13.12.1957
Sameinað þing: 19. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í B-deild Alþingistíðinda. (355)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1958

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég er nú orðinn það gamall í hettunni hér á Alþ., að ég er búinn að vera hér á 30 þingum á undan þessu. En ég leyfi mér að fullyrða það, að á þessum 30 þingum hefur aldrei verið beitt þvílíkum vinnubrögðum eins og hér er verið að gera í sambandi við aðalmál þingsins, sem alltaf eru fjárl. Þessu er þegar búið að lýsa nokkuð, og skal ég ekki langt fara út í það. En aðalatriðið er það, að aðalnefnd og virðulegasta nefnd Alþ. hefur setið að störfum í 2 mánuði að því leyti aðgerðalaus, að hún hefur enga till. afgreitt og svo allt í einu fær hún fyrirskipun frá hæstv. ríkisstj. að afgreiða fjárl. til 2. umr. á tveimur dögum.

Ef þetta er ekki svipur af einræðisbrölti, þá veit ég ekki, hvað er hægt að kalla slíkt, enda hefur það sýnt sig í mörgu á síðustu tímum, að sá er andinn, sem á bak við er.

Við erum nú þannig gerðir, flestir mennirnir, að við eigum bágt með að gera okkur nægilega grein fyrir því, hvað það er, sem við höfum, og hvað það er, sem við njótum, fyrr en við fáum einhvern samanburð við annað. Það segir gamalt máltæki, að enginn veit, hvað átt hefur, fyrr en misst hefur. Og það þarf ekki einasta það að missa, heldur fá samanburð við eitthvað annað, sem fram undan er. Þetta gildir ekki sízt um valdamenn í þjóðfélagi okkar og þá fyrst og fremst um ríkisstjórnir. Eins og kunnugt er, var ég einn af fylgismönnum fyrrverandi ríkisstj., og ég verð að segja það, að mér þótti oft sem hún hefði getað gert betur, en hún gerði og margt færi öðruvísi, en ég mundi kjósa í hennar fari. En ég hef ekki gert mér grein fyrir því, hvað þetta var góð stjórn, fyrr en ég hef komizt í kynni við þá ófreskju, sem núverandi ríkisstj. hefur sýnt sig að vera í starfi sínu. Og ég skal færa að þessu nokkur fleiri rök, en hér hafa áður verið gerð í þessum umr., og það er eðlilegt, að þau rök komi fram, þegar verið er að ræða aðalmál þingsins, fjárl., og þegar til þeirra er stofnað á þann hátt, sem nú er gert.

Ég hef hérna í höndunum tvö fjárlfrv. Annað er það, sem við erum hér að ræða, frv. til fjárl. fyrir árið 1958, hitt er frv. til fjárl. fyrir árið 1956, síðasta frv., sem lagt var fram af hæstv. fyrrv. ríkisstj., og það ætti að vera enn meira að marka samanburðinn á þessum tveimur frv. af því, að það er sami fjmrh., sem leggur þau bæði fram. Og hver er svo heildarniðurstaðan? Hún er ekki séð að fullu enn. En við sjáum þó, hvað frv. hefur að geyma. Heildarupphæð fjárlfrv. 1956 var 579 millj. Heildarupphæð þessa frv. er 851 millj. Nú hefur það verið upplýst, að fjvn. hefur orðið sammála um að hækka það um 12 millj. og það vanti inn á það a.m.k. 20 millj., sem þar hljóti að verða. En ég ætla nú ekki að taka það með. En það er annað, sem verður að taka með í þessu sambandi, og það eru útgjöld útflutningssjóðs.

