19.12.1957
Sameinað þing: 21. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (378)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1958
Frsm. meiri hl. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Fjvn. hefur unnið að málinu á milli 2. og 3 umr., svo sem venja er til. Hún hefur athugað þau erindi, sem til viðbótar hafa borizt n., frá því að 2. umr, lauk, og tók til athugunar öll þau erindi, sem borizt höfðu n. fram til hádegis s.l. þriðjudag, en eftir þann tíma var í rauninni hætt að taka á móti erindum til afgreiðslu, eða þau erindi, sem eftir þann tíma hafa borizt, hafa ekki fengið afgreiðslu hjá n., þar eð of stuttur tími var til stefnu, til þess að þau yrðu athuguð, svo sem með þótti þurfa.
Samstaða hefur ekki orðið í n, um tillöguflutning við 3. umr. Í n. voru allar þær till., sem meiri hl. flytur á þskj. 189, bornar upp og samþ., sumar með öllum atkv. nm., en minni hl. n., þ.e.a.s. fulltrúar Sjálfstfl., taldi sig andvígan sumum till., og er því ekki samstaða um flutning þeirra, og þýðir það að sjálfsögðu ekki, að minni hl. sé andvígur öllum till., sem á þskj. 189 eru fluttar af hálfu meiri hl.
Um þennan þátt undirbúnings fjárl. og þær till., sem hér eru gerðar, má segja svipað og um undirbúning fjárl. í heild, að ég geri ráð fyrir því, að enginn nm. í hv. fjvn. vildi nú persónulega óska eftir því að taka ábyrgð á eða beita sér persónulega fyrir öllum þeim till., sem þar eru lagðar fram, en till. og samstaðan um þær er að sjálfsögðu árangur af samstöðu, sem leitað hefur verið eftir.
Við 2. umr. málsins var þess getið, bæði í framsögu og einnig í nál. meiri hl., að n. eða nefndarmeirihl. ynni að því að leggja fram nokkrar till. um sparnað á útgjaldaliðum ríkissjóðs við þessa umr. Það er gert hér á umræddu þskj., og nema þær till., sem heyra beint til sparnaði á ríkisrekstrinum, 21/2 millj. kr. eða því sem næst. Að sjálfsögðu er þá ekki um það að ræða að telja til sparnaðar þá niðurfærslutill., sem gerð er við 19. gr. fjárl. vegna dýrtíðarráðstafana, því að hún er ekki hugsuð sem sparnaður, heldur er þar um að ræða óleyst verkefni, sem komið verður að síðar í sambandi við skýringar á einstökum tillögum meiri hl.
Meiri hl. n. hafði boðað, að við endanlega afgreiðslu fjárl. mundu verða af meiri hl. hálfu gerðar till. um, að jöfnuður næðist á greiðslum og tekjum ríkissjóðs, og er svo ráð fyrir gert í þessum till., eins og yfirlit í nál. sýnir.
Varðandi einstakar till. skal nokkuð á þær minnzt, og er þar fyrst til að nefna brtt. við 2. gr. frv., en hún er um tekjur ríkisins af sköttum og tollum. Þar er gert ráð fyrir að hækka þessar áætlunartölur, sem þar um ræðir, um samtals 16 millj. kr. Er þar hæst hækkun á söluskatti, sem áætlaður er 110 millj. í frv., en meiri hl. leggur til að áætlaður verði 115 millj., en verðtollurinn hækki frá frv. um 4 millj. kr. og verði 174 millj. í staðinn fyrir 170, sem frv. gerir ráð fyrir. Á nokkrum öðrum liðum í þessum skatta- og tollabálki er gert ráð fyrir einnar millj. kr. hækkun á liðum, og eru till. á þessari gr. samtals um hækkun, sem nemur 16 millj.
Við 3. gr. frv. eru gerðar tvær brtt., sem snerta tekjuáætlun ríkissjóðs. Eru þær viðkomandi Áfengisverzlun ríkisins og tóbakseinkasölunni. Með hliðsjón af fenginni reynslu yfirstandandi árs þykir fært að hækka tekjuáætlun Áfengisverzlunar ríkisins um 6 millj. kr. og tekjuáætlun tóbakseinkasölunnar um 4 millj. kr. Þarna er því um að ræða till. til hækkunar á tekjum ríkissjóðs, sem nema 10 millj. kr.
