13.12.1957
Sameinað þing: 19. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (356)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1958

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Yfir stendur 2. umr. fjárl., enda þótt nú sé með nokkuð öðrum hætti, en tíðkazt hefur þau fimmtán ár, sem ég hef átt setu á Alþ. Fjárl. hafa aldrei verið eins illa undirbúin og nú, og er það rétt, sem hv. 2. þm. Eyf. sagði hér í dag, að allur tilbúnaður þessa frv. og þessara fjárl. er með þeim hætti, að ekki er möguleiki á því, eins og nú standa sakir, að gera sér grein fyrir fjármálaástandinu.

Hæstv. fjmrh. hefur talað við þessa umr., og hann hefur þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir ekki viljað svara því, hver væri stefna stjórnarinnar eða hvað hún ætlaði að gera til þess að koma fjárl. saman greiðsluhallalausum. En eins og kunnugt er, þá lítur frv. þannig út nú, að greiðsluhalli nemur 120–130 millj. kr. Það er að sjá, að hæstv. fjmrh. sé í vandræðum með að benda á leiðir til þess að brúa þetta bil. Ekki er að sjá neina tilraun hæstv. ríkisstj. á þessu frv. til þess að draga úr kostnaði við rekstur ríkisbúskaparins eða neinum kostnaðarliðum. Eina tilraunin, sem gerð var, þegar frv. var lagt fram, var að draga úr verklegum framkvæmdum, að lækka framlög til vega, til brúa og til hafna. Vegna þess að sjálfstæðismenn gerðu kröfu til, að þetta yrði nokkuð leiðrétt, lét stjórnarliðið undan og hefur fallizt á, að framlög til þessara framkvæmda skuli verða hin sömu að krónutölu á næstu fjárl. og á þeim fjárl., sem gilt hafa fyrir yfirstandandi ár. Eigi að síður er þetta lækkun, þetta er lækkun til verklegra framkvæmda, vegna þess að engar líkur eru til, að eins mikið fáist unnið fyrir sömu upphæð á næsta ári og fékkst fyrir þetta ár. Dýrtíðin hefur vaxið á þessu ári, seinni hluta þessa árs, eftir að framkvæmdum var lokið, og líkur eru til og reyndar vissa, með þeirri stefnu, sem nú er fram haldið af hæstv. ríkisstj., að dýrtíðin vaxi mjög á næsta ári. Framlag til verklegra framkvæmda er þess vegna stórum lækkað, þótt varið sé jafnmörgum krónum til framkvæmdanna á næsta ári sem þessu ári, og er það mjög slæmt, vegna þess að vegamálin, brúamálin og hafnamálin eru það, sem kalla að og verður að teljast til brýnustu nauðsynja fyrir landsbyggðina alla.

Þegar dregið er úr þessum framkvæmdum, mætti ætla, að fyrir hendi væri sparnaðarvilji hjá hæstv ríkisstj. til þess, sem er síður nauðsynlegt. Ég ætla ekki að segja, að Skipaútgerð ríkisins og ferðir með ströndum fram séu ekki nauðsynlegar, og það er ekki mín till. að draga úr þeim ferðum eða gera aðstöðu þeirra, sem búa að aðdráttum á sjó, lakari, en ég vil gera kröfu til, að gerð sé tilraun til að gera rekstur Skipaútgerðar ríkisins hagkvæmari, en hann nú virðist vera, því að gert er ráð fyrir, að hallinn á þessum rekstri verði á næsta ári allt að 20 millj. kr. Hallinn á þessum rekstri fer stöðugt vaxandi, og virðist hér vera um botnlausa hít að ræða. Ég vil halda því fram, þó að þekking mín á skipaútgerð sé nokkuð takmörkuð og það eðlilega, að reksturinn á þessu fyrirtæki sé staðnaður og það sé ekki fylgzt með þeirri breytingu, sem hefur orðið á ýmsum staðháttum og aðstæðum í þjóðfélaginu hin síðari árin. Svo sem kunnugt er, rekur Skipaútgerð ríkisins tvö farþegaskip með ströndum fram. Fyrir 20 árum, jafnvel fyrir 15 árum, gat þetta verið nauðsynlegt og var nauðsynlegt, vegna þess að þá var takmarkað, hvað fólk gat ferðazt á landi í bifreiðum, vegna þess að vegir voru illfærir og ekki til viða á milli landshluta. Þá voru flugvélar lítið í notkun á meðal landsmanna, og menn ferðuðust ekki á milli landsfjórðunga í flugvélum. Eini möguleikinn þá var að fara með ströndum fram með farþegaskipum, og það var þess vegna, sem Skipaútgerðin eignaðist Heklu og Esju. En tap á þessum skipum nú er mjög mikið, vegna þess að fólksflutningar með ströndum fram hafa nú næstum horfið, vegna þess að fólkið ferðast nú milli landshluta annaðhvort með bílum eða flugvélum. Þrátt fyrir þessar staðreyndir, þótt farþegarúm þessara skipa sé ekki notað og rekstur þessara skipa mun dýrari, en ef notuð væru til flutninga með ströndum fram önnur skip hentugri fyrir vöruflutninga og ódýrari í rekstri, — þrátt fyrir þessar staðreyndir hafa forráðamenn Skipaútgerðarinnar ekki gert tilraun til þess að breyta rekstri fyrirtækisins í hagkvæmara horf, heldur hefur tapreksturinn stöðugt hækkað ár frá ári, og hæstv. fjmrh. hefur stöðugt lagt blessun sína yfir þessa óstjórn og þessa eyðslu.

Ég tók það fram, að ég væri ekki talsmaður þess að gera samgöngurnar á milli hafna og vöruflutninga með ströndum fram erfiðari, en nú er. En ég vil gera kröfu til, að þessi rekstur verði endurskoðaður og að til þessara flutninga verði notuð þau skip, sem henta bezt og unnt er að reka án tilfinnanlegs taps. Það hefur verið fullyrt, að ef hagsýni væri með í Skipaútgerð ríkisins, væri unnt að veita nauðsynlega og góða þjónustu í vöruflutningum milli hafna með ströndinni, án þess að tapið væri yfir 4–5 millj. kr., í stað þess að það mun nálgast á næsta ári með sama áframhaldi nærri 20 millj. Væri ekki betra að láta þessar 12–15 millj., sem látnar eru í óþarfataprekstur Skipaútgerðarinnar, ganga til vegagerða og brúargerða og hafna í kringum landið, sem nauðsynlegt er að framkvæma, en neitað er um fé til undir því yfirskini, að ekki fáist fé til þessara framkvæmda?