Eins og kunnugt er, þá er útflutningssjóður ríkisstofnun og ætti auðvitað að vera á fjárl. sem sérstök stofnun þar, eins og margar aðrar stofnanir eru, og sá sjóður hét í tíð fyrrverandi stjórnar framleiðslusjóður, og gjöld hans voru ætluð á árinu 1956 152 millj. Nú voru þær áætlaðar 432 millj. 1957, á yfirstandandi ári, og þó að maður geri ráð fyrir, að það þyrfti ekkert að hækka, sem flestir telja að muni þurfa, þá er þó upphæðin að þessu meðtöldu komin í 1.283 millj. úr 731. M.ö.o.: það eru 552 millj., sem er hækkunin, mismunurinn á útgjöldum þessara tveggja frv., og sýnir, hvaða stefna, hvaða aðferðir, hvaða útkoma það er, sem núverandi hæstv. ríkisstj. hefur sýnt á fjármálasviðinu.

En það er fleira, sem taka má með í reikninginn og sýnir svipinn á því, hver breytingin er á þessum tveimur árum. Ég hef tekið hérna saman rekstrargjöld fyrir 7 af stærstu stofnunum ríkisins, sem eru á 3. gr. fjárl. og eru ekki tekin með í samningu fjárl., vegna þess að útkoma þessara stofnana er gerð upp á hverri fyrir sig og mismunurinn eingöngu færður inn á fjárl. Þetta er í fyrsta lagi póstsjóður, útgjöld hans voru áætluð 14.2 millj. 1956, en 21.6 millj. nú. Þá er það síminn, rekstrargjöld hans voru áætluð 46.6 millj. 1956, en 75.6 millj. nú. Áfengisverzlunin, rekstrargjöld hennar voru áætluð 10.9 millj. á fjárlfrv. 1956, en 13.4 millj. nú. Tóbakseinkasalan, hennar rekstrargjöld voru áætluð 5.4 millj. 1956, en 6.9 nú. Útvarpið, rekstrargjöld þess voru áætluð 9 millj. 1956, en 11.8 millj. nú, og er þó ekki viðgerðarstofan talin með, annars er það yfir 12 millj. Ríkisprentsmiðjan, hennar rekstrargjöld voru áætluð 4.1 millj. 1956, en 5.3 millj. nú. Landssmiðjan, hennar rekstrargjöld voru áætluð 3.7 millj. 1956, en 4.5 nú. Á þessum 7 stofnunum er hækkunin á rekstrargjöldum samkvæmt áætlun á þessum tveimur frv. hvorki meira né minna en það, að það fer úr 93.9 millj. í 139.1, eða hefur hækkað á þessum 2 árum um 45.2 millj. Þegar þetta er lagt við hina upphæðina, er hækkunin öll á þessu tímabili hvorki meira né minna en 597 millj. kr., og er þó ekki þar innifalið, eins og ég tók fram, það sem fjvn. leggur nú til að hækka frv., eða hitt, sem vantar á það.

Það er ástæða til að líta svolítið til baka í sambandi við þessar tölur, og við sjálfstæðismenn getum ekki annað en hugsað til þeirra tíma, þegar verið var að afgr, fjármálin á því síðasta þingi, sem fyrrv. ríkisstj. réð. Þá var mikill hamagangur í fulltrúum Sósfl. og Alþfl., hamagangur um það, hvað þetta væru ægileg útgjöld, og víst voru þau það og miklu hærri, en mönnum líkaði, mörgum fleiri en þeim. En hamagangur þessara flokka, þáverandi stjórnarandstöðuflokka, var svo mikill, að þeir þóttust allt geta lagað, ef þeir kæmust til valda. Nú er það svo, að stjórnarandstaða er alltaf stjórnarandstaða og maður getur búizt við ýmsu frá þeim mönnum, sem eru að berjast til þess að fella þá, sem völdin hafa. Hlutur þessara tveggja flokka, sem hömuðust mest 1955, er slæmur. Þeir hafa sýnt í verki, að þeir hafa ekki meint neitt með því, sem þeir sögðu þá. Það hefur komið fram, að það er ekki nóg með það, að þeim ofbjóða ekki, þegar þeir eru komnir til valda, þau útgjöld, sem eru sambærileg við það, sem þá var, heldur hafa útgjöldin á þessu tímabili hækkað, um hundruð milljóna.

