeið, nam 1956 133.5 millj. kr. eða um 9.1% innflutningsins. Þetta er lægri tala, en ég geri ráð fyrir að margir, ef ekki flestir, hafi búizt við. Innflutningsverðmæti hinna vörutegundanna, sem jafnframt eru framleiddar innanlands, en ýmist þurfa ekki vernd eða eru þýðingarlitlar, svo að ekki er ástæða til að tryggja þeim vernd eða verndarþörfin er lítil, nam hins vegar 175.5 millj. kr.
Verið er að vinna að athugun á því, hversu margt fólk starfi við þann iðnað, sem telja má verndarþurfi, og hversu framleiðsluverðmæti hans sé mikið. Þegar niðurstöður þeirra rannsókna liggja fyrir, verður ljóst, hversu mikill vandi okkur er á höndum að því er iðnaðinn snertir, ef við gerðumst aðilar að fríverzlunarsvæðinu. En þess verður að geta, að fyrirhuguð tollalækkun á ekki að koma til framkvæmda nema á 12–15 ára tímabili, og væri á þeim tíma hægt að afskrifa fjármagn, sem bundið er í vélum, og breyta framleiðsluháttum með hliðsjón af nýjum aðstæðum. Vegna þess, hve innlendi markaðurinn er lítill, og hins, að eðlilegt er, að smáþjóðir vilji á ýmsum sviðum gjarnan búa að sínu, virðist samt sanngirni mæla með því, að Íslendingar fái að halda nokkurri vernd við vissar greinar innlends iðnaðar og þeir fengju, ef til kæmi, eitthvað lengri tíma, en aðrar þjóðir til þess að afnema þá vernd, sem nú á sér stað. A. m. k, þyrfti tíminn að vera jafnlangur og það tekur með eðlilegum hætti að byggja upp annan iðnað, sem flutt gæti afurðir sínar á hinn stóra markað fríverzlunarsvæðisins.
Þá er það eitt helzta vandamálið varðandi hugsanlega aðild Íslands að fríverzlunarsvæðinu, hvernig hægt sé að tryggja áframhald jafnkeypisviðskiptanna. En 1956 var 41% heildarútflutningsins selt samkvæmt jafnkeypissamningum, en 37% innflutningsins var flutt inn samkv. slíkum samningum. Jafnvirðiskaup eru að sjálfsögðu algerlega andstæð grundvallaratriðum fríverzlunarhugmyndarinnar. En þeir markaðir, sem við höfum nú jafnkeypissamninga við, eru Íslendingum svo mikilvægir, að aðild að fríverzluninni er óhugsandi, ef hún ætti að hafa í för með sér missi þessara markaða. Vandi Íslendinga er í rauninni fólginn í því, að það er jafnóhugsandi að gerast aðili að fríverzluninni, ef það hefur í för með sér missi markaða í jafnkeypislöndunum, og það er að standa utan fríverzlunarsvæðisins, ef fríverzlunin tekur til allra fiskafurða. Jafnkeypisviðskiptin byggjast að talsverðu leyti á ívilnun um innflutning frá jafnkeypislöndum, en hún er veitt í staðinn fyrir hagkvæma sölu á afurðum okkar til þessara landa. Fyrirkomulagið er, svo sem kunnugt er, það, að til þess að hagnýta andvirði þeirra afurða, sem seldar eru til vöruskiptalandanna, er innkaupum vissra vörutegunda beint þangað og innflutningsleyfakerfið notað til þess að tryggja þessum vörum innlenda markaðinn, ef hætta er talin á, að innflutningur frá öðrum löndum mundi draga úr nauðsynlegum innflutningi frá jafnkeypislöndunum.
Þau lönd, sem Íslendingar hafa jafnkeypissamninga við, eru Brazilía, Spánn, Finnland, Ísrael, Pólland, Tékkóslóvakía, Sovétríkin, Ungverjaland, Austurríki og Rúmenía. Þær vörur, sem einkum eru seldar til jafnkeypislandanna, eru þurrkaður saltfiskur, saltsíld, freðsíld og freðfiskur. Af þurrkuðum saltfiski seljum við 85% útflutningsins til jafnkeypislandanna, af saltsíld 79%, af freðsíld 96% og af freðfiski 70%, miðað við útflutninginn 1956. Ýmislegt bendir að vísu til þess, að önnur jafnkeypislönd en Austur-Evrópulöndin muni, ef af stofnun fríverzlunarsvæðisins verður, hverfa frá jafnkeypisstefnunni í viðskiptum sínum. Á það við t. d. um Finnland, sem nokkuð hefur verið rætt um að gerðist aðili að Efnahagssamvinnustofnuninni og fríverzluninni, Brazilíu og Spán. Hins vegar verður að gera ráð fyrir því, að Austur-Evrópulöndin muni áfram kjósa jafnkeypisfyrirkomulag í viðskiptum sínum við Ísland. Það er því ekki hægt að gera ráð fyrir því, að Íslendingar geti haldið áfram að selja til þessara landa jafnmikið magn og á jafnhagstæðu verði og að undanförnu, nema því aðeins að hægt verði að kaupa frá löndum þessum framleiðsluvörur þeirra fyrir sömu upphæð.
