28.02.1958
Efri deild: 58. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

97. mál, réttur verkafólks

Frsm. (Alfreð Gíslason):

Herra forseti. Á þskj. 268 hefur orðið prentvilla og ég því missagt í þeim orðum, sem ég sagði áðan.

Fyrri brtt. er ekki brtt. við 2. gr., eins og stendur á þskj., heldur við 3. gr., í því formi, sem það er nú eftir 2. umr. Það var samþykkt ný grein við 2. umr., og hún varð 2. gr.; því verður sú grein, sem var 2. gr., nú 3. gr., og við þá gr. á fyrri brtt. á þessu þskj.