25.03.1958
Neðri deild: 72. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í B-deild Alþingistíðinda. (655)

148. mál, ríkisreikningar

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum er sett upp á sama hátt og áður hefur tíðkazt. Sé ég ekki ástæðu til að fylgja því úr hlaði með framsöguræðu, en óska eftir því, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr., og vil geta þess, að málið er komið frá hv. Ed.