En þó að hlutur þessara manna sé slæmur, er hann í rauninni hátíðlegur hjá því, sem hlutur hæstv. fjmrh. er. Yfir honum og hans atferli gnapir skömmin, þannig að slíks eru engin dæmi um nokkurn ráðamann, nokkurn ráðherra, síðan hér fékkst innlend ríkisstj. Þessi hæstv. ráðh. var, eins og kunnugt er, ráðh. í fyrrv. ríkisstj., og það er orðið kunnugt nú, að hann sat þar allan tímann á svikráðum við sína samstarfsmenn, málefnislega og persónulega. Þegar þessi herra var búinn að vefa svikavefinn svo vel, að honum þótti vel fara, beitti hann sér fyrir því að fá samþykkt á 400 manna flokksþingi framsóknarmanna, að það væri ekki hægt að vera í samstarfi með sjálfstæðismönnum, það væri ekki hægt að leysa nein efnahagsmál með þeim, þar þyrfti að fá aðra betri menn, þar þyrfti að fá aðra menn, sem hægt væri að vinna með til þess að leysa efnahagsmálin. Hafði hann þar fyrst og fremst kommúnista í huga, eins og komið hefur rækilega fram. Nú hefur reynslan fengizt af þessu samstarfi, hvernig efnahagsmálin eru leyst með því, að það er sannanlegt með tölum, að á tveimur árum, síðan þessir menn tóku við, frá því að þessi ráðh. lagði fram sitt fjárlagafrv. fyrir árið 1956, er það hvorki meira né minna en 600 millj. kr. hækkun. Þar eru hin varanlegu ráð í efnahagsmálum, sem ekki var hægt að koma fram í samvinnu við Sjálfstfl. Og ég segi alveg hiklaust, að það hefði aldrei veríð mögulegt í samvinnu við Sjálfstfl. að koma fjárhag ríkisins og landsins niður í slíkt fen eins og nú blasir við.

Ég skal nefna nokkur fleiri dæmi. Ef það er meiningin að halda áfram fundinum, þangað til minni ræðu er lokið, þá skal ég nefna hér nokkur fleiri dæmi af þessari sömu tegund og taka vissa kafla úr þessu fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir, og frv. 1956.

Þá er það fyrst stjórnarráðið sjálft. Gjöld þess voru áætluð 1956 9.2 millj. Núna eru þau áætluð á árinu 1958 12.4 millj. Innheimta tolla og skatta var áætlað 1956 að kostaði 14.4 millj., en núna 20.6 millj. Kennslumál voru áætluð að kosta 83.4 millj. 1956, en 106.8 millj. nú. Skipaútgerð ríkisins og flóabátar var áætlað að hefðu í rekstrarhalla 1956 13.7 millj., en 18.5 millj. nú. Atvinnubætur, það er mál, sem hér hefur verið nokkuð rætt um og er ástæða til að ræða miklu frekar, en gert hefur verið, en það voru ætlaðar 5 millj. á árinu 1956 til atvinnubóta, en það var strax í fyrra fært upp í 15 millj., nú er það aftur fært niður í 13.5 millj. En auk þess er ætlað til atvinnuleysistrygginga 22.5 millj. Mismunurinn á þessum upphæðum, þessum fáu liðum, sem ég hef hér nefnt, er þannig, að það er samanlögð upphæð úr 125.7 millj. í 204.3 millj. Það er hækkun upp á 78.6 millj.