Ef við getum áfram tryggt vörum frá þessum löndum markað hér innanlands, er ekki ástæða til annars en að ætla, að við munum geta haldið áfram að selja afurðir okkar í þessum löndum. Ef Íslendingar eiga að geta gerzt aðilar að fríverzlunarsvæði Evrópu, virðist því nauðsynlegt, að gerðar séu tvenns konar ráðstafanir til þess, að við getum haldið viðskiptum okkar við jafnkeypislöndin. Í fyrsta lagi þarf að láta þær tollalækkanir, sem leiðir af þátttöku í fríverzluninni, einnig ná til alls innflutnings frá löndum utan fríverzlunarsvæðisins. Í öðru lagi verður Ísland þegar í upphafi að fá undanþágu frá því að gera frjálsan innflutning á þeim vörum, sem mestu máli skipta fyrir viðskipti við jafnkeypislöndin og þá fyrst og fremst Austur-Evrópulöndin.
Um fyrra atriðið er það að segja, að verði sú tollalækkun, sem sigla mun í kjölfar aðildar að fríverzluninni, einnig látin ná til innflutnings frá viðskiptalöndunum í Austur-Evrópu, mun aðstaða þeirra til sölu varnings síns á íslenzkum markaði vegna tollalækkunarinnar einnar saman ekki breytast neitt þrátt fyrir aðild Íslendinga að fríverzlunarsvæðinu, a. m. k. ekki í samanburði við erlenda keppinauta. Frekar kynni að vera hægt að segja, að hún — eins og aðstaða ýmissa erlendra framleiðenda yfirleitt — batnaði á kostnað innlendra framleiðenda. Hins vegar er rétt að vekja athygli á því, að nauðsyn Íslendinga á því að láta tollahækkanir sínar ná til landa utan fríverzlunarsvæðisins einmitt vegna vöruskiptasamninganna veldur því, að tollar á sömu vörum frá t. d. Bandaríkjunum mundu einnig lækka. Mér er ekki kunnugt um, að aðstæður nokkurs annars lands, sem rætt hefur verið um að yrði aðili að fríverzlunarsvæðinu, séu slíkar, að tollalækkanir þær, sem þau takast á hendur að framkvæma gagnvart hinum fríverzlunarlöndunum, yrðu í rauninni að gilda gagnvart öllum öðrum löndum, eins og á sér stað hér hjá okkur vegna hinna miklu viðskipta okkar við jafnkeypislöndin. Að þessu leyti er aðild að fríverzluninni stærra spor fyrir okkur en hinar efnahagssamvinnuþjóðirnar.
Hvað síðara atriðið snertir kæmi til mála að fá undanþágu frá afnámi innflutningshafta á ýmsum vörum, sem mestu máli skipta í viðskiptunum við jafnkeypislöndin, í því formi, að saminn yrði sérstakur vörulisti, og mætti binda innflutning á vörum á þeim lista við lönd, sem við hefðum jafnkeypissamninga við, en stærstu jafnkeypislöndin eru Sovétríkin, Tékkóslóvakía og Austur-Þýzkaland. Frá sumum þessara landa flytjum við fáa og stóra vöruflokka, og yrði framkvæmd þessarar hugmyndar gagnvart þeim varla erfiðleikum bundin. En frá öðrum jafnkeypislöndum kaupum við margar og margbreytilegar vörutegundir og yrði framkvæmdin að líkindum meiri erfiðleikum bundin að því er þau snertir.
