21.03.1958
Efri deild: 71. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (577)
100. mál, skattur á stóreignir
Frsm. (Eggert Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég tel nú ekki þörf á því að ræða málið frá þeirri hlið, sem hv. stuðningsmenn þeirra brtt., sem lagðar voru fram á þskj. 310, hafa rætt málið, því að það eru umræður um mál, sem afgreitt var héðan á síðasta þingi, og tel ekki þörf á að blanda mér inn í þær umræður.
En það var aðeins örstutt aths. til hv. þm. Vestm. (JJós), sem ég vildi koma hér á framfæri. Ég held, að það sé rangminni hans, að hv. form, fjhn., 1. þm. Eyf. (BSt), hafi lýst því yfir, að það hafi verið ákvörðun einhvers sérstaks flokks um það að standa gegn þessum brtt. Hitt mun hann hafa sagt, að það hafi verið samkomulag stjórnarflokkanna um þetta mál í upphafi og þeirri afstöðu hefði enn ekki verið breytt. Sjálfum er mér kunnugt um, að ríkisstj. hefur nú rætt þetta mál að nýju, þá sennilega m.a. með tilliti til þessara brtt., og hefur ákveðið að fallast ekki á þær. Þetta mun og hafa verið megininnihald, að því er mig minnir bezt, í svörum formanns nefndarinnar við spurningu flm. um, hverjir stæðu í vegi fyrir því, að slíkar tillögur gætu orðið samþykktar.
Ég vil aðeins leiðrétta þetta hér, vegna þess að hv. þm. Vestm. vék að þessu sérstaklega.
Ég ítreka það svo, að meginhluti umræðna um þetta frv., sem er einungis um að gefa lengri frest til álagningar skattsins, hefur snúizt um lögin sjálf, þ.e.a.s. framhald á þeim umr., sem voru um málið hér á síðasta hv. Alþ., þegar lögin voru samþykkt. Ég tel ekki þörf á því, eins og ég áðan sagði, að blanda mér inn í þær umr.; það tel ég vera afgreitt mál. Þó að það sé hins vegar, eins og hér hefur verið lýst yfir, í alla staði þinglegt að ræða það, eins og hv. flm. hafa gert, þá tel ég mér sem frsm. þessa frv. ekki nauðdynlegt að svara í einstökum atriðum þeim umræðum.