13.12.1957
Sameinað þing: 19. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (354)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1958
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. var eitthvað að tala um auma frammistöðu. Þegar þingið kom saman, lét hæstv. ríkisstj, þann boðskap út ganga: Við getum ekki gert tillögur í efnahagsmálunum, við höfum ekki getað talað við stuðningsflokka okkar. — Svo situr þingið á þriðja mánuð. Það situr við það sama: Við erum ekki reiðubúnir til að gera tillögur í efnahagsmálunum, við erum ekki reiðubúnir til að gera heildartillögur um afgreiðslu fjárl., en við ætlum nú samt sem áður að gera það, við erum ekki alveg búnir að gefast upp. — Ef þetta er ekki aum frammistaða og svo aum, að það mun eftir henni verða tekið, þá skýtur eitthvað skökku við.
Það er ekki að furða, þó að inn í þessa 2. umr. fjárl. blandist almennar umr. um fjárhagsmálin og efnahagsmálin. Og þeir, sem muna eftir hinum háspenntu yfirlýsingum núverandi stjórnarliðs fyrir kosningarnar á s.l. ári um það, að nú ættu að koma ný úrræði í efnahagsmálunum, hverfa inn á nýja braut varanlegra úrræða, — þeir, sem muna eftir öllu þessu, eru ekkert undrandi yfir því, þó að stjórnarliðið sitji heldur dapurt nú við þessar umr. fjárl. og sé alls ekkert upplitsdjarft.
Jú, það var lofað nýjum tillögum í efnahagsmálum, varanlegum úrræðum. Það var byrjað á því að festa kaupið að vissu leyti strax á síðastliðnu hausti, um það bil eða skömmu áður en þing kom saman, og þessi stjórn ætlaði að hafa samvinnu um það við vinnustéttirnar í landinu, enda var hún stjórn hinna vinnandi stétta, eins og hún kallaði sig, og hún lofaði líka, að hún mundi tryggja vinnufriðinn.
Það samkomulag, sem gert var við stærstu verkalýðssamtökin í landinu, Alþýðusambandið, var bundið því skilyrði, að stjórn þessara stéttasamtaka mundi fyrst í stað ljá aðgerðum ríkisstj. fylgi, veita henni einhvern frest, meðan sæist, hvernig fram úr rættist, en það var þó eitt skilyrði, og það væri það, að við lausn efnahagsmálanna, þegar að þeim kæmi, mundu þessi samtök alls ekki fella sig við minnstu álögur til viðbótar í útflutningsuppbætur. Það var eitt af skilyrðunum, sem fram voru sett. Svo biðu menn átekta. Svo komu nýju tillögurnar og varanlegu úrræðin með jólagjöfinni: 200–300 millj. kr. nýjar álögur. Engar nýjar tillögur eða nýjar leiðir, hvað þá varanlegar, og skilyrðið, sem stjórn Alþýðusambandsins hafði sett fyrir fylgi sínu við ráðstafanir ríkisstj., var alveg þverbrotið og freklega farið út í nýjar álögur til þess að yfirfæra til útflutningsframleiðslunnar miklu freklegar, en nokkru sinni áður. Þetta voru fyrstu efndirnar í efnahagsmálunum.
Og það var lofað að tryggja vinnufrið í landinu, og aldrei hafa verið fleiri verkföll, tíðari verkföll eða lengri, en í stjórnartíð núverandi hæstv. ríkisstj., og það sem verra er, að þegar loksins hefur komið að því, að deilurnar hafa verið leystar, hafa þær verið leystar alveg með sérstökum hætti af núverandi hæstv. ríkisstj., með þeim hætti að dylja fyrir almenningi hina raunverulegu lausn málanna. Þær hafa verið leystar með þeim hætti, og ríkisstj. hefur vitað um, að sú lausn, sem hún beitti sér fyrir, hljóti að fela í sér bæði það, að menn gerðust sekir um skattsvik og gjaldeyrissvik. Ég hygg, að aldrei fyrr hafi alvarleg mál verið leyst í atvinnu- og efnahagslífi landsmanna með slíkum hætti eins og núverandi hæstv. ríkisstj. hefur beitt sér fyrir.
Hún ætlaði líka að endurskoða bankalöggjöfina. Það átti að koma alveg spánný bankalöggjöf í landinu. Við munum eftir því, að á síðustu dögum þingsins var breytt bankalöggjöfinni. Hvað var það, sem gerðist nýtt í sambandi við þá bankalöggjöf? Jú, það voru um það bil 13 ný embætti og stöður fyrir stjórnargæðingana, bankastjóraembætti og bankaráðsstörf. En hvar er nýja stefnan í bankamálunum? Hver hefur orðið var við hana? spyr ég. Ég sagði hér, þegar þessi mál voru rædd á s.l. þingi: Það er vísvitandi rangt, þegar stjórnarsinnar eru að bera okkur sjálfstæðismönnum á brýn, að við höfum misnotað okkar aðstöðu pólitískt innan bankanna. — En það var höfuðástæðan fyrir því, að það þyrfti að breyta bankalöggjöfinni og taka upp nýja stefnu. Alveg á sama hátt, eins og ég vitnaði til þess þá, að það hefðu aldrei orðið nein pólitísk átök milli þess banka, sem ég var bankastjóri í, og ríkisvaldsins annars vegar eða bankastjóranna innbyrðis, á sama hátt hefur nú heldur ekki orðið neinn pólitískur ágreiningur eða átök á milli bankastjóranna í bankanum, eftir að bankastjóraskipti voru, og ég kannast ekki við neina nýja stefnu, og mér þætti nokkuð merkilegt, ef einhver gæti lýst henni. Það eina, sem má segja að nokkurt nýmæli eða nýbreytni sé í því, er það, að gerð hefur verið tilraun til þess að gera seðlabankann að einhverju leyti — litlu leyti – sjálfstæðari en hann var áður, en þó með þeim hætti, að það er full og brýn nauðsyn að taka þá löggjöf og það atriði allt upp til nýrrar endurskoðunar, því að það er hvorki fugl né fiskur.
Þegar fjárl. komu fram í fyrra, var náttúrlega ekki mjög skemmtilegt að sýna fjárl., fjárl. stjórnar hinnar nýju stefnu og varanleg úrræði í efnahagsmálunum. Þau stórhækkuðu frá því, sem áður hafði verið. Og hvernig átti þessi nýja stjórn hinna vinnandi stétta, sem ætlaði að búa til nýja stefnu í efnahagsmálunum, nýja stefnu í fjármálunum, — hvernig átti hún að verja þetta fyrir almenningi í landinu? Höfuðvörnin kemur fram í því, að einum af fjvn.-mönnum, sem er nokkuð hnyttinn maður, datt í hug það, sem í raun og veru var fyndni: Ja, ef við ætlum að stökkva af bíl eða vagni, þá verðum við að stökkva fram með honum. Þetta er eðlislögmál. Við skulum bara halda áfram strikið út í meiri dýrtíð og meiri verðbólgu. Það er eðlislögmál. Þetta skilja allir. Stökkvum bara af vagninum og hlaupum bara áfram. — En þegar þetta eðlislögmál er fært inn í pólitíkina og stjórnmálin, verður það auðvitað hin versta háðung, og það er merkilegt, að þetta skildu ekki samflokksmenn þessa fyndna þm. og fjvn.-menn og settu þetta bara sem alvarlegt atriði í sameiginlegt nál. meiri hl. fjvn, frá því í fyrra. Þetta var afsökunin, sem hæstv. ríkisstj. og stjórnarliðið í fyrra færði fyrir því, að hún hafði ekki fundið neina nýja stefnu og nýjar leiðir: Sá maður, sem bjargar sér út úr vagni, sem er á hraðri ferð, kemst ekki hjá því til þess að forða sér frá því að missa fótanna að hlaupa fyrst í sömu átt og vagninn stefndi. — Mennirnir, sem voru búnir að segja: Það verður að stinga við fótum, það verður að hverfa frá þessari stefnu, sem nú er farin, fara inn á nýjar leiðir og varanlegar leiðir, — þeir leggja fram fjárl. og segja: Við skulum bara stökkva og helzt láta okkur alls ekki dragast aftur úr dýrtíðarvagninum. Og svo, eins og hv. 2. þm. Eyf. benti réttilega á í sinni ræðu: Nú er liðið heilt ár, og maður mætti ætla, að þeir séu nokkuð farnir að mæðast, þessir hlaupagarpar, því að þegar þetta nýja fjárlfrv. fyrir árið 1958 er borið fram, þá er áfram sama stefnan, stórkostlegar hækkanir frá síðustu fjárl., sem þá voru afsökuð, að þau væru svo há, af því að stjórnin væri nýbúin að taka við og yrði bara vegna eðlislögmálsins að halda áfram. Hvað ætlar stjórnin lengi að fylgja eðlislögmálinu í fjármálunum?
Nei, hafi ríkisstj, haft nokkra afsökun, þegar hún lagði fram fjárlfrv. fyrir 1957, þá er sú afsökun auðvitað ekki fyrir hendi lengur. Það er ekki vitnað heldur í þetta í nál. nú, að menn verði, ef þeir ætla ekki að missa fótanna, að passa sig að hlaupa nógu hart í kapp við dýrtíðarvagninn. Það er ekki vitnað í það, en allar aðgerðirnar bera þess vitni, að engin viðleitni er önnur hjá hæstv. stjórnarliði.
Það er víst ekki ofmælt, sem fram hefur komið í ræðu hv. 2. þm. Eyf., að meðferð og afgreiðsla fjárl. nú er alveg með einstökum hætti. Ég skal viðurkenna, að mér hefur um langan tíma fundizt, að meðferð fjármálanna yfirleitt og almennt í þinginu væri með öðrum hætti, en vera ætti, og ég tel, að það sé komið of langt samkv. gamalli venju, að fjvn. í raun og veru sé sá hluti þingsins, sem nær eingöngu fjallar um fjármálin og meðferð þeirra, og aðrir þm., sem þar utan standa, telji yfirleitt, að á undanförnum árum hafi það færzt of mikið í þá átt, að þm. almennt létu of litið til sín taka um meðferð og afgreiðslu fjárl. En fyrr má nú vera, þegar svo er komið, að jafnvel fjvn. sjálf er meira og minna höfð utan við afgreiðslu fjárl. og gersamlega a.m.k. sniðgenginn og hunzaður minni hl. fjvn.
