07.02.1958
Efri deild: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í B-deild Alþingistíðinda. (610)

97. mál, réttur verkafólks

Björn Jónsson:

Herra forseti. Verkamenn munu vera sú starfsstétt, sem á ýmsan hátt býr við minnst öryggi um afkomu sína, og eru ástæður til þess margar, m.a. þær, að vinna þeirra er háðari árstíðum og veðráttu, en annarra manna, og þær, að störfin krefjast yfirleitt ekki sérþekkingar, a.m.k. ekki það mikillar, að ástæða hafi þótt til að takmarka réttindi til þeirra á nokkurn hátt. Af þessu leiðir, að ýmsar sveiflur í atvinnulífinu hafa skjótari áhrif á afkomu daglaunamannanna, en annarra. Verði t.d. samdráttur í einhverri iðngrein, starfsemi á sviði verzlunar eða öðru slíku, þá liggur leið manna í daglaunavinnuna, sem öllum stendur opin, svo lengi sem framboð á vinnumarkaðinum er ekki of mikið, en svo hlýtur þó oft að fara, þegar skipulega hagnýtingu vinnuafls skortir að meira eða minna leyti.

Þessi sérstaða daglaunamanna hefur átt sinn þátt í því, að þeir eiga og hafa átt miklum mun óhægra um vik, en aðrir að tryggja sér með samningum við atvinnurekendur ýmis réttindi, sem talin eru nú sjálfsögð með ýmsum öðrum starfsstéttum eða jafnvel leiðir beint af vinnu þeirra. Þó að samtök verkamanna hafi með tímanum orðið svo öflug, að þau ráði nú að verulegu leyti grundvelli almennra launa í landinu, þá hafa þau samt ekki haft nægan kraft til þess að knýja fram ýmis réttindamál til jafns við aðra og jafnvel ekki þau, sem grundvallast þó að meira eða minna leyti á forgöngu þeirra. Verkamenn — í þrengri merkingu þess orðs — eru nú í dag hinir einu vinnandi manna, sem aldrei geta deginum lengur verið öruggir um starfa sinn. Jafnvel þeir, sem árum og áratugum saman hafa unnið hjá sama vinnuveitanda, geta átt þess von að verða fyrirvaralaust sviptir atvinnu sinni, jafnvel fyrir duttlunga atvinnurekandans eina saman. Verði verkamaður sjúkur, nýtur hann ekki réttinda umfram það, sem lög um almannatryggingar veita honum. Ef hann verður fyrir slysi utan vinnu sinnar, gildir hið sama. Slasist hann við vinnu, nýtur hann aðeins launa í 7 daga í hæsta lagi eða helmingi skemur, en allir aðrir.

Öryggisleysi verkamanna er þó ekki eingöngu fjárhagslegs eðlis. Það er jafnframt eins konar andleg áþján, sem beygir verkamanninn og er farg á bjartsýni hans og trú á framtíðina og gerir hlut hans oft líkastan hlut þess manns, sem ekki veit um sinn næsta næturstað.

Þessu hafa samtök verkamanna ekki viljað una, og sérstaklega nú seinasta áratuginn hafa þau gert ítrekaðar tilraunir til þess við samningsgerðir að fá þar inn nokkrar réttarbætur hvað snertir rétt til uppsagnarfrests og nokkurra launa í sjúkdóma- og slysaforföllum, en litlu fengið áorkað fyrir andstöðu samtaka atvinnurekenda. Alveg sérstaklega hafa atvinnurekendur haldið dauðahaldi í takmarkalausan rétt sinn til þess að geta sagt verkamönnum upp vinnu, án nokkurs fyrirvara. Jafnvel í þeim vinnudeilum, þar sem þeir hafa þó orðið að þoka lengst fyrir verkamönnum um laun og önnur þeim tengd atriði, hafa þeir aldrei léð máls á því að gefa neitt eftir af rétti sínum til þess að geta fleygt verkamönnum þeim, sem hjá þeim vinna, út á gaddinn hvaða dag sem vera skyldi. Sjálfur hef ég verið vitni að því, að forvígismenn atvinnurekenda hafa harðlega neitað að taka í mál, að verkamenn, sem unnið hafa í 20 ár hjá sama vinnuveitanda samfleytt, fengju eins mánaðar uppsagnarfrest. Atvinnurekendur hafa tekið kröfum verkamanna um laun í veikindaforföllum litlu betur. Í heildarsamningunum, sem voru gerðir eftir verkfallið mikla 1955, fékkst það að vísu fram, að greitt skyldi 1% ofan á laun til þess að mæta veikindum. Þetta svarar til 3 veikindadaga á ári með fullu kaupi, meðan aðrar starfsstéttir hafa yfirleitt 14 daga og sumar mun fleiri. En jafnvel þessi réttarbót var gerð einskis virði sem annað, en bein kauphækkun með því að setja það ófrávíkjanlega skilyrði, að þetta 1% rynni ekki í sérstaka sjúkrasjóði félaganna, heldur yrði greitt jafnóðum með kaupi. Aðeins nokkur félög iðnaðarmanna fengu féð í slíka sjóði. Gagnvart verkamannafélögunum var ekki við slíkt komandi.

Þetta eru nokkrar af þeim ástæðum, sem liggja til þess, að sjálfsagt þótti af hálfu alþýðusamtakanna að taka þetta mál upp, sem hér er til umr., einmitt nú, þegar ríkisstjórn, sem vill hafa samráð og samstarf við verkalýðshreyfinguna, er við völd í landinu og líkur eru til, að vilji sé fyrir hendi á hv. Alþingi til þess að þoka slíkum málefnum til réttrar áttar. Þegar þetta mál bar á góma við ríkisstj. af hálfu efnahagsmálanefndar Alþýðusambands Íslands í nóvember s.l., var því strax vel tekið, og var þá gefið fyrirheit um þá löggjöf, sem hér er komin fram.

Hæstv. félmrh. hefur gert svo ýtarlega grein fyrir frv. í einstökum atriðum, að ég hef þar ekki við að bæta á þessu stigi málsins.

Þetta frv. hefur verið til umræðu í ýmsum verkamanna- og verkakvennafélögum og alls staðar þótt merkur áfangi í hagsmunabaráttu þeirra og verið fagnað af þeim. Um einstök atriði frv. kunna að sjálfsögðu að vera eitthvað skiptar skoðanir, hvort tekizt hafi að móta ákvæðin á haganlegastan og beztan hátt, sem kostur var, og þá ef til vill líka um það, hvort nægilega mikið sé að gert til að tryggja rétt verkamanna. Slíkt fer að sjálfsögðu að líkum, þegar um er að ræða löggjöf, sem er algerlega ný á sínu sviði.

Verkamönnum, sem eiga að njóta þessarar löggjafar, er það auðvitað ljóst, að hér er ekki um að ræða endanlegan sigur í þeim réttindamálum, sem um er fjallað, heldur aðeins mjög mikilsverða byrjun, sem á að geta orðið grundvöllur, sem byggja má á í framtíðinni, eftir því sem styrkur alþýðusamtakanna leyfir og áhrif þeirra á löggjöfina veita þeim tækifæri til hverju sinni.

Eftir að þetta frv. hefur farið til hv. heilbr.- og félmn., gefst að sjálfsögðu tækifæri til að ræða einstök atriði þess betur. Á þessu stigi vil ég aðeins lýsa ánægju minni yfir því, að hæstv. ríkisstj. hefur með flutningi þess veitt verkamannasamtökunum góða liðveizlu til þess að ýta fram á við, einu brýnasta réttindamáli þeirra.