07.02.1958
Efri deild: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (611)
97. mál, réttur verkafólks
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Það er alls ekki til þess að andmæla á neinn hátt þessu frv., sem hér liggur fyrir, að ég kvaddi mér hljóðs. Augljóst er, að með þessu frv. er gripið inn í samningsrétt atvinnurekenda og verkamanna. Hæstv. ráðh. lýsti því hér áðan, að það hefði oft verið reynt að koma þessu inn í samninga, en ekki tekizt. Ég er nú ekki svo kunnugur þessu, að ég geti á neinu hátt upplýst um þetta, en mér virðist, að flutningur þessa máls út af fyrir sig bendi til þess, að það sé brýn nauðsyn að fara að endurskoða vinnulöggjöfina, og það hefði raunar þurft að gera fyrr. Vinnulöggjöfin hlýtur að vera orðin úrelt og er það á ýmsa lund, og ég hygg, að það sé brýn nauðsyn að endurskoða hana. Ég vildi spyrja hæstv. ráðh., hvað því máli liði, hvort það standi ekki til að endurskoða þessa löggjöf. Ég tel óheppilegt að vera að taka einstök atriði út úr, á hvern veginn sem það er, og gera sérstök lög um það, sem á í raun og veru, heima í allsherjar vinnulöggjöf. — Það eru þessi atriði, sem ég vildi hreyfa hér og fá upplýst, ef mögulegt væri, hvort það er ekki meiningin að hraða endurskoðun vinnulöggjafarinnar.