14.03.1958
Efri deild: 67. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (569)

100. mál, skattur á stóreignir

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Hv. frsm. fjhn. gerði m.a. athugasemd, um leið og hann gerði grein fyrir frv., sem fyrir liggur, við það, að fjhn. hefði ekki átt þess kost að athuga sérstaklega þær brtt., sem við hv. 6. þm. Reykv, (GTh) höfum lagt til á þskj. 310, sem eru að vísu breyt. á lögunum, en eru þó brtt. í sambandi við þetta frv., er fyrir liggur.

Fjhn.-fundur um þetta mál var haldinn með svo stuttu bili frá deildarfundinum, sem vísaði því til nefndar, að við vorum þá ekki búnir að forma þær brtt. í einstökum atriðum, en boðuðum þó á fundinum, að við hefðum þær, en ekki þannig, að hv. frsm. hefur rétt fyrir sér í því, að n. fjallaði ekki um þær á þeim fundi, sem þetta frv. var tekið til meðferðar á. Við vildum hins vegar ekkert gera til þess að tefja fyrir málinu. Hv. 6. þm. Reykv. og ég skrifuðum því undir nál. eftir tilmælum hv. formanns með fyrirvara. Nú liggja brtt. okkar hér fyrir á þskj. 310, og væri mér og ég hygg ég megi segja það fyrir okkar beggja hönd, flm., mjög kært, að nefndin sem heild fengi tækifæri til að ræða þær, og mundi því fella mig vel við það, að umr. um málið yrði frestað og fjhn. fengi á þann hátt tækifæri til þess utan deildarfundar að ræða þessar till. Hins vegar fór hv. frsm. rétt með það, að till. okkar eru mildandi á hin geigvænlegu áhrif stóreignaskattsins, eins og þau stefna að, að verða með löggjöfinni, sem allir þekkja nú orðið, og eru þess vegna í beinu framhaldi af því, sem ég tók fram við 1. umr. málsins, að þörf væri að milda ákvæði þess, a.m.k. væri þörf á því að milda ákvæði laganna, til þess að þau yrðu ekki skattgreiðendum allt of þung í skauti.

Ég hef, að því leyti sem marger eru nú farnir að sjá fram á og kannske hæstv. ríkisstj. líka, sérstaklega fyrir augum mér þau áhrif, sem lögin óneitanlega hafa á atvinnurekstur landsmanna og þá ekki sízt þann atvinnureksturinn, sem stendur undir svo að segja allri gjaldeyrisöflun þjóðarinnar, sjávarútveginn. Auðvitað, að því leyti sem þessi skattheimta, sem ég vildi kalla skattarán, lendir á landbúnaðinum, þá vitaskuld hefur hún sömu lamandi áhrif á getu þeirra atvinnurekenda, sem þar starfa, til að standa undir rekstri framvegis og halda uppi atvinnurekstri á sínu sviði, sem veitir fólki í landinu vinnu, fólki á ýmsum aldri, eins og á sér stað við sjávarútveginn.

Nú er það svo, að þegar þessi lög voru lögð á, voru margir, sem gátu sér þess til, að þau mundu koma illa við stóratvinnurekstur við sjóinn og þar af leiðandi illa við það fólk, sem á atvinnu sína undir þeim rekstri. Hæstv. ríkisstj. virtist ekki vera á sama máli og lét í veðri vaka, að þessum skatti væri ætlað að lenda á allt öðrum borgurum þjóðfélagsins. Ég held, að það sé allmargra manna mál nú, að sú byrði, sem með stóreignaskattinum er lögð einmitt á sjávarútveginn, sé of þung og horfi óvænlega fyrir mörgum, sem þar starfa, annaðhvort að sjálfum fiskveiðunum eða þá að vinnslu úr fiskafurðunum, ef ekkert er gert til að lina þessi lamandi áhrif, sem stóreignaskattsfrumvarpið hefur á þann atvinnuveg. Það má minna á það, að í einni þingræðu sinni um einmitt þetta atriði fórust hæstv. fjmrh. þannig orð, — hann var að koma mönnum í skilning um það, að sjávarútvegurinn yrði minnst fyrir barðinu á stóreignaskattinum, — þar segir hann; það hefur víst verið við 3. umr. málsins:

„Einnig vil ég í því sambandi benda á, að því miður er því nú þannig farið, ég segi, — ég segi og legg áherzlu á: því miður er þannig ástatt hjá okkur, að þeir, sem hafa fyrst og fremst stundað undirstöðuatvinnuvegi landsmanna eða þá atvinnuvegi, sem þjóðin á mest undir, þ.e.a.s. framleiðsluatvinnuvegina, hafa ekki safnað stóreignum eða grætt á því verðbyltingarástandi, sem hér hefur verið nú áratugum saman. Því miður eru það ekki þeir, sem eiga stóru eignirnar, og þess vegna kemur þetta minnst niður á þeim mönnum.“

