24.03.1958
Neðri deild: 71. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (3168)
136. mál, húsnæðismálastofnun
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Það er rétt enn einu sinni að leiðrétta þann misskilning, sem enn verður vart hjá hæstv. félmrh., að af fyrrv. ríkisstj. hafi verið lofað, að 100 millj. kr. skyldu á ári vera til ráðstöfunar í gegnum veðlánakerfið. Slíku hefur aldrei verið lofað, og það ætti hæstv. ráðh. mætavel að vita, held,r var gengið út frá því í þeim áætlunum, sem lagðar voru til grundvallar till. fyrrv. ríkisstj. í húsnæðismálunum, að árlega yrði til ráðstöfunar og yrði veitt sem lán til íbúðabygginga eigi minna, en 100 millj. kr. Höfuðatriði málsins er vitanlega það, hvaða upphæð er til ráðstöfunar til íbúðalána, en ekki það, hver veitir lánin. Það skiptir miklu minna máli og er að sjálfsögðu ekkert heppilegra, nema jafnvel síður sé, að lánin gangi endilega í gegnum húsnæðismálastjórnina, ef þessu fé raunverulega er varið til að bæta úr húsnæðisskorti í landinu. Þetta loforð var efnt og meira en það, og ég vil í því sambandi leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa hér lítinn kafla úr skýrslu hagfræðideildar Landsbankans um þetta efni. Þar segir svo:
„Lánveitingar úr veðdeildinni hófust 1. nóv. 1955, og á þeim 17 mánuðum, sem síðan eru liðnir, hafa A- og B-lán úr veðdeildinni numið 81 millj. kr. til rúmlega 1.450 einstaklinga auk 24 millj. kr. til byggingarsjóðs. Hafa samningar og heildaráætlanir lánveitinga fullkomlega staðizt. Árið 1955 voru löng lán til íbúðabygginga rúmlega 100 millj. kr., en allt bendir til þess, að þau hafi verið um 120–130 millj. kr. á árinu 1956, en skýrslusöfnun um þau er enn ekki lokið. Mikið hefur líka áunnizt. Nú liggja að vísu enn,“ þ.e.a.s. þegar þessi skýrsla er gefin, „óafgreiddar 1.800 umsóknir, en það er um 800 minna, en í upphafi. Allmikill fjöldi þessara íbúða er skammt á veg kominn, en margir, sem umsóknir eiga, munu vafalaust geta bjargazt án lána úr veðlánakerfinu. Á undanförnum tveimur árum hefur fleiri íbúðum verið lokið, en nokkru sinni fyrr. Árið 1955 var tala nýrra íbúða 1.225, og 1956 reyndist hún allmiklu hærri, eða 1.439. Það hefur m.ö.o. tekizt að 1 byggja mun fleiri íbúðir, en þurft hefði samkvæmt áætlun húsnæðismálastjórnar 1954, sem þó gerði ráð fyrir allmiklum byggingum til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis.“
Það liggur því alveg ljóst og ótvírætt fyrir, að staðið var fullkomlega við öll þau loforð og allar þær áætlanir, einnig um framlög banka og sparisjóða, sem gert var ráð fyrir af fyrrv. ríkisstj., þegar hún lagði fram sínar till., sem lögfestar voru hér á Alþingi.
Þessum málum var þá tekið af þáverandi stjórnarandstöðu og m.a. hæstv. núv. félmrh. mjög kuldalega og talið, að hér væri skammt farið, og eitt af aðalmálum hæstv. núv. ríkisstj. var að gera hér stórt átak til þess að bæta úr því, sem fyrrv. ríkisstj. hefði gert. Það hefði því mátt vænta þess, að það yrði um stórt stökk að ræða, þegar hæstv. núv. félmrh. fengi aðstöðu til þess að móta sína stefnu. Það hefur hann gert með lögum, sem sett voru hér á síðasta Alþingi, og framkvæmd þeirra laga er nú einnig að sjást.
Ég skal ekki fara lengra út í almennar umr. um þetta mál, en vil aðeins í tilefni af svörum hæstv. félmrh. við fsp. mínum áðan segja þetta: Mér skilst eftir orðum hans, að raunverulega hafi loforðið til verkalýðsfélaganna um 40 millj. kr. ekki falið í sér annað en það, að til úthlutunar yrðu á árinu 50 millj. í staðinn fyrir 44, þannig að þarna væri um að ræða 6 millj. kr. af nýju fé.
Þá var annað atriði, sem ég vildi mjög mælast til við hæstv. ráðh, að hann upplýsti hér með tölum í þinginu, en það er, hvað hefur verið veðsett mikið af tekjum veðlánakerfisins 1958 til þess að ná þeirri úthlutun, sem hann lýsti hér áðan að fram hefði farið á árinu 1957 og fram í marzmánuð í ár. Hann viðurkenndi í ræðu sinni, að töluvert mundi hafa verið veðsett, sem merkir þá, að hér er raunverulega ekki um neitt nýtt fé að ræða, heldur beinlínis umframeyðslu, sem hlýtur að draga dilk á eftir sér á þessu ári og minna fé þá verða til ráðstöfunar, nema einhverjar sérstakar ráðstafanir verði gerðar. Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. sjái sér fært að upplýsa, hvað há upphæð þetta er, því að það hlýtur hann að vita, hvað mikil upphæð hefur raunverulega verið veðsett bönkunum gegn því, að þeir veittu þau bráðabirgðalán, sem þeir nú hafa veitt.