Þá er rétt að fara nokkrum orðum um áhrif aðildar að fríverzlunarsvæðinu á fjármál ríkisins. Svo sem kunnugt er, eru tolltekjur nú megintekjustofn ríkisins. En það er einmitt kjarni fríverzlunarhugmyndarinnar, að á 1215 árum skuli létta verndartollum af innflutningi frá ríkjum fríverzlunarsvæðisins. Ég gat þess áðan, að vegna jafnvirðiskaupaviðskiptanna yrðu Íslendingar að láta þær tollalækkanir, sem nauðsynlegar eru gagnvart fríverzlunarlöndunum, einnig gilda gagnvart öllum öðrum löndum. En undirstrika verður í þessu sambandi, að það eru einvörðungu verndartollar, sem fella verður niður á umræddu árabili. Ekkert virðist því til fyrirstöðu, að hægt verði að halda fjáröflunartollum eða söluskatti á innfluttum vörum, ef sams konar tollur eða gjald er innheimt af framleiðslu sömu vöru innanlands. Ég gat þess áðan, að um 25% af tolltekjum ársins 1956 hefðu mátt teljast verndartollar, en 75% fjáröflunartollar. Í stað þessara verndartolla yrði að koma önnur tekjuöflun, annaðhvort hækkun fjáröflunartollanna eða nýir söluskattar eða aðrir skattar. Virðist slík endurskipulagning á tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs engan veginn óframkvæmanleg.
Ég gat þess áðan, að meginhagur okkar af því að gerast aðilar að fríverzlunarsvæðinu, ef fríverzlunin tæki til sjávarafurða, væri fólginn í því, að þá mundum við eiga aðgang að fiskmarkaðinum í fríverzlunarlönduuum. Ég gat þess einnig, að söluskilyrði okkar á þessum markaði þyrftu að vaxa, til þess að við gætum gert innflutning iðnaðarvöru frá fríverzlunarlöndum frjálsari, en nú á sér stað, eða þá að við þyrftum að geta byggt upp hér á landi stóriðnað, sem gæti flutt afurðir sínar til fríverzlunarlandanna. Er rétt að fara um þessi atriði fáeinum orðum.
Íslendingar eru fimmta mesta fiskframleiðsluþjóðin í Vestur-Evrópu. Ef miðað er við fiskframleiðsluna 1955, framleiddu Norðmenn mest eða 1.868 þús. tonn. Bretar næstmest eða 1.100 þús. tonn, þá komu Þjóðverjar með 777 þús. tonn og Frakkar með 523 þús. tonn, en síðan Íslendingar með 480 þús. tonn. Þýðing fiskveiðanna er hins vegar hlutfallslega meiri fyrir Íslendinga, en nokkra hinna þjóðanna, þar eð söluverðmæti fiskframleiðslunnar er um 25% þjóðarframleiðslunnar og meira en 90% útflutningsins. En fiskur og sjávarafurðir eru hins vegar t. d. ekki nema um 20% af heildarútflutningi Norðmanna. Fiskneyzla hefur á síðari árum aukizt mjög lítið í Vestur-Evrópu eða nokkurn veginn samsvarandi fólksfjölguninni. Neyzla á mann hefur verið nokkuð stöðug eða 15–16 kg á ári. En mikill munur er á fiskneyzlunni í einstökum löndum. Hún er t. d. um 3½ kg í Tyrklandi, en 47 kg í Svíþjóð og hér á landi er hún ef til vill ekki fjarri 100 kg. Ýmsar ástæður liggja til hinnar lágu fiskneyzlu í hinum ýmsu löndum Vestur-Evrópu. Víða hefta tollar og viðskiptahömlur innflutning á fiski, dreifingarkerfi er ófullkomið eða jafnvel ekki til í ýmsum löndum, og mikið af fiskinum, sem verzlað er með, er slæm vara. Ég hef séð áætlanir um, að um það bil helmingur þess fisks, sem boðinn er sem nýr fiskur, sé meira en tveggja vikna gamall þegar hann kemst í hendur neytandans. Þjónustu dreifendanna, einkum smásalanna, er mjög ábótavant. Af fiski þeim, sem landað var í 10 Vestur-Evrópulöndum 1953, var 40% nýr fiskur, 26% saltaður fiskur, þurrkaður og reyktur, 22% mjöl og lýsi, en aðeins 6% frystur fiskur og 4% niðursoðinn fiskur. Af þessu sést, að frystur fiskur er enn lítið þekkt vara í Vestur-Evrópu. Hins vegar er 35–40% af útflutningi Íslands frystur fiskur og um 10% af útflutningi Noregs. Í Vestur-Evrópu ætti því að vera mikill framtíðarmarkaður fyrir frystan fisk. Íslendingar framleiða mest Evrópuþjóða af frystum fiskflökum, en framleiðsla Breta og Norðmanna er ört vaxandi.
Freðfiskframleiðsla, sem er tiltölulega ný, hefur vaxið mjög á síðustu árum. Neyzla freðfisks hefur hins vegar ekki vaxið ört í Vestur-Evrópu. Áætlað hefur verið, að hún hafi árið 1955 verið um 100 þús. tonn eða tæplega 0.4 kg á mann, en í Norður-Ameríku nam hún hins vegar á sama ári meira en 300 þús. tonnum eða 1.7 kg á mann. Ein af skýringunum á því, að neyzla freðfisks í Vestur-Evrópu skuli ekki vera meiri, en raun ber vitni um, er sú, að tollar á freðfiski eru yfirleitt háir og hærri, en á öðrum fiskafurðum. Í Frakklandi er t. d. 35% innflutningstollur á frystum fiski, og í viðbót við það koma síðan ýmis önnur gjöld, sem jafngilda tollum, og geta aðflutningsgjöldin þannig komizt upp í rúmlega 45%. Tollurinn er 18% í Ítalíu, 17% í Svíþjóð og 15% í Þýzkalandi. Þetta hefur valdið því, að freðfiskur hefur orðið dýr óhófsvara í ýmsum löndum. Þá er geymslu- og dreifingarkerfi fyrir frosinn fisk mjög ófullkomið eða jafnvel alls ekki til. Talið er, að tala ísskápa í smásöluverzlunum sé ekki hærri en 70 þús., þ. e., að einn skápur komi á meira en 4000 manns. Til samanburðar má geta þess, að í Bandaríkjunum kemur einn skápur á hverja 400 menn. Í fáeinum löndum aðeins, þ. e. a. s. í Noregi, Svíþjóð, Sviss og sumpart í Bretlandi, má segja að til séu svo fullkomin frystikerfi, að meiri hluti neytendanna eigi kost á því að kaupa frystan fisk. Í öllum hinum löndunum, þar sem búa meira en 3/4 hlutar íbúanna, eiga neytendurnir yfirleitt ekki kost á því að kaupa þessa vöru. Hins vegar eru að verða miklar framfarir í þessum efnum, t. d. í Þýzkalandi, Danmörk og Hollandi, en í öðrum löndum, svo sem Frakklandi og Ítalíu, gerist enn lítið á þessu sviði.
Af þessum sökum hefur það gerzt, að verzlun innan efnahagssamvinnulandanna með frosinn fisk hefur að því er virðist ekki aukizt á síðustu árum. Hún virðist ekki hafa verið meiri 1955 en hún var 1951. Útflutningur aðalframleiðsluþjóðanna, Norðmanna og Íslendinga, til hinna efnahagssamvinnulandanna hefur beinlínis minnkað. Öll viðbótarframleiðsla þessara þjóða hefur verið seld til annarra landa, einkum Austur-Evrópu.
Ýmislegt bendir þó til þess, að markaður fyrir freðfisk í Vestur-Evrópu vaxi á næstu árum. Skilningur er hvarvetna í efnahagssamvinnulöndunum að vaxa á því, að ástandi fiskverzlunarinnar sé mjög ábótavant og að skynsamlegasta leiðin til þess að tryggja Vestur-Evrópu gott fiskmeti sé að koma upp geymslu- og dreifingarkerfi fyrir freðfisk og stórauka þannig freðfiskmarkaðinn í Evrópu. Það er aðgangur að þessum markaði, sem Íslendingar væru að tryggja sér, ef þeir gerðust aðilar að fríverzlunarsvæðinu. Það tiltölulega litla magn af freðfiski, sem við höfum undanfarið selt til efnahagssamvinnulandanna, hefur fyrst og fremst farið til Bretlands, Frakklands, Hollands og Svíþjóðar, en fleiri lönd munu vafalaust verða hugsanleg markaðslönd, svo sem Vestur-Þýzkaland, Sviss, Danmörk og fleiri lönd.
Rétt er þó að vara við hugmyndum um, að skyndilega muni skapast mikill markaður fyrir freðfisk í þessum löndum, þótt öll verzlun með hann yrði gefin frjáls, enda er það ekki aðalatriði fyrir Íslendinga, heldur hitt, að skynsamleg ástæða er til þess að ætla, að Evrópa yfirleitt verði í framtíðinni, ef til vill í mjög náinni framtíð, stór og traustur markaður fyrir freðfisk.
