28.02.1958
Efri deild: 58. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (627)
97. mál, réttur verkafólks
Eggert Þorsteinsson. Herra forseti. Við 2. umr. málsins taldi ég nauðsynlegt í minni ræðu, að ákveðnir hlutir fengjust skýrðir í sambandi við lokaafgreiðslu þessa máls héðan úr hv. þingdeild.
Eins og frsm. n. hefur þegar tekið fram, þá var haft samband við þá, sem undirbjuggu frv. af hálfu hæstv. ríkisstj., og gafst mér þá tækifæri ásamt öðrum í hv. n. að fá skýringar á ýmsum þeim atriðum, sem við töldum ekki nógu ljós. Í sambandi við þessar spurningar mínar er því til að svara, að lagasmiðir stjórnarinnar voru sammála um, að spurning mín nr. 1, um það, hvort greiða bæri launþega laun eða sjá honum fyrir 8 stunda vinnu á dag þann tíma, sem hann bíður á uppsagnarfresti skv. 1. málsgr. 1. gr., þá beri skýlaust að skilja það svo, að þetta séu skyldur atvinnurekanda. Varðandi spurningu mína nr. 2 hefur nú verið endurflutt af hálfu n. með smávægilegri breytingu till. til skýringar á því, er ég þar spurði um, sem er nánast samhlj. þeirri till., sem hv. 8. landsk. þm. flutti hér við 2. umr., með örlitlu viðbótarákvæði. Varðandi spurningu mína nr. 3, hver væri munurinn á fastráðnum verkamanni og þeim, sem hefði öðlazt rétt samkvæmt lögunum eða frv., eins og það er nú, þá var það skýrt svo, að á því væri enginn efnislegur munur, eftir að viðkomandi maður hefði öðlazt þann rétt, sem þar er frá greint. Ég taldi því ekki ástæðu að fengnum þessum upplýsingum að flytja eða gera tilraun til að fá n. til að flytja neina frekari brtt. en frsm. n. hefur nú frá skýrt. Ég lýsi þess vegna stuðningi mínum við þessar brtt. og frv., eins og það liggur nú fyrir.