24.05.1958
Efri deild: 106. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (882)

130. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram brtt. á þskj, 552 varðandi skattgreiðslu hjóna.

Ég gat þess við 1. umr. málsins, að ég gæti ekki fellt mig við þær till. um skattgreiðslu hjóna, sem Nd. hafði samþykkt. Samkv. þeim till. er hjónum mjög mismunað. Sérstaklega kemur þetta ranglátlega niður á húsmæðrum, sem vinna innan heimilanna. Hjá þeim er engin ívilnun veitt um skattgreiðslu, Þetta tel ég svo hróplegt ranglæti, að ekki sé samboðið Alþ. að afgreiða málið þannig.

Brtt. mín er millileið, og ég skoða hana sem varatill. við þá till., sem hv. minni hl. flytur og lýst var hér frá honum, þar sem hann leggur til helmingaskattgreiðslu allra hjóna. Ég tel mína till. varatill. við hana. Mín till. er, eins og ég gat um, millileið. Með henni eiga hlunnindin að ná til allra hjóna, en ná nú aðeins til þeirra húsmæðra, sem vinna utan heimilanna, og til húsmæðra í sveitum. Þó er það athyglisvert, að hlutur húsmæðra í sveitum er gerður lakari, en þeirra húsmæðra, sem vinna á „sjoppum“ hér í Reykjavík og annars staðar í kaupstöðum. Þetta finnst mér dálítið einkennilegt sjónarmið. Ég tala nú ekki um hitt, að svipta alveg þær húsmæður hlunnindum, sem vinna innan heimilanna, nytsamast starf allra húsmæðra.

Ég vona, að hv. þdm. styðji mína till. og leiðrétti þetta ranglæti, sem komið er inn í þetta frv. Ég vona, að stefnan verði ekki sú hér að taka öll börn út af heimilunum og ala þau upp á barnaheimilum, setja svo húsmæðurnar út í „sjoppurnar“ eða í því um líkt starf. Ég vona, að það verði ekki, heldur verði reynt að hlúa að starfsemi húsmæðranna, svo að þær geti fengið að vinna sitt nytsama verk í framtíðinni eins og hingað til.