10.02.1958
Neðri deild: 49. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (539)
100. mál, skattur á stóreignir
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Ég get í raun og veru fallið frá orðinu, vegna þess að ég ætlaði aðeins að spyrjast fyrir um, hver hefði orðið hin raunverulega fjárhæð skattsins. Nú hefur hæstv. fjmrh. upplýst, að skv. bráðabirgðauppgjöri muni skatturinn nema 135 millj. kr., og skal ég ekki efast um, að hér sé rétt farið með. En þegar þessi skattur var til umr. hér í þinginu, var það ein aðalástæðan hjá stjórnarliðinu fyrir því, að óhætt væri að samþykkja slíkan skatt, sem sjálfstæðismenn héldu fram að væri meiri blóðtaka, en atvinnulífið mundi þola, þá var ein aðalástæðan, að skatturinn næmi aðeins 80 millj. kr. Nú er sýnilegt skv. þessu bráðabirgðauppgjöri, sem hæstv. fjmrh. hefur skýrt hér frá, að skatturinn nemur 55 millj. kr. hærri upphæð, en gert var ráð fyrir, þegar frv. var hér til umr. í þinginu. (Gripið fram í: 70% hækkun.) Hvað sem prósentunni líður, þá er það sýnilegt, að skatturinn fer langt fram úr því, sem fullyrt var að hann mundi gera, þegar hann var samþykktur.
Nú vil ég spyrja hæstv. fjmrh., hvort það sé ætlun stjórnarinnar að koma með brtt. við lögin um að lækka skattálagninguna, þannig að heildarskatturinn nemi ekki 135 millj. kr., eins og nú er, heldur 80 millj. kr., eins og gert var ráð fyrir, þegar frv. var samþykkt. En í því trausti samþykkti Alþ. frv., að ekki væru teknar nema 80 millj. kr. af landsmönnum í þennan skatt.