07.03.1958
Efri deild: 63. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (562)

100. mál, skattur á stóreignir

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég skal ekki fara langt út í þetta mál, vegna þess að hv. þm. Vestm. (JJós) er nú búinn með sinn ræðutíma.

Hann var að tala um, að það hefði verið ýmislegt ekki fagurt, sem seðlabankastjóri hefði haft að segja um fjármálaástandið í landinu nú fyrir skömmu, og viðhafði um það nokkur frekar óþingleg orð.

Ég held, að ég hafi á undanförnum mánuðum ekki farið neitt dult með skoðun mína á því, hvernig ástatt væri í fjárhagsmálum landsins, og megi finna því örugg vitni í umræðum einmitt á þessu þingi, að það hef ég gert. Mun ég ekki hafa neitt vægar að orði kveðið í því, sem ég hef greint frá um þau efni, en gert var í þessari ræðu, sem hv. þm. Vestm. getur um. Ég hef yfirleitt ekki lagt það í vana minn að halda nokkru leyndu fyrir hv. Alþingi eða öðrum um ástand fjármála eða þeirra þátta úr ríkis- eða þjóðarbúskapnum, sem mér hefur verið falið að sjá um. Ég mun ekki gera það heldur framvegis, en segja hreinskilnislega, hvernig ástatt er, og ég mun ekki taka illa upp fyrir neinum manni, þó að hann geri hið sama.

Hv. þm. talaði nú um starfsmennina sem þjónustubundna anda, og er það mikil framför frá því, sem hefur áður verið í þessum umr. Má sæmilega við það atriði una.

Hann sagði, að séreignasjóður Skreiðarsamlagsins, sem væri 500 þús. kr. eða eitthvað rúmlega það í bókunum, hefði verið metinn á 3 millj. kr., enda þótt sjóðurinn stæði ekki í neinum fasteignum eða slíkum eignum, heldur í venjulegu rekstrarfé, innstæðum og slíku. Þetta getur ómögulega staðizt. Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur, því að engum getur dottið í hug, að peningaverðmæti hafi verið sexfölduð í mati, því að á þeim fer ekkert mat fram. Á hinn bóginn gat þetta kannske staðizt, ef hér hefði verið um fasteignir að ræða, sem hefðu verið sérstaklega lágt bókaðar, eða aðrar eignir.

Þetta ber vitaskuld að athuga, eins og hv. þm. tók fram, og leiðrétta misskilning, ef um hann er að ræða.

Þá er það dæmið um manninn, sem átti húsið, sem var að gömlu fasteignamati 245 þús. kr., en á nú að greiða, eftir því sem hv. þm. segir, 579 þús. kr. í stóreignaskatt. Það liggur ekkert fyrir um, hve miklar eignir hann á aðrar, auk þess sem það hlýtur þá að vera þannig, að þessi eign hafi verið metin það hátt í nýja fasteignamatinu, að þessi stóreignaskattur grundvallist að einhverju leyti á því. Trúnaðarmenn eiga að gæta þess, að eignin sé ekki ofmetin til móts við aðrar, og ef þetta er lóð, sem hefur verið hækkuð, vegna þess að hún hafi verið talin vaxa í verði á undanförnum árum, þá er hægt að áfrýja matinu á lóðinni til yfirnefndarinnar, sem gert er ráð fyrir í lögunum. En þá liggur engin niðurstaða um þetta fyrir, fyrr en niðurstaðan af þeirri áfrýjun hefur komið fram.

Ég var að segja áðan, að sjálfstæðismenn hefðu gortað af till. sínum í efnahagsmálunum 1950. Ég held, að það sé ekki ofsagt. Hv. þm. sagði, að ég væri líka nokkuð grobbinn, og það má náttúrlega vel vera, að við séum allir dálítið grobbnir, drögum fram það, sem okkur þykir við hafa vel gert. Ég get látið það liggja á milli hluta. Hv. þm. var að kvarta yfir því, að hann hefði verið skammaður fyrir fjármálastjórn sína, löngu eftir að hann var hættur að vera fjmrh. Það er nú víst ekki nema það, sem við verðum að þola, bæði hann og ég og aðrir, að vera skammaðir fyrir það, sem við höfum gert, löngu eftir að það er skeð. Ég sé enga ástæðu til þess, að við séum nokkuð að kvarta yfir því.