Að öðru leyti er gerð brtt, við 3. gr. fjárl. varðandi póst og síma. Sú till. byggist, eins og í skýringum framhaldsnál. meiri hl. segir, á því, að á rekstri landssímans hafa á yfirstandandi ári orðið umframgreiðslur, sem nema 1 millj. 140 þús. kr. N. þótti ekki fært að hækka útgjöld ríkissjóðs sem þessu nemur á árinu 1958 frá því, sem frv. gerir ráð fyrir, og gerir því till. um, að fjárveitingar til eignabreytinga landssímans, þær sem greiddar verða á n.k. ári, lækki nokkuð frá frv., eða samtals sem nemur 900 þús. kr., en hins vegar þótti fært að hækka tekjuáætlun landssímans, að því er rekstur hans varðar, um 240 þús. kr. Breytingarnar, sem gerðar eru við eignabreytingalið landssímans, eru þess vegna þess eðlis, að fyrst eru nokkrir tilteknir liðir lækkaðir til samræmis við það, sem áætlað er að greiða til þeirra á næsta ári, en síðan er umframgreiðslunum bætt ofan á, eins og liðirnir voru þá orðnir. Stærsta breytingin, sem þar um ræðir, er afborganir af lánum og til húsakaupa. Þar kemur ofan á áætlaða upphæð 370 þús. kr., sem gerð er till. um í brtt. meiri hl. Enn fremur er H. liður í eignabreytingabálki landssímans fyrst lækkaður niður í 2 millj. kr., þ.e. til viðauka við símakerfi og til smærri efnis- og áhaldakaupa, en síðan bætt ofan á þann lið umframgreiðslunni, sem á þessu ári hefur orðið, 150 þús. kr. Ofan á III. og IV. lið í eignabreytingum landssímans, sem eru til talstöðvakaupa í báta og skip og til loftskeytastöðva í skip, er bætt umframgreiðslunum, sem orðið hafa á yfirstandandi ári, en það er á hinn fyrri lið 40 þús. kr. og á hinn síðari, loftskeytastöðvar í skip, er um að ræða 30 þús. kr. Liðurinn til nýrra landssímalína og fjölgunar talrása er lækkaður um 100 þús. kr., úr 900 þús. kr. í 800 þús. kr. VI. liðurinn, til notendasíma í sveitum, er fyrst lækkaður úr 1.3 millj. kr. niður í 900 þús. kr., en á þeim lið varð umframgreiðsla á yfirstandandi ári, sem nemur 200 þús. kr., og er henni síðan bætt ofan á liðinn, svo að gerð er till. um, að hann verði 1 millj. og 100 þús. kr. Um þennan lið er það helzt að segja, að svo langt er komið lagningu notendasíma í sveitum, að segja má, að það verkefni sé komið að lokum, að svo nálægt sé komið því marki, að allir þeir sveitabæir, sem óskað hafa eftir að komast í símasamband, hafi fengið það, að líkur séu til, að þessi liður fari lækkandi á næstu árum. Þá er gerð brtt. við liðinn til póst- og símahúss á Raufarhöfn, að hann lækki úr 400 þús. kr. í 300 þús. kr. Enn fremur er gerð till. um, að inn komi þarna við eignabreytingar landssímans nýr liður: til stuttbylgjusambands við Borgarnes 350 þús. kr. Þeim framkvæmdum er lokið, og þessi liður er eingöngu til að heimila þá umframgreiðslu, sem orðin er.
Þær breytingar, sem ég nú hef lýst og gerðar eru af hálfu meiri hl. varðandi landssímann, valda þess vegna ekki neinni röskun á fjárframlögum ríkissjóðs til þessarar stofnunar, þar eð mismunurinn á tekjuafgangi stofnunarinnar sjálfrar og eignabreytingarliðnum er sá sami og áður, en það er einmitt hann, sá mismunur, sem greiddur er úr ríkissjóði samkvæmt fjárl.
Við 5. gr. fjárl. gerir meiri hl. brtt., sú grein er áætlun um óvissar tekjur ríkissjóðs, að sú áætlun verði hækkuð úr 6 millj. kr. í 61/2 millj.
Tekjuáætlun ríkissjóðs hefur þar með verið hækkuð af hálfu meiri hl. í þeim brtt., sem hér liggja fyrir, um 261/2 millj, kr. samtals.
Við 11. gr. fjárlfrv. eru gerðar nokkrar brtt. á þskj. 189. Er þar fyrst till. um, að fjárveiting til sakadómaraembættisins, annar kostnaður, hækki um 70 þús. kr., og þykir sakadómari hafa sýnt fram á það, að áætlunarupphæðin, sem frv. gerir ráð fyrir embættinu til handa á þessum lið, sé of lág sem þessari upphæð nemur.
Varðandi embætti sýslumanna og bæjarfógeta er liðurinn „annar kostnaður“ hækkaður um 20 þús. kr., vegna þess að sýnt þótti fram á, að vart yrði hjá því komizt að greiða sem svarar þessari upphæð eða örlitið hærri vegna lögreglubifreiðarkaupa í Kópavogskaupstað, en áður hafa alloft verið veittir styrkir úr ríkissjóði til lögreglubifreiðakaupa, og er hér ekki um neitt nýmæli að ræða.
Varðandi 11. Gr. B. um opinbert eftirlit, eru gerðar brtt. við rekstrarliði tveggja stofnana, skipaskoðunar ríkisins og öryggiseftirlitsins. Varðandi skipaskoðun ríkisins er launaliðnum breytt með tilliti til þess, að stofnuninni verði heimilað að ráða nýjan skipaskoðunarmann, þ.e.a.s. mann, sem hefur sérstaklega með að gera skoðun véla í skipum, og einnig, að gerð verði leiðrétting á launagreiðslum féhirðis stofnunarinnar. Nema þessar breytingar til hækkunar samtals um 70 þús. kr., en hins vegar er gerð áætlun um, að tekjur þessarar stofnunar hækki nokkuð. Hún tekur skoðunargjöld af skipum, og er gert ráð fyrir, að tekjur hennar af þeim skoðunargjöldum hækki frá því, sem fjárlfrv. áætlar, og að rekstur þessa embættis verði ríkissjóði hagkvæmari um rúmlega 100 þús. kr., nánar tiltekið 111 þús. kr., á næsta ári heldur en frv. gerir ráð fyrir.
