26.02.1958
Neðri deild: 54. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1880 í B-deild Alþingistíðinda. (3022)
Landhelgismálið
Ólafur Thors:
Herra forseti. Ég hef ekki lagt í vana minn að tefja umr. hér á þingi. Ummæli hæstv. forseta um, að umr. yrðu stuttar, bjóst ég þess vegna við að ættu við hina, en ekki mig, einnig af því að ég veit, að honum þykir mjög gaman að hlýða á mitt mál og mér á hans. Það er alveg gagnkvæmt. Hins vegar er málið svo stórt, að það er kannske ekki goðgá, þó að það taki nokkurn tíma. Ég skal nú að öðru leyti laga mig eftir óskum hæstv. forseta, eins og ég mögulega get, og vona, að ég þurfi ekki að ofreyna hans þolinmæði.
Ég verð nú að segja það um ræðu hv. þm. Benedikts Gröndal, 5. landsk., að í sjálfu sér var hún ekki veigameiri en það, að þegar við aumleika þeirrar ræðu bætist ósk hæstv. forseta um, að ég stytti mál mitt, þá er náttúrlega eðlilegast, að ég gangi fram hjá honum. Ég harma þó, að í viðbót við barnaskap, sem þessi hv. þm. hafði sýnt í meðferð málsins í þeim greinum, sem hann hafði skrifað, bættist svo líka, að hann sýndi, að hann er alveg forhertur. Þetta er enginn auli, það er langt því frá eftir því litla, sem ég þekki hann, en hann er algerlega forhertur. Þegar ég er búinn að hamra ofan í hann með rökum, sem ég vonaði að hann hefði ekki þekkt áður, að einn og tveir séu þrír, þá segir hann: Þetta er tóm vitleysa, það er bara einn, — og stendur á því fastar en fótunum. Hv. þm. hristir höfuðið. Hann má ekki hrista á sér hausinn of mikið. Það getur vel verið, að af honum detti þá þrír hausar, hver með sínu viti.
Aðalkjarni í hans vörn átti að vera sá, að Morgunblaðið hefði verið hinn seki í þessu atriði. Hv. 1. þm. Reykv. gerði svo glögg skil þeirri hlið málsins, að það er að bera í bakkafullan lækinn að endurtaka það. Ég minni aðeins á það, að Morgunblaðið prentaði upp úr stærsta stjórnarblaðinu þau ummæli, sem þar voru um hæstv. utanrrh. höfð í sambandi við þetta mál, og óskaði skýringa. Þær skýringar veitti þessi hv. þm., sem er stuðningsmaður, — ja, maður veit að vísu ekki með vissu, hvers stuðningsmaður hann er, en ég hélt, að hann væri fyrst og fremst stuðningsmaður hæstv. utanrrh. Hann leiddi það alveg hjá sér, þótt Þjóðviljinn réðist á hann, en reyndi hins vegar að ásaka Morgunblaðið, sem ekkert hafði til saka unnið annað en breiða svolítið út það, sem Þjóðviljinn hafði um málið sagt, af því að það er víðlesnara.
Hv. þm. sagði, að það væri ekki nema eðlilegt, að það væri skoðanaágreiningur innan ríkisstj. um slíkt mál. Það er alveg rétt. Það er eðlilegt, að menn hafi mismunandi skoðanir, að svo miklu leyti sem menn hafa skoðanir. En ég veit náttúrlega ekki um þennan mann, hverjar hans skoðanir eru, eins og ég tæplega veit, hvort hann er heldur í Framsfl. eða Alþfl., því að kosinn er hann með atkv. beggja, og sannfæringuna gegnumlýsir maður ekki jafnauðveldlega og þá staðreynd.
Það er staðreynd, sem fullkomlega er hér upplýst, hvað sem hv. þm. segir og hvað sem hæstv. atvmrh. segir, að um þetta mál ríkti fullkominn ágreiningur innan stjórnarinnar, eins og ég sannaði með skriflegum gögnum mér sendum og í hendur lögðum af hæstv. ráðh.
