19.12.1957
Sameinað þing: 21. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (389)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1958
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Það er fyrst og fremst til þess að mæla fyrir nokkrum brtt., sem ég flyt hér í sambandi við hagsmuni míns kjördæmis, sem ég kveð mér hljóðs að þessu sinni.
Ég hef leyft mér að flytja brtt. á þskj. 204,V um, að teknar verði upp fjárveitingar til tveggja ferjubryggna, í fyrsta lagi að Mýri á Snæfjallaströnd, 70 þús. kr., og í öðru lagi í Grunnavík. Ég vil gefa þá skýringu á þessum brtt., að unnið er að vegagerð út með Ísafjarðardjúpi norðanverðu. Endastöð þjóðvegarins er nú á Melgraseyri. Að vísu er orðið akfært lengra út með Djúpinu, allt út að Mýri, en fullkominn vegur hefur ekki verið lagður um leiðina frá Kaldalóni út í miðjan Snæfjallahrepp, en stefnt er að því, að á þessum stað, Mýri, verði um skeið endastöð fyrir langferðaleiðir að Djúpi. Mundi það stytta sjóleiðina yfir til Ísafjarðar um, um það bil klukkutíma, þannig að í staðinn fyrir að langferðafarþegar verða nú að sitja 2 –21/2 klukkutíma í bát, áður en þeir komast til Ísafjarðar, mundu þeir þurfa að fara aðeins rúmlega klukkutíma sjóferð, ef unnt yrði að hafa endastöð á Mýri. Það er því aðeins hægt, að þar verði byggð ferjubryggja, sem Djúpbáturinn geti lagzt að.
Það er þegar byrjað að undirbúa þetta mál. Á þessu ári var veitt lítil upphæð af atvinnubótafé, 20 þús. kr., í þessu skyni, og ég hef leyft mér að fara fram á, að Alþingi veitti fé á móti. Ég geri þó ráð fyrir, að miklu hærri upphæð þyrfti til þess að byggja þetta mannvirki, enda þótt þarna sé fremur aðdjúpt, eða í nágrenni við þennan bæ, þannig að ekki muni þurfa að byggja þar langa bryggju.
Hv. þm. kann nú að virðast það hljóma einkennilega, að krafizt sé framlaga án mótframlags til bryggjugerðar, en ég vil aðeins minna á, að það er engin ný bóla hér á hv. Alþingi. Það hafa verið byggðar allmargar ferjubryggjur og þá fyrst og fremst á Vestfjörðum, þar sem samgöngur eru lélegastar á landi, þar sem ferjubryggjurnar verða hluti af vegunum, og það er staðreynd, sem ekkí verður sniðgengin, að flóabátasamgöngurnar koma ekki að fullu gagni, nema því aðeins að bændur geti flutt afurðir sínar niður á ferjubryggjur og fengið nauðsynjum sínum skipað upp á slíkar bryggjur. Það hafa verið byggðar samtals 7 slíkar bryggjur við Ísafjarðardjúp, nokkrar í Barðastrandarsýslu og einhverjar í Suður-Múlasýslu, ein eða tvær, að mig minnir, í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Hér er því ekki um neina goðgá að ræða, og ég vænti, að á því Alþingi, sem lýtur forustu ríkisstj., sem lýst hefur því sérstaklega yfir, að hún vilji berjast fyrir hagsmunum dreifbýlisins, eigi till. eins og þessi ekki að eiga erfitt uppdráttar, ekki sízt þegar á það er litið, að á undanförnum árum hafa fyrrv. ríkisstj. talið sjálfsagt og eðlilegt að sinna þessum verkefnum, sem hefur mjög mikla þýðingu fyrir heimilin að leyst verði.
Svipuðu máli gegnir um brtt. þá, sem ég flyt um Grunnavík. Þar hefur verið byggð bryggja, sem þarf að lengja. Þar er nokkur útgerð, og hefur nú verið keyptur þangað stærri bátur en áður, og er því nauðsynlegt að lengja nokkuð þessa bryggju. Sú byggð, sem þarna er, berst í bökkum. Það fólk, sem þar er nú, vill dveljast þar áfram, en á í miklum erfiðleikum vegna strjálbýlis, samgangnaleysis og þeirra erfiðleika, sem að hinum afskekktustu byggðum steðja á síðustu tímum.
