25.04.1958
Neðri deild: 83. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (724)

168. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins

Frsm. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Frv., sem hér liggur fyrir, er stjórnarfrv. og gerir ráð fyrir því, að réttindi þau, sem hlutatryggingasjóður veitir, verði nokkuð aukin frá því, sem nú er, þannig að þau skuli auk þess, sem þau áður tóku til, nú einnig taka til síldveiða í reknet. Frv. er, eins og frá segir í athugasemdum við það, til orðið og fram komið sem samningsatriði milli ríkisstj. og útvegsmanna um rekstrargrundvöll sjávarútvegsins á árinu 1958, og verður að teljast eðlilegt, að það nái fram að ganga, þó að ekki væri nema af þeim grundvallarástæðum, að tekjur hlutatryggingasjóðs, sem fengnar eru að hálfu leyti með sérstöku gjaldi á útfluttar sjávarafurðir bátaflotans, eru teknar einnig sem útflutningsgjald á þær afurðir, sem framleiddar eru með síldveiðum í reknet, eru sem sagt einnig teknar af reknetasíld. Þetta hefur svo verið frá upphafi, en reknetaveiðarnar sjálfar hafa ekki verið hlutatryggðar í sjóðnum.

Þetta frv. er að því leyti einhliða, að þar er ekki gert ráð fyrir neinum breytingum á tekjuhlið sjóðsins, og mundi frv. því, þegar til framkvæmda kæmi, raska að verulegu leyti fjárhagsgrundvelli hlutatryggingasjóðs. Það væri því eðlilegt, að ráðstafanir væru jafnhliða gerðar til þess að afla hlutatryggingasjóði tekna á móti þeim gjöldum, sem hann kann að verða fyrir vegna framkvæmda á því atriði, að reknetaveiðarnar verði tryggðar hjá sjóðnum.

Sjútvn. hefur skoðað þetta mál og aflað sér upplýsinga um það, hvernig hlutatryggingasjóður stendur fjárhagslega, og samkvæmt upplýsingum, sem Fiskifélag Íslands eða sá starfsmaður þess, sem hefur með að gera hlutatryggingasjóð, hefur gefið nefndinni, skal tekið fram, að hagur hlutatryggingasjóðs, sem er í tveim deildum, þ.e.a.s. deild, sem tekur til þorskfiskveiðanna, og síldveiðideild, sem tekur til síldveiða, er þannig, að síldveiðideildin á minna en ekkert, hún er í nokkurri skuld við almennu deildina, en hins vegar er almenna deildin allvel fjárhagslega stæð, og í yfirlitinu segir, að eignir almennu deildarinnar séu 11 millj. 628 þús., en skuldir síldveiðideildarinnar umfram eignir séu 2 millj. 961 þús. Eignir hlutatryggingasjóðs umfram skuldir í heildina tekið eru því 8 millj. 667 þús. kr. Á árunum frá 1950 til 23. sept. 1957 hefur almenna deildin greitt í bætur 15 millj. 899 þús. kr. Síldveiðideildin hefur á sama tíma greitt í bætur 14 millj. 771 þús. Það er þess vegna engan veginn óhugsandi, að sjóðurinn sem heild gæti komizt af a.m.k. eitthvað til að byrja með án þess að fá nýjar tekjur inn, þannig að síldveiðideildin mundi, ef hennar hlutur yrði rýr, verða að eiga innhlaup um áframhaldandi lán hjá almennu deildinni að óbreyttri tekjuhlið.

Það hefur hins vegar komið til mála og var enda um það talað og mun hafa verið á það fallizt, bæði af stjórnarvöldunum og útvegsmönnum, að sjóðnum yrði aflað meiri tekna með því að hækka að nokkru það gjald á útflutningsafurðir, sem nú er í gildi, en það er 1/2%, og mun hafa verið um það talað að hækka það gjald a.m.k. á síldarafurðum í 3/4%. Hins vegar eru lögin um hlutatryggingasjóð í heildarendurskoðun og líklegt, að þeirri endurskoðun ljúki á næsta hausti.

Sjútvn. hefur því þótt hlýða að láta frv. fara án breyt. til 2. umr., en á milli 2. og 3. umr. kemur mjög til mála, að nefndin skoði frv. aftur með tilliti til þess, hvort ekki sé hyggilegast að gera brtt. við tekjuhlið sjóðsins nú þegar við afgreiðslu þessa frv. En að svo stöddu máli leggur n. til, að frv. verði samþykkt til 3. umr. í því horfi, sem það er.