Nú er það þannig, að í mörgum tilfellum eru það einmitt stóriðjufyrirtæki við sjóinn og ýmsir útvegsmenn, sem eiga eignir, sem stóreignaskatturinn gerir sér að mat á þann herfilega hátt, sem hæstv. ráðh. lét meta eignir og skip. Ekki hvað sízt þess vegna hefur okkur flm. brtt. á þskj. 310 virzt um frádrátt - eða hvað það væri kallað í lögunum — á matsverði frystihúsa, sláturhúsa og annarra húseigna, sem notaðar eru fyrir vinnslustöðvar sjávarafurða og landbúnaðarafurða og lögin leyfa að 20% séu dregin frá matsverði, að þar förum við fram á, að þessi frádráttur sé nokkuð hækkaður, eða upp í 30%.

Þarna er tillit tekið bæði til landbúnaðar og sjávarútvegs í þeirri upptalningu, sem hér ræðir um í lagagreininni, og við vitaskuld tökum tillit til hvors tveggja atvinnuvegarins í okkar brtt., eins og hún er orðuð.

Þá er næsti stafliður brtt., stafliður b, – þessar brtt. eru við 2. gr. laganna, — að í stað 40% í 1. málsl. 1. málsgr. 2. tölul. í lögunum komi 60%, og er þar að ræða um fiskiskip, sem allir vita að nú eru í mjög háu mati, eins og skip eru líka af öðru tagi.

Þá er c-liðurinn, sem víkur að 25% frádráttarleyfinu í lögunum og á við önnur skip, en fiskiskip, og lögin leyfa, að vátryggingarverðið megi frá dragast með 25%, en lagt er til, að þar megi koma 40%. — Önnur skip, en fiskiskip eru m.a. og aðallega flutningaskip, og flutningaskipin hafa sennilega mestar tekjur sínar af flutningi á bæði landbúnaðarafurðum og sjávarafurðum og þó meira af sjávarafurðum, og eftir því sem slíkum skipakosti landsmanna er meira íþyngt með sköttum, hvort sem er um stóreignaskatt eða aðra að ræða, því verri aðstöðu hafa flutningaskipin á sjávarútvegsvörunum og landbúnaðarafurðunum til að inna af hendi þá þjónustu fyrir landsfólkið og fyrir þessa atvinnuvegi, sem þörf er á.

Þá er stafliður d, sem á við flugvélar. Lögin leyfa, að frá vátryggingarverði þeirra megi draga 40%. Við flm. að brtt. leggjum til hér á þessu þskj., að í stað 40% frádráttar á þessu sviði komi 60%. Flugvélarnar flytja að vísu hvorki fisk né landbúnaðarafurðir, en þær eru stórt tæki til þjónustu allra atvinnuvega landsmanna, og það horfir nú svo við hér á landi, þó að undarlegt megi þykja, að einmitt þær fá engan styrk frá ríkissjóði til sinna samgöngubóta, og er þess vegna engu síður ástæða til þess að gera þeim færara að standa undir stóreignaskattinum, en öðrum flutningatækjum.

Allir þessir skattar, sem birtast í sama formi og stóreignaskatturinn birtist nú, gera það vitaskuld að verkum að íþyngja þeim, sem greiða eiga. Og um leið og þeim er íþyngt, sem greiða eiga þessa skatta, en hafa samtímis á hendi mikilsverða þjónustu fyrir fólkið í landinu, er það óbein álagning á einstaklingana, sem í einhverju formi verða að standa undir þessum skatti í gegnum hærri fargjöld eða farmgjöld o.s.frv.

Við 3. gr. laganna leggjum við til hér í brtt. undir tölul. 2, að í stað 10 ára afborgana af væntanlegum skuldabréfum eða hugsanlegum skuldabréfum fyrir þessum skatti og ársvaxta af þeim 6%, eins og stendur í lögunum, verði greiðslan látin ná yfir 20 ár án vaxta. Það kann að þykja nokkuð stórt orð Hákot að nefna 20 ára gjaldfrest á stóru skuldabréfi án vaxta, en lögin ganga líka svo hart til verks í þessu efni, að þau gera mönnum þar að greiða 6% vexti af slíkum skuldabréfum, sem í flestum tilfellum greiða, t.d. eins og útgerðarmenn af sínum lánum, bönkunum miklu lægri vexti, jafnvel niður í 4% hjá sumum sjóðum, sem þeir hafa lán frá.