Ég skal fara fáeinum orðum um þetta mál með atvinnubætur. Það er hækkað um hvorki meira né minna en 36 millj, frá því, sem var 1956, því að í raun og veru er það ekkert annað en til atvinnubóta, það sem á að fara í atvinnuleysistryggingasjóð. Eftir þessu mætti mjög vel ætla, að hér væri mikið atvinnuleysi í okkar landi og það þyrfti að gera stórar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir það. En því er nú þannig farið, að það fást ekki menn á skipin nema fá þá frá útlöndum. Það hefur verið upplýst, að 1954 hafi verið 174 Færeyingar á skipaflotanum, en á þessu ári 1.400. Nú er þetta með svipuðum hætti í landbúnaðinum, að það er helzt ekki hægt að fá fólk, a.m.k. ekki yfir veturinn, nema fá það frá útlöndum, Ég átti nýlega tal við þann mann, sem hefur með það að gera að útvega bændum fólk yfir veturinn, sem er Gísli Kristjánsson, ritstjóri Freys, og spurði hann, hvernig þessu væri varið. Jú, hann sagðist hafa getað fullnægt öllum pöntunum, sem komið hefðu á þessu hausti. Eru það þá innlendir eða útlendir menn? sagði ég. Ekki að tala um nema útlenda menn. En ríkisstj. ætlar 36 millj. í atvinnubætur, og þar er ekki verið að skera við nöglina fjárreiðurnar. 5 millj., sem áður voru veittar í tíð fyrrverandi stjórnar, var úthlutað, eins og hér hefur verið lýst, af þremur ráðuneytisstjórum, og var um það allt sæmilega gott samkomulag. Þeirri úthlutun hefur nú verið mjög breytt, og skal ég ekki fara nánar út í það, af því að það hefur verið gert hér bæði í gær og í dag.

En það er margt annað, sem vert er að minnast á í sambandi við þetta fjárlagafrv. Það lítur út fyrir, að hæstv. fjmrh. hafi sérstaka andúð á samgöngubótum til sveita, því að það kemur fyrir ár eftir ár, að hann lækkar framlög til þjóðvega og brúargerða úti um landsbyggðina, og það eru næstum einu liðirnir, sem þessi hæstv. ráðh. lækkar. Hann lýsti því nú hér að vísu yfir í ræðu áðan, þessi ráðh., að það væri ekkert að marka sínar till. í sambandi við vegi og brýr og hafnir, það væri ekkert að marka þær. Það vissu allir, að þær ættu að breytast, af því að þetta hefði verið gert áður, að leggja þar fram lægri till. til þessara mála en ætlað væri að samþykkja. Ja, hver hefur gert það? Það er sami ráðh. Hann hefur gert þetta oft áður og sýnt fram á, að þetta er sú stefna, sem gengur alveg í öfuga átt við það, sem talað er um að auka jafnvægi í byggð landsins, því að það er komið svo, að það er lífsbjargaratriði fyrir mörg heimili víðs vegar um landið að komast í akfært vegasamband. Og það er komið svo, að hæstv. fjmrh. leyfir sér að leggja fram frv. til fjárlaga, þar sem er jafnhá upphæð ætluð til allra þjóðvega á Íslandi eins og til útvarpsins, gjalda útvarpsins, og heldur lægra, en stjórnarráðið sjálft kostar. Hv. fjvn. hefur nú að vísu hækkað þessa upphæð til þjóðvega um nærri 4 millj., og er það að vísu þakkarvert, en þar er allt of skammt gengið, borið saman við flest eða jafnvel allt annað á þessu fjárlagafrv. Í mínu héraði, Austur-Húnavatnssýslu, eru vegir, allir flokkar af vegum, eitthvað á fimmta hundrað km, þar af hátt á þriðja hundrað km þjóðvegir. Þar eru margír tugir km, sem eru ólagðir vegir á og brýn þörf að leggja. Mínu héraði eru í þessu frv., í till. fjvn., skammtaðar 500 þús. kr. til vegabóta í öllu héraðinu, og það svarar til þess, að það eigi á árinu 1958 að vera mögulegt að leggja milli 4 og 5 km af vegi, því að samkvæmt upplýsingum vegamálastjóra kostar fullkominn vegur á km nú orðið frá 80 þús. upp í 200 þús. eftir því, hvernig landið er. Og ef við gerðum ráð fyrir, að það væri hægt að leggja km. að meðaltali fyrir 100 þús. kr., sem kann að vera í mínu héraði, þá er það þó hámarkið, að það eigi að vera hægt að leggja 5 km veg á árinu 1958 fyrir þá upphæð, sem þarna er ætluð því héraði.

