10.03.1958
Efri deild: 64. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (644)

148. mál, ríkisreikningar

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. Vestm. (JJós) sagði, þá ber reikningurinn náttúrlega með sér, hvað umframgreiðslurnar eru. Á rekstrarreikningi er fjárlagaáætlunin 455 millj. rúmlega, og reikningurinn er 512, þannig að það eru 56 millj. kr. umframgreiðslur, það er sem sagt rúmlega 12%. Þetta eru náttúrlega talsvert miklar umframgreiðslur, en þær byggjast að langmestu leyti á því, hvað lögboðin gjöld hafa farið mikið fram úr áætlun. (JJós: Heyrði ég rétt, eru það 56 millj. kr.?) Rúmar 56 millj. á rekstrarreikningi.

Þetta gefur mér tilefni til þess að fara nokkrum orðum um umframgreiðslurnar yfirleitt, en þær hafa orðið mjög mismunandi miklar á undanförnum árum. Ég hef gert á þeim samanburð alveg aftur til 1924, umframgreiðslum á rekstrarreikningi. Ef maður miðar við þetta tímabil, hafa þær á árunum frá 1924–1950, á öllu því tímabili, aðeins tvisvar farið niður fyrir 15%. Annars hafa þær verið yfir 15%, og metið er 1942, þá eru umframgreiðslurnar 216% af fjárlagafjárhæðinni. Þá eru veittar á fjárl. 24 millj., en fara fram úr um 76 millj. Á árunum 1949, 1948, 1947, 1946, 1945 og 1944, þessum árum, eru þær lægstar 1949, 15.2%, en 1948 eru þær 16%, 1947 29%, 1946 33%, 1945 42%, 1944 38%, 1943 61% og 1942 216%. En svo aftur 1950 eru þær 1.1%, 1951 16.6%, og 1952 eru þær 7.6%, 1953 11.4%, 1954 11.5% og á þessum reikningi 12.4%, og 1956 eru þær 9.6%. Umframgreiðslur nú, eru því miklu minni, en þær yfirleitt hafa verið undanfarið, að undanskildum örfáum dæmum, þegar tókst að hafa þær lægri.

Það kemur hér margt til, aðallega þó þessi uppbótarbúskapur, sem við búum við, þar sem stórkostlegar fjárhæðir eru ákveðnar, eftir að fjárlög hafa verið afgr. Það er síður en svo, að hægt sé að kalla þessar umframgreiðslur óvenjulega miklar, miðað við það, sem reynslan hefur orðið. Þó eru þær vitanlega of miklar. Það þyrfti m.a. sannast að segja að áætla lögboðnu gjöldin yfirleitt mun hærri, en gert hefur verið.