13.12.1957
Sameinað þing: 19. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (361)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1958
Frsm. meiri hl. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Hv. sjálfstæðismenn hafa sýnt það og sannað í þessum umr., að þeir eru vel liðtækir málrófsmenn, þegar því er að skipta, og verður að segja það eins og er, að þeirra ræður hér í kvöld hafa eiginlega ekki nema að ívafi verið um fjárlagaafgreiðsluna, en uppistaðan öll hefur verið um önnur efni, og verð ég þó að segja, að ástæða hefði verið til þess að taka eitt kvöld í það að ræða afgreiðslu fjárl., eins og þau eru í pottinn búin, og þeir hafa mjög bent á, að undirbúningur þeirra væri með þeim hætti, að nokkur hraði hefði verið hafður á þeim efnum umfram það, sem venja er til, og gæfi það enn frekar ástæðu til að ræða þau af gaumgæfni hér í kvöld. Þetta hafa þeir hins vegar ekki gert, en fundið miklu frekar ástæðu til þess að ræða um allt önnur efni. Máske er þetta svolítil arfleifð af því, að hér hefði máske átt að hafa bara eldhúsumræður, svo sem eins og þingsköp gera ráð fyrir, en þeir voru áður búnir að samþykkja að hafa hér á annan hátt og ræða fjárl. í kvöld. Þeir hafa blandað hinum ólíkustu efnum inn í sínar ræður, m.a. var það að skilja t.d. á hv. 1. þm. Rang. (IngJ), að hann teldi allt eins koma til mála að ákveða lengd kosningadags eða fjölda kosningadaga í fjárlfrv. eða eitthvað þess háttar. En að svo miklu leyti sem ég get séð tilefni til, vil ég sem frsm. fyrir meiri hl. þessarar n. víkja örlítið að þeim umr., sem hér hafa farið fram, og þá einkum að ræðum þeirra hv. sjálfstæðismanna.
Sigurður Bjarnason, hv. þm. N-Ísf., hélt hér allanga ræðu og kom nú víða við í henni. M.a. gerði hann mjög að umtalsefni rekstrargrundvöll fyrir sjávarútveginn. Hann átti það sameiginlegt hv. 1. þm. Rang. að fullyrða hér, að rekstrargrundvöllur bátaflotans og fiskiskipanna yfirleitt hefði stórkostlega versnað á yfirstandandi ári. Ég vil minna hv. þm. N-Ísf. á, að það er ekki nóg til þess að verða sérfræðingur í útgerðarmálum að láta flokksskrifstofu Sjálfstfl. útvega sér umboðsbréf til þess að sitja fund hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna, eins og þessum hv. þm. hefur tekizt nú á umliðnu hausti. Það, sem hann fór hér með í ræðustól um þessi efni, er svo fullkomin vitleysa, að hann hefði ekkert verið verr að sér í þeim málum, þó að hann hefði setið þennan fund. Fullyrðing hans um, að dýrtíð hafi vaxið og rekstrargrundvöllur bátaflotans sé allur annar og verri nú en hann var í upphafi s.l. árs, er á misskilningi byggð fullkomlega. Ég vil benda þessum hv. þm. á, að hér sem fyrr hættir honum við að rugla saman óskyldum efnum. Hann vitnar til þess, að á Landssambandsfundinum var talað um, að rekstrartap á hvern fiskibát næmi verulegum upphæðum og að rekstrartap á hvern togara næmi 11/2 millj. Þetta er miðað við það aflaleysi, sem nú er yfirstandandi, var á síðustu vertíð við Faxaflóa og hefur verið hjá togaraflotanum á þessum haustmánuðum. En rekstrargrundvöllur bátaflotans er ekki miðaður við aflamagn einnar vertíðar, og það væri gott fyrir þennan hv. þm. að vita þetta, ef hann skyldi lenda inn á Landssambandsfundi aftur eða hann skyldi einhvern tíma eignast í útgerð eða þurfa eitthvað á vísdómi um þessi mál að halda. (SB: Ég held, að þm. viti ekkert, hvað hann er að tala um.) Það verður þá leiðrétt hér síðar væntanlega af þessum hv. þm.