Bara hin einföldu atriði, sem koma fram í meirihlutaáliti fjvn. nú og í fyrra, sýna auðvitað svipinn af þessu. Hv. frsm. meiri hl. sagði áðan, að það hefði ekki verið fyrr en á laugardaginn var, þá hefðu fyrstu ákvarðanir verið teknar í fjvn. í sambandi við þau málefni, sem fyrir henni liggja. (Gripið fram í: Mánudag.) Á laugardaginn voru fyrstu ákvarðanir teknar, eftir því sem ég tók eftir. Hvort það hefur verið á laugardag eða mánudag, þá skiptir það ekki aðalmáli, en hitt er aðalatriðið, að í þessu felst, að það er í raun og veru sáralítill undirbúningur af hálfu fjvn. til afgreiðslu málsins, sem nú er ætlazt til að afgreitt sé á örfáum dögum.
Þegar litið er á skýrslugerð meiri hl. fjvn., kemur það fram, að í fyrra heldur fjvn. 61 fund, áður en hún skilar þessu áliti, nú heldur hún 41 fund. Það eru sem sagt 50% fleiri fundir í fyrra en nú. Henni hafa nú borizt á þessum tíma — og vafalaust vegna þess, að það hefur ekkert bólað á henni og það hefur ekki bólað á afgreiðslu fjárl., og menn hafa ekki getað séð það fyrir — 350 erindi á móti 572 í fyrra, eða 222 fleiri. Á fundi n. nú hafa komið 46 utanþingsmenn, en 67 í fyrra, og það er sama sagan, það er næstum því 50% fleiri, en nú.
Öllum er það ljóst og ekki síður stjórnarliðinu, að það hefur algerlega verið kastað höndunum til afgreiðslu þessa máls, og maður furðar sig á því, að ríkisstj., sem afsakar sig í upphafi þings með því, að hún geti ekki látið fylgja fjárlfrv. neina grg. eða áætlanir um heildarafgreiðslu þeirra, vegna þess að hún hafi ekki haft samráð við sína samflokksmenn eða stuðningsmenn, skuli nú eftir á þriðja mánuð koma og geta þá ekki gert grein fyrir því, að eftir það samráð, sem hún hafi haft við sína stuðningsmenn, muni hún taka þessa eða hina stefnu varðandi heildarafgreiðslu fjárlaga.
Og það er alveg rétt, sem kom fram hjá hv. 1. þm. Reykv., að hér er algerlega gengið á snið við þingsköpin með þessari meðferð mála og er í fyllsta máta óþinglegt, því að þegar á að hafa þrjár umr. um mál, þá er forsendan fyrir því, að hægt sé að segja, að mál sé rætt við 3 umr., að meginatriði málsins liggi fyrir strax við 1. umr. En hér er það svo, að meginatriði málsins eiga að ræðast við lokaumr., við 3. umr. málsins, og þá er ekki uppfyllt það ákvæði þingskapa, að 3. umr. fari fram um mál.
Þetta er þess eðlis, eins og ég hef áður sagt hér í þinginu, að það væri miklu nær, að hæstv. núverandi ríkisstj. tæki upp þann hátt að bera fram fjárl. í lok þingsins, en ekki í upphafi þings, og a.m.k. mundi háðung og smán stjórnarliðsins verða minni af þeirri meðferð málsins heldur en af hinu að leggja fram eitthvert slitur, sem kallað er frv. til fjárl., í upphafi þings og koma svo eftir á þriðja mánuð og hafa þá í raun og veru engu við að bæta, Þetta er áreiðanlega einsdæmi í þingsögunni og áreiðanlega vinnubrögð, sem mjög verður tekið eftir meðal almennings í þessu landi.
Hæstv. fjmrh. ræddi nokkuð almennt um efnahagsmálin. Veigamesta yfirlýsingin í ræðu hæstv. fjmrh. var sú, að hann taldi, að nú væri ekki nema um tvennt að gera: að afla nýrra tekna eða taka út útgjaldaliði. Ég bið hv. þm. um að taka eftir: Það var ekki verið að tala um að fella niður útgjöld eða draga úr útgjöldum, heldur var það beinlínis orðað þannig, að það ætti að taka út útgjaldaliði. Hvað felst í því? Hæstv. fjmrh. sagði þetta, eftir að hann hafði verið inntur eftir því af hv. 2. þm. Eyf., hvort meiningin væri að kippa út úr fjárl. einhverjum útgjaldaliðum eins og niðurgreiðslum í sambandi við dýrtíðina, sem ef til vill ætti svo eftir að skjóta aftur inn í aukafjárl., sem hæstv. sjútvmrh. á svo víst heiðurinn af að bera fram í þinginu, en víst ekki fyrr, en eftir bæjarstjórnarkosningar.
