19.12.1957
Sameinað þing: 21. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (402)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1958
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Rang. (IngJ), sem nú var að ljúka máli sínu, fyrrv. ráðh. í samstjórn Sjálfstfl. og Framsóknar, kom hér lítið inn á þau úrræði, sem Sjálfstfl. mundi hafa, ef hann væri nú í ríkisstj. En það mátti nokkurn veginn ráða af hans ræðu, hver úrræðin mundu vera. Hann var að bjóða upp á, að það yrði skipt um, og hann var að minna á, hve blómlegt það hefði verið með afgreiðslu fjárl., á meðan Sjálfstfl. hefði haldið um stýrið í því sambandi, og hann minntist líka á, að það væru jafnvel til menn í öðrum flokkum en Sjálfstfl., sem vildu styðja að þeirri stefnu, sem greinilegt er að Sjálfstfl. mundi taka upp, ef hann nú fengi að ráða, en hann þorði ekki að nefna orðið sjálfur, en það var auðséð, hvað það var, það er gengislækkun. Það er alveg greinilegt, að það, sem mundi dynja yfir þjóðina nú, ef Sjálfstfl. fengi að ráða á þann gamla hátt, er gengislækkunin á ný.
Af hverju var blómlegt og þægilegt að eiga við fjárlögin eftir 1950? Af því að notuð var sú aðferð að lækka gengið og tollarnir hækkuðu af sjálfu sér og útgjöldin voru raunverulega skorin niður með því að halda sínu nafngildi áfram. Það er þægilegt að fara þannig að, þó að Sjálfstfl. sé hins vegar feiminn við að koma fram með þetta sem sín úrræði, en reyni hins vegar á allan hátt að stefna að því, að til slíkra úrræða sé gripið. Það er þess vegna óþarfi fyrir flokk, sem þannig stjórnar, þegar hann hefur völd, og leiðir slíkt yfir þjóðina, að vera að tala um nú, að það sé verið að sigla einhverju í strand, að það sé ægilegt útlit, að menn horfi, svo að ég noti hans orð, með dimmum huga fram á veginn. Það var búið að sigla í strand, þrátt fyrir það, þó búið væri að lækka gengið og hækka dýrtíðina, frá því að gengið var lækkað, um 80%, og það er verið að reyna að losa þjóðina undan afleiðingunum af þeirri strandsiglingu allri saman.
Ég persónulega flyt enga till. við þessa 3. umr. fjárl., og við þm. Alþb. flytjum engar till. hér persónulega, nema þá til lækkunar helzt, og það kemur til af því, að við álítum nauðsynlegt að reyna að komast hjá nema sem allra minnstri aukningu útgjaldanna, á meðan ekki sé búið að koma sér niður á meiri sparnað á ríkisbákninu eða aðrar tekjuöflunaraðferðir en þær, sem hafa verið notaðar fram að þessu. Það er alveg gefið mál, að það verður að taka sjálft ríkisbáknið til endurskoðunar. Það getur ekki gengið á þeim tíma, sem ríkið segir við almenning, að hann skuli ekki hækka sínar tekjur eða sín útgjöld, segir við verkalýðsfélögin, að þau skuli ekki hækka kaupið helzt, að ríkið hækki stórkostlega ár frá ári. Það þarf að reyna að stöðva þetta. Ríkisbáknið verður að láta sama lögmál gilda um sjálft sig og það fyrirskipar öðrum. Það er gefið, að síhækkandi fjárl. með almennum álögum á almenning leiða að lokum til gengislækkunar, og þessa þróun þarf að stöðva. Það er gefið mál, að gengislækkun er sú hætta, sem alþýðan í landinu óttast mest, og sú hætta, sem alþýðan berst mest á móti. Verkalýðssamtökin hafa hindrað slíka gengislækkun fram að þessu, og þau munu hindra hana áfram, og Sjálfstfl. má vita það, þó að hann geri kröfu til þess að fá að komast að með áhrif í ríkisstj. nú, að verkalýðurinn í landinu mun koma í veg fyrir slíkt, enda efast ég um, að Sjálfstfl. þori að koma fram með sín gengislækkunarúrræði frammi fyrir fólkinu í landinu. Það er siðurinn venjulega að reyna að skella slíku á eftir kosningar, eins og var gert 1950. En það mun ekkí takast, og það verður ekki gert.
