25.03.1958
Efri deild: 73. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í B-deild Alþingistíðinda. (593)

100. mál, skattur á stóreignir

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Út af ummælum hv. þm. Vestm, um það, að þetta síðara bréf skattstjórans, þar sem segir, að það væri ómögulegt, a.m.k. á þessu stigi, að reikna það út, hvernig stóreignaskatturinn kæmi niður á einstaka atvinnuvegi, afsannaði fullyrðingar hæstv. ríkisstj. um það, að skatturinn kæmi ekki með þunga niður á sjávarútveginum, vil ég segja það, að ég sé ekki, að þetta bréf skattstjórans afsanni neitt í þessu efni eða sanni neitt. Hann segir, að það sé ekki hægt, a.m.k. á þessu stigi málsins, að segja um það, hvernig skatturinn komi niður á einstaka atvinnuvegi. Það þýðir ekki, að hann komi með sérstökum þunga niður á sjávarútveginum. Það veit enginn um þetta fyrir víst.

Hafi þessi orð, sem hv. þm. tilfærði eftir hæstv. ríkisstj., fallið frá henni, sem ég man nú ekki eftir, þá hefur hún vitanlega byggt á því almenna ástandi, að fyrirtæki sjávarútvegsins hafa alltaf verið að bera sig upp og biðja um hjálp, og ég geri þá ráð fyrir, að ríkisstj. hafi litið svo á, að þau fyrirtæki væru ekki þannig, eða fæst af þeim, að þau kæmu undir stóreignaskatt.

Viðvíkjandi því, að ríkisstj. hafi tekið þessar till. til meðferðar, — og segir hann, að hv. frsm. n. hafi lýst því yfir, — þá verð ég að segja það, að ég veit ekkert til þess. Ég veit ekkert til þess, að ríkisstj. hafi tekið þessar till. til sérstakrar meðferðar. Það má vel vera, en ég veit ekki til þess. Og ég verð enn að leiðrétta það, sem hann hafði eftir mér í þessu efni, þó að ég gerði það síðast, þegar þetta mál var til umræðu. Ég lét aldrei orð falla um það, að ekki mætti breyta staf, vegna þess að það væri samið svo um í ríkisstj., að það mætti ekki, heldur hitt, og það var það, sem ég sagði á nefndarfundinum, að þessi lög væru sett samkvæmt samningum stjórnarflokkanna og það hefði komið fram í mínum flokki, að ekki væri heiðarlegt að breyta þessum lögum, nema samkomulag yrði um það milli sömu flokka og lögin settu, og þetta er töluvert annað. Það er engin fullyrðing um það, að ekki geti komið til mála að breyta þessum lögum, eins og hverjum öðrum lögum. En meðan þessi stjórn er, verður það að vera í samráði á milli stjórnarflokkanna, ef slíkt er gert, og slíkt samráð hefur ekki verið haft, mér vitanlega. Það kann að vera, að hv. frsm. n. viti nánar um það, að stjórnin hafi tekið þetta sérstaklega fyrir, en ég veit ekki til þess á neinn hátt.

Ég verð enn að halda við það, að mér finnst það tæplega ómaksins vert fyrir menn, sem halda því fram, að lög séu stjórnarskrárbrot, að vera þá að bera fram till. um breytingar á þeim lögum.

Hv. þm. talaði um það, að þar sem ofbeldi væri beitt, þar reyndu menn að rísa gegn því. Hér er nú þannig þjóðskipulag í okkar þjóðfélagi, að dómstólarnir eru óháðir, og ef þetta er stjórnarskrárbrot, eins og hv. þm. heldur fram, þá er það dómstólanna að fjalla um það. Og ef þeir dæma það, að lögin komi í bága við stjórnarskrána, þá falla öll lögin úr gildi, og hv. þm. hefur beinlínis staðhæft, að þetta kæmi í bága við stjórnarskrána. Ég sé ekki satt að segja, hvaða þýðingu það hefur frá hans sjónarmiði, að bera fram breytingar við þau lög, sem hann fullyrðir að komi í bága við stjórnarskrána, því að ef hann hefur rétt fyrir sér í því, þá hljóta lögin að verða dæmd ógild.