10.02.1958
Neðri deild: 49. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (540)
100. mál, skattur á stóreignir
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil bara leiðrétta misskilning, sem kom fram hjá hv. ræðumanni. Þegar lögin um stóreignaskattinn voru sett, var mjög greinilega tekið fram, að það væri ómögulegt að gera nokkra áætlun um, hvað hann mundi gefa. Á hinn bóginn gerðu menn sér vonir um, að hann mundi ekki gefa undir 80 milljónum.
Við skulum nú segja, að þannig hefði farið, að skatturinn hefði orðið undir 80 millj. Þá hefði samt sem áður aldrei komið til greina, að það hefði verið lagt ofan á þennan skatt. Hann var ákveðinn eftir föstum reglum í frv., og hér var ekki lögð á tiltekin fjárhæð. Gildir auðvitað alveg sama um þetta og tekju- og eignarskattinn. Hann er lagður á eftir ákveðinni reglu, en ekki breytt á eftir til hækkunar eða lækkunar. Það hefði verið fullkomið siðleysi, ef ekki hefðu náðst 80 millj., að fara þá að bæta ofan á skattinn með sérstökum lögum, Slíkt hefði aldrei verið gert. Skatturinn verður vitaskuld innheimtur eftir lögunum eins og þau eru, alveg eins og farið er að skv. lögum um tekju- og eignarskatt.
Svo vil ég aðeins rifja upp, þó að það sé reyndar hv. þingmönnum sjálfsagt fast í minni, að þessi skattur er þannig á lagður, að gert er ráð fyrir því, að ein milljón í eign sé skattfrjáls, en lagt á það, sem menn eiga þar fram yfir.