Það er verið að mála hér upp tapreksturinn á sjávarútveginum og öðru slíku, og það er verið að skírskota til banka, eins og hv. 1. þm. Rang. gerði hér áðan. Ég held, að það sé óþarfi að vera að skírskota til bankanna í sambandi við slíkt. Ég veit ekki betur, en það séu bankarnir fyrst og fremst, sem græða á því, sem kallað er taprekstur útgerðarinnar. Ég veit ekki betur en öll þjóðin græði á því, að sjávarútvegurinn sé rekinn, og bankarnir hvað mest og það hafi varla dregið úr þeim 70–80 millj. kr. afgangi, sem þeir hafa haft undanfarin ár, þannig að það situr sízt á bönkunum og bankastjórunum að vera að tala eitthvað í slíku sambandi. Ég held, að þeir megi þakka fyrir að fá þann gjaldeyri, sem þeir fá, og græði nóg á honum, og það er óþarfi að vera að reyna að nota þetta svokallaða orð um taprekstur útgerðarinnar sem einhver rök fyrir því, að það liti illa út hjá þjóðinni. Ég veit ekki betur, en það sé þó mjög sæmilegt um kaupgetu almennings nú. Ég veit ekki betur, en viðast hvar úti um land horfi menn bjartar á framtíðina, en áður. Ég veit ekki betur, en meira að segja fólksflutningarnir utan af landi hingað til Reykjavíkur séu frekar að stöðvast. Og menn eru ekki hræddir við framtíðina hérna núna, vegna þess að það er þó a.m.k. verið að byrja á því að leggja drög að því, að við getum verið öruggari um framtíðina, en verið hefur, með því að afla okkur framleiðslutækja. Það er verið að undirbyggja okkar efnahagslíf með öflun nýrra framleiðslutækja, og það er það, sem þurfti að gera, og það var það, sem var vanrækt, meðan hv. 1. þm. Rang. var í ríkisstj., og þar áður yfirleitt síðustu átta árin. Þess vegna er komið sem komið er, að þjóðin hefur ekki næg tæki til þess að framleiða með til þess að standa undir sínum lífskjörum. Og það þarf að skapa þessi tæki, það þarf að setja þessar stoðir undir þjóðarbúið, sem var verið áður að brjóta niður eða vanrækt að setja.
Þess vegna er það gefið, að það verður að reyna þennan tíma, þangað til búið er þannig að búa betur í haginn fyrir almenning með öflun slíkra framleiðslutækja, að halda hófi um aukningu ríkisbáknsins, að reyna að komast af þannig, að útgjöldin séu aukin sem minnst, og reyna að knýja fram sparnað. Ég veit, að það er hægara um það að tala, en í það að komast. Við höfum gert nokkrar tilraunir um þetta. Við höfum gert okkar tilraunir til þess að fá fram allmikinn sparnað, jafnvel svo að mundi nema tugum millj., í ríkisbákninu. Það hefur enn sem komið er náðst samkomulag um ofur lítið af þessu, og ég veit, að það muni vera möguleikar síðar meir á því, þegar menn þá athuga þetta betur, að ná samkomulagi um fleira seinna meir. Það vita allir, að það er nokkuð erfitt að koma slíku í gegn, það tekur sinn tíma. Við vitum, að ríkisvaldið hefur vaxið á vissan hátt eins og villiskógur á undanförnum árum og ekki hvað sízt dómsmrn. í tíð hv. 1. þm. Reykv. (BBen), sem nú var að kalla fram í til mín. Það er gefið, að það er miklu erfiðara að skera niður í slíku ríkisbákni, þegar búið er að fylla stofurnar af mönnum, þannig að það eru varla til stólar eða gólfpláss fyrir fleiri. Það er óhægara um að segja upp, en var áður að bæta við. Það strandar á þeirri almennu tregðu, sem er hjá fólki að breyta þannig um, þegar búið er að búa svona í haginn En það er gefið mál hins vegar, að inn á þessa braut verður að fara. Það er byrjað, þótt smátt sé nú, og þarf að stíga stærri skref fram, og ég veit, að núverandi stjórnarflokkar munu komast að samkomulagi um slíkt, þegar til lengdar lætur.
