20.02.1958
Efri deild: 54. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í B-deild Alþingistíðinda. (896)

93. mál, kostnaður við rekstur ríkisins

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Það var vegna fjarveru hv. 6. þm. Reykv. (GTh), að ég mætti á einum fundi fjhn. þessarar hv. d., þar sem þetta frv., sem hér er nú til umr., var tekið fyrir í nefndinni. N. var búin að ræða um frv. á öðrum fundi, eins og hv. frsm. skýrði frá áðan, og ég geri ráð fyrir því, að þar hafi frv. verið tekið til meðferðar og lesið grein fyrir grein og athugað, en fullnaðarákvörðun n. var tekin á þeim fundi, sem ég mætti á. Ég hafði þess vegna ekki aðstöðu til þess að koma þá með á fundinum ákveðnar till. til breyt. á frv., sem ég hafði þó þá strax nokkurn hug á, en skrifaði undir nál. með fyrirvara.

Það vær í nokkur ástæða til að fara um þetta frv. nokkrum orðum, en ég mun nú ekki gera það að neinu ráði.

Eins og hv. frsm. tók fram, er hv. þdm. kunnugt efni frv. Bæði er það, að hæstv. fjmrh, fylgdi því úr hlaði hér með ræðu og skýrði það og tilgang þess, og einnig má benda á, að það, sem þetta frv, fjallar um, er ekki nýtt, eins og hv. frsm. kom inn á, þar sem hann minntist á þau tvö frv., sem flutt hafa verið hér áður á hv. Alþ. um að segja má sama efni, þ.e., að einhver stofnun yrði sett á fót, annaðhvort með einum manni eða fleiri, eins og nú er gert ráð fyrir, til þess að hafa eftirlit með ríkisrekstrinum og fjölgun ríkisstofnana o.s.frv.

En þetta frv., sem hér liggur nú fyrir, virðist mér vera nokkuð laust í reipum, og gæti verið, að ef það væri á annað borð tekið sterkum tökum að koma slíku eftirliti á sem hér er rætt um, þá gæti það verið á breiðari grundvelli, en hér er gert ráð fyrir. Eftir þessu frv. er aðeins gert ráð fyrir því, að þessir 3 menn, sem þarna eru kosnir til þessara starfa, þ.e. ráðuneytisstjórinn í fjmrn., einn maður tilnefndur af fjvn. Alþ. og einn maður tilnefndur af ríkisstj. í heild, hafi þetta starf með höndum, þ.e. að fylgjast með ríkisrekstrinum og sjá um, að ekki sé fjölgað starfsfólki við ríkisstofnanir eða nýjar ríkisstofnanir settar á stofn, nema þeir hafi áður um það fjallað og sagt álit sitt um það.

Nú er það svo, að þó að þessir menn álíti, að fjölgun starfsmanna í einhverri deild stjórnarráðsins, sem farið er fram á af viðkomandi ráðh., sé óþarfi, þá geta þeir aðeins sagt við viðkomandi ráðherra: Við álítum, að þetta eigi ekki að gera, — En ef ráðherrann er á öðru máli, getur hann samkv. ákvæði 4. gr. frv. gert það, hvað sem þessir menn leggja til. Þarna er náttúrlega eitt höfuðatriði í þessari löggjöf, sem getur verið mjög athugandi, hvort menn, við skulum hugsa okkur t.d. í þessu tilfelli 3 menn, eigi að hafa aðeins tillögurétt í þessu og ekki meira, allt valdið sé í höndum ráðherra, eða þá hvort þeir eigi að hafa vald til þess að skera úr um málið. Ég skal nú ekki leggja fullan dóm á þetta atriði, en þetta er vissulega atriði, sem vert er að taka til athugunar í sambandi við svona mál. Og eitt er enn í þessu, að ef t.d. þetta frv. verður að lögum, og ég tala nú ekki um, ef brtt, mín yrði samþ., sem ég álít að væri bót á frv., að fjvn. skipaði tvo menn í þetta, — og ef þetta yrði að lögum, þá hefði ég álitið vera rétt áður, að taka það til athugunar hreinlega, hvort þessir menn ættu ekki að hafa eftirlit með ekki aðeins ríkisstofnunum, vinnubrögðum þar og öðru slíku í skrifstofum ríkisins, heldur hreinlega með fjármálastjórninni.

Við vitum það ósköp vel, að undanfarin ár hafa greiðslur hjá ríkinu farið stórkostlega og ískyggilega fram úr áætlun. Maður þarf ekki annað, en líta á ríkisreikninginn frá 1956, sem nú er nýskeð búið að útbýta til hv. þm., til þess að reka augun í þetta. Reikningurinn sýnir nefnilega, að umframgreiðslurnar nema á mörgum liðum reikningsins milljónum, og þó að við sjáum reikninginn og yfirförum hann, þá höfum við ekki hugmynd um, í hverju þessar umframgreiðslur liggja og hvernig á þeim stendur, en síðar fáum við, ef til vill að vita það, þegar aths. yfirskoðunarmanna landsreikninganna koma. Þetta frv, gerir alls ekki ráð fyrir því, að þessi nefnd hafi þetta starf á hendi, en það hefði mér líka fundizt geta verið athugandi í þessu sambandi. Þó að þetta sé lítið frv., þá er þetta mjög mikilsvert mál, og eftir því sem ég bezt veit, þá er svipuð tilhögun komin á, á Norðurlöndunum eða eitthvað í þá átt, sem hér er að stefnt. Og ég man ekki betur, en að í frv. því, sem þáv. fjmrh., Jóhann Þ. Jósefsson, bar fram,ég hygg 1948, — hafi þetta einmitt komið fram í umr. og gott ef það kom ekki fram í grg., en ég man nú ekki, hvort getið er um það í grg., sem fylgir þessu frv., og kann það að vera. En þetta hefði mér fundizt geta verið allt til athugunar, þegar slíkt frv. sem þetta er sett á stað. Þar sem þessir menn hafa aðeins tillögurétt í málum þeim, er þeir koma til að fjalla um, þá finnst mér vera nokkuð vafasamt, að þetta yrði sterk framkvæmd slíku nauðsynjamáli sem hér er um að ræða.

Ég skal þá ekki fara fleiri orðum um frv. í heild, en aðeins víkja að brtt. minni, sem ég ber fram.

Ég hef leyft mér að bera fram brtt., sem er á þskj. 247, við 3. gr. frv, En sú gr. frv. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ráðuneytisstjórinn í fjmrn., einn maður tilnefndur af fjvn. Alþingis til eins árs í senn og einn maður tilnefndur af ríkisstj. í heild til jafnlangs tíma skulu gera tillögur um hagfelldari vinnubrögð í ríkisstofnunum til að spara mannahald og annan rekstrarkostnað.“

Síðan er sagt, að sömu aðilar skuli tilnefna varamenn, nema varamann fyrir ráðuneytisstjórann tilnefnir fjmrh.

Ég held, að fjvn. ætti að skipa þarna tvo menn, en ekki ríkisstj, í heild annan manninn og fjvn. annan. Fjvn. fjallar á hverju ári um allan fjárhag ríkisins. Í þeirri nefnd er lagður grundvöllurinn, sem ríkisstj. á að fara eftir á viðkomandi fjárhagsári. Þeir menn, sem þar starfa, eru því þaulkunnugir þessum málum öllum, þ.e. fjármálum ríkisins, og mér hefur oft dottið í hug, að það væri ekki nein fjarstæða, að Alþ. léti fjvn. ekki hætta störfum, um leið og þingi er slitið eða hún er búin að afgreiða fjárlög, heldur að hún héldi áfram störfum á einhvern hátt og fylgdist með því, hvernig fjárlögunum yfirleitt er framfylgt, og gætti þess, að ekki sé farið út fyrir þann ramma, sem lögfestur er með fjárlögum.

Þetta, að fjvn. fengi aðstöðu til þess að tilnefna tvo menn í þetta starf, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., er nokkuð í þessa átt. Þeir kæmu fram sem fulltrúar fjvn. og héldu sem slíkir áfram að fylgjast með rekstri ríkisins og fjármálum þess og framkvæmd fjárhagsmálanna á fjárhagsárinu. Þó að þarna sé aðeins um ráðgefandi nefnd að ræða, sem hefur ekki nema tillögurétt, er réttara, að fjvn. tilnefni tvo mennina, en ekki ríkisstj. í heild annan manninn. Það má vel vera, að viðkomandi sex ráðherrar komi sér saman um tilnefningu manns í þetta embætti. En vel gætu komið ólík sjónarmið um val í slíka stöðu og reipdráttur. Meira að segja gæti hugsazt, að um bitling yrði að ræða. Ég skal náttúrlega ekki neitt fullyrða um það atriði, en burt séð frá því, þá álít ég vera miklu réttara, að fjvn. tilnefni þarna tvo menn, og þess vegna hef ég flutt þá brtt., sem hér er á þskj. 247, og ef hún yrði samþ., mundi 3. gr. hljóða svo:

„Ráðuneytisstjórinn í fjmrn. og tveir menn tilnefndir af fjvn. Alþingis til eins árs í senn skulu gera tillögur um hagfelldari vinnubrögð í ríkisstofnunum til að spara mannahald og annan rekstrarkostnað.

Varamann fyrir ráðuneytisstjórann í fjmrn. tilnefnir fjmrh., en fjvn. fyrir sína fulltrúa.“ M.ö.o.: breytingin er engin önnur en þessi, að fjvn. tilnefnir báða mennina í staðinn fyrir annan.

Ég sé ekki, að vald ráðherra sé neitt rýrt, þótt brtt, mín verði samþykkt, vegna þess að trúnaðarmennirnir hafa aðeins tillögurétt, eins og ég hef minnzt á, og viðkomandi ráðh. geta hagað sér alveg eftir því, sem þeim sýnist, þrátt fyrir till. þessara manna.

Ég held, að ég hafi þá ekki þessi orð mín fleiri. Ég þykist hafa bent á, að það er full ástæða til þess, að þessi brtt. er komin fram. Ég geri ekki svo mikið úr því, sem kom fram frá hv. þm. V-Sk. og hv. frsm. drap á núna, að brtt. mín væri til þess, að minni hl. fjvn. fengi aðstöðu til að tilnefna einn mann. Ég álít, að aðalatriðið sé, að fjvn, í heild fái þarna aðstöðu til þess að fylgjast með fjárreiðum ríkisins og hafa eftirlit með því, að farið sé eftir gildandi fjárl. Minni hl. er þessi í dag og hinn á morgun, og ég vil ekki binda þetta mál við núverandi ástand, heldur gera tilraun til, að frv. þetta komi að gagni, með því að fjvn. á hverjum tíma hafi þennan rétt, sem í brtt. minni felst.