Pétur Ottesen, hv. þm. Borgf., hélt hér mjög efnislega ræðu um hafnarmál Akraneskaupstaðar, og skal ég taka það fram, að flest af því, sem hann sagði þar, var satt og rétt. Og ég get ósköp vel skilið það, að sá hv. þm. sé ekki ánægður með það framlag, sem gert er ráð fyrir til Akraneshafnar. Hann hefur fært að því fullkomin rök, og það er raunar hverjum manni ljóst, sem á þau mál lítur, að sanngirni mælti með, að þar væru veittar til hærri fjárhæðir, miðað við það, sem tíðkast um aðrar hafnir. En það er nú einu sinni svo, að framlag til hafnanna, hinna stærri hafna, hefur verið bundið hámarki, og hefur verið haldið þeirri reglu enn þá. Ég fyrir mitt leyti vil ekki halda því fram, að það sé endilega það réttasta eða sanngjarnasta, sem hugsazt geti í afgreiðslu hafnarmálanna, en till. um hafnarmál frá fjvn. eru að sjálfsögðu eins og aðrar till. byggðar á því samkomulagi, sem þar hefur fengizt, en segja ekki endilega, að þar séu farnar, að allra nefndarmanna dómi, hinar ákjósanlegustu leiðir.
Varðandi það, sem aðrir menn hafa hér sagt um ónógt framlag til þeirra hafna, sem þeir bera helzt umhyggju fyrir, eins og t.d. um höfnina í Hnífsdal, í Bolungavík, og það, sem hv. þm. A-Húnv. (JPálm) minntist á um höfnina á Skagaströnd, þá get ég upplýst, að þessar hafnir hver um sig eru ekki verr settar, miðað við þann grundvöll, sem lagður hefur verið, heldur en gerist og gengur um hafnir. Hnífsdalshöfnin og Bolungavíkurhöfn eru báðar þannig settar nú, að ríkið skuldar þeim ekkert, en ráðgerðar framkvæmdir í Hnífsdalshöfn telur vitamálaskrifstofan að muni verða það miklar, að ríkið verði skylt fyrir 350 þús. kr. greiðslu þeirra vegna. En ekki er ráðgert að greiða nema tæpan þriðjung af því, þ.e.a.s. 100 þús. kr., og svipað hlutfall gildir um Bolungavíkurhöfn. Ríkið skuldar ekkert til þeirrar hafnar nú, áætlaðar framkvæmdir í þeirri höfn á næsta ári eru um 21/2 millj., og ætti því ríkið að greiða 1 millj. til þeirra mannvirkja, en það er ráðgerð 300 þús. kr. greiðsla, þ.e.a.s. tæpur þriðjungur, og er nokkurn veginn jafnvægi á milli þessara tveggja hafna. Hvað snertir Skagaströnd, þá er hún nokkru betur sett, en þessar tvær hafnir, miðað við þann grundvöll, sem vitnað er í. Það er ráðgert, að það, sem ríkið skuldar Skagaströnd á yfirstandandi ári, nemi 50 þús. kr., en samkvæmt skýrslu vitamálastjórans verður ríkið ekki á næsta ári greiðsluskylt til þeirrar hafnar nema fyrir 69 þús. kr., svo að það má heita, að þar standi til að borga upp framlag ríkissjóðs. Hitt hefur hv. þm. A-Húnv. bent á, að skekkja kunni að vera í þeirri skrá, sem til grundvallar er lögð, og er það þá allt annað mál, ef til leiðréttingar gæti komið í þeim efnum.
Svo að ég víki sérstaklega að ræðu hv. 1. þm. Rang., þá verð ég í heild um hana að segja, að hún var málefnalega fjær sanni, en ég átti von á af þeim hv. þm. Hann kom viða við. Meðal þess, sem hann hélt fram, var það, að tekjur hefðu ævinlega verið varlega áætlaðar í tíð fyrrv. ríkisstj. Með þessu „varlega“ átti hann reyndar við, að þær hefðu verið rangt áætlaðar, lægra en fyrir fram var vitað að þær mundu verða. Hann lét liggja að því, að nú hefðu tekjur ríkissjóðs verið rangt áætlaðar á hinn veginn, að þær mundu ekki standast. Það getur vel verið, að það hryggi hv. 1. þm. Rang., en mér sýnist, að heildarupphæð tekjuhliðar núgildandi fjárl. muni standast, enda þótt það sé rétt, að ekki standist allir einstakir liðir og verði sumir nokkru lægri, en áætlað var, en aðrir verða líka fyrirsjáanlega hærri, og ég á von á því, að heildarupphæðin verði ekki langt frá sanni.
