12.03.1958
Sameinað þing: 33. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1960 í B-deild Alþingistíðinda. (3133)
Raforkuráð
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að vekja athygli á því, að enn hefur ekki verið kosið í raforkuráð, en samkv. raforkulögunum ber sameinuðu Alþingi að kjósa fimm manna raforkuráð á fjögurra ára fresti. Nú rann það tímabil ráðsins út í árslok s. l., og er því hálfur þriðji mánuður liðinn, sem ekkert raforkuráð hefur starfað, en því ber samkv. raforkulögunum að hafa ýmis verkefni með höndum, og hirði ég ekki að fara að lesa hér upp raforkulögin. En ég vænti þess, að hæstv. forseti telji það óviðeigandi, að raforkulögunum sé ekki fullnægt í þessu efni, og hann hlutist til um það, að raforkuráð verði kosið sem fyrst: