14.03.1958
Neðri deild: 66. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í D-deild Alþingistíðinda. (3164)
143. mál, verslunarviðskipti við herlið Bandaríkjanna
Flm. (Einar Olgeirsson):
Hæstv. utanrrh. hefur nú gefið hér nokkrar upplýsingar af hálfu síns embættis um þau viðskipti, sem þarna hafa farið fram, og nokkrar af þeim upplýsingum eru þess eðlis, að það er auðsjáanlega þörf á frekari upplýsingum um þá hluti, sem hann hefur minnzt hér á.
Hæstv. utanrrh. sagði, að Sameinaðir verktakar hefðu raunverulega verið leystir upp 1957 og að þessi upplausn Sameinaðra verktaka hafi verið ástæða til þess, að þetta félag hefði eiginlega átt „móralska“ kröfu á því að fá leyfi til þess að flytja ýmislegt út af Keflavíkurflugvelli.
Má ég spyrja í þessu sambandi, því að ég hef aldrei séð neitt um, að Sameinaðir verktakar hafi verið leystir upp: Er það rétt hjá mér, að félagið Aðalverktakar h/f sé samsett af nokkrum félögum, þ. á m. Sameinuðum verktökum h/f, — eða hvort þeir eru nú hlutafélag eða ekki, — Regin h/f og jafnvel íslenzka ríkinu? Eru ekki Sameinaðir verktakar lifandi áfram á sama hátt og þeir hafa verið allan þennan tíma? — Og ef þeir eru það ekki: Hver hefur þá tekið við þeirra aðild af Aðalverktökum eða hvers konar breyting hefur orðið þar á? Ég hef ekki vitað betur en að Sameinaðir verktakar séu aðaleigendur Aðalverktaka, þannig að mér kemur nokkuð spánskt fyrir sjónir, ef það fyrirtæki hefur verið leyst upp.
Síðan upplýsir hæstv. ráðh., að 5. sept.1957 hafi þessir Sameinaðir verktakar skrifað bréf, þar sem þeir fari fram á þetta, og eftir því sem mér skilst, hefur því bréfi verið svarað mjög fljótt, ef ekki samdægurs, þá a.m.k. 6. sept. Það er náttúrlega ákaflega gleðilegt, þegar ráðuneyti afgreiða svo fljótt það, sem þau eru spurð um. Mig langar þó til að spyrja í því sambandi: Hafði utanrrn, nokkuð spurt sölunefnd setuliðseigna um þessi mál, eða var það ákvörðun utanrrn., að sölunefnd setuliðseigna ætti ekkert og mætti ekkert hafa um það að segja, þó að einhverjar vörur væru fluttar út af Keflavíkurflugvelli? Það kemur ekki því máli við, hvort einhvern tíma hafi tekizt samningar við einhverja ameríska verktaka á vellinum og hver aðstaða sölunefndar setuliðseigna til þess að yfirtaka eignir á vellinum, tæki eða vörur eða vöruafganga eða annað slíkt, hafi verið. Spurningin er um hitt, að enginn efi er á því, að íslenzk stjórnarvöld hafa algert vald yfir því, hvort þau leyfa Sameinuðum verktökum að flytja nokkurn skapaðan hlut út af vellinum eða ekki, og ef þeir gera það, að setja þeim þau skilyrði, sem þeim þóknast þar viðvíkjandi. Ég vildi um leið spyrja að því með sölunefnd setuliðseigna, í fyrsta lagi, hvort hún hafi verið að þessu spurð, og í öðru lagi: Hvernig er þessi núverandi sölunefnd setuliðseigna skipuð, er ráðherrabréfið frá 1948 enn þá í gildi þar um, eða er komið nýtt ráðherrabréf, og ef svo er, hverjir eru nú í þessari sölunefnd setuliðseigna? — Þannig að við fengjum að vita, hverjir það eru, sem hafa með þessi mál að gera, að svo miklu leyti sem það eru einhverjir aðrir en utanrrn., því að svo mikið var a.m.k. staðhæft í þeim blöðum, sem ég vitnaði hér allýtarlega í áðan, að það hefði verið sölunefnd setuliðseigna, sem í sambandi við þau viðskipti, sem fram hafi farið milli annars hvors af þessa verktakafélögum, hafði sérstaklega gripið inn í og krafizt þar stöðvunar.
Ég tel engum efa bundið, að utanrrn. hefur haft aðstöðu til þess að setja Sameinuðum verktökum það skilyrði, að svo framarlega sem þeir vildu fá fluttar út þær vélar, sem þeir ættu á vellinum, eða önnur tæki, sem þar væru, skyldu þessar vélar eða slík tæki seld annaðhvort í gegnum sölunefnd setuliðseigna eða undir eftirliti sölunefndar setuliðseigna, þannig að það var hægt að sjá um, að þessar eignir færu um hönd þeirrar nefndar, sem almennt hefur verið álitið að íslenzka ríkið ætti að nota í slíku sambandi. M.ö.o.: mér kemur þetta nokkuð spánskt fyrir sjónir, að Sameinaðir verktakar séu leystir upp og að sú upplausn sé notuð sem sérstök ástæða til þess, að þeir fái að flytja út eitthvað af þeim eignum, sem þeir hafa áður haft þarna, sem eins konar dautt félag. Ég hélt, að það væri lifandi félag, sem ætti mjög mikið, mestan hlutann í þeim Aðalverktökum, sem nú væru að taka þarna við.
Þá upplýsti hæstv. ráðh., að Aðalverktakar hefðu 25. nóv. leitað eftir að fá að flytja nokkuð af hlutum út af flugvellinum og utanrrn. hefði þá gefið leyfi. — Ég vil leyfa mér að spyrja: Var um það leyfi leitað umsagnar sölunefndar setuliðseigna? Þar gildir að öllu leyti það sama og ég hef sagt um Sameinaða verktaka og máske þó frekar, að því hefur ekki verið haldið fram, að það félag væri að deyja eða að leysast upp, þannig að það hefur ekki getað borið slíku við í því sambandi, að því hafi verið nauðsynlegt að fá reyturnar burt af vellinum.
Hæstv. utanrrh. segist hafa gefið þetta leyfi. Mig langar til að vita, hvort það hafi verið borið undir sölunefnd setuliðseigna eða hvort hún hafi komið nokkuð þar nærri og hvernig á því standi, að ekki hafi verið sett þessu félagi sama skilyrði og hægt hefði verið að setja líka Sameinuðum verktökum, að þessi sala færi fram um hendur sölunefndar setuliðseigna?
Hæstv. ráðh. sagði, að hann hefði ekki átt annars kost en annaðhvort að láta þessa hluti liggja á vellinum og verða þar ónýta eða þá að leyfa Aðalverktökum að gera þetta til þess að hagnýta þessa hluti þar með fyrir landsmenn. Ég vil nú spyrja: Var ekki sá möguleiki þarna til, að ráðh. svaraði Aðalverktökum, — rétt eins og ég álít að hann hefði átt að svara Sameinuðum verktökum áður, — að þeir skyldu fá að flytja þessa hluti út og selja þá, en sölunefnd setuliðseigna mundi annast alla þessa sölu? Það væri það skilyrði, sem þarna yrði. M.ö.o.: þetta færi fram algerlega undir eftirllti þessarar opinberu stofnunar; þeir ættu þetta, það væri ríkið, sem keypti það af þeim fyrir eitthvert matsverð og sölunefndin annaðist þetta. Með þessu móti gætu þeir fengið að flytja þetta út. Þar með yrði það ekki ónýtt fyrir þá, og það ætti þó að þýða fyrir þá, að það væri nokkurs virði. Hins vegar gætu þeir ekki tekið neinn sérstakan gróða af þessu með þessu móti. Ég held, að það hefði alveg tvímælalaust verið hægt að setja slík skilyrði, — ekki hvað sízt ef það var meiningin með því að leyfa þeim að flytja þetta út, að þetta ætti að vera til hagnýtingar fyrir landsmenn, en ekki til hagnýtingar sérstaklega fyrir Aðalverktaka. Það hefði því legið ákaflega nærri að setja bara þessi skilyrði, að sölunefndin annaðist þessa sölu, tæki við þessu.
Hæstv. utanrrh. sagði, að sölunefndin hefði ekki haft viðskipti við verktaka, hún hefði eingöngu haft skipti við setuliðið. Ég sé nú ekki, þó að það hafi kannske gengið eitthvað erfiðlega að fá viðskipti í gang milli sölunefndar setuliðseigna og verktaka setuliðsins, þegar þeir voru amerískir, að það hafi átt að þurfa að ganga illa að fá í gegn, að íslenzkir verktakar hefðu viðskiptin við sölunefnd setuliðseigna. Ég vil í því sambandi alveg sérstaklega spyrja, ef nú Aðalverktakar hafa verið þannig skipaðir á þessu augnabliki, að Sameinaðir verktakar, sem voru stærsti eigandinn í þeim, væru að leysast upp og deyja, og hinir aðilarnir væru þá Reginn, sem Sambandið á, sem er mjög þjóðhollt fyrirtæki, og svo ríkið, sem er einn aðaleigandinn í Aðalverktökum, — var þá alveg óhugsandi fyrir hæstv. ríkisstj. að fá samninga við ríkið og Sambandið um, að gilda skyldi sú regla, sem verið hafði, að það gengi í gegnum sölunefnd setuliðseigna, sem þessi verktaki seldi af sínum eignum.
Mér kemur satt að segja spánskt fyrir sjónir, ef það á að vera svo, að þó að amerískir verktakar hafi verið látnir komast upp með það að gera ekki samninga við ríkisstj, um sölu á þeim eignum, sem þeir kærðu sig ekki meira um að nota, þá þurfi íslenzkir verktakar að komast upp með sömu ósvífnina.
Ég held þess vegna, að það sé engin afsökun um, að sölunefndin hefði ekki vel getað haft viðskipti við verktakana og séð um alla söluna á þessum hlutum alveg eins og þeim hlutum, sem komu frá varnarliðinu.
Þá sagði hæstv. ráðh., að ég hefði haldið því fram, að brotin hefðu verið lög og reglur. Ja, ég minntist á, að það kynni svo að hafa verið og því bæri að rannsaka það, að mjög málsmetandi aðilar og einmitt blað sjálfs forsrh. hefði haldið því fram, að þarna væru stórfelld misferli á ferðinni, sem þyrftu mjög ýtarlegrar rannsóknar við, þannig að það er þá sannarlega ekki ég einn, ef ég skyldi hafa sagt það hér áðan, að lög hefðu verið brotin, sem hef haldið slíku fram, ekki heldur aðeins blað hæstv. forsrh., heldur þar að auki líka t.d. Morgunblaðið. Ég held þess vegna, að það verði ekki afgreitt svo auðveldlega að segja, að engrar rannsóknar sé þörf; það eru fleiri, sem hafa krafizt rannsóknar þarna, en við tveir, sem flytjum þetta mál hér.
Þá kemur hæstv. ráðh, inn á lögin frá 1945 og telur, að þau skipti ekki máli í þessu sambandi. Ég lét líka orð að því falla, að þau hefðu gilt um annan hlut. En ég sagði, að höfuðreglan, sem legið hefði til grundvallar í þeim lögum, hefði verið, að hið opinbera ætti að fylgjast með öllum þessum viðskiptum, og að allir aðilar ættu að hafa fulla möguleika á því, sú regla væri góð og gild og hún væri sú eina regla, sem stæði í lögum; m.ö.o., að t.d. allir stjórnmálaflokkar Alþ. hafi aðstöðu til að fylgjast með því, sem þarna gerist. Sé litið svo á, að þessi lög séu úr gildi fallin, þá er ég hræddur um, að það sé nauðsyn að setja ný lög um þetta efni, því að það held ég að sé alveg greinilegt af þeim blaðaskrifum, þeim umræðum og þeim upplýsingum, sem hér fara fram nú, að þessi litli biti úr fskj. með hernámssamningnum frá 1951, í 8. gr., 7. tölul., b-lið, þær tvær setningar, sem þar eru, nægi ekki til þess að skapa lögin á Íslandi, sem eigi að gilda um þetta.
Hæstv. utanrrh. sagði, að hann hefði samkv. fyrirmælum í 8. gr. 7, b-lið, veitt heimildina, sem hann hér sagði frá. Þar stendur í 7. b, að tollyfirvöld skuli veita þessa heimild, og það er rétt hjá hæstv. ráðh., hann er fjmrh, Keflavíkurflugvallar, þannig að hann annast um allt, sem annars mundi heyra undir íslenzk tollyfirvöld, hvað snertir útflutninginn af þeim velli. En þó held ég, að rétt sé að láta gilda sem nánastar reglur um öll þau viðskipti, sem þarna fara fram, og hafa með því sem nánast eftirlit.
Hæstv. ráðh. upplýsti, að sérstakur samningur hefði verið gerður 1953 milli utanrrn. og setuliðsins einmitt á grundvelli þessa atriðis í 8. gr., 7. tölul., og þann samning vildi ég mjög gjarnan fá fyrir þá nefnd, sem þetta mál fer til. Hann upplýsti í því sambandi, að þó að það hefði tekizt að gera þennan samning við setuliðið 1953, hefði ekki tekizt að gera samninga við verktaka setuliðsins. Mér er spurn: Var ekki hægt á sama tíma, — ég veit, að hæstv. núv. utanrrh. var ekki ráðh. þá, — var ekki hægt að fá það fram á þeim tíma, að sá samningur, sem gilti um setuliðið, gilti og um þess verktaka? Öll þau ákvæði, sem eru í samningnum við Bandaríkin frá 1951, gilda yfirleitt um þessa verktaka líka, þannig að á þessu hefði a.m.k. mátt reyna að ráða bót.
Ég tók ekki eftir, að hæstv. ráðh. færi nokkuð inn á í sambandi við þann samning, hvaða hlutverk sölunefndinni væri ætlað sérstaklega þar í. Hinu taka menn eftir, sem athuga ríkisreikningana, að eftir 1953 eykst mjög mikið það fé, sem kemur til sölunefndarinnar og er innborgað af henni í ríkissjóðinn. Ég veit ekki, hvers konar eftirlit hefur farið fram á öllum þeim innborgunum. A.m.k. er það alltaf á þessum árum aðeins fært þannig, að það er talið innborgað af sölunefnd svona og svona mikið, eins og ég las upp áðan. Það geta kannske endurskoðendur ríkisreikninganna eða sá þeirra, sem hér á sæti í þessari hv. deild, upplýst. Ég held, að það gerði út af fyrir sig ekkert til, þó að sölunefndin, eins og hæstv. ráðh. var að víkja að, og hennar starf á þessum tíma væri rannsakað. Það eru rannsakaðir minni hlutir, en öll sú velta, sem þarna hefur farið fram.