Ég vona, að hæstv. fjmrh. heyri það, sem ég er að segja, og vilji beita sér fyrir því, að þetta mál verði tekið til athugunar.

Það eru vitanlega fleiri liðir á fjárl., sem nauðsynlegt er að endurskoða, ekki sízt þegar augljóst er, að hallinn á fjárl. er stórkostlegur og fé vantar og fjárl. fara stöðugt hækkandi undir stjórn og forustu hæstv. fjmrh. Hv. þm. A-Húnv. las upp nokkrar tölur hér áður og minnti á, hversu útgjöld ríkisins hafa farið hraðvaxandi nú síðustu 2 árin. Ég ætla einnig að minna hér á nokkur dæmi og geta þess, að fjárlögin fyrir árið 1956, síðustu fjárl., sem fyrrverandi ríkisstj. átti þátt í að semja, voru aðeins 661 millj. kr., en hin fyrstu fjárl., sem núverandi hæstv. ríkisstj. samdi, urðu 811.6 millj. kr., eða 150.6 millj. kr. hærri en síðustu fjárl. fyrrverandi ríkisstj. Það er því með rétti hægt að segja, að núverandi hæstv. ríkisstj. er ríkisstj. eyðslu og ráðleysis, ríkisstjórn dýrtíðar og rekstrarhalla.

Og hvað er svo með það fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir til umr.? Er að sjá einhverja bót, einhverja betrun frá því, sem var, þegar síðustu fjárlög voru fram lögð? Ef við flettum þessum frv., sjáum við niðurstöðutöluna, og hún er 851.8 millj. kr. En þá vantar inn á frv. 20 millj. kr., sem á að verja til niðurgreiðslu á ýmsum vörum eða verja til dýrtíðarráðstafana, eins og það er kallað, og hæstv. ríkisstj. er farin að greiða, enda þótt þessi upphæð hafi ekki verið látin inn í frv.

Þá má geta þess, að fjvn. hefur samþ. 12.4 millj. kr. hækkun. Það má einnig geta þess, að mikil viðbót hlýtur hér að koma við 3. umr., því að eins og kunnugt er, eru skólamálin enn óafgreidd, og ef að líkum lætur, verður eitthvað samþ. af brtt. frá einstökum þm. og brtt., sem hæstv. ríkisstj. hlýtur að standa að til leiðréttingar ýmsum liðum fjárlaga. Mætti nefna nokkur dæmi, sem auðsjáanlega verður að leiðrétta, ef fjárl. eiga að vera á nokkurn hátt rétt mynd af því, sem greiða verður út á næsta ári. Það er þess vegna mjög sennilegt, að fjárl. við 3. umr. hækki til viðbótar þeim 12.4 millj., sem nú liggja fyrir skv. brtt. fjvn., um a.m.k. 20 millj., kannske meira. Verða þá fjárl. fyrir árið 1958 904.2 millj, kr., eða hækka um 93 millj. frá fyrra ári. Hæstv. fjmrh. getur nú sagt: Ég hækkaði fjárl. í fyrra nm 150 millj., en nú ætla ég ekki að hækka þau nema um 93 millj., og þið getið verið ánægðir með það. — En hvað sem hæstv. fjmrh, segir um þetta, hvort sem hann telur þetta mikla eða litla hækkun, 93 millj. á einu ári, eða ef til vill 100, þá mun þjóðin telja þetta mikla hækkun og allt of mikla hækkun. Þjóðin mun telja, að gjaldgetu hennar sé ofboðið með slíku framferði og að þannig verði ekki mögulegt að halda áfram ár frá ári, að fjárl. hækki sum árin um 100 millj., annað árið um 150 millj. og að þannig sé stefnt vitandi vits út í foræði og fen, sem íslenzk fjármál geta ekki komizt úr.

Margur undrast, að hæstv. ríkisstj., að hæstv. fjmrh. skuli bera höfuðið sæmilega hátt og koma fram fyrir hv. Alþ. og alþjóð kinnroðalaust eftir að hafa staðið sig í fjármálunum eins og raun ber vitni. Margur undrast, að sú ríkisstj., að sá hæstv. fjmrh., sem stendur að slíkri lausn fjármálanna, sem hér er stefnt að, skuli ekki segja af sér og játa, að það sé þjóðfélagsleg nauðsyn að skipta um fjmrh., að skipta um fjármálastefnu, það sé nauðsynlegt fyrir þjóðfélagið. Og ég hafði ætlað það, að hæstv. fjmrh. ætti innst inni þann drengskap að viðurkenna þetta, að hann vildi þjóð sinni svo vel, að hann teldi nauðsynlegt að breyta til, til þess að það þjóðfélag, sem Ísland byggir, geti haldið áfram uppbyggingu landsins og stefnt að bættum lífskjörum, tryggt frelsi sitt efnahagslega og pólitískt. Og ef hæstv. fjmrh. skoðar hug sinn, gefur sér tíma til þess að hugsa þessi mál, þá efast ég ekki um, að honum verður ljóst, hver skylda hans er. Skylda hans er augljós, það er að játa uppgjöfina, það er að viðurkenna, að hann er ekki maður til þess að leysa fjárhagsmálin, að það verða nýir menn og ný úrræði til að koma til þess að forða þjóðinni frá fjárhagslegum háska. Ég hef vonað, að hæstv. fjmrh. ætti þennan manndóm, og ég vona, að hann gefi sér tíma til að rökhugsa og skoða huga sinn í þessu efni og gera skylduna við þjóðfélagið, þ.e. að losa íslenzkan þjóðarbúskap við hans ráðsmennsku.