Stóreignaskatturinn er krafinn af ríkisvaldinu samkvæmt þessum lögum sem liður í öðrum efnahagsráðstöfunum, sem ríkisstj. hefur enn ekki látið sjá framan í. Stóreignaskatturinn hefur því að mínum dómi og margra annarra alls ekki þann kröfurétt siðferðislega skoðað á borgarana í landinu eins og væri um venjulega skuld að ræða, þar sem eitthvað hefur komið fyrir í aðra hönd. Það verður, að því er ég hygg, í mörgu falli, eftir því sem mér hefur verið tjáð um stóreignaskattinn, alveg nægilega þung byrði fyrir þá, sem standa undir honum og í flestum tilfellum bera byrðar gamla stóreignaskattsins þegar á herðum sér að auki, að eiga að gjalda afborganir, þótt á tuttugu árum sé, af þeim stóru upphæðum, sem þar er um að ræða, þótt ekki sé líka verið að krefjast vaxta. Það er harka í þessari skuldheimtu, vaxtakrafa í þeim tilfellum, sem fyrir kunna að liggja, — það er harka, sem Alþingi á ekki að álíta að sé samboðin. Á þessu viljum við ráða bót, hv. 6. þm. Reykv. og ég, með till. okkar nr. 2 við 6. gr. laganna, sem ég hef þegar lýst.

Till. okkar undir 3. tölul. um frádráttarhæfni stóreignaskattsins, sem hv. frsm. n. líka minntist á, óskast tekin aftur til 3. umr., ekki vegna hugsunarinnar, sem til grundvallar liggur, heldur vegna þess, að það getur verið, að við orðum hana á annan veg. En ég vildi biðja hæstv. forseta að minnast þess, að hún er tekin aftur til 3. umr.

Við 1. umr. þessa máls átti ég nokkur orðaskipti við hæstv. fjmrh. út af stóreignaskattinum yfir höfuð. Ég skal ekki fara að endurtaka það, sem ég þá sagði, en mitt álit stendur óhaggað um þessa skattheimtu. Ég hverf engan veg frá þeim grundvallaratriðum, sem þar komu fram. En hæstv. ráðh. var mjög að halda því fram, að Sjálfstfl. hefði með Framsfl. 1950 sett lög um stóreignaskatt, sem ég held að hann hafi sagt að við depluðum ekki auga við eða eitthvað því um líkt, hefðum ekkert að fundið, þó að ég væri með þessar aths. við þennan nýja stóreignaskatt.

Ég held, eftir því sem ég hef hugsað það mál nánar, síðan við höfðum þessar umr., að það sé alveg fráleitt að bera saman stóreignaskattinn, sem settur var árið 1950, við þann stóreignaskatt, sem samþ. var á síðasta þingi og hæstv. fjmrh. var að réttlæta, enda mun eiga mestan þátt i, vegna þess að þá var stóreignaskatturinn, þegar hann var settur á 1950, einn liður í margháttuðum róttækum ráðstöfunum til þess að rétta við atvinnulífið og var lagður fyrir Alþingi sem slíkur. Það var opinbert, þegar hann var lagður fram á Alþingi, að það var lagt til, að það yrði lögtekið gengisfall, sem ég held að sé óhætt að segja að hafi verið um 74%, sem krónan var felld, með öðrum ráðstöfunum, sem líka voru taldar upp í því frv., og í því sambandi var þessi stóreignaskattur þá lagður á. En hér er allt öðru máli að gegna. Þær ástæður, sem lágu fyrir 1950, lágu ekki fyrir, þegar lögtekinn var stóreignaskatturinn frá 1957. Það er, eins og ég sagði þá, að hann er það eina 1957 af því, sem kemur fram í dagsins ljós af hinum margumtöluðu og marglofuðu efnahagsviðreisnartill., sem stjórnin þóttist ætla að leggja fram, en ekki hafa enn þá séð dagsins ljós.

Ég mótmæli því gersamlega í annað sinn, að sá stóreignaskattur sé sambærilegur í því formi, sem hann birtist, og í þeirri umgerð, sem hann birtist, við stóreignaskattinn frá 1957, sem er hreint og klárt eignarnám af eignum þeirra, sem hæstv. ráðh. telur að séu svo efnaðir, að þeir geti borgað hann, og hann víkur víst að í þessari sinni ræðu, sem ég vitnaði í, þegar hann var að gera það trúlegt hér í þinginu, að sá skattur, skatturinn 1957, mundi ekki lenda á þeim, sem hefðu stóran atvinnurekstur undir höndum eða hefðu stóreignir.