Og svo leyfir hæstv. fjmrh. sér að segja: Af hverju hafa ekki sjálfstæðismenn af sinni hendi látið koma fram tillögur, hvernig afgreiða beri fjárlög? Við búum við það stjórnarfar og þá stjórnskipun í okkar landi, að til þess eru ríkisstjórnirnar og ráðherrarnir, að hafa forustu og forgöngu um tiltekna málaflokka. Og það er meginskylda fjmrh. að leggja fyrir þingið frv. til fjárl. og till. þær, sem ríkisstj. hefur að gera
um afgreiðslu þessara mála. Stjórnarandstaðan getur síðan tekið afstöðu til þessa máls, verið með eða móti tillögunum og markað á grundvelli þess, sem fram hefur komið, sjálfstæðar tillögur, ef verkast vill. Þó er það rétt, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að í sumum öðrum löndum, sem byggja á sömu stjórnarskipun og stjórnarfari og við, hafa þm. ekki rétt til þess að bera fram till. til breyt. á fjárl. Það er svo rík skylda ríkisstj. sjálfrar, og þeim hæstv. fjmrh., sem ekki veit, hvernig á að afgreiða fjárl., ber skylda til eins samkv. okkar stjórnskipun, ef hann hefur ekki till. að gera um það, hvernig fjárl. eigi að vera, — þá hefur hann ekki nema eitt að gera, þá á hann að viðurkenna það, sem rétt er, að hann eigi ekki lengur að vera fjmrh., það eigi annar maður að koma og uppfylla þessa skyldu, sem á honum hvílir, ef hann ekki getur gert það sjálfur. Það þýðir ekkert að hrópa framan í stjórnarandstöðuna, eins og þessum málum er komið, og segja: Komið þið með tillögur, segið þið mér, hvernig á að afgreiða fjárl.
Þetta lagði ráðh. verulega mikla áherzlu á og nú aftur í sinni síðustu ræðu, og það er í samræmi við það, sem stjórnarsinnar hafa áður sagt og ekki sízt blaðakostur stjórnarliðsins: Ja, hvar eru till. sjálfstæðismanna í efnahagsmálunum og í fjárl.? — En þessu hygg ég að menn verði að gera sér fulla grein fyrir, að það fær með engu móti staðizt, að einn fjmrh. í landi, sem býr við þá stjórnarskipun, sem við búum við, geti ætlazt til þess, að stjórnarandstaðan segi honum, hvernig hann eigi að afgreiða fjárlög.
Það er þess vegna tilgangslaust að reyna að snúa þessu máli, þegar vandræðin og úrræðaleysið er jafnmikið og það er, — snúa því á þann vettvang, að það sé komin röðin að því, að sjálfstæðismenn geri tillögur um afgreiðslu fjárl. og hvernig heildarsvipur þeirra eigi að vera.
Stjórnarliðið ætlar ekki að gera till. um afgreiðslu fjárl., fyrr en í allra síðustu lög. Það gerir ekki till. um nýju leiðirnar í efnahagsmálunum. Það er byrjað að skrifa um það, eins og kunnugt er, af ráðunautum þeirra, eins og fram hefur verið tekið, að eina leiðin sé gengislækkun, en þeir ætli ekki að bera fram till. um gengislækkun. Nei, framsóknarmenn og hæstv. fjmrh. sem oddamaður í fjármálunum hefur aldrei haft áhuga fyrir því að bera fyrst fram till., sem óþægilegt er að bera fram. Framsfl. hefur jafnan haft þann háttinn á að hlaupa úr ríkisstj. rétt fyrir kosningar og segja þá sem svo: Ja, ekki ber ég ábyrgð á neinu af því, sem í þessu og þessu tilfelli er óþægilegt og óvinsælt hjá hinum almenna borgara og kjósanda í þessu landi. Ég gat ekki lengur setið í þessari ríkisstj. og varð að rjúfa stjórnina, og það er auðvitað fyrst og fremst samstarfsflokkurinn, sem ber ábyrgð á öllu. Við erum hvítu englarnir og syndlausu mennirnir á þessu sviði.
Hvað gerði Framsfl. 1949? Jú, hann rauf stjórnarsamstarfið þá við Sjálfstfl. og Alþfl. Auðvitað var þá ekkert honum að kenna af þeim mörgu málum, sem þá voru mjög umdeild og vafasöm. Það var ekki Framsfl. að kenna, biðraðirnar og vöruskorturinn í landinu, og það var ekkí Framsfl, að kenna, það mikla haftakerfi, sem í skjóli fjárhagsráðs hafði þroskazt í þjóðfélaginu. Nei, nei, það var ekki Framsfl. að kenna. Hann fór úr ríkisstj., þvoði hendur sínar eins og Pílatus forðum. Og Sjálfstfl. myndaði svo minnihlutastjórn eftir kosningarnar, og það er rétt að rifja upp þá sögu, og Sjálfstfl. lagði fram, þegar hann var einn, þó að hann væri í minni hluta, till. til úrlausnar í efnahagsmálunum, viðreisnartillögur í efnahagsmálum landsmanna.
Hvernig brást Framsfl, við tillögunum? Jú, hann bar fram vantraust á Sjálfstfl. fyrir till. í efnahagsmálunum, gengislækkunina o.fl., og vantraustið var samþykkt, Og hvað gerði Framsfl, þá? Jú, þá myndaði hann stjórn með Sjálfstfl. Sjálfur hafði hann forustuna í þeirri stjórn til þess að framkvæma viðreisnartillögurnar í efnahagsmálunum, sem sjálfstæðismenn höfðu borið fram. Það var nóg, að sjálfstæðismennirnir voru búnir að eiga frumkvæðið að því að bera fram till. um gengislækkunina. Þá var það fram komið. En fyrst þurfti að samþ. á það vantraust og svo að taka að sér stjórnarforustu til þess að framkvæma þær till., sem felldar höfðu verið með vantrausti. Svona hundakúnstum í efnahagsmálum og fjármálum er Framsfl. alveg einstaklega laginn í, því að þetta er ekki í fyrsta skipti og ekki það síðasta.