Þetta er mín skoðun á hæstv. fjmrh. Aðrir hafa ekki þessa skoðun á honum. Aðrir segja, að hæstv. fjmrh. ætli að halda blekkingunum áfram, hann ætli að segja við íslenzku þjóðina: Fjárlögin fyrir árið 1958 verða ekki hærri, en fjárl. þessa árs. — Aðrir segja það, sem ég ekki trúi, að hæstv. fjmrh. ætli að kippa út úr fjárlagafrv, liðnum til dýrtíðarráðstafana, sem er í frv. 105 millj., og auk þess 20 millj., sem ég áður nefndi, samtals 125 millj., og að hann ætli á þann hátt að fá greiðslujöfnuð á fjárlögin og segja við alþjóð, eftir að þessum lið hefur verið kippt í burtu: Fjárlögin hafa ekki hækkað. — Þessi liður, sem áður hefur verið inni í fjárlögunum, verður þar ekki lengur. Kannske yrði hann þá settur í sama sjóðinn og stendur undir útflutningsframleiðslunni. Ef til vill er hæstv. fjmrh. öðruvísi, en ég hef haldið og vill reyna að blekkja þjóðina á þennan hátt og halda því fram, að fjárl. fyrir árið 1958 verði engu hærri, en fjárl. fyrir árið 1957 með því að kippa út 125 millj., sem ráðgert er að verja til dýrtíðarráðstafana, og leggja til hliðar, kannske saman við útflutningssjóðinn. Ég vona, að hæstv. fjmrh. taki ekki þetta skref, vegna þess að þá bregzt hann trausti margra, og hann má ekki við því að missa það litla, sem hann á eftir af því.

En eitt er það, sem hæstv. fjmrh. sagði hér í dag, — hefur ef til vill verið sagt í fljótfærni og óhugsað. Hann sagði, að það þyrfti að afla tekna, aukinna tekna til fjárl., ef ekki væri kippt einhverjum útgjaldalið burt úr frv. Ef einhverjum útgjaldalið er kippt í burtu alveg og hann hverfur úr útgjöldum ríkisins, þá þarf ekki að afla tekna. En sé útgjaldaliðnum kippt í burtu, t.d. dýrtíðarráðstöfunum, og settar til hliðar á annan reikning og fjárhæðin notuð eigi að síður til dýrtíðarráðstafana, þá þarf að afla tekna alveg eins og þessi liður væri á fjárl. Það er meginatriðið, að hvort sem upphæðin til dýrtíðarráðstafananna verður á fjárl. eða tilraun verður gerð til þess að fela hana, þá verður að útvega fé til dýrtíðarráðstafananna eigi að síður.

Hæstv. fjmrh. sagði hér í dag, að við sjálfstæðismenn höfum talið það ágætt að hafa tvenns konar fjárlög. Þegar framleiðslusjóðurinn var myndaður, vildum við sjálfstæðismenn, að hann væri í fjárl., en það var krafa hæstv. fjmrh., að hann væri þar ekki, vegna þess að hann vildi þá ekki láta fjárl. hækka sem þessu nemur. Framleiðslusjóðurinn var undanfari útflutningssjóðsins, og það er þess vegna ekki rétt, sem hæstv. ráðh, sagði hér í dag. Við sjálfstæðismenn höfum verið óánægðir með það alla tíð að hafa þetta í tvennu lagi. Það er vitanlega ekkert nema blekking að vera að hafa tvenn fjárl. Það er alveg rétt, sem hv. þm. Á-Húnv. sagði hér í kvöld, að hvort sem þessar upphæðir eru hafðar í tvennu lagi eða í einu lagi, eru þetta eigi að síður jafnhá útgjöld, og hæstv. ríkisstj. getur ekki tekizt á neinn hátt að fela hinar miklu hækkanir fyrir landsmönnum, jafnvel þótt þriðju fjárl. yrðu mynduð með því að halda því fé, sem verja skal til dýrtíðarráðstafana, sér og mynda þar að við segjum dýrtíðarráðstafanasjóð eða hvað sem hæstv. ráðh. mundi nú vilja kalla það. Þetta verður ekki hægt að gera. Það er staðreynd, að hæstv. núverandi ríkisstj. hefur hækkað álögur á landsmönnum um 600 millj. kr. á þessum stutta valdaferli sínum.

Ég gat um það, að greiðsluhallinn á fjárl. yrði sennilega 120–130 millj. kr., og þótt þau verði samþ. núna fyrir áramótin greiðsluhallalaus með því að taka þessar 125–130 millj., sem á að verja til dýrtíðarráðstafana, frá, þá eru þau samt sem áður afgr. með greiðsluhalla, því að alþjóð hlýtur að vera kunnugt um það, að þessi upphæð er fyrir hendi. Hæstv. ríkisstj. heldur áfram að greiða niður og það í auknum mæli, þörfin fer stöðugt vaxandi með aukinni dýrtíð, og til fjárl. vantar stjórnina á annað hundrað millj. kr., jafnvel þótt reynt verði að blekkja þjóðina með því að hækka tekjuáætlunina fram yfir það, sem nokkurt vit er í, til þess að hægt sé að byggja á henni.

En hæstv. ríkisstj. kemur nú til með að vanta meira en þetta. Útlit er fyrir, að þarfir útflutningssjóðsins vaxi mjög. Eins og fjármálaástandið er slæmt í þjóðfélaginu, svo er einnig um atvinnuástandið, ef við athugum það í dag. Taprekstur útgerðarinnar fer stöðugt vaxandi, sjómannafélögin hafa boðað verkföll, og ekki er vitað, hvernig þeir samningar verða, sem hæstv. ríkisstj. gerir við sjómenn og gerir við útgerðarmenn, og ekki heldur vitað, hvenær vertíðin getur hafizt.

