20.02.1958
Efri deild: 54. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (897)
93. mál, kostnaður við rekstur ríkisins
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Af óviðráðanlegum ástæðum hef ég orðið að vera fjarri þingi vegna veikinda núna undanfarið og því ekki haft tækifæri til þess að fylgjast með þessu máli í n., eins og annars hefði átt að vera, ef ég hefði verið hér starfandi. Mér er það fagnaðarefni, að frv. til laga um ráðstafanir til að draga úr kostnaði við rekstur ríkisins er lagt hér fram, og ég hygg, að ég sé ekki einn um það, heldur mundu allir gjaldþegnar þessarar þjóðar vera sammála um það, að tekið væri eitthvað höndunum til þess að draga úr þeim ógnarkostnaði, sem er orðinn við rekstur ríkisins. Annars á það kannske ekki við, við þessa umr. að tala almennt um málið, þetta er 2. umr., eins og vitað er, og mínar aths. geta vel beðið til 3. umr., ef því er að skipta.
Mér fyrir mitt leyti kemur þetta nú dálítið kynlega fyrir sjónir, af því að ég hef nokkra reynslu af tilraunum í þessa átt á öðru árabili og í öðru ráðuneyti, en nú stendur að stjórn landsins, og mér verður, — ja, mér liggur við að segja og segja það opinberlega, sem stundum er sagt í gamni í rökræðum hér: „Gaman er að börnunum, þegar þau fara að sjá.“ Og það á ekki hvað sízt við hvað þetta mál snertir og þann hv. flokk, sem stendur að hæstv. fjmrh. Það hefur oft verið talað hér, þó ekki alvarlega, nema venjulega einu sinni á ári, um sívaxandi kostnað á ríkisrekstrinum og flestum þótt hann fara of hraðvaxandi, og svörin hafa venjulega verið hjá hæstv. fjmrh. misjafnlega hortug, en alltaf eitthvað hortug til þeirra, sem hafa leyft sér að gagnrýna þennan sívaxandi kostnað: Nú, hvað á að spara, hvað á að spara? Vilja menn taka hinn liðinn og höggva af honum? — Þetta hefur verið venjulegt svar hæstv. ráðh., sem nú leggur hér fram þetta frv., svo veigamikið sem það er eða hitt þó heldur. En það getur verið, að það sé gott að flagga því framan í þjóðina um sérstakar ráðstafanir til að draga úr eyðslunni og auka sparnaðinn.
Hv. frsm. n. fór nokkrum hóflegum og eins og vant var stillilegum orðum um þetta mál og var eitthvað að tala um það, að menn hefðu, bæði minni hl. og meiri hl. og allir hv. þm., fullt tækifæri til að koma að sínum aths. í sambandi við ríkisreikning, skildist mér, eða aths. ríkisreikningsendurskoðenda. Er það rétt og sjálfsagt bæði rétt athugað hjá hv. frsm. og ástæða til að vera ánægður yfir því, á meðan ekki er svo langt komið, að það sé bundið fyrir munn manna um aths. við gerðir ráðamanna ríkisins.
Hins vegar fannst mér ástæður hv. frsm. fyrir till. meiri hl., sem ekki eru nú mikið rökstuddar, frekar en frv. sjálft, vera heldur veigalitlar og fram bornar í hógværum anda af undirdánugum þénustumanni stjórnarinnar.
Ég held, að aths. hv. minni hl. í þessu máli eigi við sterk rök að styðjast, þar sem hann hallast að því, að tillögurétturinn og íhlutunarrétturinn, svo langt sem hann nær, sé sérstaklega í höndum bæði ráðuneytisstjóra, eins og sjálfsagt er, og í höndum meiri hl. fjvn., því að fjvn. er, eins og hann tók fram, sú n. innan þingsins og sá hópur innan þingsins, sem hefur beztar aðstæður til þess að mynda sér skoðanir á útgjöldunum, hvort sem honum þykja þau meiri eða minni, miklu frekar, en einstakir þm., og mín spá er það, að frvgr. sú 3., þar sem gert er ráð fyrir einum manni í þessa eftirlitsnefnd, kosnum af ríkisstj. eða skipuðum af ríkisstj. í heild, sé að því leyti til óholl, að þar er ekki gert frekar ráð fyrir því, að sá hinn sami hafi neitt til brunns að bera, — hann á ekki að vera ráðuneytismaður eða neitt því um líkt, hann á að vera algengur þm., eins og ég og allir hinir, — hún hafi það til brunns að bera, að hún gangi beint fram hjá því, að viðkomandi maður hafi nokkuð til brunns að bera til að starfa í slíkri nefnd, og þá yrði sennilega þessi maður ríkisstj. einn af þessum bitlingamönnum, sem úir og grúir af og alltaf er nóg af hjá öllum ríkisstj. og ekki sízt hjá þessari hæstv. ríkisstj., — bitlingamönnum, sem einhverra hluta vegna af pólitískum ástæðum fá sig setta í þetta af eigingjörnum ástæðum.
Um fjárveitinganefndarmennina gildir, eins og hv. frsm. minni hl. — ég leyfi mér að kalla það svo — tók réttilega fram, þeir eru, fjvn.-mennirnir — for better or for worse — eins og þar stendur, einu mennirnir innan þingsins, utan hæstv. fjmrh., sem vegna starfa síns og æfingar, eru sérstaklega hlutgengir til þess einmitt að fjalla um þessi mál, miklu meira, en við hinir erum, og þess vegna finnst mér það, burt séð frá því, hver stjórnar eða hver hefur meiri hl. í þetta og þetta sinn, að það sé þessi n., fjvn., sem á hverjum tíma leggi fram meginásinn í þá byggingu, sem hér er um að ræða.
Annars náttúrlega er hæstv. ráðh. ekki bundinn við neitt í þessu og á kannske ekki að vera, því að hann getur eftir ákvæðum frv. gengið á móti öllum þessum ráðgjöfum, bæði ráðuneytisstjóra og hinum tveimur eftirlitsmönnum, sem með honum eiga að starfa. Hann getur gert það með köldu blóði, og það kostar hann enga áreynslu aðra, en þá að skrifa fjvn. grg., og það mun sennilega enginn hæstv. fjmrh., hvorki núverandi né tilkomandi, vera í neinum vandræðum með.
Af þessum ástæðum finnst mér, að það væri skynsamlegt af hv. d, að fallast á till. hv. 2. þm. Árn, í þessu máli. Hún miðar ábyggilega í rétta átt málefnalega skoðað. Alveg laust við alla stundarhagsmuni og alla pólitík, þá miðar hún málefnalega skoðað að mínum dómi í rétta átt.
Ég mun að þessu sögðu ekki þreyta hv. d. á frekari aths. um þetta frv. að þessu sinni af þingskapalegum ástæðum, en við 3. umr. málsins er tækifæri bæði fyrir mig og aðra að koma lengra inn á mörg atriði snertandi þetta mál og snertandi forsögu þess á þeim þingum, sem undanfarið hafa verið haldin.