Rekstrarhalli á ríkinu, ef hann kann að verða einhver frá þessu yfirstandandi ári, vænti ég þá að stafi ekki af því, að tekjurnar hafi verið rangt áætlaðar, svo að neinu nemi, heldur þá frekar af hinu, að ekki hefur verið komizt hjá því að greiða nokkru meira í útgjöld, en áætlað hafði verið.
Þessi hv. þm. lét liggja að því, að stjórnarliðið í fjvn. eða hér á Alþ. yfirleitt hafi látið undan siga þrýstingi frá sjálfstæðismönnum um það að gera hækkunartilll. á framkvæmdaliðum frv. til vega, brúa og hafna, eins og gert hefur verið. Ég get aðeins sagt honum, að það hafði engin till. frá neinum verið sýnd í fjvn., þegar ég fyrir hönd okkar, sem styðjum ríkisstj, í fjvn., lagði fram till. um þessa hækkun, sem síðan var samþ. í n. Það er því ekki um það að ræða, að þarna hafi verið um neinn þrýsting að ræða eða sjálfstæðismenn hafi ráðið ferðinni í þessum efnum að þessu sinni.
Hv. frsm. minni hl., Magnús Jónsson, lét að því liggja í sinni ræðu, að á s.l. ári hefði þetta verið þannig, og hefur hann það til síns máls, að sjálfstæðismenn gerðu þá till. um hærri framlög í fjvn. Það er rétt. Þeir fengu þær hins vegar ekki samþ., og eins og menn muna, þeir sem rifja upp afgreiðslu þeirra fjárl., sem nú eru í gildi, gerði Sjálfstfl, meira að segja hækkunartill. um hvern einasta vegarspotta á landinu og lét greiða atkv. um það sérstaklega, af því að honum fannst hækkunin ekki nægilega mikil. En menn muna það líka væntanlega, að allar þær till. voru felldar, svo að Sjálfstfl. réð því ekki heldur, hverjar upphæðir voru þá ákveðnar til vega, brúa og hafna. Það er þess vegna alveg ástæðulaust og vafasamur heiður að reyna að eigna það Sjálfstfl., hvernig sú afgreiðsla var ákveðin á síðasta þingi, og enn er það nú fráleitara að ætla að gorta af því hér, að þær till., sem hér eru fram komnar, séu einhverjar einkatill. Sjálfstfl. eða undan hans rifjum runnar, frekar en annarra. Hitt skal að sjálfsögðu játað, að fulltrúar Sjálfstfl, í fjvn. studdu strax þessar till. og sögðu, að þessar hugmyndir féllu saman við það, sem þeir létu sér detta í hug að leggja til í þessum efnum.
Hv. 1. þm. Rang., Ingólfi Jónssyni, hættir mjög til þess að vitna í það, að hann hafi fundið eitthvert eilífðar-„patent“ gegn dýrtíðinni með því að leggja fram, vorið sem hann fór úr ríkisstj., till. þar um niðurgreiðslu á ákveðnum vörutegundum með sérstökum hætti til þess að halda vísitölunni niðri. Því hefur verið haldið fram, og ég hef ekki heyrt því mótmælt, að þessar till. hans mundu hafa kostað ríkið á einu ári 70 millj. kr., og mig minnir einna helzt, að hann hafi vitnað í þá tölu sjálfur og borið hana saman við það, sem nú hefði orðið í útgjaldaaukningu hjá ríkinu, og honum fannst það vera eitthvað á milli 500 og 600 millj. kr. Og það var á honum að heyra, að hér hefði ríkið orðið fyrir því alvarlegasta skakkafalli, að fyrir það að missa út úr stjórnarráðinu Ingólf Jónsson hafi á ríkið fallið sem eins konar slys eða skaði mismunurinn á 70 millj. og rúml. 500 millj. kr. Ég hef aldrei dregið ágæti Ingólfs Jónssonar í efa, en að ríkinu hafi verið slíkur skaði að brottför hans úr Arnarhvoli, það er ég ekki trúaður á. Ég hneigist frekar að því að láta mér detta í hug, að rétt sé, sem haldið hefur verið fram í ræðum manna, en ég var reyndar ekki áheyrandi að, að maðurinn hafi verið beittur einhverju því, sem orkað hefur á hans taugakerfi með þeim hætti, að hann segir ýmsa hluti, sem manni virðast vera furðulegir og dálítið utan við allan veruleika.