Öryggiseftirlit ríkisins hefur farið fram á að fá að ráða tvo nýja starfsmenn. Öryggiseftirlitið er talið innheimta sjálft fullar greiðslur fyrir störf þessara manna, og á það þess vegna ekki að raska niðurstöðutölum öryggiseftirlitsins að því er ríkissjóð varðar. Stofnuninni er heimilað að fastráða tvo nýja starfsmenn og tekjur stofnunarinnar hækkaðar til samræmis við það, en tekjur þeirrar stofnunar og gjöld standast á, svo að ríkissjóði er ekki ætlað að bera kostnað af þeirri stofnun.
Varðandi 12. gr. fjárl., sem er um heilbrigðismál, eru gerðar brtt. varðandi rekstur Landsspítalans. Er gert ráð fyrir, að Landsspítalanum verði heimilað að ráða einn lækni til viðbótar því starfsliði, sem þar er nú, og hefur stofnunin fært að því rök, að slíkt sé nauðsynlegt og óhjákvæmilegt. Er gert ráð fyrir, að launaliður þeirrar stofnunar verði hækkaður með tilliti til þessa.
Enn fremur er gert ráð fyrir því, að annar kostnaður landsspítalans verði hækkaður um 220 þús. kr., þar eð forráðamenn stofnunarinnar hafa gert grein fyrir því, að mikla nauðsyn beri til, að í landsspítalann verði keypt sérstakt rannsóknartæki vegna hjartasjúkdóma, sem nú þykir mjög skorta þar, enda er talið, að æði margir sjúklingar með hjartasjúkdóma séu sendir erlendis upp á von og óvon um það, hvort þeir geta fengið þar nokkra bót meina sinna eða ekki, vegna þess að fullkomin rannsókn á sjúkdómi þeirra geti ekki farið fram hérlendis. Þykir sem það sé ekki alls kostar við það unandi, að menn séu látnir taka á sig verulegan kostnað af slíkum ferðum, ef hægt væri að ganga úr skugga um það, áður en í slíka för er lagt, að hún yrði máske ekki til neins gagns, eins og stundum hefur við brunnið. Enn fremur er líklegt, að þetta megi verða til þess, að slíkar aðgerðir verði í fleiri tilfellum gerðar hérlendis, en nú tíðkast.
Varðandi fjárveitingu til heilsuverndarstöðva utan Reykjavíkur, sem áætlað er til 1/2 millj. kr. í fjárlfrv., er gerð brtt, um, að þessi upphæð verði færð niður í 150 þús. Ástæðan fyrir þessari lækkun er ekki sú, að þetta sé sá liðurinn, sem eðlilegast væri að spara á, heldur hitt, að þessar greiðslur hafa ekki verið sóttar. Heilsuverndarstöðvar úti á landi hafa ekki komið rekstri sínum í það horf, að þær séu styrkhæfar fyrir allri þeirri upphæð, sem fjárl. hafa gert ráð fyrir, og þykir því fært að færa þessa upphæð niður af þeim sökum, enda er hér um að ræða áætlunarupphæð.
Þá er einnig lagt til, að liðurinn til héraðshjúkrunarkvenna verði lækkaður um 50 þús. kr. Það hefur ekki reynzt auðið að fá hjúkrunarkonur til þeirra starfa, sem hér er gert ráð fyrir. Ekki þykir þó fært að má liðinn út úr fjárl. með öllu, ef einhver breyting kynni að verða hér á næstunni, þó að hún sé því miður ekki fyrirsjáanleg, og eru því látnar standa á þessum lið 25 þús. kr.
Er þá komið að 13. gr. frv., en þar gerir n. nokkrar brtt., fyrst varðandi hafnarmannvirki. Þar er gert ráð fyrir, að Hafnarfjarðarhöfn fái 250 þús. kr. framlag í staðinn fyrir 200 þús. kr., sem nú standa í frv., einnig að hafnargerðin í Grindavík, Járngerðarstaðir, eins og hún heitir í frv., verði hækkuð úr 200 þús. í 250 þús. kr., að inn komi framlag til Kópavogshafnar, 100 þús. kr., hún hafði það framlag í fyrra, enn fremur að gerð verði lítils háttar breyting við hafnarframlagið til Þórshafnar, sem nú er í frv. með 215 þús. kr., að hún fái 300 þús. kr. framlag. Þá er gert ráð fyrir, að inn í frv. komi nýr liður: til Seyðisfjarðarhafnar í samráði við vitamálastjóra, 100 þús. kr. Er hér um að ræða hafnarframkvæmdir, sem eiga að sjálfsögðu að falla undir hafnarlög og greiðast að 2/5 af ríkissjóði, en að 3/5 af viðkomandi hafnarsjóði, eins og önnur hafnarframlög.
Þá er gerð till. um að lækka framlag það, sem í frv. stendur til ferjuhafnarinnar á Brjánslæk, úr 365 þús. í 165 þús. kr.
Gert er ráð fyrir, að inn komi nýr liður í lendingarbótalið frv.: til lendingarbóta á Skálmarnesi, Skálanesi og Reykjanesi, samtals 100 þús. kr.
Samvinnunefnd samgöngumála hefur lagt fram brtt. varðandi framlög til flóabáta, og mun verða gerð grein fyrir þeirri till. af hálfu þeirrar nefndar.