Ég vil enn fremur taka það fram, að auðvitað þurfa útgjöld ríkisins á ýmsan hátt að vaxa. En það verður þá að reyna að mæta því með því að taka til handa ríkinu tekjur, sem núna renna í ríkum mæli til einstaklinga, t.d. með því að þjóðnýta einhvern hluta af verzluninni. Ég sé satt að segja ekki á vörusölunni í Reykjavík nú, að kaupgeta yfirstéttarinnar hér í Reykjavík hafi minnkað, þó að mikið hafi verið kvartað um, hvernig gengið hafi verið á hana, og ég held, að það séu þar ekki önnur ráð til en beinlínis þjóðnýting á hluta af verzluninni. Hitt er gefið, að svo lengi sem ekki fæst staðið undir útgjöldunum með slíkum sparnaði eða með slíkri þjóðnýtingu, þá getur verið nauðsynlegt að leggja álögur á, en þá á þær vörur, sem minnst eru nauðsynlegar, á eyðsluna fyrst og fremst.
Það er talað allmikið um fjárfestingarmálin hér, og það er verið að ráðast á jafnvel þá stefnu að taka lán, og það má ýmislegt að því finna. En þó held ég, að hvað snertir fjárfestingarmálin sérstaklega í þeim fyrirtækjum, sem sjálf standa undir sér, þá megum við gjarnan vera djarfari, en við höfum verið þar, Íslendingar, sérstaklega að hagnýta okkur þær aðstæður, sem við höfum til þess að taka lán, þegar við getum fengið þau jafnvel með 2 og 3% vöxtum, Það er gefið mál, að þjóð, sem er eins stórhuga og okkar, og þjóð, sem gerir eins mikið og okkar, þarf á því að halda að geta tekið erlend lán til margs af því, sem við ekki viljum bíða eftir, þangað til við getum unnið það sjálfir af eigin sparnaði, og það er lítil sem engin hætta í slíku, allra sízt á meðan við erum öruggir um það að geta borgað öll slík útlend lán með okkar eigin afurðum.
Það er nauðsynlegt að gera sér það ljóst, þegar maður reynir að vinna að því, að fjárl. séu hækkuð sem minnst og sparað sé á ríkisbákninu, að öll slík barátta er um leið barátta á móti gengislækkuninni. Og þeim, sem við vitum að búa yfir gengislækkuninni sem aðalúrræðinu í þessum málum, eins og Sjálfstfl. gerir, ferst sannarlega ekki að vera að tala mikið um, að þeir vilji spara í ríkisbákninu, því að það yrði lítið úr slíkum sparnaði, svo framarlega sem ráðizt væri í gengislækkunina rétt á eftir. Við skulum alveg gera okkur það ljóst, að með því að reyna að halda í horfinu eins og nú er og með því að reyna að hindra, að unnið sé í áttina til gengislækkunar, þá er verið að reyna að festa og efla núverandi efnahagslegan grundvöll okkar þjóðfélags. Það er hrein vitleysa, að það sé eitthvert hrun, sem vofir hér yfir okkur, að það sé einhver voði, sem hérna sé fyrir dyrum. Þjóðin er í dálitlum vandræðum. Út af hverju? Hún er í vandræðum út af því, að í átta ár hefur verið vanrækt að skapa þann eðlilega grundvöll fyrir hennar framleiðslu. Í átta ár hefur verið vanrækt að kaupa ný framleiðslutæki til landsins. Ekki einn einasti togari hefur verið keyptur. Fimm þúsund bílar hafa verið keyptir á sama tíma. Og við þessu höfum við tekið og verðum síðan að byrja á því að kaupa togara, að fullgera hraðfrystihúsin, að panta bátana, og nú þegar eru slík tæki í pöntun fyrir yfir 170 millj. kr., sem eru nú þegar að byrja að koma, eru að koma á næsta ári og verið að bæta fleiri við. Það er verið að vinna upp vanrækslu síðustu átta ára. Það er vanræksla þessara átta ára, sem hefur stofnað þjóðarbúskapnum í voða undanfarið. Það er verið að bjarga honum út úr þeim voða með því að reisa eðlilegar stoðir undir þjóðarbúið. Það er í því, sem úrbæturnar felast.