Það er ekki ólíklegt, að hæstv. ríkisstj. vanti 250 millj. kr. til þess að jafna greiðsluhalla fjárl., til þess að afla nauðsynlegra tekna í útflutningssjóð. E.t.v. verða sumir hæstv. ráðh, allánægðir með þetta, því að sumir halda því fram, að hæstv. fjmrh. sé harla ánægður nú, ef fjárl. hækki ekki nema um tæpar 100 millj., af því að þau hækkuðu um 151 millj, s.l. ár. Það væri þess vegna rökrétt að hugsa, að sumir ráðh. gætu verið harla ánægðir nú, ef ekki þyrfti að bæta á í nýjum sköttum að þessu sinni nema 250 millj, kr., af því að við síðustu áramót voru lagðir á skattar fyrir 300 millj. En séu þessir hæstv. ráðh. ánægðir og einhverjir af hv. stuðningsmönnum stjórnarinnar hér á Alþ., þá er áreiðanlega upp talið það fólk, sem er ánægt með þessa stefnu og þessar niðurstöður.

Ég held, að flestum hugsandi mönnum sé ljóst, að svona er ekki hægt að halda áfram, að það verður að breyta um stefnu, það verður að finna nýjar leiðir og það verður að skipta um stjórn og þá ekki sízt þann mann, sem forustuna hefur haft í fjármálunum undanfarin ár, eftir að fór að síga svo mjög á ógæfuhliðina eins og raun ber vitni.

Hæstv. fjmrh. má muna tvenna tímana. Hann var í stjórn með sjálfstæðismönnum. Þá voru fjárlög samin greiðsluhallalaus. Þá voru fjárlögin samin varlega, tekjuáætlunin ekki spennt óeðlilega hátt, þegar fjárl. voru samin, og þá var stöðugt tekjuafgangur hjá ríkissjóði. Hæstv. fjmrh. var þakkað þetta, en ekki okkur sjálfstæðismönnum, sem stóðum með honum í því að semja fjárl., stóðum með honum í því að afgr. fjárl. og gera mögulegt að skapa heilbrigt og öruggt fjármálaástand. Hæstv. fjmrh. má minnast þess, að þegar hann var í ríkisstj. með sjálfstæðismönnum, var unnt að nota tugmilljóna tekjuafgang fjárl. til þess að verja í ræktunar- og byggingarsjóð Búnaðarbankans, til þess að verja í byggingarsjóð kaupstaðanna, til þess að verja í fiskveiðasjóð, og þá þurfti ríkisstj. ekki að vera sníkjandi og snapandi út um öll lönd til þess að hafa nokkurt fé til umráða í þessum sjóðum.

Ég hygg, að flestir geri sér ljóst eftir þá reynslu, sem nú er fengin, eftir að við sjálfstæðismenn hættum að vera í stjórn með hæstv. fjmrh., að það hefur ekki verið hæstv. fjmrh. fyrst og fremst að þakka, hvernig fjárlagaafgreiðslan hefur verið undanfarin ár, hvernig fjármálaástandið var undanfarin ár, heldur var það því að þakka, að hann var í stjórn með ábyrgum stjórnmálaflokki, sem studdi hann með ráðum og dáð og markaði stefnuna og hafði það að fyrirheiti að skapa hér öruggt fjármálaástand og tekjuhallalaus fjárl. hverju sinni.

Þetta gerðu sjálfstæðismenn, þótt fjmrh. væri ekki sjálfstæðismaður, og er rétt að minna á það hér, þar sem öðruvísi var að farið hjá framsóknarmönnum, þegar fjmrh. var sjálfstæðismaður, því að fjmrh. Sjálfstfl. fékk ekki slíkan stuðning hjá Framsfl, eins og fjmrh. Framsfl, hjá Sjálfstfl.

Þegar menn líta á fjármálaástandið og atvinnuástandið, eins og það er nú í landinu, mun mönnum verða minnisstætt, hvernig núverandi stjórnarflokkar töluðu fyrir síðustu kosningar, hverju þeir lofuðu þjóðinni, og mönnum verður minnisstætt, þegar Framsfl. af hræsni sinni og vandlætingu taldi ekki mögulegt að leysa vandamál atvinnu- og fjármálanna með Sjálfstfl., það þyrftu nýir aðilar að koma til, því að þess má geta, að um það leyti sem Sjálfstfl. og Framsfl. slitu stjórnarsamstarfinu, voru vitanlega ýmsar blikur á lofti í atvinnulífinu, sem komu vegna verkfallsins 1955, verkfallsins, sem ekki var háð vegna kjarabaráttu, heldur einungis pólitískt verkfall til þess að spilla fyrir þáverandi ríkisstj. Og óheilindin hjá ýmsum framsóknarmönnum í sambandi við samstarfið við sjálfstæðismenn sjást ljósast á því, að sumir framsóknarmennirnir áttu sinn þátt í að kynda undir þessu verkfalli í þeirri von, að sú stjórnarsamvinna, sem þá var, yrði sprengd, í þeirri von, að formaður Framsfl. fengi tækifæri til þess að taka höndum saman við hina svokölluðu vinstri flokka og mynda stjórn með þeim.

Verkfallið 1955 breytti viðhorfinu og skapaði margs konar erfiðleika, og í ársbyrjun 1956 virtust ýmsir erfiðleikar vera fram undan. En ef Framsfl. hefði skilið þá ábyrgð, sem á honum hvíldi, og viljað starfa áfram af heilindum með Sjálfstfl., þá voru þessir erfiðleikar yfirstíganlegir. Ef þeir hefðu í byrjun árs 1956 viljað starfa af ábyrgð og heilindum í stað þess að reka ævintýrapólitík, eins og hann hefur gert síðan, hefði mátt stöðva dýrtíðina og forða þjóðinni frá því að fá á sig skatta, 300 millj. við síðustu áramót og e.t.v. 250 millj. nú í febrúar n.k., ekki við áramótin, heldur í febrúar. Hvers vegna ekki fyrr en í febrúar? Vegna þess að það eru bæjarstjórnarkosningar í janúarlok, og það á að koma aftan að fólkinu, það á að reyna að blekkja það og fá það til þess að kjósa, áður en gjafirnar verða réttar að því, en það er önnur saga. Það er þó aðeins í samræmi við það, sem áður hefur gerzt, þá blekkingastarfsemi, sem hefur verið rekin af núverandi stjórnarflokkum, síðan þeir hugsuðu sér að ná saman því samstarfi, sem þeir nú búa við.

Ef farið hefði verið að till. okkar sjálfstæðismanna í ársbyrjun 1956 og dýrtíðin stöðvuð, hefði mátt losa þjóðina við þessa bagga, sem hún nú ber. Hagstofustjóri reiknaði út, hvað það kostaði á árinu 1956 að halda dýrtíðinni niðri, eins og hún var, eftir að álögurnar höfðu verið lagðar á í ársbyrjun 1956, og það voru rúmar 20 millj., að halda dýrtíðinni óbreyttri á árinu 1957 kostaði eftir útreikningum hagstofustjóra rúmar 40 millj. Þetta eru samtals 60 millj., sem hefði þurft að leggja á þjóðina í staðinn fyrir þær 550 millj., sem ýmist er búið að leggja á eða fyrirhugað er að leggja á þjóðina nú á næstunni.

Ég segi þess vegna: Ábyrgð framsóknarmanna er mikil, þegar þeir illu heilli í stað þess að vera staðfastur flokkur, sem vildi byggja á raunsæi, reka ævintýrapólitík undir forustu síns formanns, sem píndi alla þm. flokksins undir þetta merki, þrátt fyrir það þótt margir þessir þm. sæju, að hér væri rangt stefnt.

Ég held, að öllum sé ljóst, að það loforð stjórnarflokkanna að stöðva dýrtíðina, en því var lofað með miklu yfirlæti, hefur verið svikið. Það efast enginn um það, og það er alveg tilgangslaust fyrir tímann, fyrir Þjóðviljann eða Alþýðublaðið að reyna að telja fólki lengur trú um það, að núverandi ríkisstj. og stjórnarflokkar hafi rekið verðstöðvunarpólitík, síðan þeir tóku við völdum.

Sannleikurinn er sá, að dýrtíðin hefur aldrei vaxið örara, en síðan núverandi ríkisstj. tók við völdum. Það hefur verið reynt að fela dýrtíðina, það hefur verið reynt að hylja hana með því að hækka niðurgreiðslurnar, með því að greiða mest niður þær vörur, sem ganga inn í vísitöluna, en greiða ekki niður þær vörur, sem ekki ganga inn í vísitöluna, Og fólkið, sem hefur alltaf haft takmörkuð auraráð til þess að veita sér brýnustu nauðsynjar, finnur það bezt nú, hvað núverandi ríkisstjórn hefur gefið því, og það er þess vegna, sem núverandi stjórnarflokkar eru óttaslegnir, þeir eru óttaslegnir vegna þeirra kosninga, sem í hönd fara, og það er þess vegna, sem þeir munu draga það að leggja skattana á, þangað til kosningarnar eru liðnar, og það er þess vegna, sem þeir koma hér á Alþingi nú með frv. til kosningalaga til þess að torvelda fólki að greiða atkvæði á kjördegi.

Ég hélt þó, að það ætti að vera stefna í lýðræðisþjóðfélagi að gera sem flestum mögulegt að greiða atkvæði, að nota atkvæðisrétt sinn. Ég hefði haldið, að það væri ekkert aðalatriði, að sá tími, sem fólkið hefur til þess að fara á kjörstað, væri allt of naumur. Ég held, að það mættu alveg eins vera tveir dagar eins og einn dagur, að það væri aðalatriðið, ef við viljum viðurkenna lýðræðið, ekki aðeins í orði, heldur einnig á borði, að sem flestir gætu greitt atkvæði. En það er ekki það, sem núverandi stjórnarflokkar vilja. Þeir vilja kosningahömlur. Þeir vilja setja hömlur á kosningarrétt manna, vegna þess að þeir eru hræddir við kjósendurna. Þeir eru að hverfa frá lýðræðinu. Þeir eru að aðhyllast þröngsýni. Þeir eru að taka sér einræði til fyrirmyndar. Og þetta skeður á elzta löggjafarþingi þjóðarinnar. Það má þess vegna segja, að núverandi hæstv. ríkisstj. taki upp nýja stefnu, því að við Íslendingar höfum fram til þessa miklazt af því að vera lýðræðisþjóð, að eiga eitt elzta löggjafarþing veraldar. Ég vil vona, að þeir hv. þm., sem hafa látið villa sig og jafnvel aðhyllast þröngsýni og einræði, skoði hug sinn og taki höndum saman um það að vernda lýðræði í þessu landi og virða þá stofnun, sem við erum kosnir til, Alþingi Íslendinga.

Ég var að tala um verðlagið áðan, og ég hef staðhæft og fært rök að því, að ríkisstj. hefur svikið það loforð, svikið það raunalega mikið að stöðva dýrtíðina, og hún hefur fengið á sig stimpilinn „dýrtíðarstjórnin“. Og jafnvel þótt kunningi minn, hv. form, fjvn., komi hér á eftir, af því að ég held, að hann hafi hug á því, og reyni að afsanna þetta, þá getur hann ekki og enginn þvegið þennan stimpil af ríkisstj. Hann verður ævarandi á henni, stimpillinn „dýrtíðarstjórn“, mesta dýrtíðar- og óhappastjórn, sem á Íslandi hefur verið,

En hæstv. ríkisstj. og hv. stjórnarflokkar gáfu fleiri loforð fyrir síðustu kosningar og við stjórnarmyndunina, heldur en að stöðva verðlagið, því að þeir voru ósparir á loforðin. Þeir ætluðu að tryggja vinnufriðinn, og hæstv. forsrh. kom í útvarpið haustið 1956 og tilkynnti þjóðinni, að nú yrði vinnufriður, ríkisstj. hefði samið við vinnustéttirnar.

Það hefur verið talað um þetta og síðast í gær, og öllum hv. þm. og öllum landsmönnum eru í fersku minni verkföllin mörgu á því ári, sem nú er að kveðja, og hæstv. ríkisstj. hefur fengið á sig átakanlegan og raunalegan stimpil, stimpilinn, sem er með stórum stöfum og merkir hana „verkfallastjórn“, því að aldrei hafa verið eins langvinn og mörg verkföll á Íslandi eins og síðan núverandi hæstv. ríkisstj. tók við völdum.