Gert er ráð fyrir í sambandi við brtt. við 14. gr., að framlag til framkvæmda í Skálholti lækki úr 1.7 millj. kr. í 1.2 millj., enda er allt óráðið um framtíð þess staðar, og þykir ekki ástæða til að hraða framkvæmdum þar örar en svo, að 1.2 millj. geti vel nægt á næsta ári. En það eru hitaveituframkvæmdir á staðnum, sem fyrirhugaðar eru, til þess að halda við og hita upp þau hús, sem þegar eru risin þar á staðnum.
Gerð er till. um að hækka lítillega framlag til bændaskólans á Hvanneyri til kaupa á kennsluáhöldum, um 15 þús. kr. Talið er, að þann skóla vanti sérstaklega kennsluáhöld í eðlisfræði.
Þá er gerð till. um að hækka nokkuð framlög til verzlunarskólanna í landinu, til verzlunarskólans í Reykjavík um 40 þús. og til samvinnuskólans í Bifröst í Borgarfirði um 20 þús. kr., en báðir þessir skólar eru reknir með tapi. Þeir eru í eigu annarra aðila, en ríkisins og ekki reknir af því, og er hér aðeins um styrk að ræða.
Er þá komið að brtt. þeim, sem varða skólabyggingarnar í landinu. Um þær byggingar gilda sérstök lög um greiðslu skólakostnaðar, og er efni þeirra laga í megindráttum það, að um leið og ríkissjóður ákveður fjárveitingu til skólabyggingar, skuldbindur ríkið sig til þess að greiða kostnaðinn við bygginguna á fimm árum, eftir þeirri áætlun, sem fyrir hefur legið, þegar fyrsta fjárveiting var ákveðin. Það er greinilegt, að fram um 1961 mun þessi kostnaður fara vaxandi, jafnvel þótt farið yrði mjög sparlega í eða jafnvel fellt niður að veita fé til nýrra skólabygginga, sem flestum mun nú þykja lítt hugsanlegt. Fjvn. hefur því reynt að fara eins sparlega í það og mögulegt þótti að veita leyfi fyrir nýjum skólabyggingum, og er ekki að efa, að margir þeir aðilar, sem synjun hafa fengið, þ.e.a.s. þeir aðilar, sem ekki hafa fengið fjárveitingu til nýrra skóla á næsta ári, en eiga inni umsóknir um það, munu verða fyrir nokkrum vonbrigðum. N. hefur þó reynt að teygja sig eins langt og hún sá mögulega fært í þessu efni og hefur lagt til, að leyfðar verði fjárveitingar til 9 nýrra barnaskóla og eins gagnfræðaskóla á n.k. ári. Þær fjárhæðir, sem hér ræðir um, eru því til nokkurrar hækkunar frá gildandi fjárl. og til mikillar hækkunar, miðað við fjárlagafrv. Samtals nema þær hækkanir um 5.2 millj. frá frv., eins og það liggur fyrir. Samtals verða því fjárveitingar til skólabygginga á frv. að samþykktum þessum till. 9 millj. 760 þús. kr. varðandi barnaskólana, en varðandi gagnfræðaskólana 3 millj. 599 þús. kr.
Lagt er til, að veittar verði á þessari gr., 14. gr. B. 200 þús. kr. til byggingar fjóss og hlöðu á Laugarvatni, en þar er um að ræða framkvæmdir, sem þegar hefur verið samið um og eru í tengslum við héraðsskólann á Laugarvatni. Þær framkvæmdir eru nú yfirstandandi, og þótti ekki fært, þó að fallið hafi niður úr frv., að fella fjárveitinguna til þeirra niður á þessu stigi.
Gerð er till. um, að fjárframlagið til byggingar húsmæðraskóla verði lækkað úr 760 þús. kr., eins og gert er ráð fyrir í frv., niður í 500 þús. kr.
Varðandi farkennslu í íþróttum, sem einkum fer fram í þeim skólum, sem ekki hafa aðstöðu til leikfimiskennslu, verði sá liður hækkaður úr 40 þús. kr. í 60 þús. kr.
Till. er gerð um það, að styrkur til Skáksambands Íslands verði hækkaður um 10 þús. kr., úr 20 þús. í 30 þús., en það samband hefur aukið mjög starfsemi sína á síðari árum, og í sambandi við aukna starfsemi þarfnast það að sjálfsögðu aukins fjármagns. Er lítillega komið til móts við óskir sambandsins með þessari till.
Í brtt. meiri hl. við 15. gr. fjárl. er gert ráð fyrir, að þeir Sigurður Þórarinsson og Finnur Guðmundsson, sem báðir eru starfsmenn náttúrugripasafnsins, fái sérstaka greiðslu, 8 þús. kr. hvor, vegna ritstarfa í þágu safnsins.
Þá er gert ráð fyrir því í brtt. n., að veittur verði 5 þús. kr. bókakaupastyrkur til Fiskebókasafnsins við Cornell-háskólann í Íþöku í Bandaríkjunum, en það safn er talið hafa algera sérstöðu meðal íslenzkra bókasafna við erlenda háskóla, t.d. er þar íslenzkur bókavörður.
Bandalag íslenzkra listamanna hefur ekki haft neinn styrk á fjárl. að undanförnu, en hafði það þó raunar fyrr á árum. Það hefur sótt um að verða tekið inn í fjárl. að nýju, og gerir meiri hl. n. till. um, að svo verði gert og því verði veittur 20 þús. kr. styrkur.