Þá er 3. brtt. mín um, að tekin verði upp fjárveiting til viðbótarbyggingar við barnaskólann í Bolungavík. Þar er allmyndarlegur barnaskóli, sem þó er orðinn allt of lítill, og ákveðið hefur verið að byggja við hann viðbyggingu. Ég legg til, að veittar verði 150 þús. kr. í því skyni.
Aðrar brtt. hef ég ekki flutt við fjárlagafrv. eða við brtt. hv. fjvn. varðandi mitt kjördæmi. Ég vil þó segja það, að þetta sprettur ekki af því, að þörf sé ekki fyrir hendi fyrir allmiklu hærri fjárveitingar. Hitt er mála sannast, að ég hef ekki talið líklegt til árangurs að flytja hækkunartill., t.d. um aukin framlög til vega, hafnargerða o s.frv.
Ég vil leyfa mér að þakka hv. fjvn. fyrir það, að hún hefur tekið upp í brtt. sínar till. um 8.000 kr. framlag til leikstarfsemi í Bolungavík. Ég tel rétt, að hv. Alþingi viti það, um leið og það lítur með velvild á þessa till., að í þessu byggðarlagi er alveg sérstaklega mikil og fjölþætt leikstarfsemi. Á s.l. leikári voru í þessu 800 manna byggðarlagi sýnd hvorki meira né minna en 11 leikrit, mörg þeirra stór og löng, og um þessar mundir er verið að æfa leikritið Syndir annarra eftir Einar H. Kvaran.
Annað hef ég ekki að segja um fjárveitingar til míns kjördæmis, en ég vil aðeins taka undir það, sem sagt hefur verið um þann einstæða hátt, sem nú er á hafður um afgreiðslu fjárlaga. 85 millj. kr. útgjöldum er kippt út úr fjárlagafrv. og þannig náð saman endum gjalda og tekna. Ef til vill sýnir þetta greinilegar, en nokkuð annað, út í hvílíkt öngþveiti fjármál ríkisins eru komin undir forustu núv. hæstv. fjmrh. og ríkisstj. í heild. Hæstv. ríkisstj. settist á stóla sína með fögrum loforðum og fyrirheitum og þó fyrst og fremst um það að leggja fram till. um ný úrræði, nýja stefnu í efnahagsmálum. Hún hét því, að nú skyldi brotið í blað og rækileg „úttekt“ fara fram á öllu þjóðarbúinu og allt það sukk krufið til mergjar, sem átt hafi sér stað á undanförnum árum.
Því miður hefur ekki enn þá bólað á þessari nýju stefnu. Það hefur hvorki farið fram úttekt á þjóðarbúinu né heldur verið brotið í blað í efnahagsmálum okkar. Niðurstaðan af allt að því eins og hálfs árs setu hæstv. núv. ríkisstj. er sú yfirlýsing, sem kemur fram í framhaldsnefndaráliti hv. meiri hl. fjvn., þar sem komizt er að orði á þessa leið:
„Verður að teljast eðlilegt og líklegast til samræmingar, að sá þáttur efnahagsvandamálanna, sem þessi fúlga var ætluð til, verði leystur samtímis öðrum þáttum þeirra mála á framhaldsþinginu eftir áramótin að lokinni þeirri athugun framleiðslu- og efnahagsmálanna, er nú stendur yfir á vegum ríkisstj.“
Þetta er rökstuðningurinn fyrir þeim einstæðu vinnubrögðum, að til þess að jafna greiðsluhalla fjárl. er kippt 85 millj. kr. út úr frv. Og lengra er þá hæstv. ríkisstj. ekki komin með undirbúning hinnar nýju stefnu og nýju úrræða í efnahagsmálunum en svo, að athugun framleiðslu- og efnahagsmálanna stendur nú yfir á vegum ríkisstj. Þetta er vissulega raunaleg yfirlýsing fyrir hæstv. ríkisstj., ekki sízt þegar á það er litið, að einn af ráðh. hæstv. stjórnar lýsti því yfir, um leið og fjárlfrv. var lagt fyrir á s.l. hausti, að í raun og veru væri hér ekki við neinn vanda að etja. Eins og hv. 2. þm. Reykv. benti á, sagði hæstv. félmrh. þetta: framleiðslan væri mikil, gjaldeyrisástandið væri ágætt, kapphlaupið milli kaupgjalds og verðlags væri stöðvað og ef eitthvað lítillega skyldi nú á bresta, að auðvelt væri að koma fjárl. saman endanlega, væri ekki um neitt annað að gera, en skera lítillega niður af fjárl. Það mætti skera töluvert niður.
