23.04.1958
Sameinað þing: 40. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1960 í B-deild Alþingistíðinda. (3137)
Raforkuráð
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Mig langar til þess að spyrjast fyrir um það, hvernig á því stendur, að enn þá hefur ekki verið kosið í raforkuráð. Svo sem kunnugt er, féll niður umboð raforkuráðsmanna um síðustu áramót, og átti þá að kjósa nýtt raforkuráð. Það hefur öðru hverju verið á dagskrá hér að kjósa í raforkuráð. Nú er hins vegar svo komið, að það er hætt að hafa það á dagskrá. Það væri mjög fróðlegt, ef hæstv. forseti gæti upplýst um það, hvernig á því stendur, að þessi kosning fer ekki fram, eins og lög gera ráð fyrir.