Jafnframt því, sem unnið yrði að því að bæta markaðsskilyrði okkar fyrir fiskafurðir og þá einkum freðfisk í efnahagssamvinnulöndunum, þyrfti að skapa hér á landi skilyrði til uppbyggingar stóriðnaðar til útflutnings, ef Íslendingum á að vera kleift að opna land sitt fyrir iðnaðarvörum frá fríverzlunarsvæðinu. En til þess þarf að sjálfsögðu fjármagn, og það yrði að vera erlent að langmestu leyti. Í þessu sambandi vil ég sérstaklega nefna raforkuframleiðsluna, en raforkan er enn og verður eflaust í náinni framtíð ein aðalundirstaða iðnvæðingar. Raforkuframleiðslan er okkur Íslendingum sérstaklega nauðsynleg, þar eð við höfum hvorki kol né olíu í landi okkar, en við höfum góð skilyrði til þeirrar framleiðslu vegna vatnsorkunnar.
Þá ber einnig að nefna jarðhitann, sem Ísland er auðugt af, bæði í mynd heits vatns og gufu. Hagnýtingarskilyrði jarðhitans eru margvísleg auk þeirra nota, sem við nú höfum af honum, til hitunar húsa og gróðurhúsaræktunar. Verið getur, að hægt sé að hagnýta jarðhitann til framleiðslu á þungu vatni og til saltframleiðslu. Er hér um að ræða stórkostleg verkefni, sem án efa verður auðveldara að vinna að og sinna, ef Ísland er aðili að stóru markaðssvæði.
Þá er og rétt að geta þess, að aðild að fríverzlunarsvæðinu þýðir að sjálfsögðu, að við verðum að ná jafnvægi í greiðslum við útlönd og takast að halda því. Þetta þýðir, að við verðum að samræma verðlag innanlands verðlaginu í helztu viðskiptalöndum okkar innan fríverzlunarsvæðisins. Það verður að taka skýrt fram og undirstrika sérstaklega, að með aðild að fríverzlunarsvæðinu mundu Íslendingar afsala sér skilyrðum til þess að bæta gjaldeyrisaðstöðuna í bráð með tollum eða innflutningshöftum frá löndum fríverzlunarsvæðisins, nema um sé að ræða bráðabirgðaástand, en þá er gert ráð fyrir, að höft verði leyfð um tíma. Til þess að halda jafnvægi í viðskiptum út á við, yrði því fyrst og fremst að beita ráðstöfunum á sviði fjármála og peningamála. Ef um er að ræða jafnvægisleysi innanlands, þ. e. að heildareftirspurn innanlands sé meiri en heildarframboð á vörum og þjónustu, þá yrði m. ö. o. hvorki hægt að beita beinum viðskiptahömlum né innflutningstakmörkunum né heldur tollum til þess að reyna að koma á jöfnuði við útlönd, heldur yrði að bæta úr jafnvægisleysinu innanlands með ráðstöfunum á sviði fjármála og peningamála.
Ég hef nú í meginatriðum gert grein fyrir tollabandalagi sexveldanna og hugmyndunum, sem uppi hafa verið um stofnun fríverzlunarsvæðis milli efnahagssamvinnulandanna, og kostum þeim og göllum, sem því mundu fylgja eða gætu fylgt fyrir Íslendinga að gerast aðilar að slíku svæði. Málið er ekki enn komið á það stig, að þurft hafi að skuldbinda Ísland á einn eða annan hátt. Málið er enn á umræðu- og athugunarstigi, og hef ég talið sjálfsagt að fylgjast eins rækilega með öllu, sem gerzt hefur í þessu sambandi, og kostur hefur verið.
Þegar eftir að Bretar settu fram hugmynd sína um stofnun fríverzlunarsvæðis efnahagssamvinnulandanna, skipaði ég nefnd sérfræðinga til þess að vera mér og ríkisstj. til ráðuneytis um þessi mál. Eiga í henni sæti ráðuneytisstjórarnir Þórhallur Ásgeirsson og Sigtryggur Klemenzson og hagfræðingarnir dr. Jóhannes Nordal og dr. Benjamín Eiríksson, og hef ég að sjálfsögðu stöðugt starfað með nefndinni.
Í október s. l. voru þeir ráðherrar efnahagssamvinnulandanna, sem fara með málefni Efnahagssamvinnustofnunarinnar, boðaðir til Parísar til þess m. a. að ræða fríverzlunarhugmyndina í ráði eða stjórn Efnahagssamvinnustofnunarinnar, og var þá ákveðið að stofna ráðherranefndina, sem ég hef þegar getið um. Ég sótti þennan fund ásamt dr. Jóhannesi Nordal, en hann og Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri höfðu áður kynnt sér undirbúning málsins í París. Auk okkar sátu Hans G. Andersen ambassador og Níels P. Sigurðsson sendiráðsritari fundinn.