Mér virðist þessi yfirlýsing hæstv. félmrh. ekki vera í sérstaklega góðu samræmi við þær staðreyndir, sem liggja fyrir í nál. meiri hl. fjvn. og í ræðu hæstv. fjmrh. hér í kvöld.
Þá get ég ekki komizt hjá því að minnast lítillega á það, að nú er svo komið, að hv. stjórnarflokkar hafa gersamlega gefizt upp við að finna nokkrar leiðir til sparnaðar. Þangað til fyrir einu og hálfu ári voru kommúnistar og Alþfl. í stjórnarandstöðu. Þá fluttu þeir sífellt till. um að fella niður ýmis útgjöld. Þeir fluttu að vísu aðallega till. um að bæta á ríkissjóðinn nýjum útgjöldum, en þeir þóttust geta bent á allháar fjárfúlgur, sem unnt væri að spara. Minnist ég í því sambandi sérstaklega fjárveitinganna til utanríkismála. Þar voru þó ekkí kommúnistar og Alþýðuflokksmenn einir um brtt., því að þann rúmlega eina áratug, sem Ísland hefur verið sjálfstætt lýðveldi, hafa framsóknarmenn lagt mikla áherzlu á það, að auðvelt væri að spara stórlega í utanríkisþjónustunni. Þeir hafa bent á allmörg sendiráð, sem sjálfsagt væri að leggja niður, og spara mætti millj. kr. með því að framkvæma þessa breytingu á utanríkisþjónustunni. Nú hefur fyrrverandi stjórnarandstaða komizt í stjórn með hv. framsóknarmönnum, og hvers vegna skyldu þessir menn þá ekki hafa snúið sér að því að framkvæma þessar till.? Það bólar ekki mikið á þeim enn þá. Á skömmum tíma undanfarið hafa losnað öll sendiherraembættin á Norðurlöndum, í Stokkhólmi, Osló og Kaupmannahöfn. Á þessu tímabili hafa Framsfl. og Alþfl. farið með stjórn utanríkismálanna. Það hefur verið skipað í öll þessi embætti að nýju, og það orðar það enginn nú, að þau beri að leggja niður.
Ég vek ekki athygli á þessu vegna þess, að ég telji, að það hafi verið hægt að leggja þessi sendiráð Íslands niður, þó að af því leiddi allverulegan sparnað á ríkisfé. En ég bendi á þetta sem eitt lítið dæmi um það, hversu lítið þessir flokkar hafa meint með till. sínum um það á undanförnum árum, að gera bæri stórkostlega skipulagsbreytingu á einum þætti ríkisstarfseminnar. Þeir hafa þegar á fyrsta valdaári sínu étið þetta gersamlega ofan í sig.
Stefna þess fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir, er fyrst og fremst stefna vaxandi verðbólgu og dýrtíðar, og af þessari staðreynd ber allt atvinnulíf og efnahagslíf Íslendinga fyrst og fremst svip í dag. Á síðasta hv. Alþingi, nokkru fyrir jól, voru lagðir á 300 millj. kr. nýir skattar til þess að tryggja rekstur útflutningsframleiðslunnar, og var þá talið, að svo vel hefði verið gert við a.m.k. sjávarútveginn, að öruggt mætti telja, að ekki þyrfti að grípa til nýrrar tekjuöflunar um næstu áramót og nýrra ráðstafana til þess að auka stuðninginn við sjávarútveginn.
