03.12.1957
Neðri deild: 32. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í B-deild Alþingistíðinda. (312)

67. mál, fasteignamat

Jón Pálmason:

Herra forseti. Það var gert ráð fyrir því, þegar lögin um samræmingu á mati fasteigna voru samþykkt, að sú hækkun, sem þau hafa í för með sér, hefði ekki áhrif í þá átt að hækka skatta til sveitar- og bæjarfélaga eða ríkisins. Nú hef ég ekki enn þá séð neitt frv. frá hæstv. ríkisstj. til breytingar á eignarskattslögunum, sem nauðsynlegt er að fá fram í samræmi við þetta sjónarmið, og vildi ég því spyrjast fyrir um það, hvað því liði eða hvort ekki væri væntanlegt frv. um breytingu á þeim lögum, sem grundvallaðist á þessu sjónarmiði.

Varðandi það frv., sem hér liggur fyrir, þá snertir það sýnilega eingöngu sveitar- og bæjarfélögin, og ég verð að játa það, að ég hef ekki kynnt mér reglugerðir þær, sem um er að ræða, en vildi þó biðja hv. fjhn., sem að sjálfsögðu fær þetta frv., að athuga, hvort það eru ekki einhverjir þessir skattar, sem hér koma til greina, sem falla í gjalddaga, áður en hér er gert ráð fyrir, þ.e. fyrir 31. des. 1958, því að það þarf auðvitað að athugast. Ef einhverjir þeir skattar, sem hér koma til greina til sveitar- og bæjarfélaganna, falla í gjalddaga fyrr, verður það að takast fram í þessu frv. Enn fremur má á það minna, að það er eitt gjald, sem er talsvert veigamikill skattur í sveitum landsins, en það er gjald til sýsluvegasjóða. Í samræmi við hið sama sjónarmið, sem ég hef hér vikið að, þyrfti að sjálfsögðu að taka það til athugunar á þessu þingi, og er æskilegt að fá að vita frá hæstv. ríkisstj., hvort það er ekki í undirbúningi.

Að öðru leyti sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að hraðað sé afgreiðslu þessa máls, eins og hæstv. félmrh. fór fram á, aðeins að það sé athugað af þeirri hv. nefnd, sem fær það, að það sé ekki um neinn árekstur þarna að ræða.