18.12.1957
Neðri deild: 46. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1962 í B-deild Alþingistíðinda. (3143)

Þingfrestun og setning þings

forseti (EOl) :

Svo fremi að ekkert óvænt komi fyrir, að mál í Ed. þurfi að koma hingað aftur eða annað slíkt, þá verður þetta síðasti fundur þessarar hv. d. fyrir jólafrí þm., og með því fororði og skilyrði, að hugsanlegt sé, að fundur verði haldinn, ef eitthvað breytist, þá vil ég leyfa mér að þakka öllum hv, þdm. fyrir ágæta samvinnu við mig, þakka þeim fyrir þeirra umburðarlyndi í minn garð. Ég vil leyfa mér að óska þeim öllum gleðilegra jóla og góðs nýárs og þakka þeim fyrir hið liðna ár. Ég vil sérstaklega óska þeim þm., sem fara nú héðan brott til sinna heimila, góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og að við megum allir hittast heilir aftur að loknu jólafríi, sem að þessu sinni mun vera alllangt, þar sem þing mun líklega ekki verða kvatt saman aftur, fyrr en fyrstu daga í febrúar. Ég vil svo leyfa mér að óska öllum hv. þm. gleðilegs nýárs og gleðilegrar hátíðar.