Að þessu leyti hefur hæstv. ríkisstj. skaðað þjóðfélagið meira, en nokkru sinni áður hefur verið gert, og að þessu leyti hefur hún svikið kosningaloforðið eftirminnilegast.

Og það var fleira, sem lofað var. Það var lofað að vernda verðgildi peninganna, vernda verðgildi sparifjárins og skapa traust almennings á myntinni. En hvað hefur hæstv. ríkisstj. og stjórnarflokkar gert í þessu? Skyldi almenningur í þessu landi hafa meira traust á myntinni, nú en þegar stjórnin tók við völdum? Skyldi verðgildi peninganna hafa verið verndað? Skyldi núverandi hæstv. ríkisstj, hafa staðið við það loforð sitt að hafa ekki fellt gengið, ekki fellt peningana? Ég held, að það blandist engum hugur um það, að krónan hefur hríðfallið, síðan núverandi stjórnarflokkar tóku við völdum, með því að nú fæst mun minna vörumagn, minna verðmæti fyrir hverja krónu, en fyrir hálfu öðru ári, og hvort sem það er viðurkennt eða ekki, að krónan sé fallin, með því að skráningunni hefur ekki verið breytt, þá hafa peningarnir lækkað í verði, og þannig hefur hæstv. ríkisstj. og stjórnarflokkar átakanlega einnig svikið þetta kosningaloforð. Og ekki sízt vegna þess er fjármálaástandið í landinu í dag eins og það er, og einmitt vegna þess að peningarnir hafa lækkað í verði, hafa fjárl. hækkað, við síðustu áramót um 150 millj, og sennilega við þessi áramót um 100 millj. kr., og skattarnir, sem núverandi stjórnarflokkar eru að leggja á að þessu sinni og lögðu á við síðustu áramót, leiða vitanlega til þess að minnka verðgildið og fella gjaldeyrinn.

Átakanleg svik, átakanleg reynsla er það, sem þjóðin hefur fengið af þessu ævintýra- og valdabrölti núverandi stjórnarflokka, og það er þjóðfélagið í heild, sem á eftir að gjalda þunga skuld fyrir það, að þessir ævintýramenn komust til valda og hafa hagað sér eins og þeir hafa gert síðan.

Og margt fleira er það, sem lofað var, en ég skal ekki telja miklu fleira upp. Þó væri ekki úr vegi að minna á varnarmálin, till. frá 28. marz, það væri ekki úr vegi að minna á, að núverandi stjórnarflokkar reyndu fyrir síðustu alþingiskosningar að stimpla okkur sjálfstæðismenn sem landráðamenn, vegna þess að við vildum ekki svíkja samtök þeirra þjóða, sem við töldum rétt að hafa samstarf við.

Núverandi stjórnarflokkar samþykktu till. um það á Alþingi að reka varnarliðið í burtu, sögðu kjósendum fyrir alþingiskosningar, að þetta yrði gert, en eftir kosningarnar voru þeir ráðnir í að svíkja þetta. Meiri óskammfeilni, meiri fyrirlitning á kjósendum hefur aldrei komið fram á Íslandi áður, og það má merkilegt heita, ef fólkið í landinu lætur ekki þessa menn, sem skrökvuðu að þessu leyti eins og svo mörgu fyrir kosningarnar, fá makleg málagjöld fyrir þetta.

Frá mínu sjónarmiði er það ekki skaði, að varnarliðið hefur ekki verið látið fara, En það er raunalegt, að stjórnmálamenn Íslands skuli ekki bera meiri virðingu fyrir sjálfum sér og fyrir kjósendum, en svo að skrökva þannig fyrir kosningarnar og vera ráðnir í því að svíkja kosningaloforðin svo eftirminnilega. Ég tel, að eins og það er sjálfsagt að hafa varnarliðið í landinu um sinn, svo er það fráleitt að haga sér eins og núverandi stjórnarflokkar hafa gert í sambandi við varnarmálin. Það að binda saman varnarmálin og lánsútveganir fyrir ríkissjóð og þjóðfélagið er hættulegt. Það er ekki hættulegt fyrir okkur Íslendinga að gera samninga við lýðræðisþjóðir um dvöl varnarliðsins á Íslandi um ákveðinn tíma, á meðan við teljum rétt og nauðsynlegt að vera í þessum samtökum til þess að tryggja okkar öryggi, en það er hættulegt að binda dvöl varnarliðsins við fjármál og við lánsútvegun, og það er glæpur gagnvart sjálfstæði þjóðarinnar og framtíð. En það er þetta, sem hæstv. ríkisstj. hefur nú gert með útvegun lánsfjár í fyrra. Í sambandi við það kom greinilega fram, að varnarliðið vildi tryggja sér raforku á Keflavíkurflugvelli um ókomin ár, tiltekinn tíma, og það er háskalegt að taka lán eins og núverandi hæstv. ríkisstj. hefur gert, þ.e. matar- og eyðslulán.

Við síðustu áramót tekur hæstv. ríkisstj. 4 millj. dollara lán í Bandaríkjunum, sem er matarlán, eyðslulán. Þessu fé var ekki varið til framkvæmda, sem skyldu auka útflutningsframleiðsluna, framkvæmda, sem síðar gætu borgað þessi lán. Nei, þessu fé var varið til venjulegs innflutnings til þess að draga úr gjaldeyrishallanum. Sogslánið, um 5 millj. dollara, var tekið með þeim hætti, sem ég áður nefndi, að nefna varnarliðið og raforku til þess í sambandi við þá lántöku, og 2.7 millj. dollara lánið, sem nota skal til þess að borga innlenda kostnaðinn við Sogið, er matarlán, vegna þess að út á það fáum við korn og fleiri nauðsynjavörur, sem við sennilega þurfum ekki að borga seinna. Og nú er talað um, að hæstv. ríkisstj. hafi tekið 7 millj. dollara lán, NATO-lán, sem hæstv. stjórn hafi fengið m.a. í því skyni að tryggja það, að við Íslendingar værum nothæfir og fullgildir félagsmenn í samtökum Atlantshafsþjóðanna. Þetta lán, ef það hefur verið tekið á þennan hátt, er þess vegna óbeint bundið við varnarliðið.