Magnús Guðnason, aldraður hugvitsmaður, sem nýlega hefur verið skrifað mjög um í blöðum, býr við þröngan kost með þau tæki, sem hann hefur gert, teiknað og smíðað, og mörgum þykja hugvitssamleg að ýmsu leyti. Hann hefur á fjárl. undanfarinna ára haft 5 þús. kr. styrk vegna tækja sinna, og er hér lagt til, að sá styrkur verði hækkaður í 10 þús. kr.
Þá er lagt til, að inn í bálkinn um leikfélög verði bætt Leikfélagi Bolungavíkur með 8 þús. kr. framlagi, svo sem tíðkast um flest leikfélög, og inn í bálkinn um tónlistarskóla verði bætt tónlistarskólanum í Keflavík með 10 þús. kr. styrk.
Þá leggur n. til, að Friðrik Ólafsson skákmeistari, sem haft hefur 15 þús. kr. styrk á fjárl., fái styrk sinn hækkaðan um 10 þús. kr., þannig að hann nemi 25 þús. kr. á næsta ári, en óþarfi mun að eyða orðum að því, að Friðrik hefur mjög orðið landi sínu til sóma erlendis á undanförnum mánuðum og þykir líklegur til að verða það áfram.
Niður hafði fallið við samningu frv. samningsbundið framlag Íslands til norrænnar rannsóknarstöðvar í fræðilegum atómvísindum, en það er talið nema 15 þús. kr., eða 15.775 kr. nákvæmlega tiltekið, og er lagt til, að það framlag verði tekið hér upp, enda var það á fjárl. síðasta árs.
Varðandi 16. gr. fjárl. er gerð till, um, að í A-lið, sem fjallar um landbúnað, verði tekinn upp svolítill styrkur, 14 þús. kr., til að standa straum af stofnkostnaði við tilraunauppeldisstöð fyrir æðarfugl. Í ráði er að koma upp útungunarstöð og stöð, sem elur upp æðarunga til þriggja vikna aldurs, en selur þá síðan þeim bændum, sem hug hafa á því að auka æðarvarp á jörðum sínum eða koma því á fót, og standa vonir til, að hægt verði með þessu móti að auka æðarvarpið í landinu, en dúntekja hefur farið minnkandi á undanförnum árum, svo sem kunnugt er.
Þá eru gerðar nokkrar brtt. varðandi fyrirhleðslur til varnar gegn landbroti, og er þar um að ræða samtals 65 þús. kr. hækkun frá því, sem nú er í frv.
Nú þykir svo langt komið greiðslum ríkissjóðs vegna iðnskólabyggingarinnar í Reykjavík, að ekki sé knýjandi nauðsyn að leggja til þess á næsta ári 900 þús. kr. úr ríkissjóði, eins og frv. gerir ráð fyrir, heldur muni fært að lækka þá upphæð í 500 þús. kr., og gerir meiri hl. n. það að till. sinni.
Elliheimilin í landinu hafa á undanförnum árum fengið lítils háttar styrk úr ríkissjóði, en hann hefur staðið óhreyfður nú um sinn, og gerir n. till. um, að honum verði breytt nú, þannig að elliheimilið Grund, sem er stærsta elliheimili landsins, fái hækkun á styrk sínum úr 40 þús. kr. í 60 þús. kr., en önnur elliheimili utan Reykjavíkur, sem munu vera 9 talsins, fái hækkun á sínum styrk 10 þús. kr. hvert, þ.e.a.s. styrkur þeirra hækki úr 30 þús. kr. í 40 þús. kr. Nema því till. meiri hl. n. að því er þennan lið varðar, elliheimilin, samtals 110 þús. kr. til hækkunar,
Verkakvennafélagið Framtíðin í Hafnarfirði hefur með höndum byggingu myndarlegs dagheimilis fyrir börn í Hafnarfirði og fékk á gildandi fjárl. nokkurn styrk til þeirra framkvæmda. Það var ekki tekið upp í frv. að nýju, en hér er lagt til, að félagið fái 40 þús. kr. byggingarstyrk. Er það 10 þús. kr. hærri styrkur, en í fjárlögum er nú.
Gerð er brtt. varðandi rekstur dvalarheimilis fyrir afvegaleidd börn og unglinga. Hér er um að ræða rekstur Breiðavíkurheimilisins, en sýnt þykir, að ekki sé hægt að reka heimilið fyrir það framlag, sem því nú er ætlað á fjárl. og stendur óbreytt í fjárlagafrv. Er því gerð hér till. um, að rekstrarstyrkur heimilisins verði hækkaður úr 250 þús. kr. í 450 þús. kr.
Þá er gert ráð fyrir, að tekinn verði upp nýr liður í frv.: til vatnsöflunar í Vestmannaeyjum gegn a.m.k. jafnmiklu framlagi Vestmannaeyjakaupstaðar, 150 þús. kr. Það er alkunna, að aukin vatnsöflun kallar mjög að í Vestmannaeyjum. Það eru ekki fyrst og fremst íbúarnir sjálfir, sem til heimilisnota eru verr settir nú en áður, en fiskvinnslustöðvarnar eru að komast í mikil vandræði, vegna þess að þróun fiskiðnaðarmálanna er með þeim hætti, að sífellt er þörf á meira vatnsmagni með hverju nýju ári, sem líður, til afnota hjá fiskvinnslustöðvunum.
