06.05.1958
Efri deild: 89. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (787)
131. mál, samvinnufélög
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í lögum um samvinnufélög er svo ákveðið, að félögin skuli greiða 1% af sölu, aðkeyptra vara og afurða til varasjóðs árlega. Enn fremur er ákvæði um, að arður af viðskiptum, sem utanfélagsmenn kunna að hafa gert við félagið, skuli lagður í varasjóð, nema honum sé varið á annan hátt til almenningsþarfa. Upphaflega voru þessi ákvæði rökstudd þannig, að nauðsynlegt væri að setja þau, til þess að löggjafarvaldið hefði íhlutun um, að samvinnufélögin styrktu sérstaklega fjárhag sinn með þessu tillagi til varasjóðsins. Á hinn bóginn er engum öðrum félögum, en samvinnufélögum lögð sú skylda á herðar að leggja þannig til varasjóða sinna. Öllum öðrum félögum er þetta í sjálfsvald sett.
Segja má, að það hafi ekki verið óeðlilegt, að þessi ákvæði væru í lögum, á meðan samvinnufélögin voru ung og lítil reynsla orðin af þeirra starfi. En nú sýnir reynslan ótvírætt, að það er engin sérstök ástæða til þess að leggja samvinnufélögunum þessar kvaðir á herðar með löggjöf og að það er alveg óhætt að láta þau vera fjár síns ráðandi að þessu leyti eins og önnur félög. Þess vegna er lagt til með þessu frv., að þetta ákvæði, að samvinnufélagi sé skylt að leggja 1% af sölu aðkeyptra vara og afurða til varasjóðs, skuli falla niður. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir, að það ákvæði standi, að arður af viðskiptum, sem utanfélagsmenn kunna að hafa við félagið, skuli lagður í varasjóð. Er því ákvæði haldið vegna þess, að samvinnufélögin hafa þá sérstöðu, að þeim er alls ekki ætlað að ráðstafa til félaga sinna neinum arði af utanfélagsmannaviðskiptum, heldur verði honum varið til þess að efla félagssamtökin og verði varasjóður sá, sem þannig myndast, almannaeign, ef félögin eru lögð niður, en aldrei einkaeign þeirra, sem í félögunum eru. En höfuðatriði málsins er þetta: Reynslan sýnir, að það er alveg eðlilegt, að samvinnufélög verði hliðstæð öðrum félögum að þessu leyti, að þeim sé ekki skylt að greiða 1% af sölu aðkeyptra vara í varasjóð, heldur ráði þau því sjálf, að hve miklu leyti þau leggja til varasjóðs af félagsmannaviðskiptum.
Ég vil leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til nefndar, og ég held, að ég muni það rétt, að allshn. hafi orðið fyrir valinu í Nd., og legg til, að þessu máli verði vísað til hennar.