Svo að tekið sé eitt lítið hlutlægt dæmi, vildi ég spyrja þennan hv. þm., vegna þess að það stendur dálítið sérstaklega á, á þeim slóðum, þar sem hann er kunnugur mjög í skólamálum, að þar var byrjað fyrir tveimur árum eða um það bil að byggja svolítið skólahús. Það var áætlað, að þetta skólahús ætti að kosta 11/2 millj. kr. Ríkið samþykkti fyrir sitt leyti þessa áætlun og veitti til þess fé og hafði í hyggju að greiða þennan skólakostnað eftir þeim reglum, sem um skólakostnað gilda í lögum þar um. En af einhverjum ástæðum lenti annað skólahús utan á þessu skólahúsi, þannig að nú berast fjvn, í hendur plögg um það, að til viðbótar við þetta upphaflega áætlaða skólahús sé verið að reisa stækkun á þessu skólahúsi, sem ráðgert er að muni kosta 2.1 millj., þ.e.a.s. töluvert miklu meira en hin upphaflega áætlun var upp á. Nú hefur þessi hv. þm. talað um það bæði við mig og aðra, að það sé hin mesta nauðsyn að hækka framlag til þessara bygginga af þessum sökum, og ég get ósköp vel skilið það, og ég vanmet ekkert þörfina, sem á þessu er. En ég vildi spyrja þennan hv. þm.: Hefðu nú þessar 70 millj. líka komið til með að bjarga svona vandræðum, eða er máske einhver hluti af þessum rúml. 500 millj., sem hann talar um, að komast hefði mátt hjá með því að taka „patent“-milljónirnar hans, utan við það svið, sem hinar umtöluðu 70 millj. hans, þessar galdramilljónir, hefðu getað varðveitt ríkissjóð frá sem útgjöld ?
Hann heldur því fram, þessi hv. þm., að hækkanir hafi aldrei verið meiri á verðlagi, en nú í tíð þessarar núverandi ríkisstj. Hann telur, að það muni a.m.k. þurfa 250 millj. til þess að bjarga fjárhag þjóðarinnar, til þess að efnahagskerfið hrynji ekki, og hann tekur undir það með sérfræðingnum af Landssambandsfundi ísl. útvegsmanna, að rekstrargrundvöllur útgerðarinnar sé svo gersamlega í rúst, að það sé ekkert sambærilegt við það, sem áður hefur sézt, því að útgerðin muni þurfa svo miklu meira nú, en nokkru sinni fyrr, skilst mér, til þess að geta haldið útgerð sinni áfram.
Þessum hv. þm., þm. N-Ísf. og 1. þm. Rang., vil ég sameiginlega benda á það, að þeir ættu að ganga á fund formanns Varðarfélagsins í Reykjavík, sem jafnframt er fiskimálastjóri og heitir Davíð Ólafsson, og spyrja hann að því, hvort rekstrargrundvöllur fyrir útgerðina sé margfalt verri í ár, en hann var á s.l. ári, og áður en þeir leggja á stað í þessa för, skal ég gefa þeim það veganesti, og þeir mega hafa það eftir mér, að búið sé að lita yfir reikninga meðalbáts og þeir reikningar sýni, að það sé ekki um að ræða neitt verri rekstrargrundvöll fyrir útveginn nú, en á s.l. ári, ef ekki þá betri.
En ég er ekki viss um, að þessir hv. þm. taki það mjög trúanlegt, þó að Davíð Ólafsson mundi segja þeim, að þetta, sem ég er að segja þeim nú, væri rétt. Þeir væru ekki alveg ólíklegir til þess að rísa hér enn upp á Alþ., ef þeim býður svo við að horfa og ef þeim finnst endilega, að þeir þurfi að skamma ríkisstj., og halda enn fram sömu firrunum sem þeir hafa haldið hér fram í kvöld. En þó þykir mér nokkur fróðleikur í því að vita, hvort þeir hafa manndóm í sér til þess að leiðrétta það, sem þeir kunna að sannfærast um að þeir hafi hér skakkt sagt í kvöld.