Ég þarf ekki að fara öllu fleiri orðum um þetta, til þess að öllum sé ljóst, að þetta er vægast sagt óviðeigandi, að þetta stefnir í nokkra hættu, okkar sjálfsforræði og að ýmsir taka að efast um það, að við höfum, eftir að þetta hefur skeð, eins skýlausan möguleika til þess að losna við varnarliðið, hvenær sem við sjálfir óskum, eins og við áður höfðum, því að það höfðum við örugglega áður. Ég vil vona, að þrátt fyrir þessar óviðeigandi ráðstafanir hæstv. ríkisstj. sé nú ekki svo langt komið enn, að við séum ekki frjálsir að segja upp samningum og láta varnarliðið fara, þegar við sjálfir teljum það heppilegt og nauðsynlegt, og ég hef aldrei viljað skrifa undir það, að varnarlið eigi að vera á Íslandi um framtíð alla. Ég hef talið, að það væri hættulaust fyrir okkur, eins og málin standa nú, og að það væri nauðsynlegt fyrir okkur öryggis vegna, eins og viðhorfið er í heiminum í dag, að hafa hér varnarlið frá okkur vinveittri þjóð, sem tryggir þau samtök, sem lýðræðisþjóðirnar í vestri hafa myndað með sér.

Hæstv. fjmrh. hefur oft talað um það, að fyrrv. ríkisstj, hafi hvergi fengið lán og þess vegna hafi aðkoman verið slæm hjá núverandi hæstv. ríkisstj., það hafi vantað fjármagn til þess að halda þeim framkvæmdum áfram, sem fyrrv. ríkisstj. hafi byrjað á. En það var nú svo, á meðan fyrrv. ríkisstj. sat að völdum, að þá var framkvæmdunum haldið áfram af fullum krafti. Það var ekki hætt við neitt af því, sem byrjað var á. Að raforkumálum var unnið hraðar, en 10 ára áætlunin gerði ráð fyrir. Að sementsverksmiðjunni var unnið af fullum krafti. Að byggingu fiskiðjuvera var unnið að fullum krafti. Fiskiskipastóllinn var endurnýjaður. Hafnir voru byggðar, og framkvæmdir og uppbygging hafði aldrei verið örari, en á þessu þriggja ára tímabili fyrrverandi ríkisstj. Og það er þess vegna, sem hæstv. fjmrh. og framsóknarmenn hafa oft talað um það, að einmitt á þessu tímabili hafi fjárfestingin verið of ör, og þeir hafa kennt því um, að við sjálfstæðismenn höfum losað um hömlur og ýtt of mikið á framkvæmdirnar. En þegar hæstv. fjmrh. kemur út á land, þar sem framkvæmdum hefur verið lokið, t.d. upp á Akranes, þá þakkar hann sér og sínum flokki fyrir hinar miklu og öru framkvæmdir, bæði hafnarframkvæmdirnar og sementsverksmiðjuna. En fjárfestingin, það var Ingólfur Jónsson, sem átti þátt í því, m.a. með því að undirskrifa heimild til handa bæjarstjórn Akraness til þess að taka erlent lán til þessara framkvæmda. Og ég býst við því, að hæstv. fjmrh. hafi gleymt því í hófinu á Akranesi að þakka minn hlut í þessu máli, sem var talsverður, vegna þess að það var mér að þakka, að þetta lán var tekið með 5% vöxtum, en ekki 6%, eins og hæstv. fjmrh. og bæjarstjórinn á Akranesi höfðu ákveðið að gera.

Það var að vísu aldrei nein tregða hjá okkur sjálfstæðismönnum að taka lán til þessara framkvæmda, vegna þess að við vissum, að það þurfti að byggja höfn á Akranesi, og við gerðum okkur ljóst, að Faxaflói hefur verið og verður vonandi gullkista, sem ber að nota. En það þótti dýrt að taka 6% lán, og ég sagði: Reynið að fá vextina lækkaða, og þá skuluð þið strax fá lánið, — Og það var gert. Þetta sparar ekki aðeins Akranesi mikla peninga, þetta sparar þjóðinni erlendan gjaldeyri, og ég verð að segja það, að hæstv. fjmrh. má muna þátt okkar sjálfstæðismanna í fyrrv. ríkisstj. í uppbyggingu hafnarinnar á Akranesi eins og uppbyggingu og framkvæmdum öðrum víðs vegar um landið frá þessum tíma. En það er ekki stórmennska í því að fara út á land og þakka aðeins sér og sínum fyrri framkvæmdir og störf, sem unnin hafa verið að eins miklu eða kannske meira leyti af mönnum úr öðrum flokkum.

Ég get minnzt á aðra framkvæmd á Akranesi, sem er sementsverksmiðjan. Ég man ekki, hvort það var í Tímanum eða Alþýðublaðinu, kannske í báðum þeim blöðum, sem talað var um, að það væri nú fyrst og fremst hæstv. fjmrh. og hæstv. iðnmrh. að þakka, að sementsverksmiðjan væri komin svo langt sem raun ber vitni. En það verður að minna hæstv. fjmrh. og aðra, sem segja þetta og trúa þessu, á það, að hæstv. fyrrv. forsrh., Ólafur Thors, vann manna ötullegast að því að koma sementsverksmiðjunni upp. Það er hins vegar rétt, að um það leyti sem stjórnarskiptin urðu, vantaði peninga til þess að halda sementsverksmiðjunni áfram, enda þótt aldrei hafi neitt hlé orðið á vinnu þar. En fyrrv. ríkisstj. átti kost á að fá peninga til sementsverksmiðjunnar eins og annarra framkvæmda, ef hún hefði setið áfram að völdum. Og hæstv. fjmrh. hefur guggnað á því upp á síðkastið að þræta fyrir það, að fyrrv. ríkisstj. hafi átt kost á 100 millj. marka láni eða 390 millj. kr. láni í Vestur-Þýzkalandi samkvæmt skeytum og skjölum, sem um þetta mál fjalla og eru fyrir hendi og eru óvéfengjanleg, og jafnvel þótt hæstv. fjmrh. sé stundum kaldrifjaður og þræti og neiti því, sem satt er, þá hefur hann a.m.k. í dag ekki haft kjark til þess að neita þessu nú, þótt hann hafi gert það áður. Hvort hann sækir í sig veðrið nú í nótt, veit ég ekki, en ég vona það hans vegna, að hann fari nú ekki að skrökva að okkur hér vísvitandi hvað þetta mál snertir. Nóg hefur hann samt á samvizkunni.