Hæstv. ráðh. greinir ekki í þessari sinni þingræðu, hverjir það beinlínis eru, hvaða flokkur manna það er, sem hann álítur að stóreignaskatturinn eigi að lenda á. En þegar lesin er ofan í kjölinn þessi hans aths. við skattinn í þessu sambandi, verður manni á að ætla, að það sé einhver sérstakur tilgangur með því eða hafi vakað fyrir hæstv. ráðh. alveg sérstakur tilgangur að ná inn skatti hjá þeim, sem safnað hafa eignum. Það vill segja, að það eru ekki þeir, sem ekkert eiga, sem hann ætlast til að borgi þennan skatt, enda gefur auga leið, að það verður eitthvað að vera, en það er einhver viss hópur manna í landinu, sennilega sjálfstæðir atvinnurekendur og sjálfstæðir borgarar, sem honum er illa við að séu of fjársterkir, og þeir þurfi að verða fyrir barðinu á þessum skatti.

Hvers konar siðgæði það er í stjórnmálum að vega þannig að einhverjum sérstökum hóp manna, skal ég að þessu sinni ekki leggja dóm á. En það virðist hafa vakað fyrir hæstv. ráðh., að það væri einhver eignamannahópur hér í landinu, sem þyrfti að ná sér niðri á, á þennan hátt, hvernig sem það verður nú í framkvæmdinni, því að í framkvæmdinni kemur það þannig út, að í staðinn fyrir að það var látið í veðri vaka, að skatturinn mundi ekki hitta aðalatvinnurekendurna, þá er það þannig, að það er sýnilegt af ótalmörgum dæmum, bæði sem ég sýndi hér fram á, á dögunum og hægt er enn að leggja rök að, að þessi skattkrafa bæði lendir á þeim, sem hafa mikinn rekstur og mikið umleikis, skip og hús til þess, og um leið veikir mátt þeirra, til þess að standa fyrir atvinnu fjöldans. Það er þó, að ég hygg, orðið nokkuð ljóst og viðurkennt af flestöllum í landinu nema þeim, sem hafa svipaðan hugsunarhátt og kommúnistar, að þeir, sem standa fyrir miklum atvinnurekstri og hafa mikið umleikis, hvort sem er til lands eða sjós, eru að vissu leyti hornsteinar atvinnulífsins í landinu. Og mesta trygging, sem fólk hefur fyrir því, að atvinnuleysi skelli ekki á, er einmitt það, að til séu þrekmiklir athafnamenn í landinu, sem fást til að leggja nafn sitt við að reka stórrekstur eða þó að hann sé ekki mjög stór, hann er ekki alltaf stór, þó að hann veiti mörgum atvinnu. Ég hef t.d. fyrir mitt leyti staðið í því í tugi ára að hafa atvinnurekstur til sjávarins með höndum, þ.e. verið meðeigandi í félagi, sem barðist alltaf í bökkum með sína eigin afkomu, en veitti atvinnu tugum og jafnvel hundruðum manna á hverju ári víðs vegar að af landinu, — það var þegar ég átti heima í Vestmannaeyjum, — svo að ég veit vel, að þótt atvinnurekandi hafi mikið umleikis, geri marga báta út og eigi mörg hús, þá er ekki þar með sagt, að hann græði svo mikið á því sjálfur. En hann hefur í flestum tilfellum þá aðstöðu að standa undir lífsafkomu fjölda manna sér óviðkomandi.

Ég veit nú ekki, hvernig hæstv. ráðh. hefur lagt fyrir sína starfsmenn að skilgreina, hvað undir sjávarútveg heyrði í þessu sambandi. En þar sem í stóreignaskattslögunum er talað um matsverð frystihúsa og annarra húseigna, sem notaðar eru fyrir vinnslustöðvar sjávarafurða og landbúnaðarafurða, að frá matsverðinu megi draga 20%, sem við viljum nú í þessari brtt. okkar hækka upp í 30%, hvað eru í þeirri skilgreiningu, vinnslustöðvar sjávarútvegsins? Útgerðarstöðvarnar sjálfar þarf vitaskuld ekki að skilgreina, það vita allir, að togaraútgerð og vélbátaútgerð kemur þar til greina og hraðfrysting, skreiðarvinnsla, saltfiskvinnsla, lifrarbræðsla og lýsisvinnsla eða þeir, sem fyrir henni standa, síldarsöltun og síldarbræðsla, hvalvinnsla, enn fremur niðursuða á sjávarafurðum. Þetta allt a.m.k. vil ég að sé látið heyra undir vinnslustöðvar sjávarútvegsins. Ég er ekki svo kunnugur landbúnaðinum, að ég vilji fara út í ýtarlega upptalningu á hans vinnslustöðvum. En ég tel, að allt, sem sambærilegt er eða hliðstætt er hvað hann snertir, eigi vitaskuld líka að vera talið með. Þetta er ekki talið upp hér í lögunum, og við höfum ekki, hv. meðflm. minn og ég, farið út í að telja það upp í brtt., en ég vildi láta það koma hér fram við þessar umræður, að við álítum, að þessar vinnslustöðvar, bæði á fiski og síld og öðru o.s.frv., heyri allt undir vinnslustöðvar sjávarútvegsins.