Annars er það svo, og það er ein sönnunin fyrir því, hver áhrif öfgastefna ríkisstj. hefur haft á framkvæmdirnar í landinu, að vegamálastjórnin upplýsti það í fyrra, að vegagerðin kostaði 20% meira 1957, heldur en var 1956, og ég hef fengið upplýsingar um svo tiltölulega lítið fyrirtæki eins og brúasjóð, að tollarnir, sem á voru lagðir um þetta leyti í fyrra, tollarnir og skattarnir, kostuðu brúasjóð á s.l. sumri um 900 þús. kr. Þetta þýðir það, að brýrnar, sem byggðar voru fyrir fé brúasjóðs á þessu s.l. sumri, eru vegna tollanna og skattanna, sem á voru lagðir af þessari hæstv. ríkisstj., 900 þús. kr. dýrari en ella hefði verið, ef hefði verið haldið í sama horfi og var, þegar fyrrv. ríkisstj, skildi við.

Þá er það annað mál, sem snertir mitt hérað mjög rækilega og ég hlýt að bera fram till. um, ef ekki fæst leiðrétting á við 3. umr., og það er framlag til Skagastrandarhafnar. Ég hef afhent hv. fjvn. rækilega áætlun um það, hvað þar þurfi að gera, og það er hvort tveggja til þess að bjarga því, sem þar er til, og sömuleiðis til þess að bæta þannig við, að höfnin sé þannig, að það bagi ekki þá útgerð, sem þar er nú. En till. hv. fjvn. um framlag til þessa fyrirtækis er einar 50 þús. kr., og þó er það tekið fram, að það sé ætlunin að vinna þarna á næsta sumri fyrir milljón, en það sé komin á skuld hafnarinnar við ríkissjóð, og hún er þannig til komin, að það var gert út úr vandræðum á s.l. sumri að lána dýpkunarskipið Gretti þarna norður til þess að dýpka höfnina eða moka upp úr henni, þannig að síldarbræðslan gæti verið í lagi. Og þetta er fært sem skuld á höfnina, en hæstv. sjútvmrh. segir mér, að það hafi verið ætlunin, að meginhlutinn af þessum kostnaði yrði færður á síldarverksmiðjur ríkisins.

Nú er það svo, að það er kunnugt, að hæstv. ríkisstj, hefur beitt sér fyrir því — og má að sjálfsögðu þakka fyrir það — að útvega þrjá stóra báta til Skagastrandar, sem gert er ráð fyrir að kosti samtals 31/2 millj, kr. Þar voru fyrir 5 smábátar, og er ætlazt til þess, að þeir verði reknir áfram, og er þá nokkur vafi um það, þegar þessir stóru bátar eru komnir hvort þar fæst mannskapur á í þorpinu sjálfu, til þess að þessi útgerð geti verið í lagi. En um leið og það er ákveðið að verja 31/2 millj. til bátakaupa á þennan stað, þá sést það á till. fjvn., að það eru ætlaðar einar 50 þús. kr. til þessa mannvirkis. Ég get alveg búizt við því að verða að hafa þetta eins og fleira, sem hér er rangt, en ég mun þó freista þess við 3. umr, þessa máls að bera fram brtt. þarna við.