Þessi hæstv. ráðh. endaði með því að segja: Ég stend við allt, sem ég hef sagt um málið. Ég óska honum til lukku. Honum er ekki klígjugjarnt.
Það var aðeins eitt í ræðunni um málið, sem mér þykir ástæða til að víkja að. Þessi þm. spurði: Hvernig stóð á því, að þeir tveir þm. Sjálfstfl., Bjarni Benediktsson og Ólafur Thors, ræddu ekkert við Hans Andersen um þetta mál, sem þó var þeirra trúnaðarmaður í málinu?
Það stendur þannig á því, að þegar við erum búnir að skrifa ríkisstj. með ósk um það, að okkar samstarf í málinu verði virt, og setja fyrir því engin ósanngjörn skilyrði, eins og ég áðan sagði, og við erum ekki virtir svars við þessu bréfi, þá teljum við enga ástæðu til að vera að yfirheyra okkar einkavin og fyrri trúnaðarmann og nána samstarfsmann í þessu máli, yfirheyra hann í einkaviðræðum um það. Það gat verið honum til óþæginda og okkur að því leyti ekki samboðið, eftir að ríkisstj, hafði virt okkur alveg að vettugi með því að neita um samstarf og slá á útrétta hönd.
Ég kalla einnig hæstv. ráðh., svo að ég víki nokkrum orðum að honum, kjarkmikinn, þegar hann staðhæfir hér æ ofan í æ, að engin ákvörðun hafi verið tekin í þessu máli, þegar hv. 1. þm. Reykv. og ég komum á ríkisstjórnarfund snemma í október. Hann skrifar mér þó sjálfur, að hann hafi viljað hefjast handa 1. okt., það hafi verið hans krafa að hefjast handa 1. okt., þ. e. a. s. áður en við vorum kvaddir á hans fund, en hann hafi hætt við það vegna andstöðu hæstv. utanrrh.
Ágreiningur er þess vegna eins ljós, þegar af þessari ástæðu, eins og hann yfirleitt getur verið, en auk þess minni ég á hin fyrri ummæli, er ég áður las upp úr bréfum hans, þar sem hann segir, eins og ég áðan skýrði frá: Ég vildi gera þetta, þ. e. a. s. hefjast strax handa, utanrrh. sagði nei, og ég gafst upp og beygði mig. Þetta liggur líka fyrir, áður en við komum á fundinn.
Hann segist hafa verið að spyrja okkur um, hvort við vildum ekki standa að framkvæmdum með stj., og sagði enn fremur orðrétt: „velja þann tíma, sem allir flokkarnir vildu fallast á.“ Hvaða tími var það? Hvaða tími var það, sem allir flokkarnir vildu fallast á? Það var eftir Genfarráðstefnuna. Við erum þess vegna kallaðir eingöngu til að skrifa upp á uppgjafarvíxil þessa hæstv. ráðh. Við erum kallaðir til þess, að hann utan yfir skrúða utanrrh., sem hann klæddi sig í, þegar hann gafst upp, geti fengið okkar skikkju til að punta sig með. Ráðherrann gafst upp, og við treystum okkur ekki til að endurreisa fallinn bróður. Hann var ekki þesslegur þá og er það raunar ekki heldur nú.