Á þessum árum, eftir 1954, eftir gengisfellinguna og aðrar þær ráðstafanir, sem þá voru gerðar í efnahagsmálunum, skapaðist hér jafnvægi og festa um nokkurra ára skeið. Verðlag varð stöðugt í landinu, sparifjáraukningin varð gífurleg, nýr vöxtur færðist í sparifjármyndunina, sem varð grundvöllurinn undir meiri framkvæmdum á skemmri tíma, en nokkru sinni áður hafa átt sér stað í okkar þjóðfélagi, og velmegun almennings varð meiri en nokkru sinni áður.
Sjálfur hefur fjmrh. lýst þessu glöggt á sínum tíma, meðan hann var í stjórnarsamstarfi við sjálfstæðismenn. Kommúnistar unnu auðvitað að því öllum árum að raska þessu jafnvægi í efnahagslífinu, sem skapað hafði verið fyrir frumkvæði sjálfstæðismanna, og hæstv. fjmrh. lýsti því mjög greinilega hér á sínum tíma í þingsölunum, hvernig kommúnistum, eftir að þeir hefðu fengið forustu í verkalýðssamtökum landsins, tókst með verkfallinu langa 1955 og öðrum kaupkröfum að raska jafnvæginu, sem verið hafði og Sjálfstfl. hafði átt frumkvæðið að á undangengnum árum í efnahagslífi landsmanna. Þessu lýsti hæstv. fjmrh. mjög greinilega á sínum tíma. Nú er hann farinn að umskrifa hina pólitísku sögu, og menn hafa heyrt það á síðustu tímum: Ja, þetta var nú eiginlega ekki kommúnistunum að kenna, sem voru þó mjög útmálaðir á sínum tíma af hæstv. fjmrh., heldur var það fjárfestingaræðinu að kenna, sem sjálfstæðismenn stóðu fyrir. Sjálfstæðismenn stóðu fyrir fjárfestingaræðinu, en framsóknarmennirnir fyrir framkvæmdunum.
Það er alveg á sama hátt eins og þegar hæstv. fjmrh. og flokkur hans hefur hælt núverandi hæstv. fjmrh. hvað mest fyrir það að skila góðum fjárhag ríkissjóðs, miklum greiðsluafgangi, Þá var það á sama tíma sem við sjálfstæðismenn vorum skammaðir fyrir það að hafa beitt okkur fyrir því, sem við ekki gerðum umfram aðra flokka, að flytja inn bíla til landsins, sem mikil þurrð hafði verið á, til þess að afla aukatekna, svo að togaraútgerðin gæti gengið í landinu. Á sama tíma, sem við vorum skammaðir fyrir þetta, þó að ég segi, að við höfum ekki átt um þetta tillögur umfram aðra flokka, hældi hæstv. fjmrh. og flokkur hans sér yfir greiðsluafgangi hjá ríkissjóði um 50 millj. kr., sem var aukatekjur ríkissjóðs af bifreiðainnflutningnum. Þarna var kristallíseruð fjármálaspeki hæstv. núverandi fjmrh.
Út af einstökum atriðum, sem fram komu í ræðu hæstv. fjmrh. í tilefni ræðu hv. 1. þm. Reykv. vil ég segja það, að þegar hann minntist á Akranesveizluna, var það auðvitað ekkert annað en hártogun hjá hæstv. fjmrh., að 1. þm. Reykv. hefði sagt, að hann hefði farið upp eftir, til þess að gefa Akurnesingum fyrirskipun. Hv. 1. þm. Reykv. benti á, hversu óviðurkvæmilegt það hefði verið, að hæstv. fjmrh. sem gestur á Akranesi hefði notað aðstöðuna skömmu fyrir bæjarstjórnarkosningar til þess að gefa Akurnesingum ekki aðeins vísbendingu, heldur mjög ákveðnar tillögur um, hverjir það væru, sem þeir skyldu kjósa sem sína fyrirsvarsmenn í bæjarstjórninni. Og þó að hæstv. fjmrh. finni nú, að þetta var mjög ósmekklegt, verður ekki þetta af skafið, og allir vita, að veizluhöldin um síðustu helgi voru auðvitað tilbúin eingöngu vegna bæjarstjórnarkosninganna. Hvenær hefur það skeð um stórframkvæmd, sem er í smiðum, eins og sementsverksmiðjan, að það er haldið boð og veizla til að sýna hana, meðan hún er í smiðum og löngu áður en vígsluathöfn fer fram? Þá er verið að bjóða mönnum opinberlega í slík veizluhöld. Það er ekki aðeins að sýna sjálft fyrirtækið, heldur einnig að fá sér góðan málsverð á eftir. Sementsverksmiðjan varð auðvitað að vera með í leiðinni. Nei, sannleikurinn er sá, að hæstv. fjmrh. gerir sér grein fyrir, að menn sjá í gegnum þetta, að hann fer þar upp eftir ásamt öðrum ráðherra sem meðlimur í bankaráði Framkvæmdabankans, sem nokkra milligöngu hefur haft um þetta mál, og allt er þetta úthugsað áður, í þeim tilgangi einum að reyna að misnota aðstöðu sína til þess að hafa áhrif á bæjarstjórnarkosningar, sem fram undan eru. Fram hjá þessu verður með engu móti gengið, og þegar þeim svo í þokkabót verður það á að kunna ekki það, sem almennt eru taldir mannasiðir í veizlum, eins og fram kom í ræðu hæstv. fjmrh., þá furðar mann ekkert á, að þeir séu nokkuð sárir, þó að þeir, séu á það minntir.
