14.12.1957
Efri deild: 39. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í B-deild Alþingistíðinda. (3162)

73. mál, kosningar til Alþingis

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Það er nú svo búið að fara nákvæmlega yfir þetta frv., sem hér liggur fyrir, að það mun ekki verða mikið, sem ég bæti við það.

Hv. 6. þm. Reykv. hefur nú tekið frv. grein fyrir grein og sýnt ljóslega fram á, um hverja lagasmíði er hér að ræða.

Það er eitt atriði, sem hann reyndar kom nú inn á, í sinni ræðu, en ég vildi aðeins minnast frekar á. Það er 1. gr. frv., sem fjallar um utankjörstaðaatkvgr. Þar er gert ráð fyrir, að í viðbót við þær reglur, sem nú gilda um atkvgr. utan kjörstaðar, skuli viðkomandi kjörstjóri yfirheyra kjósandann mjög nákvæmlega og fá að vita ástæðuna til þess, að hann óskar að greiða atkv. utan kjörstaðar. Það á þá að byrja á því að yfirheyra kjósandann nákvæmlega um þetta, heimta af honum upplýsingar, að hann geri sem nákvæmasta grein fyrir því, hvar hann verður á kjördag. Allar þessar upplýsingar, sem maður veit nú ekki enn þá, hvað verða heimtaðar miklar, en allar þessar upplýsingar á að færa inn í sérstaka bók, sem yfirkjörstjórn löggildir í þessu skyni.

Nú er mér forvitni á að vita, hvernig þetta er hugsað í framkvæmd. Ég geri ráð fyrir því, að meiri hluti þeirrar nefndar, sem um þetta mál fjallaði, hafi athugað þetta atriði og einkanlega hvernig þetta verður í framkvæmd. Við skulum hugsa okkur t.d., að það sé kosið um borð í skipi, og á þessu skipi greiða atkv. menn úr, ja, við skulum segja fjórum kjördæmum. Þeir eru allir yfirheyrðir samkvæmt eðli málsins um það, hvernig standi á því, að þeir ætli að greiða atkv. fyrir kjördag, og sömuleiðis, af hverju þeir ætli ekki að vera heima á kjördag. Við skulum nú segja, að þessar upplýsingar í þessu tilfelli liggi nokkuð ljóst fyrir, þar sem um sjómenn er að ræða, sem verða atvinnu sinnar vegna að vera í burtu. En svo skulum við taka annað dæmi, að hér í Reykjavík eru fjöldamargir menn, sem greiða atkv. fyrir kjördag, vegna þess að þeir verða ekki staddir á kjördegi heima hjá sér eða þar sem þeir eiga lögheimili og þar sem þeir eru á kjörskrá.

Nú á að færa allar upplýsingar um þessa menn inn í sérstaka bók. En á kjörstjóri að hafa eina bók fyrir alla þessa menn, eða á hann að hafa bók fyrir hvert kjördæmi og hverja kjördeild? Ég hef verið að veita þessu fyrir mér, og ég fæ það ekki skilið, hvernig þessu verður fram komið. Það segir í lok 1. gr. hér, að aftan við gr. bætist ný mgr., svo hljóðandi, þ.e.a.s. aftan við 70. gr. kosningalaganna: „Frambjóðendur og umbjóðendur framboðslista skulu hafa aðgang að bók þeirri, sem um getur í 1. mgr. þessarar gr.“ M.ö.o.: á hverjum kjörstað, þar sem utankjörstaðaratkvæði kemur fram, á að liggja fyrir bókun um það, hvernig standi á því, að það er komið. Ég get ekki skilið þetta á annan veg. Og þá verða jafnmargar bækur að vera eins og kjörstaðirnir eru margir.

Þetta er aðeins eitt atriði í þessum lögum, sem ég hef verið að velta fyrir mér, hvernig á að framkvæma.

Ég skal ekki fara fleiri orðum um frv. sjálft, en mér þætti gott að fá upplýsingar um þetta. Ef þetta er einhver misskilningur hjá mér, þá þætti mér gott að fá hann leiðréttan, en ef það er ekki, þá að fá að vita það, hvernig meiri hluti nefndarinnar, sem ekki sá ástæðu til þess að breyta þessu í frv., þó að hann breytti mörgu, hugsar sér, að þetta verði framkvæmt.