Það stendur þess vegna sem óbifanleg staðreynd, að við erum kallaðir upp í stjórnarráð, þegar búið er að taka ákvörðun og til þess eins að reyna að fá okkur til að fallast á þá ákvörðun, til að reyna að fá okkur til að samþykkja það, sem búið er að gera. En ráðherrann kunni svo sem ráð við þessu. Hann var ekki hræddur við að reyna að opna gildruna, sem hann er kominn inn í. Hann opnaði hana og ætlaði að ganga út. Jú, hann sagði öllum í þinginu frá því, að á þessum fundi hefði utanrrh, alveg fullkomlega látið liggja að því, að hann væri til umræðu um að falla frá sínu, — alveg fullkomlega. Það hefði þess vegna allt verið okkur að kenna, að ekki tókst allsherjareining. Ja, ráðherrann nikkar. Hann má nikka mikið. Á ég að segja honum af hverju? Það var af því, að utanrrh. var ekki á fundinum. Hann var ytra. Ja, það þýðir nú ekki að neita þeirri staðreynd. Það er bezt, að hann spyrji hv. sessunaut sinn, hæstv. menntmrh. Hann er nefnilega ekki orðinn einn af þeim mönnum, sem er sama, hvort hann segir satt eða ósatt. En ég hygg, að hæstv. menntmrh. muni vel, að hæstv. utanrrh. var alls ekki á þessum fundi. Hann var utanlands. Já, hann nikkar. Ég átti líka von á því. Nei, hann kærir sig ekki um að bera ljúgvitni gegn náunga sínum, hæstv. menntmrh., en náunginn er nú að vísu aðallega sá, sem situr við hliðina á honum, en ég er líka náungi, og hann segir sannleikann. Já, ég sé, að hæstv. atvmrh. bregður, aldrei þessu vant. Ég hélt, að hann væri búinn að segja svo oft ósatt, að hann þyrfti ekki að roðna eins og ung stúlka, þó að honum yrði þetta á. Það er ekkert feimnismál, þó að atvmrh. sé svolítið ósannsögull.
Nei, þetta kom vel á vondan. Hann lagði með þessum mikla ánægjusvip út af því, hvað allt væri þessum ótugtar sjálfstæðiskörlum að kenna, því að jafnvel hinn elskulegi utanrrh., hans einkavinur, hefði verið alveg að því kominn að bogna, þegar hv. 1. þm. Reykv. (BBen) og ég hertum hann upp. Ja, það er von. Ég vildi nú í sporum þessa hæstv. ráðh, vinna mikið til að komast út úr þessu. Það er hægt, ef ég má nota óþinglegt orðbragð, að ljúga sig frá einkaviðtölum, en þar sem svona mörg vitni eru eins og hér, þingsalur fullskipaður og jafnvel pallarnir líka, þá er erfitt að komast út úr þessu,
Hæstv. ráðh. sagði, að það væri órétt hjá mér, — og þó sagði hann það nú ekki skýrlega, — að atvmrh. réði. Hann játaði, að lagabókstafurinn segði það, en það væri óhyggilegt að nota vald sitt. Það liggur ekkert fyrir okkur í málinu, — okkur, sem hann segir að vitum allt í þessu máli, — annað en það, að hæstv. ráðh. læzt hafa viljað hefjast handa 1. okt., en staðhæfir, að hæstv. utanrrh, hafi ekki viljað það. Liggur það í hlutarins eðli, að hæstv. utanrrh, sé svo miklu meiri vitmaður, en hæstv, atvmrh., að á þeim sviðum, sem atvmrh. að lögum hefur valdið, beri honum að beygja sig í duftið, ef hann veit bara, hvað utanrrh. vill? Ef þessa tvo ráðh. greinir á, þá mundi ég hiklaust segja: Ja, ef ekki öll ríkisstj. er á móti mér, þá fer ég mínu fram, og jafnvel þótt ríkisstj. sé á móti mér, þá fer ég mínu líka fram, ef ég hef valdið, og þangað til ég segi af mér eða hæstv. forsrh. biðst lausnar fyrir mig.
Ég minni svo á, að hæstv. ráðh. sagði áðan, að við sjálfstæðismenn hefðum eiginlega sýnt okkar innræti með því, að við hefðum viljað fara í bréflegar stælur og fara að þræta um þetta mál.