Hinar nýju vélar, flökunarvélar og aðrar fiskvinnsluvélar, þurfa mikið vatn, þegar þær eru í notkun, og ef notaður er á þær sjór, hættir mjög við, að þær verði fyrir tæringu og endingarlitlar. Er nú svo ástatt á flestum vinnslustöðvunum í Vestmannaeyjum, að reynt er að nota vatn á þessar vélar fyrsta klukkutímann, sem unnið er, og aftur þann síðasta, en sjó þar í milli, og er það ákaflega erfitt og óhentugt. En auk þess þarf til þessa mikið vatn, og meira en hægt er með skaplegu móti að afla, eins og nú standa sakir. Í sumum vinnslustöðvunum hefur því orðið að nota eingöngu sjó á þessar vélar, en því fylgir sá annmarki, að óhugsanlegt er að halda vélunum nothæfum nema gangsetja þær daglega, einnig þá dagana, sem þær eru ekki í notkun, ef eingöngu er notaður sjór, og verða þær þó fyrir mikilli tæringu, og ending þeirra verður vafalaust miklum mun minni, en ef hægt væri að nota vatn á þær með sama hætti og ætlazt er til. Vestmanneyingar ráðgera nú, eftir að þeir hafa fengið úr því skorið, að ekki muni unnt að afla aukins vatns með borunum, eins og vonir manna stóðu þó til, að taka vatn úr fjallshlíð mikilli með skurðum og nýjum vatnsbólum, sem mun verða kostnaðarsöm framkvæmd.
Þá er gerð brtt. um það, að upp verði tekin fjárvelting fyrir stofngjaldi og tillagi Íslands í Alþjóðakjarnorkumálastofnunina, en Íslendingar gerðust aðilar að henni á fundi, sem haldinn var hjá þeirri stofnun í Vínarborg á s.l. sumri. Er hér gerð till. um, að upp verði tekið í þessu skyni 46.116 kr., en það er tillag Íslands fyrir yfirstandandi ár og næsta ár. Íslandi er gert að greiða sama hlutfall kostnaðar stofnunarinnar og Íslendingar greiða við kostnað Sameinuðu þjóðanna.
Við 18. gr. fjárl. eru gerðar allmargar breytingar, bæði til að taka út nöfn og framlög, sem inni eru á þeirri gr., og einnig að bæta þar nýjum nöfnum og nýjum fjárframlögum inn á gr. Á eftirlaunagreinina hafa stöku sinnum verið teknir einstakir embættismenn með fjárveitingu, sem samsvarar að meðtöldum lífeyrissjóðsgreiðslum þeirra óskertum embættislaunum þeim, sem viðkomandi menn höfðu, áður en þeir létu af embætti. Varðandi nýja aðila, sem n. gerir till. um, er tekin upp sú regla, að 80% fullra launa skuli vera algert hámark. Með fullum launum er þá átt við embættislaun að frádregnu lífeyrissjóðsgjaldi. Meiri hl. n. telur rétt, að þegar samið verði frv. til fjárlaga fyrir næsta reglulegt Alþingi, þ.e.a.s. til fjárlaga fyrir árið 1959, verði endurskoðaðar fjárveitingar þær, sem á greininni hafa staðið. Það munu sjaldan hafa verið gerðar jafnlitlar hækkunartill. við þessa grein og nú, en samtals mun hækkunin á gr. þó nema rúml. 130 þús. kr. umfram lækkanir. Er þar bæði um að ræða grunnframlög og verðlagsuppbót á þau.
Varðandi 19. gr. fjárl. eru gerðar tvær brtt., og mun sú fyrri þeirra varðandi liðinn dýrtíðarráðstafanir þykja dálítið með sérstökum hætti. Það er till. um, að niður verði felldar af þeim 105 millj. kr., sem frv. gerir ráð fyrir í þeim lið, 65 millj. kr. og eftir standi 40 millj. kr. Það er þó ekki ætlunin, að niðurgreiðslum, sem þetta fé var ætlað til, verði hætt. Hins vegar myndast hér verkefni, sem síðar verður að ráða fram úr, að svo miklu leyti sem greiðslur fjárlagafrv., eins og þær yrðu að samþykktri þessari till., hrökkva ekki fyrir greiðslunum.
Þá er gerð till. um það, að liðurinn óviss útgjöld, einnig á 19. gr. fjárl., verði hækkaður um 100 þús. kr., m.a. vegna þess, að með brtt. meiri hl. n. er ráðgert að leggja niður vistheimilið á Kvíabryggju, en ríkið rekur það nú, og má búast við, að einhver kostnaður falli á ríkið á næsta ári, þótt ákveðið sé að leggja ríkisrekstur á heimilinu niður. Einnig er ráðgert í frv., eins og það var upphaflega samið og ekki hafa verið gerðar neinar brtt. um, að ríkið hætti rekstri á upptökuheimilinu í Elliðahvammi, og gæti einnig fallið kostnaður á ríkið á næsta ári af þeim rekstri, þótt honum verði hætt um áramót eða í upphafi næsta árs.
Um þá till. n. sérstaklega að leggja niður vistheimilið að Kvíabryggju, sem gerð er till. um við 11. gr., er það að segja, að ríkið hefur alls lagt til þess heimilis rúmlega 21/2 millj. kr. á undanförnum árum. Á tveim síðustu árum hefur ríkið lagt því heimili til yfir 1.3 millj. kr., og fjárlfrv. áætlaði kostnað ríkissjóðs af rekstri þess heimilis á yfirstandandi ári 725 þús. kr. Þetta heimili er nánast tiltekið skuldafangelsi, sem rekið hefur verið til að auðvelda einu bæjarfélagi landsins innheimtu barnsmeðlaga, og sýnist meiri hl. n. sem vart sé verjandi, að ríkið leggi til sem svarar 170 barnsmeðlögum árlega til rekstrar á þessu skuldaheimili, eins og það nú er rekið, og gerir nefndarmeirihl. því till. um, að rekstur þessa heimilis verði lagður niður sem ríkisrekstur.