Þá er það þetta: Ja, hver er heildarsvipur þessara fjárlaga? Hver er heildarsvipurinn á þessu fjármálakerfi, eins og það horfir við eftir tæpra tveggja ára starf núverandi ríkisstj.? Mér sýnist, að hæstv. stjórn hafi, síðan hún tók við, hagað sér á mjög svipaðan hátt og maður, sem veit, að hann er orðinn gjaldþrota, og hugsar á þessa leið: Ja, það skiptir ekki svo miklu máli, ég er gjaldþrota og verð gjaldþrota, og það skiptir ekki svo miklu máli, hvort gjaldþrotið verður minna eða stærra. — Þó hefur gjaldþrotasvipurinn aldrei verið eins greinilegur og fram kemur á því frv., sem hér liggur fyrir, því að þar er alveg greinilegur gjaldþrotasvipur, sem mætir augum manna. Svo kemur hér hæstv. fjmrh, hvað eftir annað upp í þennan ræðustól og þenur sig yfir því, sem er endurtekning á því, sem hann hefur verið að skrifa í blað sitt. Tímann: Hvernig stendur á því, að sjálfstæðismenn koma ekki með till.? Því koma þeir ekki með till. um afgreiðslu efnahagsmála? — Og þetta segir sami ráðh. sem er búinn að láta samþykkja það á 400 manna þingi fyrir tæpum tveimur árum, að hann geti ómögulega unnið með sjálfstæðismönnum, af því að það sé ekki hægt að leysa nein efnahagsmál með þeim. Nú skal það játað, að undir venjulegum kringumstæðum og þegar allt er með eðlilegum hætti í fjárhag eins þjóðfélags og líka okkar, þá er það í sjálfu sér eðlileg krafa, að stjórnarandstaða geri till. um afgreiðslu efnahags- og fjármála. En hér er ekki því til að dreifa. Og það er þrennt, sem takandi er fram í því sambandi. Í fyrsta lagi það, að ef sjálfstæðismenn hefðu verið í ríkisstj. fram að þessu, hefði aldrei fjárhag ríkisins og atvinnuveganna og stofnana ríkisins verið sökkt niður í slíkt díki sem það er komið nú. Það er víst. Í öðru lagi er það nokkuð einkennileg krafa af hálfu fjmrh. að gera ráð fyrir því, að við sem stjórnarandstæðingar, sem hann hefur unnið að því að sparka frá öllum störfum og völdum, förum að leika okkur að því að segja til um það, hvernig við mundum hafa hagað okkur, ef við værum í sporum núverandi hæstv. ríkisstj. Það væri nokkuð fávíslegt, ef við færum að gefa fram einhverjar bollaleggingar um það, hvernig við mundum hafa hagað okkur, ef við værum í sporum þessara manna. En þetta er þó ekki í rauninni aðalatriðið. Aðalatriðið er það þriðja, og það er, að það er engin eðlileg krafa til þess, þó að við sjálfstæðismenn séum stærsti flokkur þjóðarinnar, engin eðlileg krafa til þess að heimta það, að við förum að leggja fram till. um, hvernig skuli fara með þrotabúið, þegar núverandi ríkisstj. er búin að koma hér öllu í það kaldakol, sem nú er orðið og við blasir. Það er sama sem að þeir, sem engin áhrif hafa átt á það, hvernig einu fyrirtæki hefur verið stjórnað, og því hefur verið stjórnað þannig, að það er orðið gjaldþrota og komið á kaldan klaka, og þá ættu þeir, sem utan við það eru, að leggja fram till. um það, hvernig á að fara með þrotabúið, löngu áður en þeir, sem hafa komið í gjaldþrotaástandið, hafa snautað frá. Og ég ætla að enda þessi orð með því, að þá fyrst er eðlilegt og sjálfsagt, að þeir, sem verða að taka við, hvort sem það verða sjálfstæðismenn eða aðrir, verði að gera sínar till. um það, hvernig á að fara með það þrotabú, sem núverandi ríkisstj, sýnilega ætlar að skilja eftir sig, þegar hún snautar frá því, — þá fyrst er ástæða til að kalla eftir fjármálatill. frá þeim, sem við taka og völdin fá, hverjir sem það kunna að verða.