Það er þess vegna ljóst, að þótt ekki hafi allir sjóðir verið fullir, þegar stjórnarskiptin voru, og þótt þörf hafi verið að afla fjár þá til ýmiss konar framkvæmda, þá hefði engin stöðvun orðið í því, þótt stjórnarskipti hefðu ekki orðið, því að nokkuð mátti nú gera við 392 millj. kr. eða 100 millj. marka. Það hefði verið hægt að byrja á að virkja Sogið. Það hefði verið hægt að halda áfram byggingu sementsverksmiðjunnar. Það hefði verið hægt að láta nokkrar milljónir í ræktunarsjóð og byggingarsjóð Búnaðarbankans. Það hefði verið mögulegt að láta nokkuð í byggingarsjóð ríkisins til íbúða í kaupstöðunum. Og það hefði verið unnt að láta nokkuð í fiskveiðasjóðinn. Það er þess vegna undarlegt, þegar menn eru að reyna að berja höfðinu við steininn og halda því fram, að fyrrv. ríkisstj. hafi gefizt upp við að afla fjár og hún hafi skilið við framkvæmdirnar í óreiðu og ráðaleysi. Sannleikurinn er, að fyrrv. ríkisstj. vann lengst með innlent fjármagn, vann að uppbyggingunni með innlendu fjármagni, sem þjóðin sjálf aflaði, en með því að byggja sementsverksmiðjuna, virkja Sogið og gera ýmislegt fleira, sem fyrir lá, var ekki unnt að nota innlent fjármagn eingöngu. Ekki einu sinni þótt fyrrv. stjórn hefði verið og fólkið hefði haldið áfram að hafa traust á stjórnarfarinu og sparifjármyndunin hefði haldið áfram, þá var ekki hugsanlegt að gera það, nema útlent fjármagn kæmi til, og þess vegna var leitað eftir fjármagni í Vestur-Þýzkalandi, og Vestur-Þjóðverjar vildu lána fyrrv. stjórn, af því að þeir höfðu traust á borgaralegu samstarfi og því stjórnarfari, sem þá var, En hvers vegna núv. hæstv. ríkisstj. hefur ekki fengið þetta lán, veit ég ekki, en trúlegast er, að það stafi af því, að sú stjórn, sem nú situr, hafi ekki verið eins geðþekk Vestur-Þjóðverjum eða sú stefna, sem hún fylgir, eins og fyrrv. stjórn, enda má geta þess, að það var ekki til álitsauka og það var ekki traustvekjandi á erlendum vettvangi, þegar sá boðskapur er látinn berast út um allan heim frá Íslandi, að Íslendingar ætli að svíkjast undan merkjum og þeim skyldum, sem þeir hafa með undirskrift skuldbundið sig til þess að fullnægja, en það var gert með samþykktinni 28. marz og með kosningaprógramminu, þegar ákveðið var og lofað að svíkjast undan merkjum og láta varnarliðið fara úr landi og slíta þann hlekk, sem hafði verið smíðaður hér til styrktar samtökum vestrænna þjóða. Kannske hefur þetta átt nokkurn þátt í því, að þetta kostalán, sem við áttum kost á, hefur ekki fengizt, að stjórnarfarið í landinu virtist vera komið á það stig, að það væri ekki hægt að treysta íslenzkum ráðamönnum til drengskapar eða samstarfs.

Ég hef ekki frekar en aðrir sjálfstæðismenn flutt brtt, við þetta frv. við þessa 2. umr. málsins. Ég mun eins og aðrir hv. sjálfstæðismenn hér á þingi áskilja mér rétt til þess að gera það við 3. umr., ef ég tel til nokkurs að gera það eða viðhlítandi með því viðhorfi, sem nú er til fjármálanna yfirleitt. En við sjáum nú, hvað setur. Að þessari umræðu lokinni kemur 3. og síðasta umræðan, og þá kemur ef til vill einhver boðskapur frá hæstv. fjmrh. um lausn fjárhagsmálanna. Ég segi: ef til vill. Ég a.m.k. vil vona það. Ég tel það engan boðskap, og ég tel það ekki heldur lausn, þótt tekjuliðir fjárlagafrv. verði hækkaðir út í bláinn, meira en svo, að nokkrar líkur séu til, að þeir standist. Ég tel það ekki heldur neina lausn á þessu máli, þótt sá útgjaldaliður 19. gr. fjárlaganna, sem ætlaður er til dýrtíðarráðstafana, verði tekinn út úr fjárlögunum og lagður til hliðar fram í febrúar og þannig fengin greiðsluhallalaus fjárlög. Og tel, að það sé hin argasta tilraun til blekkingar, tilraun, sem vitanlega tekst ekki, vegna þess að það er vitað, að þótt þessi liður væri tekinn út úr frv., verður eigi að siður að afla tekna í því skyni, að unnt sé að inna þær greiðslur af hendi, sem til þess eru ætlaðar.

Það er raunalegt, hvernig hag okkar er komið. Það er raunalegt að sjá það, að á tveimur árum hefur hæstv. ríkisstj. hækkað fjárlögin um 250 millj, kr. og að það virðist svo sem hæstv. stjórn hugsi sér enga stefnubreytingu. Það virðist svo, að þegar þyngir undir hjá hæstv. stjórn, þá bara bæti hún á katlana og stími því hraðar upp á skerið. Er það meiningin að fara alveg upp á skerið? Er ekki eðlilegra að hægja á ferðinni, svo að unnt sé að sveigja til hliðar? Ef hæstv. fjmrh. hugsar sér að keyra upp á skerið og vill ekki breyta til, þá skora ég á hann að fara úr fjármálaráðherrastólnum, til þess að unnt sé að bjarga íslenzku þjóðlífi frá vandræðum og bágindum.