23.04.1958
Sameinað þing: 40. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (693)
149. mál, fjáraukalög 1955
Jón Pálmason:
Herra forseti. Saga þessa frv. til fjáraukalaga fyrir 1955 er nú að því leyti með sérstökum hætti, að fyrst var frv. hækkað, frá því að það var lagt hér fram í þinginu og þangað til það var tekið til umr., um tæpar 8 millj. kr. Og nú í annað sinn leggur hv. fjvn. til að hækka frv. um rúmar 3 millj. kr. frá því, sem þá var komið. En þó að þetta sé hvort tveggja leiðrétting til bóta á frv., eins og það kom upphaflega, þá tel ég ekki, að þar með sé frv. komið í það horf, sem það ætti að vera, því að inn á það vantar frá mínu sjónarmiði nálega 20 millj. kr. til viðbótar.
Það er þá í fyrsta lagi skv. ríkisreikningnum á bls. 14, sem eru „aðrar eignahreyfingar landssímans“. Eignahreyfingar landssímans ofarlega á þeirri sömu bls., rúmar 10 millj., 10 millj. 784 þús., eru teknar inn í 20. gr. og gert rétt upp, en hinn hlutinn, sem er rúml. 10 millj. kr., framkvæmdir gerðar fyrir lánsfé og eigin fé landssímans, eru ekki teknar inn á 20. gr. og ekki inn á fjáraukalagafrv., eins og ég tel að eigi að vera. Það er þarna fært til málsbóta í þessu efni, að það sé eigið fé landssímans, sem þarna hafi verið um að ræða og framkvæmt hafi verið fyrir, og það er að miklu leyti rétt. En það breytir frá mínu sjónarmiði engu, því að þær eignir, sem ríkisstofnanir hafa safnað, eru að því leyti til engu rétthærri, en tekjur sömu stofnana og eiga að sjálfsögðu að koma annaðhvort á fjárl. eða á fjáraukalög.
Önnur upphæð er á 20. gr., að þar er ekki tekið inn á frv. nema 23 millj. af tæpum 35 millj., sem er mismunur á fjárl. og ríkisreikningi og ég tel að, svo að segja allt eigi að koma inn á fjáraukalög. Það eru þar að vísu tvær upphæðir frekar smáar, sem gætu dregizt frá, sem eru eignarinnstæður og fyrirframgreiðslur, 777 þús., og fé, sem áður hefur verið fært til gjalda á ríkisreikningi, um 500 þús. Nú hefur hv. fjvn. ekki athugað þetta eða ekki þá orðið sammála um að taka þessar upphæðir inn á fjáraukalagafrv., og ætla ég ekki að fara að flytja brtt. um það. Ég tel sjálfsagt og mæli með því, að frv. fari eins og það er til 3 umr., en þætti æskilegt, að hv. fjvn, tæki þetta til athugunar fyrir þá umr.
Ég skal taka það fram, að það er náttúrlega hárrétt hjá hv. frsm. fjvn., að hér er ekki um neitt fjárhagslegt atriði að ræða, vegna þess að ríkisreikningurinn er auðvitað aðalatriðið. Hann er búið að samþykkja og þar með allar greiðslur, og þær greiðslur, sem hér er um að ræða og ég hef minnzt á, eru ekki gerðar neinar athugasemdir við, og þess vegna eru þessi atriði, sem hér um ræðir, eins og fjáraukalög yfirleitt í heild sinni formsmál svo að segja eingöngu. En úr því að verið er með fjáraukalög og ætlazt til þess, að inn á þau séu tekin öll gjöld, sem hafa verið greidd, hvort sem það er í eignahreyfingum eða í framkvæmdum á rekstrarreikningi ríkisins, þá tel ég rétt, að fjáraukalögin séu afgreidd svo rétt sem verða má, enda þótt það hafi ekki neina fjárhagslega þýðingu, vegna þess að hér er um fjármuni að ræða, sem búið er að borga út fyrir löngu og ekki verður neitt aftur tekið með.