Ég las hér áðan upp þrjú bréf. Fyrsta bréfið er svar okkar við skýrslu ráðh., og í því segir, að við teljum, að stjórnin hafi verið búin að binda sig. Ég sé, að hæstv. félmrh. (HV) hvíslar einhverju að ráðherra. Þetta er nú þriðji ráðherrann, sem kemur að hvísla að þessum þarna í ráðherrastólnum, og ég held, að það væri nærri betra að taka hann út og semja fyrir hann ræðu. En „sárt ertu nú leikinn, Sámur fóstri“, þegar félmrh. þarf nú að fara að hjálpa. (Félmrh.: Menn þurfa nú kannske ekki að leita leyfis til formanns Sjálfstfl., þó að menn tali saman.) Ja, það er nú svona á takmörkum, á meðan ég er að tala, (Forseti hringir.) Mér fannst hæstv. forseti hafa sínar meiningar um það.
Hann sagði, að við hefðum ætlað að fara að rífast um málið. Fyrsta bréfið var svona, eins og ég sagði. Annað bréfið hans neitar staðreyndum. Við svörum og segjum: Við skulum ekki eyða tímanum í neinar þrætur og stælur. Við viljum vinna með ykkur. Viljið þið vinna með okkur, segja okkur til, hvort þið viljið fullnægja okkar skilyrðum? — Svo kemur þessi ráðh. og segir, að við höfum viljað fara í ritdeilur og stælur um þetta. Við segjum: Að gefnu tilefni viljum við samvinnuna. Við setjum skilyrði, sem enginn þorir að segja að séu ósanngjörn, og okkar óskir eru virtar að vettugi, og við fáum ekkert svar. Það vorum þess vegna ekki við, sem vildum stæla eða þræta. Það erum við, sem vildum samvinnuna. Það er líka í samræmi við fortíð okkar í landhelgismálinu og það eitt.
Hæstv. ráðh. segir, að ríkisstj. hafi látið hendur standa fram úr ermum, síðan okkar bréfaskriftir fóru fram. Ég segi: Ef verið er að leita nú til okkar á elleftu stundu, af hverju vorum við þá ekki látnir fylgjast með því? Og hvað hefur ríkisstj. yfirleitt gert í þessu síðan? Er það ekki staðreyndin í málinu, að þessi hæstv. ráðh., sem þóttist kunna öll ráð í þessu máli, áður en hann fékk völd í landinu, missti alveg eða týndi öllum þessum ráðum, þegar hann settist í ráðherrastólinn? Og ráðlaus kallaði hann svo saman ráðstefnu til að fá ráð, og þegar hann fékk ráðin, þá gleymdi hann, hvað honum var ráðlagt, og framkvæmdi ekkert af þeim. Þegar hann fékk ráðin, missti hann ákvörðunarhæfileikann. Er það ekki staðreyndin?
Og ég spyr svo loksins, ef það skiptir svo miklu máli að kveðja okkur til samstarfs: Um hvað á að ræða? Var það ekki, eins og segir í skýrslu ráðh., eingöngu til að ræða um framkvæmdartímann. Ef við vorum kvaddir til þess að ræða um það og það eitt, var það þá ekki aðalatriði í huga ráðh., og hvers vegna guggnaði hann þá, sem valdið hafði? Hvers vegna gerði hann það? Mig langar, að hann svari því, úr því að hann taldi það þá aðalatriðið.
Er þá ekki sannleikur málsins sá, að þessi ráðh. hefur aldrei haft neinn áhuga fyrir þessari hlið málsins? Og hann var eiginlega núna að reyna að klæða það í þann búning. Öll hans framkoma hefur þess vegna miðazt við það: Ég vil geta prýtt mig með því að hafa viljað hefjast handa 1. okt. Ég vil ná í einhvern, sem ég get skammað fyrir það að hafa ekki viljað það, og það er nú fyrst og fremst utanrrh. Forsrh. getur ekkert unnið í þessu máli. Og nú er mér ekki nóg að skamma utanrrh., þess vegna reyndi ég að ná í Sjálfstfl., til þess að ég gæti skammað hann líka.
Þetta er skrípaleikurinn, sem verið er að leika. En því verður aldrei með rökum mótmælt í þessu máli, að allar þessar ákvarðanir var búið að taka, þegar við vorum kvaddir til ráða. — Svo þakka ég hæstv. forseta.