Hv. þm. A-Húnv., Jón Pálmason, hélt hér líka eina mikla dómadagsræðu um ástandið hjá íslenzka þjóðarbúinu. Hann taldi það yfirleitt vera gjaldþrota með öllu, hann taldi þar allt ganga aftur á bak, og það var fátt, sem hann þekkti til af misferli, sem hann taldi ekki tilheyra núverandi ríkisstj. En í leiðinni í þessu gjaldþroti öllu saman segir hann frá því, að á Skagaströnd, sem er helzti útgerðarstaðurinn í hans kjördæmi, sé nú allt að fyllast af nýjum fiskibátum, það séu bara að koma þrír fiskibátar þangað. Allir vita, að þar hefur legið við landauðn af atvinnuleysi að undanförnu, Áhyggjur þessa hv. þm. snerust núna um það, hvort staðurinn hefði nægilegan mannskap til þess að manna þessa báta og til þess að vinna úr þeim fiski, sem þeir mundu draga að landi. Ég verð nú að segja það, að af jafnágætum dreng og þessum hv. þm. hefði ég sannast að segja óskað betra hlutskiptis, en að láta skrifstofu Sjálfstfl. hafa sig út í það að halda svona endemis ræðu hér, og næst þegar hann verður beðinn um það, þá held ég, að hann ætti að skoða hug sinn tvisvar, um að láta hafa sig út í svona fen og foræði. Þeirri stjórn, sem hefur lagt til helzta sjávarþorpinu í hans sýslu atvinnutæki, sem eru nóg handa því fólki, sem þar býr, og hann má máske eiga von á innflutningi fólks í þetta hérað, ætti hann að unna þess sannmælis að telja henni ekki alls varnað. Að sjálfsögðu gæti hann fundið að við hana, en hann gerði það bara með þeim hætti, að engin sanngirni var þar finnanleg í. Hvað gerði gamla ríkisstj. fyrir hann? Lagði hún honum til báta? Bjargaði hún atvinnuástandinu á Skagaströnd? Nei, hún gerði það ekki. En þessi hv. þm. taldi sig samt hafa alla ástæðu til þess að fylgja henni að málum, og hann beit nú í rauninni hausinn af skömminni með því að gefa henni þau eftirmæli, að enginn vissi, hvað átt hefði, fyrr en misst hefði. Ja, hann missti atvinnuleysið af Skagaströnd.
Hv. þm. Reykv., Jóhann Hafstein, hélt hér einnig langa ræðu og kom viða við. Hann taldi, að við byggjum við þess háttar stjórnarfar, að það væri beinlínis verkefni ráðuneyta að leggja fram till. og allir aðrir væru í rauninni undanþegnir þeirri skyldu. Hann sagði: Það þýðir ekkert að hrópa á stjórnarandstöðuna og segja: komið þið með till. — Það fannst honum vera fullkomin ósvífni. Ég man nú þá tímana, að aðrir voru í stjórnarandstöðu en hv. Sjálfstfl. M.a. minn flokkur var það síðasta kjörtímabil, og það var í engu sparað af hv. sjálfstæðismönnum að heimta af okkur till., og við komum líka með þær. Og við lögðum þær fram, t.d. í sambandi við afgreiðslu málefna framleiðslusjóðs á öndverðu ári 1955 lögðum við fram okkar till. um, hvar taka bæri þær tekjur, sem til þyrfti. Það þótti ekki tiltækt þá, að skoða þær að vísu. Þær gerðu ráð fyrir útgjöldum hjá bönkum og hjá olíufélögum, og á meðan þeir hrópuðu eftir till., sögðust þeir mundu skoða þær, en þegar þeir fengu till., töldu þeir ekki vera á þær lítandi. Þannig er afstaða þessa hv. flokks, að hún er breytileg frá degi til dags. Hann nennir ekki að gera till., þegar hann er í stjórnarandstöðu. Hann veigrar sér við því og segir, að aðrir menn séu til þess launaðir. Ég veit ekki betur, en þm. séu launaðir. Og til hvers eru þeir launaðir? Þeir eru máske launaðir til þess að sitja í bönkum eða á flokksskrifstofum eða einhvers staðar allt annars staðar, en í þinginu. A.m.k. telur þessi hv. flokkur, að Alþingi launi ekki sína menn til þess að gera till. um úrlausn þjóðmála. En ég verð að segja: Ég er þeim ósammála um þetta og tel það á fullri sanngirni reist að spyrja um það, hverjar séu þeirra till. Jafnvel þó að þeir þyrftu aukakaup fyrir þær, þá ættu þeir bara að gera Alþingi eða þingfararkaupsnefnd reikning fyrir því og sjá, hvernig því reiddi af. En að skjóta sér undan allri tillögugerð, ég sé ekki, að það sé nokkur grundvöllur fyrir því, og ég sannast að segja verð að furða mig á því, að flokkurinn skuli lúta svo lágt að telja sig undan slíkri skyldu þeginn.