Hv. 1. þm. Rang. var að lýsa eftir úrbótum hér áðan, Hverjar voru úrbæturnar á þessum tíma, þessum átta ára tíma? Gengislækkun og 80% hækkun á dýrtíðinni frá því 1950, tímabil, sem m.a. leiddi atvinnuleysi og vandræði yfir fólkið hérna í Rvík, þannig að meira að segja mjólkurneyzlan minnkaði í Rvík, hvað þá annað.
Það er talað um, að vanti núna og skorti heilbrigt fjármálaástand. Var það heilbrigt fjármálaástand? Það leit kannske nógu vel út stundum með fjárlögin. Það er hægt að lækna þau með gengislækkun. Það er ósköp auðveldur hlutur, þegar allar tekjur hækka af sjálfu sér svo að segja og öll útgjöld eru raunverulega skorin niður. En heilbrigt fjármálaástand, það er ástand, þegar byggt er þannig undir þjóðarbúið, að það fær risið undir þeim lífskjörum, sem almenningur hefur.
Það er við þá vanrækslu þessara átta ára, sem við búum, og það tekur ofur lítinn tíma að bæta úr henni, af því að það tekur ofur lítinn tíma að smíða skip og gera þannig þjóðarbúið ríkara og gera þannig fólkið í landinu betur efnum búið og tekjur þess og lífskjör. En þetta munum við gera. Þetta munum við sjá um að verði gert. Og á þessu er byrjað að gera, og það mun fara að bera ávöxt. Þannig verður skapað heilbrigt fjármálaástand hjá þjóðinni, ekki með hinum úrræðunum.
Hv. 1. þm. Rang. var að auglýsa eftir forustunni í atvinnulífinu. Hver var forustan í atvinnulífinu í átta ár, meðan keyptir voru fimm þúsund bílar til landsins og ekki einn einasti togari? Var það forusta, var það fyrirhyggja? Ég gæti trúað, að það væri komið svo á Íslandi nú, að þessir bílar brenndu meira benzíni, en flotinn eyðir í olíu. En það er úr þessu, sem við erum að bæta. Það er með þessu, sem við erum að setja þær stoðir undir þjóðfélagið, að það standi undir lífskjörum, batnandi lífskjörum, — þær stoðir, sem voru rifnar burt eða vanrækt var að setja áður.
Það tekur sinn tíma að fá fram ýmislegt, sem þyrfti að gera í slíku sambandi. Ég efast ekki um, að það muni fást fram að lokum, með vaxandi samstarfi og vaxandi skilningi á hvers annars hugsunum og tillögum í þessu efni muni núverandi stjórnarflokkar ná samkomulagi, líka um sparnað í ríkisbákninu, líka um að draga úr þeirri aukningu, sem sköpuð var, meðan Sjálfstfl. réð mestu, líka jafnvel í dómsmála- og lögregluapparatinu.
