21.03.1958
Efri deild: 71. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (572)

100. mál, skattur á stóreignir

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Samkvæmt ákvörðun forseta og d. við upphaf þessarar umræðu var henni frestað með tilliti til þess, að n. allri hafði ekki gefizt kostur á að ræða þær brtt., sem þá hafði nýlega verið útbýtt á þskj. 310. Í skemmstu máli sagt hefur n. nú yfirfarið þessar brtt., og hefur meiri hl. n., þ.e.a.s. við aðrir nm. en hv. flm. þeirra brtt., sem á þskj. 310 eru, ekki getað fallizt á þær brtt., sem þar eru fram bornar, og vísum m.a. til þess, að það er svo skammt um liðið, síðan Alþingi ákvað þennan skatt í því formi, sem hann nú er, að enn þá hafa ekki komið fram nægjanleg rök til þess að gera þær breytingar, sem flm. brtt. fara fram á, á þessu téða þskj.

Ég held, að það sé ekki þörf á því, að ég reki brtt. í einstökum atriðum, en þetta er sem sagt álit meiri hl. n., þ.e. annarra, en flm. brtt. Þeir geta ekki á þær fallizt af þeim sökum, sem ég áður nefndi.

Hv. þm. V-Sk. hafði við lok fyrri hluta þessarar umr. óskað eftir því, að fjhn. aflaði sér upplýsinga um, hvernig skatturinn kæmi til með að koma niður á einstökum atvinnuvegum. Formanni n., hv. 1. þm. Eyf., var falið að leita eftir svörum um þetta efni, m.a. hjá skattstjóranum í Rvík. Svar frá honum hefur svo nýlega borizt, að ekki var unnt að leggja það fyrir nefndina á sínum tíma, og tel ég því rétt að lesa það svar hans, sem er þá jafnframt svar við fsp. hv. þm. V-Sk. Með leyfi forseta, er bréf skattstjóra á þessa leið:

„Fjárhagsnefnd efri deildar Alþingis hefur spurzt fyrir um það, hvernig skattur á stóreignir hafi komið niður á einstaka atvinnuvegi, sérstaklega hvað fyrirtækjum sjávarútvegsins væri gert að greiða.

Í þessu sambandi vil ég benda á:

1) Þar sem ekki er vitað, hvort eða að hve miklu leyti hin einstöku félög notfæra sér heimildina til að endurkrefja meðlimi sína um skattinn, er ógerningur að gera slíka sundurliðun, er á mætti byggja.

2) Enda þótt sá hængur væri eigi á málinu, er það hins vegar svo, að mjög verulegur hluti þeirra félaga og einstaklinga, sem greiða skattinn af stóreignum, stundar margþættan atvinnurekstur, þannig að oft er ógerningur að ákveða, hvernig flokka beri eftir atvinnugreinum skattgjöld einstakra gjaldenda. Slík sundurliðun sem hér er farið fram á yrði alltaf næsta handahófskennd, jafnvel þótt lögð væri í hana mikil vinna.

3) Þá er og sýnt, að skattálagning þessi muni taka allmiklum breytingum við kærur, en kærufrestur stendur nú yfir.

4) Margs konar félagssamtök og fleiri aðilar hafa farið þess á leit við skattstofuna að fá ýmiss konar upplýsingar og sundurliðanir í sambandi við álagningu skatts á stóreignir. Eins og kunnugt er, eru reglurnar við álagningu skattsins á þá lund, að upplýsingar um skattgreiðslur og skiptingu skattsins geta gefið nánari eða víðtækari upplýsingar um efnahag einstaklinga og félaga, heldur en nokkur önnur skattlagning. Hefur því skattstofan tekið þá afstöðu að hliðra sér hjá að gefa upplýsingar um þessi mál, enda vandséð, hvar eigi að draga mörkin, hverjar upplýsingar eigi að gefa og hverjar ekki.

Með skírskotun til framanritaðs teldi ég æskilegast, að fjhn. vildi falla frá þessari beiðni sinni, a.m.k. fresta henni á þessu stigi málsins.

Virðingarfyllst,

Halldór Sigfússon.“

Eins og ég sagði í upphafi máls míns varðandi þær brtt., sem hv. þm. Vestm. og hv. 6. þm. Reykv. hafa lagt fram á þskj. 310, hefur meiri hl. n. ekki getað á þær fallizt og leggur því til, að þær verði felldar, með því, eins og ég áðan sagði, að svo skammt er um liðið, síðan Alþ. ákvað að leggja þennan stóreignaskatt á, í því formi, sem lögin ákveða, og ekki hafi enn þá sýnt sig þær ástæður, sem geri þessar breytingar nauðsynlegar. Meiri hl. n. leggur því til, að téðar brtt. verði felldar.