Er þá komið að fjárfestingarliðum ríkissjóðs, þ.e.a.s. 20. gr. fjárl. Við hana gerir n. þær breytingar, að vegna smíði Vestmannaeyjaskips verði fjárframlagið hækkað frá frv. um 200 þús. kr., úr 1.8 millj, í 2 millj., og verði jafnhátt í fjárl. næsta árs og það er nú í fjárl. Skipasmíð þessi er í undirbúningi, og munu teikningar vera því sem næst að verða fullbúnar, þannig að hægt verði að bjóða út smíði skipsins á næstu mánuðum.
Þá er gerð till. um, að framlag til byggingar eða viðbótarhúsnæðis ríkisspítalanna verði hækkað um 600 þús. kr. og verði 4 millj. 740 þús. Þessi till. þykir nauðsynleg, einkum með tilliti til þess, að landsspítalinn, sú stóra viðbygging, sem á döfinni er við hann, geti haldið áfram, þannig að einhver hluti úr þeirri byggingu verði gerður nothæfur á nálægum tíma.
Þá er gerð till. um, að framlagið til flugvallagerðar hækki um 600 þús. kr. og verði 6 millj. 135 þús. kr., eða svipað og er í núgildandi fjárl., en flugvallagerðir kalla víða mjög að og er fast eftir þeim sótt, einkum á þeim stöðum, sem ekki eru í sambandi við þjóðvegakerfið og þurfa meira að byggja á flugsamgöngum en þeir, sem notað geta aðrar leiðir. Einkum er þar um að ræða þjóðvegakerfið.
Þá er gerð till. um það, að tilraunastöð háskólans í meinafræði, tilraunastöðin á Keldum í Mosfellssveit, fái möguleika til þess að auka húsnæði sitt. Það eru ekki deilur um það, að sú rannsóknarstöð hefur þegar unnið gott verk og hefur mikilvæg verkefni með höndum, en býr nú orðið við þröngan húsakost, og þykir sýnt, að auka verði húsnæði hennar, til þess að eðlileg starfsemi hennar geti haldið áfram og þróazt nokkuð. Er því lagt til, að til viðbótarhúsnæðis á Keldum verði veitt 700 þús. kr., og er það hugsað sem þriðjungur af stofnkostnaði viðbótarhúsnæðis, þannig að ríkið standi undir þeirri greiðslu á þrem árum, en forráðamenn stofnunarinnar telja, að viðbótarbyggingin þar muni kosta nálægt 2 millj. kr.
Gerð er till. um, að niður falli fjárframlagið til byggingar vegna heimavistar íþróttakennaraskólans. Brýnni þörf hefur þótt, að bændaskólinn á Hvanneyri gæti komið upp nothæfri heimavist við sína skólastarfsemi, og er gerð till. um, að hann fái til þess 185 þús. kr. fjárveitingu.
Frv. gerir ráð fyrir, að 900 þús. kr. verði veittar til byggingar lögreglustöðvar í Reykjavík. Hér er um að ræða fé, sem til þessa hefur verið söfnunarfé, og ekki hafizt handa um byggingarframkvæmdir, og hefur meiri hl. þótt fært að gera till. um lækkun á þessu framlagi úr 900 þús. í 800 þús. kr.
Mörg ár eru nú liðin síðan hér á Alþ. var samþ. þáltill. um, að byggt yrði sérstakt Kjarvalshús í Reykjavík til heiðurs listmálaranum Jóhannesi Kjarval, hús, þar sem hann gæti haft aðsetur sitt og orðið til þess að lyfta undir list hans. Af mistökum hefur ekki enn verið hafizt handa um byggingu þessa húss, en nú þykir nógu lengi hafa dregizt, að svo verði gert, og er hér gerð till. um, að í framkvæmdir þessarar húsbyggingar verði varið 300 þús. kr. á næsta ári, en fyrir mun vera nokkurt geymslufé til framkvæmdanna, svo að sýnt þykir, að þá muni auðið að byrja á Kjarvalshúsi á næsta ári.
Varðandi ábyrgðarheimildir þær, sem gerðar eru till. um, tel ég ekki mikla ástæðu til að ræða. Þó skal ég aðeins víkja að þeim.
Fyrsta till. n. um heimild er það, að inn í heimildagreinina, 22. gr. fjárl., verði tekinn nýr liður, að heimila ríkisstj. að ákveða, að landssíminn innheimti ekki stofngjöld og afnotagjöld síma árið 1958 hjá allt að 10 blindum mönnum eftir tilnefningu Blindrafélags Íslands. Menn þessir séu heimilisfeður eða vinni einir á vinnustað. Það þarf að sjálfsögðu ekki að skýra það, hve blindir menn eru illa settir í tilverunni, og þykir hlýða að gefa þeim kost á því að hafa síma afnotagjaldalaust. Hér er þó ekki gengið lengra, en svo að binda þetta við hámark, 10 menn alls, og einnig við það, að þeir, sem þessara hlunninda geti notið, séu eingöngu heimilisfeður eða menn, sem vinna einir á vinnustað.
