12.12.1957
Sameinað þing: 18. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (344)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1958

Forseti (EmJ):

Það hefur orðið samkomulag um að fresta hinum svokölluðu eldhúsumræðum þangað til eftir þinghlé það, sem væntanlega verður ákveðið nú fyrir jólin. Verður því leitað afbrigða frá þingsköpum um þessa frestun eldhúsumræðnanna svokölluðu.