16.05.1958
Efri deild: 98. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (798)

131. mál, samvinnufélög

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Hv. þm. V-Sk. lagði fyrir mig tvær spurningar. Inn á svör við þeim spurningum kom ég nú að vísu í því, sem ég sagði áðan, en ég skal samt sem áður gera tilraun til þess að tala ljósar, en ég líklega hef talað áðan.

Hann spurði: Er það rangt, að skattskylda samvinnufélaga miðist við varasjóð, að hún hvíli á 2/3 hlutum varasjóðstillags? Ég fullyrði, að það sé rangt, að skattskyldan miðist við varasjóð eingöngu, en hún nær einnig til varasjóðstillags, ef lagt er meira í varasjóð, en nemur af ársarði félagsins.

Ég vona, að hv. þm. átti sig á því, að þetta er önnur regla, en minnihlutaálitið byggir á, og þá vona ég líka, að þannig sé komið, að hann viðurkenni, að hann hafi þarna byggt á misskilningi, eins og hann lofaði að viðurkenna.

Ég las upp áðan ákvæðið úr lögunum, úr 8. gr. skattalaganna, sem þetta snerti. Ef nokkuð af hreinum tekjum þessara félaga er lagt í varasjóð, er sú upphæð undanþegin tekjuskatti og skal koma til frádráttar við ákvörðun skattskyldra tekna, þó eigi hærri fjárhæð, en nemur 1/3.

Þá spurði hann að því, hvort það væri nokkurt félag til í landinu nema samvinnufélögin, sem hefði leyfi til þess að draga opinber gjöld frá sínum skattskyldu tekjum, áður en skattur er á þær lagður. Ég veit ekki til þess, að það sé nokkurt félag í landinu, sem hefur leyfi til að gera þetta. Samvinnufélögin hafa það sem sé ekki heldur. En þegar lög skylda þau til þess að leggja arð af skiptum utanfélagsmanna í varasjóð, þá er leyfilegt að draga frá, áður en lagt er í varasjóð, það sem nemur útsvari og skatti, en hins vegar er sú upphæð skattskyld eftir sem áður, því að skattskylda samvinnufélaga nær yfir miklu meira, en þennan hluta af varasjóðstillaginu, sem við erum að ræða um. Skattskyldan nær yfir yfirfærslur þær, sem gerðar eru milli ára, yfir það, sem lagt er í sameignarsjóði, o.s.frv.

Ég vona, að ég hafi svarað þessu nógu greinilega, og undirstrika það og hygg það fullsannað, að með frv. þessu er aðeins verið að leysa félögin frá þeirri gömlu kvöð, sem þau bundu sig sjálf og töldu sig fyrrum þurfa að leggja á sig, að leggja 1% af umsetningu í varasjóð. Og okkur öllum kemur yfirleitt saman um það, að samvinnufélögin séu það traust félög, að landslög þurfi ekki að skylda þau til þessarar sjóðssöfnunar, frekar en önnur félög.