Alveg á sama hátt fór hæstv. fjmrh., þegar hann fór að segja: Þó að ég kallaði fram í hjá þm. og segði: Það borgar sig ekki að halda þessu fram, — ja, þá meina ég ekkert með því. — En hæstv. fjmrh. verður að gera sér grein fyrir því, að það er ekki daglegur viðburður, að ráðherrar kalli fram í mál þm. og segi: Það borgar sig ekki fyrir þig að vera að tala. — Og ef hæstv. fjmrh. finnur ekki sjálfur, hvílík frekja þetta er og hvílíkur dónaskapur, þá held ég, að hann sé búinn að vera of lengi í jafnábyrgri stöðu eins og ráðherrastöðu og ætti að reyna að fá sér svolitla hvíld frá því, því að það skortir þá á, að hann kunni í þeirri stöðu að temja sér þá hæversku, sem eðlileg er. Eftir á, þegar menn verða varir við yfirsjónir sínar, má náttúrlega koma og með öllu móti draga úr þeim og segja sem svo: Ja, ég meinti ekkert með þessu annað, en allt annað en ég sagði. En sannleikurinn var sá, að ráðherrann var mjög ákveðinn í máli sínu og dró ekkert úr áherzlunum um, að það borgaði sig ekki fyrir þm. að vera að tala í þessu máli og hann skyldi bara hafa sig hægan.
En það er ekki aðeins, að hæstv. fjmrh. sé orðinn nokkuð uppbelgdur í seinni tíð, heldur er það á miklu fleiri sviðum þjóðfélagsins, að menn verða varir við það, að ýmsir teljast vera orðnir miklir menn og miklir riddarar í þessu þjóðfélagi í skjóli þess stjórnarvalds og þeirrar ofstjórnar, sem við búum við. Það er æ að tíðkast meira og meir, að hinir og þessir fylgifiskar hæstv. ríkisstj. úti um land setji sig upp á háan hest. Það er sagt við opinberar stofnanir sem aðra: Ef þið ekki gerið eins og ég segi, þá klaga ég bara fyrir í þessu tilfelli fjmrh., hinu tilfelli fyrir félmrh. — Ég hef nýlega séð bréf, sem einum sparisjóði þessa lands hefur verið skrifað af einum kaupfélagsstjóra þessa lands. Það væri fróðlegt, að þm. fengju að kynnast þeim tóni, þeim gorgeir og þeim rembingi, sem er í slíku bréfi eins og þessu. En það, sem á bak við stendur, er þetta, og það er það, sem byggir upp gorgeirinn, það er það, að ef ekki sparisjóðurinn fer að eins og lántakandanum líkar, ja, þá skal ég bara kæra þig fyrir fjmrh. Og það er dálítil von, að þeir espist svolítið upp, þessir smákóngar úti á landinu, hin nýja stétt, þessir ungu kaupfélagsstjórar, sem eru að sínu leyti ekkert ólíkir hinni nýju stétt hjá Kremlverjum, — það er von, að þeir espi sig upp, þegar þeirra forustumenn gera sig seka um annan eins ruddaskap,frekju og dónaskap og hér kom fram í fari hæstv. fjmrh. á þingfundi í gær.
Hæstv. fjmrh, sagði, að 1. þm. Reykv. hefði farið algerlega rangt með, því að hann hefði haft það eftir sér, að það ætti að ganga hægt um dyr framfaranna. Svo segir hæstv. fjmrh.: Ég sagði bara alls ekki, að það ætti að ganga hægt um dyr framfaranna, ég sagði, að það ætti að ganga skipulega um dyr framfaranna. — Jú, jú, það getur vel verið, að orðalagið hafi verið þetta. En hvenær var þetta orðalag viðhaft, að það ætti að ganga skipulega um dyr framfaranna? Eftir það að hæstv. fjmrh, í ræðu sinni er margbúinn að ítreka það og leggja á það megináherzlu, að það hafi verið framkvæmt allt of mikið á of skömmum tíma. Þetta gengur ekki lengur, við verðum að ganga skipulega um dyr framfaranna, við höfum farið allt of hart. Er rangt að leggja þetta út þannig, að hæstv. ráðh. hafi meint: Við verðum að ganga hægar um dyr framfaranna? Rétt þegar hann er að sleppa orðinu og finna að hv. 1. þm. Reykv. fyrir, að hann hafi rangfarið með mál sitt, segir hann svo: Það er undarlegt, að þessi hv. þm. skuli ekki viðurkenna ofþensluna í þjóðfélaginu. Þeir, sem viðurkenna ofþensluna og eru sí og æ að vara við henni, eru líklega mennirnir, sem vilja, að menn fari hægar, en áður var farið, fari hægt um framfaranna dyr.
