12.05.1958
Neðri deild: 91. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (702)
185. mál, tollafgreiðslustöðvun
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þar sem gert er ráð fyrir því, að á næstu dögum verði fjallað hér í hv. Alþ. um frv., sem hefur í för með sér hækkun á aðflutningsgjöldum, þykir rétt að leggja til, að tollskrifstofunum sé lokað á meðan, þ.e.a.s. að því leyti, að ekki sé tekið á móti skjölum til tollafgreiðslu. Fyrir því er þetta frv. fram komið. Það er gert ráð fyrir því, að þetta gildi til laugardags og að honum meðtöldum, í þeirri von, að fyrir þann tíma yrði búið að afgreiða frv., sem snertir aðflutningsgjöldin.
Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fyrir þessu aðra framsögu. Það hefur verið venja hér, þegar svona hefur staðið á, að hafa þennan hátt á, og hefur ævinlega verið um það gott samkomulag, og ég geri mér von um, að þannig verði einnig nú. Mundi ég þá gera það að uppástungu, að þessu máli yrði ekki vísað til nefndar fremur en venja er um slík mál.