07.03.1958
Efri deild: 63. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (556)

100. mál, skattur á stóreignir

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég gat ekki verið viðstaddur, vegna þess að mál var til umræðu, sem ég hafði framsögu fyrir í hv. Nd., þegar þetta mál kom hér fyrst á dagskrá til 1. umr.

Það er ekki ástæða til að halda mikla framsöguræðu fyrir þessu máli. Hér er um frv. til l. um staðfestingu á brbl. að ræða. En þannig er það mál vaxið, að gert var ráð fyrir að ljúka álagningu stóreignaskattsins fyrir áramót, en til þess vannst ekki tími, og var þá með brbl. heimilað að vinna að skattinum fram undir febrúarlok eða ljúka honum fyrir lok febrúar. Þetta var nauðsynlegt vegna vinnunnar, og skattálagningunni varð lokið fyrir þann tíma, og eins og hv. þingmenn vita og áður hefur verið greint frá í Nd., reyndist skatturinn samtals um 135 millj. kr., en á eftir að lækka að sjálfsögðu eitthvað við kærur og leiðréttingar, sem ævinlega koma til greina eftir á.

Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. d., að lokinni þessari 1. umr.