08.05.1958
Sameinað þing: 44. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (3101)
Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa
Forseti (EmJ):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá hæstv. forseta Nd.:
„Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Magnúsi Jónssyni, hv. 2. þm. Eyf., fyrir hönd Sjálfstfl.:
„Hér með leyfi ég mér að tjá yður, herra forseti, að Bjarni Benediktsson, 1. þm. Reykv., verður erlendis um nokkurt skeið, og er þess óskað, að 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Angantýr Guðjónsson, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Einar Olgeirsson, forseti neðri deildar. Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Verður nú gefið hlé, meðan kjörbréfanefnd athugar kjörbréf Angantýs Guðjónssonar. [Fundarhlé.]