Hæstv. sjútvmrh. sagði fyrir nokkrum vikum á aðalfundi Landssambands ísl. útvegsmanna, að hann áliti, að starfsgrundvöllur fyrir sjávarútveginn yrði að liggja fyrir um miðjan desember. Nú er kominn 19. des. og Alþingi að fara í jólafrí. Viðræður standa yfir milli fulltrúa útvegsmanna og fulltrúa frá hæstv. ríkisstj. Eftir þeirri vitneskju, sem ég hef, eru ákaflega litlar líkur til þess, að samkomulag hafi tekizt fyrir jól a.m.k. um nýjan starfsgrundvöll fyrir útgerðina, og ekki virðist mér það benda til þess, að skilningur sé fyrir hendi á aðstöðu framleiðslunnar hjá hv. stjórnarflokkum, að hv. frsm. meiri hl. fjvn. sagði við 2. umr. fjárlagafrv., að í raun og veru hefði ekkert gerzt, sem réttlætti kröfur útvegsins um aukinn stuðning, annað en það, að minna hefði aflazt á þessu ári en undanfarið. Ég benti honum þá á það, að samkvæmt upplýsingum, sem ekki hefðu verið vefengdar, hefði tilkostnaður útvegsins á einstökum nauðsynjum hans hækkað um allt að 38% og það sem bein afleiðing af ráðstöfunum hæstv. ríkisstj. sjálfrar, þeim sömu ráðstöfunum sem áttu að vera til þess að tryggja afkomu útvegsins. Því miður horfumst við í dag í augu við þá staðreynd, að þær gífurlegu skattaálögur, sem lagðar voru á þjóðina í fyrra og þýddu 9.500 kr. skatt á hverja einustu fimm manna fjölskyldu í landinu, hrökkva nú engan veginn til þess að halda útflutningsframleiðslunni gangandi.
Ég skal ekki fullyrða neitt um það, að treysta megi fullkomlega þeim upplýsingum, sem útvegsmenn og samtök þeirra gefa sjálf um ástand útvegsins nú í dag. En á aðalfundi L.Í.Ú. var það upplýst að, að óbreyttu fiskverði og stuðningi ríkisins við bátaútveginn reiknaðist afurðasölunefnd og verðlagsráði samtakanna svo til, að 140 þús. kr. halli mundi verða á meðalvélbát á næstu vertíð, og var þá miðað við fimm ára meðaltalsafla og róðrafjölda. Jafnframt var því lýst yfir, að rekstrarhalli togara á næsta ári mundi verða um 1.1 millj. kr., að óbreyttu fiskverði og þeim stuðningi, sem ríkisvaldið hefur veitt togaraútgerðinni. Svo koma hæstv. ráðh. og aðrir stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. og segja, að framkvæmd hafi verið verðstöðvunarstefna, eins og þeir kalla það.
Ég held, að þessar tölur og þetta ástand hjá aðalútflutningsframleiðslu þjóðarinnar sanni það greinilega, að kapphlaupið milli kaupgjalds og verðlags hefur haldið áfram og það í ríkum mæli, því miður, enda er það staðreynd, sem ekki verður gengið á snið við, að á 14. þús. manns innan tuga verkalýðsfélaga og launþegasamtaka hafa fengið kauphækkanir, sem nema allt frá 4% upp undir 40% á þessu ári, og á þessu ári hafa staðið yfir lengstu verkföll, sem háð hafa verið í þessu landi. Einnig þetta er staðreynd, sem ekki verður sniðgengin. Í íslenzkum efnahagsmálum ríkir því meiri óvissa í dag, en oftast áður. Þetta er undirstrikað af því örþrifaúrræði hæstv. fjmrh. að jafna greiðsluhalla fjárlaganna með því að kippa nærri 100 millj. kr. gjaldalið út úr þeim og láta liggja á milli hluta, enginn veit hve lengi, hvernig tekna verði aflað til þess að mæta þessum útgjöldum. Við höfum að vísu grun um það, að þess muni nú ekki verða miklu lengra að bíða, en svona hálfan annan mánuð, rétt fram yfir janúarlok, að sýnt verði framan í nýja skatta og tolla af hálfu hæstv. fjmrh.
Ég segi: Þetta er mikill ósigur fyrir ríkisstj., sem byggir grundvöll sinn og tilveru og fyrirheit öll á því að taka upp nýja stefnu, láta fara fram allsherjarúttekt og brjóta í blað í efnahagsmálum. Ég efast um, að nokkurri ríkisstj. hafi á jafnskömmum tíma tekizt að vanefna jafnmörg loforð og þessari hæstv. ríkisstj., sem nú situr, og ég held, að það sé ekki ofmælt, að það fjárlagafrv., sem hér er til umræðu, sýni gleggst niður í það hyldýpi úrræðaleysis og stefnuleysis, sem allt starf núv. hæstv. ríkisstj. mótast af.