16.05.1958
Efri deild: 98. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (801)

131. mál, samvinnufélög

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Hv. 11. landsk. (FÞ) lagði fyrir mig fyrirspurnir. Ég get svarað því játandi, að ég vildi, að samvinnufélögin þyrftu ekki að styðjast við pólitíska flokka. En hitt er það, að ég er trúlítill á, að sú ósk rætist fyrst um sinn, vegna þess að samvinnufélögin þurfa að verja sig og þurfa á vörn að halda fyrir pólitískum flokkum, og það kemur m.a. í ljós hér á Alþingi. Ég hefði t.d. ekki blandað mér í þessi mál, ef ekki hefði verið sótt að því réttlætisákvæði, sem ég tel að felist í frv. því, sem hér liggur fyrir.

Við getum náttúrlega lofað því báðir hvor um sig að vinna að því að eyða pólitík í sambandi við þessi mál, eftir því sem hægt er, og þá vil ég óska þess, að hv. 11. landsk. byrji með því að unna samvinnufélögunum þess réttlætis að þurfa ekki ein að leggja fé í varasjóð, hvernig sem hagur þeirra er og hvernig sem árar.

Þá spurði hann mig líka að því, hvort ég væri sammála því broti úr leiðara Tímans, sem hann las hér áðan upp, um að samvinnufélög og önnur verzlunarform ættu að njóta jafnréttis. Og ég svara því hiklaust játandi. Ég er því sammála. En ég lít ekki svo á, að þetta jafnrétti sé það, að kaupmaður t. d, og samvinnufélag greiði nákvæmlega eftir sömu reglum til almenningsþarfa. Ég tel, að jafnréttið þar á milli þurfi að vera hlutfallslegt eftir forminu, sem er á verzluninni hjá þessum tveimur aðilum. Ég hefði líka getað nefnt hlutafélag, en ekki sérstaklega kaupmanninn, og ég vil segja það, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, það þokar í þá áttina, að jöfn staða til gjalda verði á milli hlutafélags og kaupfélags.