Þessi ráðherranefnd hefur síðan haldið þrjá fundi. Hef ég ekki getað komið því við að sækja nema einn þeirra, en héðan að heiman hefur dr. Jóhannes Nordal sótt þá alla, auk þess sem þeir ambassadorarnir Hans G. Andersen og Agnar Klemenz Jónsson og Níels P. Sigurðsson hafa setið fundina. Ég sótti síðasta fund ráðherranefndarinnar, sem haldinn var í janúar, enda hafði verið boðað, að viðskipti með landbúnaðarvörur, að fiski meðtöldum, mundu þá verða til umræðu. Ég hef áður gert opinberlega grein fyrir niðurstöðum þess fundar og skal ekki endurtaka það hér. Þó vil ég geta þess, að þar var okkur íslenzku og norsku fulltrúunum til mikillar ánægju ákveðið að greina umr. og ákvarðanir um sjávarafurðir frá umræðum og ákvörðunum um landbúnaðarafurðir og jafnframt fallizt á að skipa sérfræðinganefnd til þess að athuga nánar öll vandamál varðandi verzlun með sjávarafurðir, áður en þau mál verða rædd sérstaklega í ráðherranefndinni. Var því heitið, að við Íslendingar og Norðmenn skyldum fá fulltrúa í þessari nefnd. Geri ég ráð fyrir, að formlega verði gengið frá skipun hennar á næstunni. Þessi ákvæði um aðgreiningu sjávarafurða frá landbúnaðarafurðum eru Íslendingum og Norðmönnum mikilvæg, vegna þess að búast má við, að viðskipti með landbúnaðarvörur verði áfram háð margvíslegum hömlum, jafnvel þótt af stofnun fríverzlunarsvæðisins verði. En fyrst fallizt hefur verið á að greina umr. og ákvarðanir um sjávarafurðirnar frá umræðum og ákvörðunum um landbúnaðarvörurnar, gefur það vonandi vísbendingu um, að skipulag viðskiptanna með sjávarafurðir geti orðið sem frjálsast.
Í gær og í dag er enn fundur í ráðherranefndinni, og sækir dr. Jóhannes Nordal hann auk Hans G. Andersens og Níels P. Sigurðssonar.
Ég endurtek: Á þeim fundum, sem þegar hafa verið haldnir, hafa engar bindandi ákvarðanir verið teknar. Rætt hefur verið um einstök atriði. Það hefur verið rætt um skilyrði þess almennt, að efnahagssamvinnulöndin geri með sér fríverzlunarsamning, og um einstök atriði væntanlegs samnings. Einstök ríki hafa sett fram sjónarmið sín varðandi málið í heild og einstök atriði. En þegar frv. að fríverzlunarsamningi liggur fyrir, er sérhverju ríki jafnfrjálst að gerast aðili að honum og að neita því.
Þó að hvorki ég né aðrir fulltrúar Íslands, sem tekið hafa þátt í umræðum um fríverzlunarmálið, hafi gefið neinar bindandi yfirlýsingar varðandi afstöðu Íslands, höfum við þó að sjálfsögðu þurft að láta í ljós viðhorf okkar til málsins í heild og ýmissa einstakra atriða. Við höfum þó jafnan haft skýran fyrirvara um endanlega afstöðu Íslendinga og raunar ekkert sagt annað, en ég tel geta skoðazt sjálfsagða lýsingu á augljósum hagsmunum Íslendinga. Íslendingar eru aðilar að Efnahagssamvinnustofnun Evrópu. Þess vegna liggur í hlutarins eðli, að þeir taki þátt í umræðum innan þeirrar stofnunar um mál, sem augljóslega hefur jafnstórkostlega þýðingu fyrir íslenzka hagsmuni og stofnun fríverzlunarsvæðisins mundi hafa, ef úr henni yrði. Það, sem enn hefur gerzt, er það eitt, að bent hefur verið við öll tækifæri, sem gefizt hafa, á hagsmuni Íslendinga og áhugamál þeirra varðandi bætt skilyrði til útflutnings sjávarafurða.
Ég skal nú að síðustu gera grein fyrir þeim sjónarmiðum, sem ég og aðrir fulltrúar Íslands hafa lýst í þeim umræðum, sem hingað til hafa farið fram.