Því hefur verið haldið hér fram, að stjórnarliðið muni ekki hafa fengið miklar upplýsingar um ráðagerðir ríkisstj. í efnahagsmálunum og till. um heildarafgreiðslu fjárlaga. Ja, ég spyr. Vita hv. þm. stjórnarflokkanna, hvernig á að afgreiða fjárlögin? Hver verður endanleg heildarafgreiðsla þeirra? Vita þeir, hvaða till. á að gera í efnahagsmálunum? Vita þeir, hvernig á að leysa vandræði útvegsins? Vita þeir það? Þeir vita þá meira en í fyrra, því að þá var það hæstv. menntmrh., sem var svo hreinskilinn að viðurkenna það, þegar frv. um útflutningssjóð var lagt hér fyrir þingið og okkur var gert að afgreiða það á 2 eða 3 dögum eða nóttum og við sjálfstæðismenn bárum okkur upp undan því og sögðum: Við höfum ekki þá sömu aðstöðu eins og stjórnarliðið í þessum efnum, því að við höfum engar upplýsingar fengið og fyrir okkur hefur ekkert verið lagt fyrr en nú, að ætlazt er til að við afgreiðum þetta á engum tíma, — þá sagði hæstv. menntmrh.: Stjórnarsinnarnir, þingmennirnir, hafa heldur engar upplýsingar fengið. Þeir hafa ekkert fengið meiri upplýsingar, en þið og standa ekkert betur að vígi. — Og skyldi þessu vera mikið öðruvísi varið nú? Og svo loksins endaði hæstv. fjmrh. mál sitt á því, að það væri annað mál, fjárlögin eða efnahagsmálin. Ja, þetta er fjármálaspeki, sem er eðlilegt að menn furði töluvert á, þegar sjálfur hæstv. fjmrh. segir: Það eru allt önnur mál, fjárlögin og efnahagsmálin. — Og hvernig hæstv. fjmrh. getur í sjálfu sér rökstutt þetta, það held ég sé erfitt að skilja. Hitt vitum við, að það má búa til sýndarfjárlög í þjóðfélaginu, sem gefa enga hugmynd um þróun efnahagsmálanna og stefnuna í efnahagsmálunum, og að því hefur enginn stefnt öruggar, en núverandi hæstv. fjmrh. En engu að síður verða þessi mál aldrei aðskilin, og jafnvel þó að þau séu flutt í tveimur frv., eru þetta greinar á sama meiðinum og hljóta eðli málsins samkvæmt að vera það, og það er hörmulegt, að hæstv. fjmrh. skuli gefa svo vanhugsaðar yfirlýsingar eins og þessar í þingsölum.
Eins og fram hefur komið, flytjum við sjálfstæðismenn ekki einstakar till. nú við þessa 2. umr. vegna þess, með hverjum hætti hún er, og þarf ég ekki að hafa fleiri orð um það. En ég vil leyfa mér að hreyfa atriðum, sem ég tel að þurfi að taka til nánari meðferðar, áður en lýkur, og a.m.k. freista þess að fá lagfærðar frá því, sem nú er.
Í sumar, þegar íþróttavöllurinn í Laugardalnum var opnaður með fyrsta kappleiknum og ég flutti þar örstutta ræðu sem form. Laugardalsnefndar og tíundaði þar, að íþróttasjóður ætti vangoldnar svo og svo miklar upphæðir til leikvangsins, varð það tilefni þess, að hæstv. menntmrh. fór á stúfana í blöðunum og ég var lýstur ósannindamaður bara af því, sem ég hefði sagt í þessari ræðu, og eitthvað þaðan af verra. Sannleikurinn er sá, að það vita allir, að íþróttasjóður á stórkostlega vangoldnar greiðslur bæði til þessa mannvirkis og margra annarra, og það var fjarri því, að ég í minni ræðu væri í þessu efni að vega nokkurn skapaðan hlut að núverandi hæstv. ríkisstj., heldur tók ég það beinlínis fram í ræðu minni, að hér væri ekki um að sakast, fremur við þessa ríkisstjórn en aðrar, sem á undan hefðu verið. En samt var mér borið á brýn, að ég hefði beinlínis verið að saka þessa ríkisstj. um einhverjar ávirðingar og þannig, að það hefði verið ósatt. Ég skal ekki nú rekja það mál lengra. En eftir þetta varð ég hissa, þegar kemur svo fjárlagafrv. og framlag til íþróttasjóðs almennt er lækkað úr 1.6 millj. niður í 1.3 millj. kr.