Ég held, að það sé nauðsynlegt, að þetta komi fram nú. Það er síður en svo, að núv. stjórn hyggi á nokkra uppgjöf, eins og hv. 1. þm. Rang. var að auglýsa eftir. Þvert á móti. Það felst engin uppgjöf í þessum málum. Við vitum, að ef þessi stjórn hefði ekki setið, þá hefði verið gefizt upp fyrir þessu, þá hefði verið hlaupið út í gengislækkunina eins og 1950. Það er ákaflega þægileg leið. En það er einmitt til þess að hindra, að slík leið verði farin, sem það verður heldur að reyna að láta vera að gera margt af því, sem maður gjarnan vildi, á meðan ekki fæst fram að gera það með þeim hætti, m.a. stórum sparnaði, þjóðnýtingu á vissum hlutum og slíku, sem væru heilbrigðustu leiðirnar til þess. Ég efast ekki um, að samkomulag mun nást um þá stefnu, sem þarna er nauðsynleg, samkomulag á milli núv. stjórnarflokka. Þeir hafa þegar borið gæfu til þess að gera samkomulag um það, sem er grundvöllurinn að þessu öllu saman, um undirstöðu okkar efnahagslífs, um sjálft framleiðslulífið í landinu, og það hefur verið tryggt og það er tryggt. Og allar hrakspár, sem hv. 1. þm. Rang. var með hér áðan, — ég man nú ekki, hvað hátt hann var kominn, hann var að smáspenna það upp, 65 millj. voru orðnar 88 millj. og fóru fljótt upp í hundrað og svo slumpaði hann ofan á það, sem útgerðin mundi nú vera að tapa, og ég held, að hann hafi verið kominn upp í 200 millj. kr. Jú, það mundi líklega ekki vanta að reikna út, ef þessir herrar og fyrrverandi ráðherrar Sjálfstfl. ættu að reikna aftur í ríkisstj. núna. Það hefði víst ekki verið lengi að sýna fram á, að það vantaði núna 200 millj. kr. og það væri ekki hægt að útvega það nema með gengislækkun. Ég er bara hræddur um, að þeir eigi eftir að sjá framan í dálítið annað, að þeir eigi meira að segja eftir að sjá framan í, að útgerðin gangi og það þótt það kosti ekki neinar 200 millj. kr. og kannske ekki einu sinni 25, hvorki það né minna.
Við munum reyna að beita okkur fyrir því, eins og við höfum beitt okkur fyrir því í sambandi við þær umr., sem farið hafa fram milli stjórnarflokkanna, að meiri sparnaði verði komið á, í framkvæmd á ríkisapparatinu. Það er hægt að spara þar, svo að skiptir tugum milljóna. Það tekur sinn tíma máske að undirbúa slíkt, fá samkomulag um slíkt, en það er eitt af því, sem þarf að gerast. En það, sem er þó nauðsynlegast af öllu, og það, sem er framtíðargrundvöllurinn undir öllum tekjum ríkissjóðs líka, það er aukningin á framleiðslulífinu sjálfu, þar með stóraukning útflutningsins og þar með líka um leið aukningin á innflutningnum, þar með bætt lífskjör hjá almenningi og þar með líka án sérstakra álagna batnandi afkoma fyrir ríkissjóð, og þetta er það eina heilbrigða ástand, sem hægt er að skapa í landinu. Allt hitt, öll hin ráðin, ráðin, sem við vitum að Sjálfstfl. hyggur á, eins og gengislækkun, það eru ráð, sem setja allt í öngþveiti á ný og eyðileggja allt, sem gert hefur verið fram að þessu til þess að skapa heilbrigt efnahags- og fjármálaástand í okkar landi.
Það er alltaf svo við afgreiðslu fjárlaga, að menn hefðu óskað eftir ýmsu öðruvísi en er. En við það, sem samkomulag er gert um, stendur maður, og það, sem er höfuðatriðið, ekki aðeins í sambandi við afgreiðslu fjárlaga, heldur í sambandi við ákvörðunina, stefnuna í efnahagslífinu, það er, að heilbrigt sé stefnt viðvíkjandi aukningu sjálfra framleiðsluaflanna í landinu, sjálfra framleiðslutækjanna, og þar er nú stefnt í rétta átt og stefnt með stórum skrefum, í staðinn fyrir að það var ekki stigið eitt einasta skref og jafnvel stigið aftur á bak 8 árin þar á undan.