Þá er gerð till. um það, að ríkinu verði heimilað að ábyrgjast 71/2 millj. kr. lán fyrir Síldarvinnsluna h/f í Neskaupstað, sem hyggst koma upp síldarverksmiðju þar á staðnum, og eru þess mörg dæmi, að ríkið ábyrgist fé eða lánveitingar til stofnkostnaðar í slíkum atvinnufyrirtækjum.
Enn fremur er gerð till. um það, að ríkisstj. verði heimilað að ábyrgjast 1 millj. kr. lán til greiðslu á stofnkostnaði við að koma upp heilmjölsvinnslutækjum í Krossanessíldarverksmiðjunni, sem Akureyrarbær rekur, en heilmjölsvinnsla er mjög hliðstætt fyrirtæki og soðkjarnatæki, sem ýmsar síldarverksmiðjur hafa komið upp hjá sér og miða að því að fá fullkomnari vinnslu úr því hráefni, sem verksmiðjunni berast.
Þá er gerð till. um það, að hámark ábyrgðarheimilda ríkisstj. vegna þurrafúa í fiskibátum verði hækkað úr 4.8 millj. í 8 millj. kr. Þessi heimildarhækkun nemur 3.2 millj. kr., en þurrafúi í fiskibátum verður æ alvarlegra vandamál fyrir ríkissjóð. Ríkissjóður hefur til þessa bætt, þegar eftir hefur verið leitað, eða ábyrgzt lán til viðgerðar í slíkum tilfellum, sem nemur 90% af viðgerðarkostnaði, og eru nú uppi ráðagerðir um það, þar sem þessar greiðslur fara vaxandi ár frá ári, að taka verði upp annan hátt á í þessum efnum og taka upp tryggingar, sem tryggja útgerðarmenn eða eigendur skipa fyrir tjóni af þurrafúa, á svipaðan hátt og skip eru tryggð fyrir ýmsum öðrum áföllum eða tjóni. En á meðan sú skipan kemst ekki á, þykir óhjákvæmilegt, að ríkissjóður hlaupi hér undir bagga með ábyrgðum, svo sem tíðkazt hefur, og er fullvist, að þá verður ekki komizt af með öllu lægri upphæð en þá, sem hér er gerð tillaga um.
Þá er gerð till. um, að ríkissjóði verði heimilað að endurgreiða prestakallasjóði helming láns til kirkjubyggingasjóðs, 250 þús. kr., en sá sjóður sækir mjög á um aukin fjárframlög sem ekki hafa verið gerðar till. um, en varðandi þessa skuld hans er gerð till. um þessa ábyrgðarheimild.
Ýmsir aðilar í Stykkishólmi hafa ákveðið að mynda með sér félag til kaupa á togara, og mun nú vera um það bil afráðið, að þeir kaupi togarann Jörund, og er ráðgert, að ríkið veiti ábyrgð fyrir þeim lánum, sem til þeirra kaupa þarf, allt að 90% af kaupverði skipsins eða að hámarki 5 millj. 850 þús.
Í fjárl. hefur á undanförnum árum verið heimild til ábyrgðar fyrir Hveragerðishrepp til þess að leggja hitaveitu þar í þorpið, og er sú
heimildargrein tekin hér upp óbreytt frá s.l. ári í till. meiri hl.
Meiri hl. er ljóst, að hér er í rauninni teflt á tæpt vað um það, að greiðslujöfnuður verði á fjárlfrv., því að á rekstraryfirliti munu verða, að till. meiri hl. samþykktum og að samþykktri till. samvinnunefndar samgöngumála, en að öðru óbreyttu, tekjur, sem nema 804 millj. kr. rúmlega, og gjöld, sem nema 721 millj., eða rekstrarafgangur 83 millj. 627 þús. En á sjóðsyfirliti, þar sem einnig koma fram útgjöld ríkissjóðs vegna fjárfestingar, mun verða greiðsluafgangur, sem nemur aðeins 295 þús. kr., ef rétt er reiknað, en að sjálfsögðu vil ég hafa þann fyrirvara á, að þessar tölur eru ekki eins þaulprófaðar og skyldi. Þó á ég þess síður von, að þær séu rangar.
Með þessum till. telur meiri hl. sig hafa gert þær till., . sem hann áður boðaði, — till., sem miða að því, að fjárl. verði afgr. án greiðsluhalla, Enn fremur hefur meiri hl. gert sínar till. um sparnað, þó að sá sparnaður nemi að vísu minnu en við, sem að þeim till. stöndum, hefðum gjarnan viljað, en margt af því, sem til mála kom að spara, er lögbundið og verður vart sparað með fjárlagaafgreiðslu einni saman. Á hinn bóginn þykir sjálfsagt að vinna að því, að sparnaði verði við komið á fleiri liðum en þeim, sem hér eru gerðar till. um, og mun verða að því unnið áfram.
Ég tel þá, að af meiri hl. hálfu hafi að sinni verið gerð grein fyrir þeim till., sem fyrir liggja, eins og ástæða þykir til, en aðrar till., sem fram hafa komið við málið, hefur meiri hl. ekki kynnt sér, enda er þeim nýlega útbýtt. En hitt þykir sýnt, að ekki verði samþ. neinar teljandi brtt. til hækkunar á útgjöldum ríkissjóðs, nema því aðeins, að á móti komi samþykkt á sparnaðartill. eða til greiðsluhalla á fjárl. leiði.