Ég hafði talað um það hérna á dögunum við hæstv. ráðh., að mér virtist, að skattskrá yfir gjaldendur stóreignaskattsins ætti að liggja frammi eða vera meðfarin ekki heimullega, og mér fannst hann að vissu leyti fallast á það. Og þar sem ég veit, að nú eru á ferðinni og liggja sjálfsagt á borði hæstv. ráðh. tilmæli frá mörgum félagssamtökum hér á landi, bæði í framleiðslu sjávarafurða og iðnaði og öðru, um að fá aðgang, jafnvel takmarkaðan, að þessum skrám eða á hverja stóreignaskatturinn kemur, og mér fannst satt að segja, að hæstv. ráðh. virtist vilja ljá máls á því, hef ég ekki farið að koma með það fram í sérstakri brtt. eða freista þess að fá það knúið fram hér á þingi að þessu sinni, af því að ég geri ráð fyrir, að hæstv. ráðh. muni sinna þeim málaleitunum á þessu sviði, sem koma frá aðilum, sem hlut eiga að máli, þó að utan þings sé, eins liðlega og hann virtist þó taka í þetta mál hér við 1. umr.

Það er gefið mál, að ef ætti á þessari löggjöf, stóreignaskattinum, lögum um stóreignaskatt frá 1957, að gera verulega bragarbót, þá þyrfti miklu svipmeiri brtt. og áhrifaríkari, en ég að þessu sinni ásamt hv. 6. þm. Reykv. legg til. Það væri t.d. full ástæða til að taka til athugunar, hvort þessi lög um stóreignaskattinn ættu ekki hreinlega að takast til endurskoðunar innan skamms tíma, ef ekki afnemast með öllu. En ég hef viljað fara hóflega í þetta mál á þessu stigi, og því höfum við báðir flutningsmenn takmarkað okkur við þær till. að þessu sinni, sem eru á þskj. 310, en áskiljum okkur rétt til að koma fram með frekari brtt. við 3. umr., eins og ég líka tók fram, að 3. brtt. á þessu þskj. er tekin aftur til 3. umr., eins og ég vona að hæstv. forseti hafi athugað.

Ég held, að ég hafi reynt að skýra þetta eins og ég hef bezt vit á. Það kann að vera, að mín

fákunnátta á þessum lögum sé miklu meiri heldur en hæstv. ráðh. um daginn vildi gefa í skyn og að mér hafi margt yfirsézt, sem þyrfti að bæta úr. En heildartilgangurinn er sá að gera höggið, sem hæstv. ríkisstj. reiðir að atvinnuvegunum með stóreignaskattslögunum, mildara eða léttara, en ekki eins hart og lögin virðast vera nú og framkvæmd þeirra hlýtur að verða að þeim óbreyttum, — draga úr högginu með öðrum orðum. Og ég vonast til, að hv. d. geti fallizt á að gera það, þannig að stóreignaskatturinn verði ekki eins óviðráðanlegur mörgum einstaklingum og lögin nú gera ráð fyrir.

Ég vil svo að lokum mælast til þess við hæstv. forseta, ef hann sæi sér það fært, að þessari umr. væri frestað og hv. fjhn. d. gefið tækifæri til að halda þótt ekki væri nema einn fund um brtt. okkar hv. 6. þm. Reykv., áður en þær koma hér til atkv. í þetta sinn.

Ég skal svo, áður en ég sezt niður aftur, leyfa mér að minna bæði hæstv. valdhafa í þessu landi og hv. deildarmenn á það, að af hálfu fjmrh. var afar mikið við 1. umr. málsins vitnað í löggjöfina, hvernig hún hefði verið sett og samþ., að ég held okkur væri hollt öllum að hafa í huga hið gamla spakmæli, að með lögum skal land byggja, en með ólögum eyða.