12.05.1958
Efri deild: 92. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (739)
168. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Frsm. (Björn Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta er stjórnarfrv. og komið frá hv. Nd. Sjútvn. hefur haft frv. til athugunar og leggur til, að það verði samþ. eins og það liggur nú fyrir, eftir að hv. Nd. hefur gert á því breytingu, sem varðar gjaldheimtu til hlutatryggingasjóðsins.
Í gildandi lögum um hlutatryggingasjóð bátaútvegsins frá 25. maí 1949 er svo fyrir mælt, að tekjur sjóðsins skuli vera 1/2% útflutningsgjald af öllum útfluttum sjávarafurðum, öðrum en þeim, sem koma frá botnvörpuskipum, hvalveiðum og selveiðum, ásamt jafnháu framlagi úr ríkissjóði. Þessar tekjur skiptast þannig milli hinna tveggja deilda sjóðsins, hinnar almennu fiskveiðideildar og síldveiðideildar, að tekjur vegna síldveiði falla til síldveiðideildarinnar, en tekjur vegna þorskveiða til almennu deildarinnar. Rétt til trygginga í almennu fiskideildinni eiga öll skip bátaflotans, sem stunda þorskveiðar með línu, botnvörpu, dragnót, netum o.s.frv., þ.e. öll þau skip, sem skapa þau útflutningsverðmæti, sem gjaldskyld eru til sjóðsins. Hins vegar eiga aðeins þau skip rétt í síldveiðideild, sem gerð eru út á síldveiðar með herpinót eða svipuð veiðarfæri, og eru þau skip, sem gerð eru út á reknet, þar undanskilin, enda þótt gjöld til sjóðsins séu heimt af aflaverðmæti þeirra eins og annarra síldveiðiskipa.
Aðalefni þessa frv. er það, að þetta misræmi verði leiðrétt og reknetaskip njóti sama réttar sem önnur skip, sem gerð eru út til síldveiða. Hefur þessarar breytingar verið óskað mjög eindregið af útvegsmönnum og hæstv. ríkisstj. heitið þeim að beita sér fyrir þeirri breytingu á þann hátt, sem þetta frv. gerir ráð fyrir.
Önnur breyting, sem gert er ráð fyrir í frv., er sú, að útflutningsgjald af síldarafurðum til hlutatryggingasjóðs verði 3/4% í stað 1/2% áður, og leiðir að sjálfsögðu af því hlutfallslega aukningu á framlagi ríkissjóðs til síldveiðideildarinnar.
Þessi breyting telst nauðsynleg með hliðsjón af því, að afkoma síldveiðideildarinnar hefur verið mjög erfið vegna margra ára aflabrests og hagur deildarinnar af þeim sökum þannig, að hún skuldar almennu fiskveiðideildinni nú nokkuð á 3. millj. kr. Þykir þess vegna ekki fært að lögfesta aukin útgjöld deildarinnar, nema í móti komi nokkur tekjuaukning hennar um leið, og mun sú aukning, sem hér er gert ráð fyrir, vera sú minnsta, sem hugsanlegt er að komi að viðhlítandi gagni.
Í grg. með frv. er þess getið, að heildarendurskoðun löggjafarinnar um hlutatryggingasjóð standi nú yfir. Hins vegar þykir ekki fært að láta þær breytingar, sem hér er um að ræða, bíða niðurstöðu þeirrar endurskoðunar, þar sem slíkur dráttur gæti haft lamandi áhrif á reknetaútgerðina á næstu tímum, en hún hefur verið, eins og mönnum er kunnugt, vaxandi þáttur í atvinnulífi okkar hin síðari ár.