19.12.1957
Sameinað þing: 21. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (406)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1958

Jón Pálmason:

Herra forseti. Það er nú orðið nokkuð áliðið nætur, enda skal ég ekki lengja þessar umr. mikið, heldur kvaddi mér hljóðs einungis til þess að segja hér fáein orð um litla brtt., sem ég flyt á þskj, 206 ásamt hæstv. forseta sameinaðs þings. Þessi till. er um það, að bætt sé inn á 18. gr. einni ekkju, Guðrúnu Helgadóttur, með 5.000 kr. Þessi kona er ekkja hins ágæta manns, Jóns Jóhannessonar prófessors, sem féll frá s.l. vor. Umsókn um þessa fjárveitingu á 18. gr. lá fyrir hv. fjvn. og var send þangað í samráði við ráðuneytisstjórann í fjmrn., sem taldi eðlilegt að taka einhverja upphæð inn til hækkunar. En þetta hefur nú ekki orðið, og auðvitað er alltaf álitamál um, hvað eigi að taka á þessu sviði. En eftir því sem mér er sagt, þá hefur hv. n. ekki tekið neina upphæð inn til þessarar ekkju, vegna þess að hún hefur haldið áfram kennslu, sem hún og gerði áður, og fengið fyrir það nokkurt fé, En þess er þá að geta, að hún, sem hefur erfitt heimili, þrjú börn og þ. á m. eitt á fyrsta ári, verður að halda dýra ráðskonu, og fer í það töluvert mikill hluti af þeim launum, sem hún fær sem kennari.

Nú er það svo, að samkvæmt launaskrá fjárlagafrv. eru prófessorslaunin 48 þús. kr. í grunn, en það, sem þessari ekkju ber samkvæmt lögum af lífeyrissjóði, eru 13 þús. kr. í grunn, auk hins lögboðna barnastyrks. Það mun því ekki vera neitt í ósamræmi við það, sem viða á sér stað á þessari grein, þó að þarna sé bætt 5.000 kr. við.

Að vísu er það svo, að á 18. gr. er erfitt að koma auga á nokkurt verulegt samræmi, og hefur svo lengi verið. Þar hafa ýmsir embættismenn fengið full laun, þó að þeir hafi látið af starfi, og meira að segja sumir þeirra fengið þó nokkrar upphæðir fyrir önnur störf samtímis o.fl., o.fl., sem nefna mætti í þessu sambandi. En allt eru það svo persónuleg mál, að ég vil ekki vera að draga það inn í umræður að nauðsynjalausu til samanburðar. En þar sem hér er um smáupphæð að ræða handa fátækri og sorgmæddri ekkju, sem stendur í miklum vanda með það, hvort hún getur haldið sínu húsi, sem var verið að enda við að byggja, þegar maður hennar dó, og hún þess vegna í gífurlega miklum skuldum, — vegna þessa alls, þá væntum við flm., að hv. þm. taki þessari litlu till. með velvild, svo að um hana þurfi ekki að standa neinar deilur.

Að öðru leyti skal ég ekki um þetta fjölyrða, nema eitthvert tilefni gefist til, og ekki fara út í neinar aðrar umr. um fjárlagafrv. Það er búið að ræða það svo mikið, að ég sé ekki ástæðu til að bæta þar við.