19.03.1958
Sameinað þing: 35. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í B-deild Alþingistíðinda. (690)
149. mál, fjáraukalög 1955
Jón Pálmason:
Herra forseti. Mér þykir ástæða til að segja fáein orð, nú þegar um þetta fjáraukalagafrv., sem að sjálfsögðu fer til hv. fjvn.
Í fyrsta lagi vil ég minnast á það, sem hér er sagt í aths. við þetta frv., að skv. því, sem þar segir, mætti ætla, að við yfirskoðunarmenn ríkisreikninganna hefðum samið þetta frv. En því er ekki til að dreifa, því að við höfum ekki samið fjáraukalög í mörg ár, heldur aðeins lagt það til í okkar aths., að leitað væri heimildar í fjáraukalögum fyrir öllum umframgreiðslum, og í rauninni er það svo skrifstofuverk að semja frv.
Nú er það líka víst, að ef við hefðum gengið frá þessu máli, þá væri það með talsvert öðrum svip, en það er, og má þó segja, að það hafi tekið nokkrum breytingum núna, áður en það kemur til umræðu, því að frá því að það var lagt hér fram, er búið að bæta inn á það nokkuð á áttundu milljón króna. Ég hef nú ekki borið þetta saman, hvar þær milljónir eru, en ég reikna með því, að það sé það, sem stendur á 22. og 24. gr. og hafði fallið niður á frv. í upphafi. En auk þessa tel ég að vanti á þetta frv. nokkuð yfir 20 millj. kr., og það er annars vegar samkvæmt 3. gr. A, sem eru framkvæmdir hjá landssímanum, sem nema rúmum 10 millj. kr., því að það hefur ekki verið tekinn nema nokkur hluti af því inn á fjáraukalög í stað þess að taka það allt. Í öðru lagi er 20. gr., sem eru framkvæmdir og lán, sem við höfum venjulega tekið allt inn á fjáraukalög, en þar vantar í 11 millj. 727 þús.
Það getur vel verið, að það séu einhverjar fleiri upphæðir, sem vantar inn á þessi fjáraukalög, ég hef ekki farið svo alveg nákvæmlega í gegnum það, en vil biðja hv. fjvn. að athuga þetta, áður en hún afgreiðir málið, því að enda þótt þetta sé í rauninni aðallega formsmál, þar sem hér er allt um garð gengið og búið að borga allar þessar upphæðir, þá er skemmtilegra, fyrst verið er með fjáraukalög á annað borð, að þau séu þá rétt.