27.03.1958
Efri deild: 74. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (605)

100. mál, skattur á stóreignir

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr., en ég get ekki neitað því, að mér finnst meðferð málsins í heild hér í hv. d. vera ákaflega leiðinleg og lítt sæmandi. Það er ekki þetta frv., sem hérna liggur fyrir, sem máli skiptir, því að það er lítið mál. Það eru tengsli þessa frv. við það stóra mál, sem hér var afgr. á síðasta þingi, sem hafa orsakað það, að deildarmenn ýmsir hafa rætt málið í heild.

Við 1. umr. málsins beindi hv. þm. Vestm. (JJós) fyrirspurn til hæstv. ráðh. varðandi stóreignaskattinn, sem nú er álagður, hvernig hann kæmi niður á atvinnuvegunum og þó sérstaklega sjávarútveginum. Ekki var annað að heyra á hæstv. ráðh. en honum sýndist þessi fsp. eðlileg og réttmæt, en hann sagðist ekki hafa gögn í hendi til þess að svara, þar eð hann hefði ekki vitað, áður en hann kom inn í d., um hvað yrði spurt. Þetta voru hans orð, og var ekki á honum nokkur hlutur að heyra í þá átt, að neitt væri því til fyrirstöðu að fá þessar upplýsingar. Síðan var farið fram á það við hv. fjhn. þessarar d., að hún aflaði þessara upplýsinga, og hv. form. n., hæstv. forseti þessarar deildar, sneri sér bréflega til skattstjóra og óskaði eftir upplýsingunum. Við vitum nú, hvernig það tókst. Svar skattstjóra var ekkert annað, en útúrsnúningar og vífilengjur og ekkert upplýst um sjálft málið, sem spurt var um.

Hæstv. forseti sagði hér fyrr við umr., að hann gæti ekki að þessu gert, því að hann hefði ekkert vald til þess að fyrirskipa þessum embættismanni að gefa umbeðnar upplýsingar. Látum það vera að þetta kunni rétt að vera. En hæstv. forseti gat þá snúið sér beint til yfirmanns þessa embættismanns, fjmrh., og óskað eftir, að hann fyrirskipaði honum að gefa hinar umbeðnu upplýsingar. Þá gat embættismaðurinn alls ekki neitað. Það var ekki hægt. Og ég tel það í raun og veru fullkomið hneyksli, þegar um þetta hefur verið spurt svo ýtarlega í d. og óskað margsinnis þessara upplýsinga, að d. sinni því engu og láti málið frá sér fara án þess nokkuð að fá vitneskju um þetta atriði.

Hv. minni hl. fjhn. leggur fram tillögur enn á ný til þess að reyna að freista þess, hvort d. vilji ekki líta á þær ástæður, sem þeir nm. hafa margsinnis borið fram, að nauðsynlegt sé að milda innheimtu skattsins. En meiri hl. ber höfðinu við steininn og segir: Ég held, að ekki sé þörf neinnar leiðréttingar; skatturinn verður að hafa sinn gang. — En ef hv. d. hefði tekið þessu skynsamlega, þá er ekki ósennilegt, að það hefði verið losnað við æðimörg mál í sambandi við þetta mál, þennan stóreignaskatt. Ég er sannfærður um, að þau eiga eftir að verða mörg og flókin. Og ég er sannfærður um það líka, að stóreignaskattur, eins og þar er í pottinn búið, er ekki skattur í eðlilegri merkingu, heldur fullkomið eignarnám án bóta og þar af leiðandi brot á stjórnarskránni.

Það er ekki venjan í skattheimtu að segja: Þá verður að meta lóðina hjá Páli sérstaklega og Pétri sérstaklega. — Það verður að meta báðar þessar lóðir nákvæmlega á sama hátt undir almenna skattheimtu, en ekki á hinn mátann, eins og hér er gert. Alveg sama er um hlutabréfin. Sé búið til eitthvert mat af handahófi og sagt, að það eigi að vera grundvöllur skatts, þá tel ég það ekki hægt. En það þýðir ekki að deila um það hér, því að það verða dómstólarnir vafalaust látnir skera úr um.

En það er leiðinlegt, segi ég enn, að hv. d. hefur ekki viljað líta við neinni lagfæringu á lögunum, ekki viljað neitt milda innheimtuna. En það hefði vafalaust orðið til þess, að menn hefðu getað betur sætt sig við skattinn og unað honum betur, ef það hefði mátt dreifa honum t.d. á 20 ár, eins og farið var fram á í till, hv. tveggja þm. í fjárhagsnefnd og eins nú. En það er sýnilegt, að það er dautt mál um þetta að tala. Þykir mér þetta mjög miður, því að ef við hefðum frestað fundi, við skulum segja til kl. 5, hefði n. verið búin að taka ákvarðanir um þessar till. og við allir getað mætt hér í d. í atkvgr.