15.04.1958
Neðri deild: 78. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (659)

148. mál, ríkisreikningar

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Nefndin hefur athugað frv. það, sem liggur fyrir, á þann hátt að bera saman tölur frv. og niðurstöður ríkisreikninganna, og þar sem ekkert athugavert hefur komið fram við þann samanburð, leggur n. einróma til, að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir.