19.05.1958
Neðri deild: 100. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (823)

164. mál, sala áfengis, tóbaks o. fl.

Frsm. (Gunnar Jóhannsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., var flutt í Ed, af hæstv. utanrrh, Eins og frv. var upphaflega, var gert ráð fyrir, að ríkisstj. væri heimilt að setja á stofn á Keflavíkurflugvelli áfengisútsölu, er eingöngu seldi áfengi til erlendra farþega og flugvélaáhafna, sem um völlinn færu, áfengisverzlun ríkisins ræki útsöluna undir yfirstjórn utanrrh., er ákveði verð áfengisins, sem selt er með þessu móti, og settar yrðu svo nánari reglur um eftirlit með rekstrinum og þeim farþegum, sem við verzlunina kæmu til með að skipta. Þá skyldi og heimilt, að útsalan gæti selt tóbak, og skyldi farið eftir sömu reglum um þá verzlun og við sölu áfengis, eftir því sem við ætti.

Hv. Ed. afgr. frv. með þeim breytingum, að heimilt skyldi vera að selja áfengi til allra farþega og flugvélaáhafna í framhaldsflugi og auk tóbaks skyldi vera heimilt að selja hvers konar aðrar vörur, sem henta þætti.

Breytingarnar eru sem sé þær, sem hv. Ed. gerði á frv., að sala áfengis á Keflavíkurflugvelli skuli ná til allra farþega og flugvélaáhafna í framhaldsflugi, en ekki einskorða við erlenda farþega, eins og upprunalega var gert ráð fyrir. Þá er og bætt inn i, að um framhaldsflug væri að ræða. Þá var því og bætt við, að ríkisstj. gæti heimilað verzluninni að hafa á boðstólum auk áfengis og tóbaks hvers konar aðrar vörur, sem henta þætti, og skulu að sjálfsögðu gilda um þá verzlun reglur, sem um getur í 1. gr., eftir því sem við á.

Allshn. Nd. hefur rætt frv. á fundi sínum nokkuð og gat ekki fallizt á að afgr. það óbreytt eins og Ed. gekk frá því. Nm. eru andvígir því, að Keflavíkurflugvelli verði veitt ákveðin forréttindi fram yfir Reykjavíkurflugvöll. Sé sú skoðun á rökum reist, að það dragi úr viðkomu erlendra farþegaflugvéla til Keflavíkurflugvallarins, að farþegarnir fái þar ekki þá þjónustu og fyrirgreiðslu, sem þeir óska eftir og veitt sé, á flugvöllum erlendis, hlýtur hið sama að gilda um Reykjavíkurflugvöll. Í þessu sambandi má benda á, að flugfélagið Loftleiðir h.f. hefur viðkomu á Reykjavíkurflugvelli í framhaldsflugi á milli Evrópu og Ameríku. Með því að veita Keflavíkurflugvelli þessi auknu réttindi fram yfir Reykjavíkurflugvöll gæti það orðið til tjóns fyrir þetta íslenzka flugfélag.

Nú má að sjálfsögðu um það deila, hvort það geti talizt sérstaklega nauðsynleg þjónusta fyrir flugfarþega og áhafnir flugvéla í framhaldsflugi að geta fengið keypt áfengi, tóbak o.fl. vörur á íslenzkum flugvöllum við vægu verði.

Í grg. er talað um, að hlutaðeigandi íslenzkir embættismenn hafi kynnt sér nokkuð fyrirkomu lag tollfrjálsra viðskipta á flugvöllum erlendis og hafi þeir eindregið lagt til, að sams konar háttur verði upp tekinn á Keflavíkurflugvelli. Í grg. þessari er því jafnvel haldið fram, að flugvélar, sem að öðru jöfnu mundu leggja leið sína um Keflavíkurflugvöll, hafi fremur kosið að fara um Shannonflugvöllinn í Írlandi, til þess að farþegar og áhafnir gætu átt viðskipti í hinum tollfrjálsu búðum þar. Mér finnst nú, að fyrir þessu liggi dálítið hæpnar sannanir. Þó skal ekkert um það fullyrt, nema aukin fyrirgreiðsla eins og sú, sem hér um ræðir, geti stuðlað að auknum viðkomum véla, sem fljúga milli Evrópu og Ameríku, til íslenzkra flugvalla.

Allshn. er mótfallin því að gera upp á milli þessara tveggja aðalflugvalla landsins, Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar. Fyrir því leggur n. til, að frv. verði breytt, og leggur til eftirfarandi breytingar:

Við 1. gr. Á eftir 2. málsgr. komi ný málsgr., svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: Ríkisstj. er einnig helmilt að setja á stofn sams konar útsölur á Reykjavíkurflugvelli, eftir að þar hefur verið byggð afgreiðslustöð til sameiginlegra afnota fyrir þau flugfélög, sem völlinn nota.

Við 2. gr. Upphaf gr. orðist svo: Ríkisstj. getur heimilað útsölum þeim, sem um getur í 1. gr. o.s.frv.

Við fyrirsögn frv. Á eftir orðunum „á Keflavíkurflugvelli“ komi: og Reykjavíkurflugvelli. Eins og afgreiðsluskilyrðin eru nú á Reykjavíkurflugvelli, verður ekki hægt, svo að séð verði, að koma þar á slíkri útsölu nú þegar. Þá fyrst, þegar þar hefur verið byggð afgreiðslustöð, sem uppfyllir þær kröfur, sem til slíkra afgreiðslustöðva eru gerðar, til sameiginlegra afnota fyrir þau flugfélög, sem völlinn nota, þá fyrst yrði hægt að setja þar á stofn verzlun með þessar tilteknu vörur og þá með vægu verði, eins og þarna er orðað í grg.

Í sjálfu sér tel ég þetta frv. ekkert stórmál. En sé það á annað borð álit þeirra manna, sem þessum málum eru kunnugastir, að nauðsynlegt sé að koma á fót útsölu með áfengi og tóbak o.fl. fyrir farþega og flugvélaáhafnir í framhaldsflugi á Keflavíkurflugvelli, verður ekki séð, hvað það er, sem mælir á móti því, að Reykjavíkurflugvöllur fái sömu réttindi, þegar þar verða til staðar nauðsynleg afgreiðsluskilyrði.

Hv. þm. Borgf. (PO) hefur flutt brtt. á þskj. 521 við frv. um, að í staðinn fyrir orðin „setur nánari reglur“ í 2. málsgr. 1. gr. komi: setur að fengnum till. áfengisvarnaráðs nánari reglur o.s.frv. Allshn. hefur ekki rætt þessa till., þar sem hún var ekki komin fram, þegar n. afgr. frv, frá sér, en sem einn nm. sé ég ekkert, sem mælir á móti till., og tel hana frekar til bóta.

Einn nm., hv. þm. N-Þ., hefur sérstöðu í málinu og skrifaði því undir nál. með fyrirvara.