Tekið hefur verið skýrt fram, að Ísland geti ekki gerzt aðili að fríverzlunarsvæðinu, nema tvö meginskilyrði væru uppfyllt: Í fyrsta lagi, að markaður fyrir íslenzkan fisk í fríverzlunarlöndunum ykist nægilega, og í öðru lagi, að ráð fyndust til þess að byggja upp nýja útflutningsatvinnuvegi og auka þá, sem fyrir eru. Tekið hefur verið fram, að það væri mjög mikilsvert fyrir Íslendinga, að fríverzlunin tæki til alls fisks og allra fiskafurða.
Við höfum tekið fram, að hugmynd, sem Norðmenn hafa sett fram um, að fríverzlunin tæki til svokallaðs iðnaðarfisks, þ. e. freðfisks, síldarmjöls, síldarollu og niðursoðins fisks, væri Íslendingum ekki fullnægjandi, ef verzlun með saltfisk, skreið, saltsíld og ísfisk yrði undanskilin. Bent hefur verið á, að tollabandalag sexveldanna mundi hafa alvarleg áhrif á útflutning Íslendinga, ef fríverzlunin yrði ekki látin taka til sjávarafurða.
Bent hefur verið á, að jafnvel þótt tollar og innflutningshömlur á sjávarafurðum yrðu algerlega afnumdar, mundu verða ýmsir erfiðleikar á því að auka fljótlega sölu á íslenzkum sjávarafurðum í fríverzlunarlöndunum, eigi það í fyrsta lagi rót sína að rekja til hins ófullkomna geymslu- og dreifingarkerfis, og í öðru lagi til neyzluvenju neytendanna í þessum löndum. Hefur í þessu sambandi verið lögð sérstök áherzla á nauðsyn þess að bæta eða koma upp fullkomnu geymslu- og dreifingarkerfi fyrir hraðfrystan fisk í löndum fríverzlunarsvæðisins. Þar eð slíkt geymslu- og dreifingarkerfi vantar bæði á heildsölu- og smásölustiginu, mundi bygging þess kosta verulega fjármuni, sem ekki er við að búast að íslenzkir seljendur hafi til ráðstöfunar. Þess vegna hefur verið lögð áherzla á nauðsyn þess, að um sameiginlegt átak verði að ræða, og bent á, að Efnahagssamvinnustofnunin geti haft mikilvægu hlutverki að gegna í þessu sambandi.
Varðandi landbúnaðinn hefur verið tekið fram, að ekkert sé að sjálfsögðu hægt að segja um nauðsyn sérstakra ráðstafana vegna íslenzks landbúnaðar, meðan alls ekkert sé um það vitað, hvaða reglur komi til með að gilda um viðskipti með landbúnaðarvörur á fríverzlunarsvæðinu. Bent hefur verið á, að verulegur hluti íslenzkrar landbúnaðarframleiðslu njóti mikillar verndar, þ. e. mjólkurafurðir og egg, og frjáls innflutningur á slíkum vörum mundi verða íslenzkum landbúnaði alvarlegt áfall. Hins vegar hefur verið á það bent, að aðrar landbúnaðarvörur séu nú fluttar út í allverulegum mæli, þ. e. kindakjöt, ull og gærur, og mjög nauðsynlegt sé að tryggja markað erlendis fyrir þessar vörur. Að síðustu hefur verið tekið fram, að innflutningur mjög margra mikilvægra landbúnaðarvara sé nú frjáls og lágtollaður, þ. e. korns og sykurs.
Varðandi stöðu íslenzks iðnaðar hefur verið tekið fram, að aðild að fríverzlunarsvæðinu mundi hafa í för með sér erfiðleika fyrir nokkurn hluta þess iðnaðar, sem framleiðir neyzluvörur fyrir innanlandsmarkaðinn. Á þessu sviði mundu þurfa að verða talsverðar breytingar í atvinnulífinu, og væri nýtt erlent fjármagn mjög nauðsynlegt til þess að auðvelda þær. Bent hefur verið á, að þær framkvæmdir, sem helzt skorti fé til á Íslandi, séu einkum þessar: Bygging fiskiskipa, fiskvinnslustöðva og hafna, bætt skilyrði til þess að auka fjölbreytni í landbúnaðarframleiðslunni, framkvæmdir til þess að hagnýta orku fallvatna og jarðhita, stofnun nýrra iðnfyrirtækja til framleiðslu á útflutningsvörum og öflun nýrra samgöngutækja, bæði skipa og flugvéla. Tekið hefur verið skýrt fram, að íslendingar muni ekki geta skuldbundið sig til þess að lækka tolla á iðnaðarvörum frá fríverzlunarlöndunum hraðar, en tekst að auka fiskútflutning til þessara landa eða byggja upp nýjar iðngreinar, sem þýðingu hafa fyrir greiðslujöfnuðinn, með aðstoð erlends fjármagns.