Það er virðingarvert, að fjvn. leiðréttir þetta í till. sínum og leggur til, að framlagið verði hækkað aftur upp í 1.6 millj, kr. Ég tel alveg nauðsynlegt að freista þess að fá þingið til þess að viðurkenna sérstaka fjárveitingu til íþróttaleikvangsins í Laugardalnum fyrir utan þessa 1.6 millj. kr., alveg á sama hátt eins og í fyrra, og það fyrst og fremst vegna þess, að hér er um að ræða aðalleikvang landsins. Hann á að vígjast á n.k. vori með almennu íþróttamóti íþróttamanna hvaðanæva af landinu og mun í framtíðinni verða aðalíþróttaleikvangur landsins. Hvort sem það eru þrjár eða á fjórðu millj. kr., sem íþróttasjóður á vangoldið í þessu mannvirki, þegar svo stendur á, og vígsla þess stendur fyrir dyrum og hér er um aðalíþróttaleikvang landsins að ræða, þá er ekki ofrausn að ætlast til þess, að nokkur aukafjárveiting verði sett í þetta mikla íþróttamannvirki, sem ég vona að eigi eftir að verða æsku þessa lands til mikillar uppbyggingar. Ég vildi a.m.k. mega vænta þess, að hæstv. menntmrh. mundi vilja standa við hlið mér og annarra, sem vilja styðja þetta mál, áður en yfir lýkur, og mér þykir ekki einskis vert í þessu sambandi, að æska þessa bæjar fái um það vitneskju og þá um þetta mál eins og önnur, áður en bæjarstjórnarkosningar fara fram, hvernig við slíku máli verður brugðizt. Ég skal nánar gera grein fyrir því við 3. umr, málsins.
Ég kem svo að húsnæðismálunum, þar sem 1. þm. Reykv. vék einnig að því, að við teldum nauðsynlegt að hækka framlagið til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis úr 4 millj, og upp í 12 millj. kr. Nú er ekki hægt að flytja um það till. á þessu stigi málsins a.m.k., að framlagið samkvæmt 16. gr. þeirra laga, sem nú eru, eins og þetta er í fjárlögunum, verði hækkað, nema gengið verði inn á að samþ. frv. okkar, en við 3. umr. má auðvitað bæta við þessar 4 millj. einhvers konar aukafjárveitingu, sem mundi þá standa í fjárl. til móts við það, sem meiri hluti þings síðar kynni að koma sér saman um að ákveðið væri um framlög í þessu skyni, áður en þingi lýkur.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að ábyrgðum ríkissjóðs, sem eru miklar og við höfum — tel ég — allt of litlar upplýsingar um. Það eru í ríkisreikningunum upplýsingar um það, en ég teldi alveg eðlilegt og sjálfsagt, að þm. fengju á hverjum tíma, þegar fjárlög eru lögð fram, vitneskju um, hversu miklar ábyrgðir ríkissjóðs eru og að hve miklu leyti ábyrgðir eru á það fallnar. Auk þess tel ég, að alveg á sama hátt og eðlilegt sé að setja aðra skipan á úthlutun atvinnuaukningarfjár, væri rétt að koma nýrri skipan á það, með hverjum hætti ábyrgðir eru teknar af hálfu ríkisvaldsins. Í þessum orðum mínum felst ekki ásökun um misferli í sambandi við ábyrgðir ríkissjóðs af hálfu núverandi hæstv. fjmrh., en það er ómögulegt að ganga fram hjá því, að þetta færist æ í vöxt, að ríkissjóður taki á sig æ meiri og meiri ábyrgðir, og ekki leyni ég því, að oft fær maður í eyra, að það sé misjafnlega greitt, misjafnlega auðvelt að sækja undir hæstv. fjmrh. um þessa ábyrgð eða hina. En ég fer ekki út í þá sálma og ásaka hæstv. ráðh. ekki í þessu sambandi, en ég tel, að eðli málsins samkvæmt ætti að skipa þessu með öðrum hætti, en er og þingið gerði á því einhverja skipan svipaða því að setja þingkjörna nefnd í úthlutun atvinnuaukningarfjárins.
Um atvinnubótafé vil ég segja það, að ég tel ekki aðeins nauðsynlegt, að það sé sett sérstök stjórn þingkjörinnar nefndar eða þingkjörin nefnd til þess að úthluta atvinnuaukningarfénu, eins og við lögðum til, heldur að framfylgt sé till. um, að myndaður sé sérstakur jafnvægissjóður. Og eðlismunurinn yrði þá sá, að þegar endurgreiðist og að svo miklu leyti sem endurgreiðist þetta atvinnuaukningarfé, fer það aftur inn í þennan sjóð til endurútlána þar, sem þörfin er meiri, eða þar, sem þörfin einhvers staðar annars staðar er fyrir hendi, og innan tíðar er hægt að byggja upp atvinnuaukningarsjóð, sem sjálfur getur undir þessu staðið og þarf ekki á hverjum tíma að vera að ákveða með árlegum framlögum í fjárlögum fjárveitingu ríkissjóðsins, hvernig svo sem henni er úthlutað. Þess vegna legg ég engu að síður áherzlu á það, að sem allra fyrst verði tekin upp sú skipan mála, sem við sjálfstæðismenn höfum lagt til, að sérstakur jafnvægissjóður hafi með þessi mál að gera.
Ég skal svo ekki á þessu stigi málsins hafa um þetta fleiri orð. En eins og ég sagði, mun ég gera nánar grein fyrir þessum einstöku atriðum, annaðhvort sjálfstætt eða í sambandi við aðra þm. í tillöguflutningi við 3. umr. fjárlaga.