14.03.1958
Efri deild: 67. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (570)

100. mál, skattur á stóreignir

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls beindi hv. þm. Vestm. nokkrum fsp. til hæstv. fjmrh. Meðal annars spurði hv. þm. um það, hvort þessi skattur og þá að hve miklu leyti kæmi niður á atvinnuvegunum. Hæstv. ráðh. hafði ekki gögn í hendi, að hann gæti gefið upplýsingar um þetta. Var það í raun og veru skiljanlegt, vegna þess að hann vissi ekki fyrir fram, að þessi fsp. og fleiri reyndar kæmu fram. En það er augljóst mál, að það skiptir ákaflega miklu, hvort það er svo, að stóreignaskatturinn komi niður á atvinnuvegunum. Ég veit ekki, hvort hv. fjhn. hefur kynnt sér þetta. Vissulega bar henni að gera það, og ef hún hefur ekki gert það hingað til, þá vænti ég, að hún geri það á milli umr. að minnsta kosti, og ég vænti þess þá, að hv. n. upplýsi d. um þetta atriði. Sé það svo, sem vissulega leikur sterkur grunur á og er reyndar að nokkru leyti upplýst af hv. þm. Vestm., að stóreignaskatturinn komi þungt niður á atvinnuvegunum, þá er vissulega þörfin brýn að milda innheimtu skattsins, og þá eiga þær till., sem tveir hv. dm., minni hl. í fjhn., flytja á þskj. 310, fyllsta rétt á sér.

Það væri æskilegt, ef fjhn. vildi kynna sér þetta mál rækilega og reyna, hvort ekki er hægt að Komast að samkomulagi um að milda innheimtu skattsins, svo að hann lendi ekki harkalega á atvinnuvegunum, því að það er augljóst mál, að það mundi bitna mjög á allri efnahagsafkomu þjóðarinnar.

Það var aðeins þetta, og vegna þess að n. ætlar að athuga þessar till. hv. þm. Vestm. og 6. þm. Reykv., sem ég vildi að þessi fáu orð, sem ég segi, kæmu fram, áður en n, kemur saman, og að hún vildi kynna sér þetta atriði.