06.02.1958
Neðri deild: 47. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (483)

99. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1958

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Það er í sjálfu sér ekki ástæða til að ræða um þetta frv., sem liggur hér fyrir, eins og ég líka minntist á. Það hefur verið flutt hér þing eftir þing og felur í sér þær breytingar á samkomudegi Alþingis, sem eru orðnar venja, og lög um það eru nauðsynlegt form.

Viðkomandi því, sem hv. 1. þm. Reykv. (BBen) sagði um þinghaldið, þá vil ég svara því almennt, að vitanlega er margt af því rétt athugað, og hefur verið rætt um það utan þings og jafnvel á þingi áður í svipuðum dúr og hann gerði, án þess að það hafi verið gerðar á því þær breytingar, sem e.t.v. mætti gera. Ég ætla ekki að tala um þetta svo mjög almennt. Hann kvartaði undan því, hv. 1. þm. Reykv., að það væru gefnir stuttir fyrirvarar og stuttur tími til þess að hugleiða vandasöm mál, og þetta er líka alveg rétt. Ég minnist þess, að í fyrsta skipti, sem frv. kom fram um ríkisábyrgð á sjávarútveginum, þá kom það fram og var afgr. með ákaflega stuttum fyrirvara, ekkert smærra mál, en það, að það var tekin ábyrgð á sjávarútveginum, án þess að menn vissu þá, hvað sú upphæð var há, sem tekin var ábyrgð á, og án þess að það væri haft fyrir því að afla til þess sérstakra tekna.

Þannig hefur þetta verið svo að segja alltaf síðan, og vandamálin, sem hafa steðjað að, hafa verið það stór, að þingið hefur þráfaldlega orðið að bíða, og ég þarf ekki að nefna frekar dæmi en þetta eina; það mætti nefna hvert dæmið eftir annað, síðan þessi mál hafa þurft á afgreiðslu að halda, hér á Alþingi. Þetta hefur verið venjan, að málin hafa komið inn á síðustu stundu og þá verið afgreidd með flýti.

En nú talaði hv. 1. þm. Reykv. um það, að hann mundi fá það svar við þessum athugasemdum hans, að sjálfstæðismenn væru að kvarta, vegna þess að þeir væru í stjórnarandstöðu. En ég sé enga ástæðu til að svara því þannig. Hans ræða gefur ekkert tilefni til þess. Hann meira að segja talaði um það af þeirri sanngirni, að hann sagði, að það væri orðin venja og hefði verið þannig hjá fyrrverandi stjórnum eins og núverandi stjórn, að það hefði orðið að gefa stuttan frest til þess að hugsa um vandamálin, þegar þau hafa komið fram. Og hann var það réttlátur í dómum sínum um þetta atriði, að það er ástæðulaust að vera með nokkrar snuprur út af því.

Ef þingið hefur ekki verkefni og bið verður á því, að fjárhagsmálin verði athuguð svo til þrautar, að hægt verði að leggja fram till., um þau hér á Alþingi, þá getur vitanlega komið til greina, að það verði að fresta fundum. Það verður að sýna sig, hvort verkefnin eru nægileg fyrir Alþingi eða ekki, og það, sem hann sagði um það atriði, er vissulega athugandi mál.