Einn kaflinn í ræðu hv. þm. Reykv., Jóhanns Hafsteins, var sá, að hann taldi, að jafnvægi og festa hefði náðst í þjóðarbúskapnum eftir þær ráðstafanir, sem á vegum Sjálfstfl. og að hans frumkvæði voru gerðar á öndverðu ári 1950, en það var gengislækkunin, Þá byrjaði að myndast sparifé, Þá féll allt í ljúfa löð. Og ef hér væru einhverjir, sem myndu ekki aftur til ársins 1950 eða tímanna, sem komu þar næst á eftir, þá gætu þeir haldið, ef þeir tækju þennan þm. trúanlegan, að hér hefði risið upp hrein gullöld og blómatíð eftir þetta.
Ég vil minna hv. sjálfstæðismenn á það, að einu ári eftir að þeir gerðu gengisbreytinguna, eða í upphafi árs 1951, stöðvaðist allur bátaflotinn og lá í heilan mánuð, á meðan ríkisstj. var að útbúa nýja gengislækkun, sem var bátagjaldeyriskerfið. Ég hirði ekki að rekja þá sögu lengri. Það er nú viðurkennt af öllum þeim, sem yfirleitt ekki temja sér að neita staðreyndum, að gengisbreytingin verkaði með allt öðrum hætti, en fyrir fram var boðað, og hún bjargaði í rauninni ekki neinu þá. Og gengislækkun út af fyrir sig getur í eðli sínu ekki breytt neinu um það að bjarga fjárhag þjóðarinnar. Hún hefur aðeins áhrif á skiptingu þjóðarteknanna inn á við, og þá skiptingu má að sjálfsögðu gera með gengislækkun, en það má einnig gera hana með ýmsum öðrum ráðum. Gengislækkun eykur ekki framleiðslu Íslendinga og bætir þess vegna ekki stöðu íslenzka þjóðarbúsins út á við, en hún er að vísu ráðstöfun til þess að breyta tekjuskiptingunni í landinu sjálfu.
Sjálfur æðsti presturinn í þessum herbúðum, formaður þingflokks Sjálfstfl., 1. þm. Reykv. (BBen), hafði hér ærið margt um að tala. En hann var nákvæmlega sammála Jóhanni Hafstein, samþingsmanni sínum, um það, að ráðuneytinu bæri einu að gera allar till. um afgreiðslu stórmála. Ráðherrar eru á launum til þess, sagði hann, og hann endurtók það enn þá eða gaf þeirri skoðun mjög byr undir vængina, að þeir einir, sem væru sérstaklega launaðir til þess að gera tillögur, ættu að gera það hér á Alþingi.
Ég vil benda á það, að sá hv. þm., Bjarni Benediktsson, 1. þm. Reykv., er launaður til annarra hluta. Hann er launaður til þess að skrifa í Morgunblaðið, og það er undirritstjóri hans líka, hv. þm. N-Ísf. (SB), og það verður þess vegna skiljanlegt, að þeir eru launaðir til allt annarra hluta utan þings, en að gera till. um bjargráð fyrir þjóðina. Þeir eru launaðir til þess að bíta í hælana á ríkjandi ríkisstj., þeir eru launaðir til þess að afflytja hennar mál, og það gera þeir svikalaust. Og ef maður skoðar framferði þeirra hér í kvöld í því ljósi, verður það ekkert undarlegt, en það er líka eina skýringin, sem finnanleg er á því.
Ég kem þá að lokum í máli mínu — því að ég vil ekki vera langorður, þegar liðið er svona á nótt — að ræðu hv. frsm. minni hl. fjvn., sem er 2. þm. Eyf. (MJ). Hann vék nokkuð að vinnubrögðunum í fjvn. Ég kom sömuleiðis að þeim í minni frumræðu í dag, og er í rauninni ekkert, sem okkur ber þar málefnalega á milli, annað en það, að hann telur okkur, sem að meiri hl. stöndum, hafa hafnað allri samstöðu við þá sjálfstæðismenn um afgreiðslu á málum, sem horfa til sparnaðar á ríkisútgjöldunum, og ég get ekki fallizt á, að þetta sé rétt hjá honum. Þeim var boðið, að þær till., sem þeir legðu fram til sparnaðar, skyldu fá afgreiðslu á sama hátt og það, sem fulltrúar stjórnarflokkanna legðu þarna fram, en það var með þeim hætti, að því var öllu saman safnað saman til formanns og sent til umsagnar til þeirra aðila, sem bezt máttu vita um, hverjum sparnaði yrði við komið eða hverjar lögbindingar væru á því, að ekki væri hægt að koma við sparnaði.