En svo þegar hæstv. ráðh, er búinn að telja sem mest úr, að það sé raunverulega mikil þörf á rannsóknarnefnd af hálfu Alþ. og að þessi viðskipti við Sameinaða verktaka og Aðalverktaka hafi raunverulega verið ákaflega eðlileg, það hafi verið nokkurn veginn sjálfsögð greiðasemi við þá að leyfa þeim þetta og vera ekki að láta sölunefnd setuliðseigna gripa þar inn í, þá upplýsir hæstv. ráðh., að Aðalverktakar hafi gengið lengra í þessu efni en leyft var, útflutningur þeirra hafi verið stöðvaður. Hvenær var það, ef ég mætti spyrja, hvaða dag var það, sem þessi útflutningur Aðalverktaka af vellinum, sem leyfður var 25. nóv. eða þeir leituðu eftir að fá leyfi fyrir 25. nóv. og mér skildist að þeir hefðu fengið leyfi til að nota sér nokkru seinna, — hvenær var það, sem þessi útflutningur var stöðvaður? Enn fremur skildist mér á hæstv. ráðh., að það væri jafnvel spurning, hvort Sameinaðir verktakar hefðu ekki gengið líka þarna lengra, jafnvel þótt uppleystir væru og næstum dauðir — (Utanrrh.: Þetta er hvort tveggja algert ranghermi hjá þm.) Ja, Aðalverktakar hefðu gengið lengra í því efni en leyft var. Það skrifaði ég orðrétt upp. (Utanrrh.: Ég sagði aldrei, að þeir hefðu gengið lengra. Ég sagðist hafa að gefnu tilefni af blaðaskrifum viljað athuga það.) Já, þá skilst mér, að þegar blaðaskrifin hafi komið til, hafi hæstv. utanrrh. farið að hugsa um, hvort þeir hafi gengið lengra, en leyft hafi verið, og álitið, að það væri nauðsyn á að rannsaka það. Og hann sagði, að hann væri að láta rannsaka þetta. En ég vil í því sambandi segja hæstv. utanrrh., að hans rannsóknarvald í þessum efnum sem dómsmrh., þó að hann sé dómsmrh. fyrir Keflavíkurflugvöll, nær ekki út fyrir hann, þannig að sú rannsókn, sem verður að fara fram t.d. hér í Reykjavík á þessum hlutum, verður að heyra undir þá aðila, sem hafa almennt frá íslenzka ríkinu rannsóknarvald, líka hér í Reykjavík, líka í þeim skemmum, sem um er talað, og annað slíkt. Það mundi sú rannsóknarnefnd, sem ég og hv. 2. landsk. þm. höfum lagt til að væri sett, hafa rétt til þess að framkvæma, og ég held, að á því sé full þörf.
Hæstv. utanrrh. sagði, að þetta mundi verða allyfirgripsmikið, þetta mundi þýða, að það yrði að rannsaka starfsemi sölunefndar setuliðseigna og starfsemi Aðalverktakanna og Sameinaðra verktaka. Skyldi vera nokkur vanþörf á því, þó að þetta væri rannsakað allt saman? Ég veit, að í slíkri n., sem skipuð yrði samkv. þessari till., mundu allir flokkar þingsins hafa fulltrúa. Ég man, að það var upphaflega tilgangurinn, þegar sölunefnd setuliðseigna var sett á stofn og selja átti eignir Bandaríkjanna hér í landi, að allir stjórnmálaflokkar þingsins fengju tækifæri til þess lögum samkvæmt að fylgjast þar með. Og ég held það væri fyllilega nauðsynlegt og brýnt nú, að Alþingi léti til sín taka um rannsókn á þessu. Það ætti satt að segja ekki endilega að þurfa að koma það langt, að tvö mektarblöð eins og þau tvö, sem ég hef vitnað hér allmikið í, færu að koma fram með aðrar eins hrottaásakanir og þau hafa komið fram með út af þessum málum, til þess að farið væri að rannsaka þetta. Það hefði verið betra frá upphafi, að í þessum málum hefði verið af hálfu Alþingis fylgzt með hlutunum, eins og ráð var gert fyrir upphaflega, í það eina skipti, sem lög hafa verið sett um sölu setuliðseigna á Íslandi. Og ég held, að einmitt fyrst hæstv. utanrrh, sjálfum hefur fundizt ástæða til þess að stöðva flutninginn á þessum hlutum, sem leyfður hafði verið, til þess að fá ráðrúm til að rannsaka, hvað þarna hefði gerzt, þá sé alveg fyllileg ástæða fyrir Alþingi, ekki sízt með tilliti til þessara mjög svo ákveðnu blaðaskrifa, sem þarna hafa komið fram, að láta rannsókn fram fara á þessu.
Ég vil þess vegna eindregið vonast til þess, að sú nefnd, sem fær þessa till. til meðferðar, láti hendur standa fram úr ermum um að afgr. hana sem fyrst jákvætt, þannig að þessi nefnd verði sett á laggirnar.