Þá hefur verið lögð sérstök áherzla á þýðingu jafnkeypissamninganna, sem við nú höfum við ýmis helztu viðskiptalönd okkar. Tekið hefur verið fram, að Íslendingar muni telja nauðsynlegt að láta þær tollalækkanir, sem leiðir af aðild að fríverzlunarsvæðinu, einnig ná til innflutnings frá öllum öðrum þjóðum. Hefur í þessu sambandi verið bent á, að óvíst sé, að þetta eigi við nokkurt annað land, sem rætt hefur verið um að gerist aðili að fríverzlunarsvæðinu, og bent sérstaklega á þetta sem rök fyrir því, að ekki sé hægt að ætlast til þess, að Íslendingar lækki tolla sína jafnhratt og hinar þjóðirnar, — þar eð Íslendingar selja nú um 45% útflutningsins til jafnkeypislanda, geti þeir ekki gerzt aðilar að fríverzlunarsvæðinu, nema því aðeins að þeir geti jafnframt gert nauðsynlegar ráðstafanir til þess að geta haldið mörkuðum sínum í þessum löndum, en það er ekki hægt nema með því að tryggja þeim skilyrði til innflutnings jafnmikils vöruverðmætis til Íslands eins og þeir kaupa frá Íslandi. Þess vegna hefur verið tekið fram, að Íslendingar verði að fá að halda sérstökum reglum varðandi innflutning mikilvægra vöruflokka, sem fluttir eru frá vöruskiptalöndunum, vegna útflutnings Íslendinga þangað. Bent hefur verið á, að mikill hluti innflutningsins frá þessum löndum sé án efa samkeppnishæfur án sérstakra ráðstafana, en þær séu þó nauðsynlegar vegna nokkurs hluta innflutningsins.
Sagt hefur verið, svo sem ég gat um áðan, að halda verði verndartollum vegna sumra greina innlenda iðnaðarins, þangað til tekizt hafi að efla þær og aðhæfa hinum nýju aðstæðum eða byggja upp nýjar atvinnugreinar í stað þeirra. Þá hefur verið tekið fram, að við gerðum okkur að sjálfsögðu ljóst, að aðild Íslendinga að fríverzlunarsvæðinu væri óhugsandi, nema verðlag á Íslandi yrði samræmt verðlagi helztu viðskiptalanda innan fríverzlunarsvæðisins.
Þetta eru þau sjónarmið, sem ég og aðrir fulltrúar Íslands höfum látið í ljós í þeim umræðum og viðræðum, sem fram hafa farið um fríverzlunarmálið. Hér er fyrst og fremst um að ræða staðreyndir, sem ég tel að ekki eigi að þurfa að verða ágreiningur um. Enn verður ekkert um það sagt, hvernig endanlegt frv. að fríverzlunarsamningi kann að verða. Enn verður ekkert um það vitað, hvaða ákvæði þar kunni að verða um það atriði, sem okkur skiptir mestu máli, þ. e. viðskiptin með sjávarafurðirnar. Ekkert verður heldur um það vitað, hvort við eigum kost á þeim undantekningum frá væntanlegum grundvallarreglum samningsins, sem mundu gera okkur kleift að viðhalda jafnkeypisviðskiptunum og veita innlendum landbúnaði og innlendum iðnaði nauðsynlega vernd a. m. k. þann tíma, sem við teljum þessar atvinnugreinar þurfa á að halda til þess að halda aðstöðu sinni.
Þegar allt þetta liggur fyrir kemur tími til þess fyrir okkur Íslendinga að segja við því já eða nei, hvort við viljum gerast aðilar að fríverzlunarsvæði í Evrópu. Þangað til er það hlutverk okkar að fylgjast rækilega með öllu, sem gerist varðandi þetta mál, og safna sem gleggstum gögnum um hag og aðstöðu okkar sjálfra til þess að vera sem bezt undir það búnir að geta tekið skynsamlega og rökstudda ákvörðun, þegar ákvörðunarstundin kemur. Jafnframt þurfum við að vinna að því, að í frv. um fríverzlunarsamninginn verði tekið fullt tillit til sérstakrar aðstöðu og sérstakra vandamála Íslands. Við hljótum að sjálfsögðu að óska þess, að samningsfrv. verði okkur eins hagstætt og unnt er. Þegar það liggur fyrir, verður svo að meta, hvort niðurstaðan sé slík, að við megi una.