12.12.1957
Neðri deild: 38. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (84)
5. mál, tollskrá o. fl
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Það er misskilningur hjá hæstv. fjmrh., að við 9. landsk, (ÓB) og ég leggjum til, að niður falli tekjuöflun til þess að reisa tollbúðir, sem bent hefur verið á að mikil nauðsyn sé. Við leggjum aðeins til, að það sé gert með öðru móti, en í þessu frv. felst. Þetta hefur nú verið gert, að ég hygg, um eitt ár með þessum hætti og er sannast að segja mjög óeðlilegur og ógeðfelldur máti á margan hátt að innheimta gjöld með til þess að standa undir byggingum eða öðrum framkvæmdum ríkisins, og það er vegna þess, að með þessu móti er í raun og veru verið að blekkja almenning um niðurstöður fjárlaga eða um það, hvað mikið er ætlazt til þess að hann leggi af mörkum til ríkisbúskaparins. Og þar sem þetta hefur nú verið að vísu í framkvæmd um takmarkaðan tíma og er lagt til að verði áfram, þá er ein hætta, sem er mjög áberandi, að hér verði skapað fordæmi, fordæmi fyrir því, að miklu lengra verði haldið á þessari braut, og hefur það reyndar komið fram strax, nú undir meðferð málsins, sbr. till. 1. þm. Reykv. (BBen), að fleiri greinar séu teknar undir þennan lið, sem tilheyra framkvæmdum ríkisins, og þá fyrst og fremst í sambandi við löggæzluna, sem gætu leitt til þess, að hækkað yrði þetta gjald, ef menn vildu fallast á þetta sjónarmið, og eins mætti hugsa sér, að þetta kæmi fram á fjölmörgum öðrum sviðum. Og myndin gæti þá auðveldlega orðið sú, að fjárlög væru afgreidd frá þinginu með ákveðinni niðurstöðu. Við skulum segja, að einhver hæstv. fjmrh. vildi gjarnan láta afgreiða fjárlög svo, þegar hann tekur við þeim, að þau hækkuðu ekki mikið að niðurstöðum frá árinu áður t.d. frá fyrirrennara, og þá eru ósköp hæg heimatökin að taka bara niðurstöðutölurnar eins og þær eru og segja svo einhvers staðar sakleysislega, að ofan á þetta megi svo innheimta svo og svo margar prósentur til þess að gera eitt og annað, sem gera þarf í þjóðfélaginu. Hér er bara spurningin um það, hvort á að byggja þessar tollbúðir af þeim ríkistekjum, sem áætlaðar eru og fram koma í fjárlögum, eða hvort á að leggja þær á almenning á þann hátt, að almenningur geri sér ekki grein fyrir því, að verið er að leggja byrðarnar á hann. Það er að vísu alveg í samræmi við stefnu núverandi hæstv. ríkisstj. að leggja endalaust byrðar á almenning og helzt með þeim hætti, að almenningur geri sér ekki grein fyrir því, þegar byrðarnar eru á hann lagðar. Og jafnvel þó að augljóst sé, að þær muni lenda á almenningi, þá keppist stjórnarliðið við að lýsa því yfir í þinginu og fyrir alþjóð, að samt sem áður muni það ekki valda því, að neinar byrðar leggist á almenning, þó að innheimta eigi hundruð milljóna til ríkissjóðs, vörur muni ekki hækka í landinu og enginn muni finna fyrir þessu. Við munum sönginn hér í útvarpinu á s.l. vetri, þegar hver ráðh, kom fram á fætur öðrum til þess að fullvissa landslýðinn um það, að ekkert mundi hækka, bókstaflega engar vörur í landinu mundu hækka, enginn mundi finna fyrir þessum hundruðum milljóna króna, sem var lagt á í nýjum sköttum. Nú finnur landslýðurinn þetta sjálfur og veit, að þeir menn, sem þannig töluðu á sínum tíma, töluðu allir um hug sinn, voru beinlínis að segja þjóðinni ósatt og blekkja hana.
En þó að hér sé aðeins eitt litið dæmi, sem bent er á, þá er því miður í miklu stærri stíl orðin sú þróun í fjármálum okkar Íslendinga, að fjárlögin eru engin spegilmynd af fjármálastefnunni í þjóðfélaginu eða efnahagslífinu. Og núverandi hæstv. fjmrh, hefur manna röggsamlegast gengið fram í því, enda verið um langan aldur fjármálaráðherra, að búa þannig um fjárlögin, að þau eru í margra augum í raun og veru eitt ómerkilegasta plaggið, sem þingið hefur til meðferðar, og það er vegna þess, eins og ég sagði, að þau gefa á engan hátt til kynna, hvað það er, sem hæstv. ríkisstj. ætlast fyrir í fjármálum og efnahagsstarfsemi þjóðarinnar, Þetta er allt annað, en venja er í öðrum lýðræðisríkjum og nágrannalöndum okkar, þegar með mikilli eftirvæntingu er beðið eftir því, að fjárlög séu fram lögð, vegna þess að menn geti þá úr þeim lesið heildarstefnuna í efnahagspólitík viðkomandi ríkisstj. í hverju landi fyrir sig. Hér eru lögð fram fjárlög og sagt, að ekki sé hægt að segja neitt um efnahagsráðstafanir eða ráðstafanir ríkisstj, í efnahagsmálum, af því að það hafi ekki verið hægt að tala við stjórnarflokkana. Svo situr Alþingi á þriðja mánuð, og stjórnarflokkarnir eru viðstaddir, en allir vita, að við þá er ekkert talað um ráðstafanir í efnahagsmálum. Og svo þegar menn eru farnir að átta sig á því, að jólahelgin fer að nálgast, þá er bara að afgreiða fjárlögin á einni viku eða svo og án þess þó, þegar þau eru tekin til 2. umr., að nokkuð liggi fyrir um það í till. eða boðskap frá ríkisstj., hvað í raun og veru eigi að vera undirstöðuatriðið í efnahagskerfinu á komandi ári, auk heldur sem við vitum ekki um það í dag, hvernig sjálf fjárlögin, eins og þau eru, sem eru ekki nema brot af þessum stóra málaþætti, efnahagsmálunum, verða endanlega til lykta leidd, Það stendur í stjórnarskránni, að það eigi að leggja fjárlög fram í upphafi þings. Mér finnst, að hæstv. núverandi stjórnarflokkar ættu að breyta þessu ákvæði og leggja til, að fjárlögin verði lögð fram í lok Alþingis. Það er miklu meira í samræmi við það, sem raunverulega er verið að gera. Menn eru athafnalitlir og athafnalausir vikum og mánuðum saman. Loksins kemur einhver kippur í lokin, og þá á að fara að afgreiða þessi veigamiklu mál, fjármálin.
Það er margt meira um þetta atriði, sem hægt er að ræða, en ég skal ekki hafa fleiri orð um það nú, af því að það mun gefast til þess sérstakt tilefni við 2. umr. fjárlaganna, sem nú á von bráðar að fara að hefjast. En ég legg áherzlu á það, að í till. okkar hv. 9. landsk. þm. felst ekki það að fella niður gjaldið til þess að sinna því verkefni að reisa tollbúðirnar, heldur aðeins að það eins og annað, sem til þessara hluta á að fara, sé tekið af þeim áætluðu ríkisgjöldum og að þessi álagning sé óeðlileg, skapi hættulegt fordæmi og eigi að hverfa úr löggjöfinni.