Þessu vildu þeir hv. fulltrúar Sjálfstfl. ekki sinna og töldu, að þetta jafngilti því að hafna við sig samvinnu um þessi mál, sem ég get ekki fallizt á að sé rétt. Þessi hv. þm., 2. þm. Eyf., taldi, að allt pukur með sparnaðartillögur væri fráleitt. En mér er nú samt ekki alveg grunlaust um það, að þessi afstaða þeirra í fjvn., að hafna því að fá sams konar fyrirgreiðslu um athugun á sínum till. hjá stjórnarvöldum og aðrir þm. þar ráðgerðu að fá og höfðu sent frá sér, sé ekki alveg saklaus af því að vera svolítið pukur með sparnað. En máske á þetta nú allt saman eftir að leiðréttast, og við sjáum hvað setur með það.
Eitt smávægilegt atriði annað þykir mér ástæða til að leiðrétta í hans framsögu. Hann telur, að þm. hafi orðið að gera sínar till. um verklegar framkvæmdir án þess að sjá till. viðkomandi embættismanna um þessi efni. Ég geri ráð fyrir, að þarna eigi hann fyrst og fremst við vegagerðartillögur, því að það hefur nú ekki verið vani að senda aðrar till. beinlínis til þm. Hins vegar hafa náttúrlega flokksbræður þeirra í fjvn., því að allir flokkar eiga fulltrúa í þeirri n., fengið að sjá slíkar till. og getað komið þeim, eftir því sem samflokksmenn þeirra kynnu að óska eftir, til þeirra.
Það er rétt, frestur var stuttur fyrir þm., eftir að vegamálastjóri hafði gert sínar till. um skiptingu vegafjár, en þó var það svo, að þeir áttu þess kost að skoða þær, áður en þeir legðu inn sína óskalista.
Allir þm. Sjálfstfl. eða vel flestir af þeim, sem talað hafa hér í kvöld, hafa mjög gert það að umtalsefni, að meðferð fjárlfrv. hjá fjvn. sé óþingleg og í marga staði ámælisverð.
Ég hef áður gert hér grein fyrir því, að um meðferð þessa máls var hafður á sami háttur í fjvn. og áður. Eini munurinn var sá, að frestir til þess að afgr. mál og gera till. voru nokkru styttri nú, en tíðkazt hefur jafnan áður.
Nú veit ég ekki vel, hvað þeir góðu menn eiga við með orðinu „óþinglegt“. Það kann að vera minn misskilningur, að ég hef jafnan skilið við það orð, að þar væri um að ræða, ef vinnubrögð eða framkoma manna væri óþingleg, — að þar væri um að ræða hluti, sem brytu í bága annaðhvort við þingsköpin sjálf eða við þær sjálfsögðu reglur um framkomu manna, sem tíðkazt hafa á Alþingi.
Ég sé þess vegna ekki, að það hafi við nein rök að styðjast hjá þeim, að meðferð málsins í fjvn. hafi veríð óþingleg. Hún var aðeins nokkru hraðari, en verið hefur að undanförnu. Ef það er hins vegar svo, að með því að meðferð mála sé þingleg, eigi þeir við það, að á málunum sé seinagangur, þá er það að vísu rétt hjá þeim, að þá hefur meðferð málanna eða atkvgr. í fjvn. verið óþingleg. En ég vil fyrir mitt leyti ekki fallast á það, að þinglegt eða óþinglegt eigi að markast af því, hve hratt það gengur, og lýsi því yfir, að ég get ekki fallizt á og ég mótmæli þeirri skoðun, sem hér hefur verið haldið fram af mörgum hv. sjálfstæðismönnum, að í nokkru hafi verið óþinglega að farið. Ef þeir hins vegar vilja hafa seinaganginn fyrir hið þinglega, þá er það þeirra mál.